Tíminn Sunnudagsblað - 28.05.1967, Síða 14

Tíminn Sunnudagsblað - 28.05.1967, Síða 14
inn flýgur að hreiðrinu með bráð í klónni, sezf niðurr skimar í kring- um sig, og fer svo að mata ung- ann. Ég hef myndavélina tilbúna, og á örfáum augnablikum hendir allt, sem ég hef beðið eftir í mörg ár. í fyrstu hikaði móðirin. Hún virtist heyra í vélinni, skimaði og hvimaði, en sneri sér síðan að ung- anum og reif ofan í hann matinn. Sem betur fer hafði ég tvær mynda vélar í takinu, aðra með fimmtán- földum aðdrætti, og tók hún nær- myndir af hreiðrinu, en hin náði yfir stærra svæði. Eftir stundar- korn flaug móðirin í brott frá stap anum, en kom aftur að fimm mín- útum liðnum og hélt áfram mál- tíðinni rólegri en áður. Þá náði ég viðbótarmyndum. Fuglinn fór svo enn á burt, en ég taldi rétt að doka við i sex tíma, ef ske kynni, að hann kæmi aftur að hreiðrinu. En ég sá hann ekki oftar um dag- inn. Það er nánast kraftaverk, að ég skyldi fá þessar myndir, en þær eru aðaluppistaða lokaþáttarins í „Arnarstöpum". — Ég hef fyrir satt, Magnús, að þú sért manna fróðastur um lifn- aðarhætti arnarins, og því langar mig til að spyrja þig spjörunum úr um þetta efni. Og þá vildi ég fyrst vita ögn meira um hreiður- stæði arnarins. — Margir halda, að örninn velji sér hreiðurstæði í hömrum og hamrabeltum, en svo er ekki. Örn- inn er stórvaxinn fugl, vængjabaf- ið er um það bil tveir metrar, og því verður hann að gæta þess, að hjá hreiðurstæðinu sé gott aðflug í vindi. Hann er svo þungur, að hann getur einungis lent á móti vindáttinni. Sé arnarhreiður í björg um, er það í rúmgóðum skúta og silla fram undan, svo örninn getur komið báðum megin fram með berginu. En það er sjaldgæft, að arnarhreiður séu í björgum. Hitt er tíðara, að hreiðrin séu á stöp- um og stórum snösum, sem skaga fram úr fjallinu. Yfirleitt er tor- velt að komast í námunda við arn- arhreiður, en stundum getur að finna hreiður á kollóttum hrauk- um, þar sem ekkert hindrar að- göngu. — Hvenær verpir örninn? — Varptíminn er í apríl, og ungar koma úr eggjum eftir sex til sjö vikur. Örninn er mjög nat- inn að liggja á, og hann fer ekki frá hreiðrinu nema til þess að leita sér ætis. í apríl er hart í ári og lítið um matarföng úti í nátt- úrunni, og því legst örninn aðal- lega á hræ. Á þessum tíma er ern- inum mikil hætta búin, þar eð hann tekur ^j'rsta hræ, sem hann finnur, og sé það tálbeita fyrir svartbakinn, er ekki að sökum að spyrja. Þegar líða tekur á apríl og kem- ur fram í maí, lifnar yfir öllu og vænkast hagur arnarins. Ungarnir skríða úr eggjum um mánaðamót- in maí-júní, og þá hefur örninn nóg að bíta og brenna. — Verpir örninn yfirleitt tveim- ur eggjum? — Oftast nær eru eggin tvö, en fremur sjaldgæft, að tveir ungar komist til flugs.úr einu breiðri. Þó mun það algengara nú en áð- ur, og tel ég það batnandi tíðar- fari að þakka. — Hvers vegna er íátítt, að tveir ungar komi úr sama hreiðrinu? — Jú, þegar örninn verpir i apríl, eru iðulega illviðri um norð- vesturhluta landsins. Hafi örninn verpt fyrra egginu og skelli á slæmt veður, dregur fuglinn að verpa hinu síðara, unz lægir. Sök- um þessa skríða ungarnir misjafn- lega fljótt úr eggjum, líður jafn- vel vika á milli, og hinn eldri verð- ur að sjálfsögðu stærri og sterk- ari en hinn yngri. Náttúran er óvægin, þegar slíkt hendir. Sá, er má sín meira, heldur velli, en hinn veikburða bíður lægri hlut, verður afskiptur og drepst. Ég hef orðið þess var, að móðirin sinnir aðeins eldri unganum, en lætur yngra skinnið afskiptalaust. Stærri ung- inn er duglegri að grípa fæðuna úr goggi móðurinnar, en hinn minni fær ekkert að éta nema hann geti fundið sér eitthvað til. Jafnvel eru dæmi þess, að stálp- aður ungi hreki hinn yngra úr hreiðrinu, og er hann þá dauðans matur, þar eð foreldrarnir líta ekki við að bjarga honum. Við hreiður hef ég fundið beinagrind af unga, og virtist mér sem hann hefði farizt af sulti. Náttúran læt- ur enga miskunn i té. Hrökklist ungi úr hreiðrinu, tærist hann smám saman upp að foreldrum sínum áhorfandi. — Ungarnir eru veikburða fyrst í stað? — Já, eins og gefur að skilja. Arnaregg eru heldur minni en æð- aregg og litlu stærri en stærstn hænuegg, og fyrstu vikurnar eru ungarnir í dúnfiðri og geta litla hjálp sér veitt. — Er móðirin þáekki umhyggju söm? — Hún er iðin að bera unganum æti. Móðurástin virðist einkum helguð munni og maga, en hjart- að kemur sáralítið við sögu. Karl- fuglinn er ekki síður duglegur við veiðina, en hann ber ekki bráðina í hreiðrið sjálft heldur leggur hana frá sér á útvöldum stað í námunda við hreiðrið. Þar fá hjónin sér ef til vill bita, og síð- an fer móðirin með afganginn til unganna. Þau hafa með sér verka- skiptingu líkt og fálkahjón. — Hvert er æti arnarins? — Örninn er fremur hræfugi en veiðifugl og tiltölulega fátítt, að hann ráðist á stórar lifandi skepn- ur eins og til dæmis lömb. Sjái hann aftur á móti hræ af lambi, er hann óðar kominn á vettvang. Við hreiður hans getur oft að líta bein úr lömbum og fullorðnu sauð- fé, en þau eru sjaldnast heilleg, og virðast því rifin úr hræjum. — Heyrt hef ég, að örninn ræni lömbum og bændum þyki hann enginn aufúsugestur um sauöburð- inn. — Ég tel rangt að kenna arnar- stofninum um lambadráp og kalla þessa fáu fugla okkar skað- ræðisgripi. Hins vegar þykir mér trúlegt, að einstaka fugl komist upp á lagið með að hremma lömb. Við því er ekkert að segja. Náttúr- an hagar því svo til — þannig er um refinn líka. En hvað snertir æti arnariiis, pá lifir hann á hræjum yfir vetrar- mánuðina. Þegar ungarnir eru skriðnir úr eggjum,sækir örninn mjög í rauðmaga. Grásleppan íigg- ur í smálónum, og á fjöru flögrar örninn yfir sjávarmálinu, skimar og hvimar og hirðir rauðmaga úr pollunum. Útfallið er veiðit.ími arn- arins. Ég hef séð til hans við Breiðafjörð og eins hér í Hval- firði. Á sumrin lifir örninn eink- um á laxi og silungi, lunda og öðr- um sjófuglum. — Hvernig hremmir örninn bráðina? — Þegar örninn veiðir fugl, rennir hann sér að varpinu og grípur fuglinn í klærnar, um !eið og hann flýgur upp. Svo mun hann einnig veiða rauðmaga, skýzt nið- ur að yfirborði sjávar og læsir klónum í fiskinn. Þessari aðferð 470 T f M I N N — SUNNUDAGSBLAÐ

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.