Tíminn Sunnudagsblað - 28.05.1967, Blaðsíða 16

Tíminn Sunnudagsblað - 28.05.1967, Blaðsíða 16
 Þegar Magnús tók þessa mynd af unganum, flögraði móSlrin yfir stapanum, og er unginn aS gagga til hennar. Ungfuglar verpa ekki á hverju sumri. Þriðja eða fjórða hvert ár virðast þeir taka sér hvíld í eitt ár eða svo. Fyrir því munu vera líffræðilegar orsakir. Arnarhjón in í Hvalfirði voru að mínu áliti mjög fullorðin, og í fjölda ára sinntu þau ekki hreiðri, en þau héldu saman eigi að síður. Þó munu þau hafa átt hreiður ár- ið 1956 og veit ég með vissu, að þá hafði ekki fundizt arnarhreiður í Hvalfirði í fjögur eða fimm ár. — Erninum hefur fækkað, síð- an þú fórst að fylgjast með hátt- um hans? — Ekki þori ég að fara með tölur í þessu efni, en á því er enginn efi, að erninum hefur fækk að gífurlega frá síðustu aldamót- um. Þá voru ernir hér á Reykja- nesi, í Ölfusi, í Hvalfirði, í Mos- fellssveit, í Akrafjalli, um allar Mýrar og víðar. Nú er vitað, að síðustu hjónin í Ölfusi féllu skömmu eftir 1930. Fuglarnir í Hvalfirði áttu hreiður árið 1956 eins og fyrr getur, en samsumars féllu báðir. Annar rakst á bifreið, og hinn mun hafa verið skotinn af einhverjum vandræðamönnum. Nú má einstaka sinnum sjá erni á flögri í Hvalfirði, en það eru flökkufuglar frá Breiðafirði, ung- fuglar, sem leita sér ætis. Þeir taka sér ekki bólfestu! — Verpa ernir einungis í heima- högum? — Já. Ungfuglar flakka um landið, unz kynþroska er náð, í fimm ár eða um það bil, en þá leita þeir aftur á bernskuslóðir. — Þeir eru fimm ár að ná kyn- þroska? — Já, fimm eða sex ár, og því er eðlilegt, að fjölgunin sé ekki mikil. Margt getur orðið fuglinutn að bana á þessum fimm árum. — Hefur fækkunar orðið vart á síðustu árum? — Útkoma talningar segir svo, að örnum fækki hvorki né fjölgi á íslandi, en þó fréttum við árlega af þremur eða fjórúrn fuglum sem farizt hafa af eitri, og það gefur auga leið, að ekki finnst sér- hver skepna, sem deyr af þessum orsökum. Án éfá drepast 'fleiri en við vitum skil á. k’ uridaníörn- um árum hafa verið táldir þeir ungar, sem komast árlega til flugs, og þegar bezt lætur, hefur útkom- an verið átta eða níu fuglar, en stundum hafa þeir ekki verið fleiri en þrír. Segjum sem svo, að til jafnaðar komist sex fuglar til flugs á ári og að minnsta kosti fjórir drepist af eitrun. Útkoman verður neikvæð. Það hlýtur að ganga á stofninn, og ég held, að örnin sé smám saman að hverfa. Að minnsta kosti þarf að taka betur til hendi en gert hefur verið hingað til, ef takast á að vernda stofninn. Það eru síðustu forvöð. — Hvernig má það verða? — Þetta er sennilega nokkuð fjölþætt mál, en ég tel, að tegund- inni verði einungis haldið við með því að vernda hana. Þó sami arn- arstofn sé í Noregi og á Græn- landi, er gagnslaust að flytja hing- að fugla. Örninn verpir ekki nema í heimahögum eins og kornið hef- ur fram hér áður í rabbinu. Eina ráðið er að verja og vernda þá fugla, sem enn eru á lífi hér á landi. Banna eitrun og gæta þess, að ekki séu framin launvíg á ern- inum. Mönnum hefur komið til hugar að hjálpa erninum yfir erf- iðasta hjallann í apríl með því að bera út kindaskrokka. Það hjálpar eitthvað, en það er engin endan- leg lausn. — Telur þú ekki ólíklegt, að þeir bændur, sem hafa æðarvarp, fáist til að stuðla að fjölgun arn- arins? 472 T í M 1 N N — SUNNUDAGSBLAÐ

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.