Tíminn Sunnudagsblað - 28.05.1967, Síða 13

Tíminn Sunnudagsblað - 28.05.1967, Síða 13
► Djúp tvö hreiður, og komust fimm ungar til flugs. Fyrra sumarið var einn ungi í hvoru hreiðri, en hið síðara voru tveir í öðru og einn í hinu. Er þetta mesta fjölgun, sem þarna hefur orðið lengi. — Þú hefur setið ótal stundir yfir arnarhreiðrum. — Já, margar eru þær orðnar ferðirnar þangað vestur, en loka- ferðin til kvikmyndunar mun ef- iaust þykja sögulegust. Oftsinnis hafði ég farið til þess að reyna að ná myndum af móð- urinni, þegar hún matar ungann. Hún beitir sérkennilegri aðferð, heldur bráðinni með klónum, ríf- ur úr henni kjöttægjur með gogg- inum og stingur upp í ungann. Þetta er einstæð athöfn, og ég var staðráðinn í að fá mynd af slíkri máltíð. Ár eftir ár fór ég á stap- ann og lá stundum sólarhring eða jafnvel lengur, en ekkert dugði. Ég fékk móðurina til þess að koma í hreiðrið, en ekki vildi hún mata ungann. Svo var það loks árið nítján hundruð sextiu og þrjú, að ég ein- set mér að reyna þetta til þrautar. Ég hafði að vísu ekki alls kostar nægan tíma, skyldi sitja fund á til- teknum degi, en hafði þó viku til umráða. Ég bjó mér bæli 1 tuttugu og fimm metra fjarlægð frá hreiðr- inu. Tjald hafði ég látið standa þar í nokkra daga, tróð nú inn í það vindsæng og poka og kom mér vel fyrir. Yfir mér hafði ég tvær kvik- myndatökuvélar á fæti og þurfti ekki annað en að rétta upp hend- ina, ef ég vildi setja þær í gang. Konan mín var í tjaldi nokkru neð- ar í fjallinu og færði mér mat einu sinni á dag. Örninn var styggur. Þegar við fórum í tjaldið, bárum við mann- líkingu með okkur, svefnpoka, bundinn á prik, og átti að líta svo út, sem við værum þrjú á ferli. Talið er, að fuglar kunni ekki að telja, greini vart sundur tvo og þrjá, og vildi ég reyna að villa um fyrir erninum með því að láta kon- una mína fara með svefnpokann niður aftur. Þetta hafði engin áhrif. Fugiinn virtist skynja eitthvað óvenjulegt í námunda vúð hreiðrið. Hann flögraði yfir stapanum, gætti að unganum, en settist aldrei nið- ur, Unginn var stálpaður, og hon- i um engin hætta búin, ef hann hafði eitthvað matarkyns að narta í. Að sólarhring liðnum hendir sér stætt atvik. Snemma morguns heyri ég, að örninn flýgur yfir. Ég gægist út úr tjaldinu, og þó dimmt sé í lofti, kem ég auga á móðurina, þar sem hún rennir sér yfir stapann í fimm til sjö metra hæð. Um leið og hún þýtur yfir, fleygir hún grásleppu úr klónni, og fiskurinn felíur í hreiðurskál- ina rétt við hliðina á unganum. Þetta verður á broti úr sekúndu. Ég sé, þegar losnar úr klónni, grá- sleppan liggur í hreiðrinu, og fugl- inn er horfinn. Þar hefur unginn nóg að éta næsta sólarhring, svo enn má ég bíða. Að morgni daginn eftir hef ég legið ít jaldinu í sextíu og tvo klukkutíma. Nú er hið fegursta , veður, sólskin og bjartviðri. Ég í verð þess skyndilega var, að fugl- < TlMlNN - SUNNUDAGSBLAtf 469

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.