Tíminn Sunnudagsblað - 28.05.1967, Blaðsíða 18

Tíminn Sunnudagsblað - 28.05.1967, Blaðsíða 18
myrkjuskán, sem víða er notuð sem eldsneyti á Krím, þar sem trjá gróður er lítill, verið hlaðið í hrauk. Við rákumst á húsfreyju þarna úti. Þegar henni hafði loks skilizt, hvers við kröfðumst, opnaði hún forstofudyrnar, hvarf og fór að taka til í herbergi, sem hún ætlaði okkur. Þetta var stórt herbergi, og þar inni var borð, stólar og tvö járnrúm, full af sængum og kodd um. Á þilinu hékk spegill, og þar var lampi, helgimyndir og gamlar ljósmyndir. Við smeygðum okkur úr einkennisfrökkunum og buxun- um og köstuðum okkur upp í rúm in. Liðsforinginn vakti mig nokkuð hranalega. — Ég er svangur, sagði hann. Ég brölti fram úr og leysti pott- ana af bakpokanum. — Þú sást náttúrlega dúfurnar, sagði hann. — Jú — ég sá þær. — Við skulum segja fjórar — þrjár handa mér, og þú færð eina. — Fjórár dúfur, liðsforingi — fjórar. — Já, fjórar, endurtók hann. Konan lá á hjánum við eldstóna, þegar ég kom út í garðinn, og —hafði sett járnpott á hióðir. Suð- an var komin upp, og í pottinum^ var eitthvað, sem mér virtist vera grænmeti. Ég renndi augum til hennar, sagði fáein orð og ætlaði að fá hana til að brosa. En hún brosti ekki. Stúlka kom út úr hús- inu í þessum svifum, dóttir henn- ar, og hét Tarsía. Hálfstálpaður drengur, Nikóla, elti hana. Hann var bróðir hennar. Þau störðu á mig opinmynnt. Konan sagði, að hún gæti látið okkur fá i sleif úr pottinum. — Ég þakka, sagði ég. En við viljum samt fá eitthvað betra. Okk- ur liðsforingjanum datt í hug að steikja fáeina fugla. Þau störðu öll á mig spyrjandi augum. Ég talaði rússnesku svo, að nægja mátti, en ég gat ekki komið fyrir mig, hvað dúfa var á máli Rússa. Og nú voru dúfurn- ar inni í skýli sínu, svo að ég gat ekki bent á þær. Þess vegna varð mér það fyrir að leika tilburði þeirra. Svo vel vildi til, að ég hafði iðkað þann leik að líkja eftir dýr- um, og margir höfðu haft gaman af þvi, tii dæmis hermenn f jóla- gildum og liðsforingarnir þegar þeir fengu mig í samkvæmi sín. Raunar voru það spendýr, sem ég líkti þá eftir — sauðkmd- ur, geitur og apar. Og það var auðveldara en líkja eft- ir dúfum. En þetta reyndi ég að minnsta kosti. Ég settist á hækjur mér, glennti út fingurna fyrir aft- an bak eins og þeir væru stél, hopp aði fram og aftur, belgdi út háls- inn og kurraði. Mæðginunum stökk ekki bros. En þau skildu mig og ráku jafn- skjótt upp angistaróp. Ég spurði: — Dirfizt þið að andmæla? Hafa ekki þýzkir hermenn komið hér á undan okkur og tekið það, sem þeim sýndist? Þið vitið kannski ekki, að það er stríð — stórstyrj- öld? i Tarsía mælti: — Taktu allt, sem við eigum — bara ef þið hlífið dúfunum. Við eigum ekki dúfurnar. Bróðir minn á þær — Ilja. Og hann er á víg- stöðvunum við Sevastópól. Mér féllst satt að segja hálfvegis hugur. En hvað gat ég sagt liðs- foringjanum? Ég velti vöngum. — Já, bróðir þinn á dúfurnar — láttu dúfurnar í friði. En liðsfor- inginn, manneskja? Skilurðu það ekki — liðsforinginn heimtar dúf- urnar, því að hann ætlar að éta þær. Ég vatt mér að hlöðudyrunum, sem stóðu opnar. Ég ætlaði að reisa stiga og klifra upp á þakið. Kon- an hvessti á mig augum. Svo skauzt hún fram hjá mér, tók sér stöðu við stigann og _ greip höndunum aftur fyrir sig. Ég reyndi að draga hana burt. En mér tókst það ekki — hún ríghélt sér. Mér stóð mest- ur geigur af augnaráði hennar. Nikóla skarst líka í leikinn. Hann þreif Ijá, sem lá á hlöðugólfinu. Ég gafst upp. Morguninn eftir komu ný fyrir- mæli. Það átti að grafa skotgrafir niðri á ströndinni. Liðsforinginn kom ekki heim fyrr en seint um kvöldið. Þá var hann dauðþreytt- ur. Ég hafði skotið tvær dúfur á öðru húsþaki í þorpinu og steikt þær. Heimadúfurnar flögruðu kringum mig á meðan ég var að því. Það var hvort tveggja í senn: Mér þótti orðið vænt um þessar dúfur, og mér var illa við þær. Eigandinn var maður I svipuðum sporum og ég. Hann var hewnað- ur i striði, langt í burtu. Móðir hans vakti yfir dúfum hans. Ég hefði átt bágt með að granda þeim, og það var eins og fuglaskrattarn- ir vissu þetta. Þetta voru frekar og aðsópsmiklar dúfur, sem flögruðu um hlöðin, spígsporandi fyrir fram an mig, kurruðu og snurfusuðu sig. Þær settust á grindurnar við trjágarðinn og tíndu korn úr lófa manns. Þær sveifluðu sér upp á húsþökin, en komu samstundis aft- ur, tylltu sér á skánarhraukinn og litu jafnvel niður í pottinn, þar sem ég var byrjaður að steikja hin ar dúfurnar. Sumar léku ýmsar fluglistir fyrir mig. Þetta voru ungar og fallegar dúfur — páfugla dúfur og tyrkneskar dúfur. Við höfðum hafzt við tíu daga í þessu húsi, en Nikóla var send- ur til Baksí einn morguninn. Hann átti að færa ættingjum þar græn- meti í poka. Þangað voru fjörutíu kílómetrar, og þetta var stór bær, þar sem hershöfðingi hafði aðset- ur og birgðastöðvum hafði verið komið upp. Við leyfðum Nikóla að sitja í vistavagni, er fór til Baksí. Hann kom aftur um kvöldið og hljóp eins og fætur toguðu inn í eldhúsið. í næstu andrá heyrð- ust ógurlegar hrinur. Konan kom að lítilli stundu liðinni inn í her- bergið okkar — í fyrsta skipti síð- an við bjuggumst þar um. Hún baðaði út höndunum, og orðin ruddust út úr henni. Mér skild- ist, að Nikóla hefði séð bróður sinn í Baksí. — Hann er fangi hjá Þjóðverj- um. Þeir hafa sett hann í fanga- búðir í Baksí — hérna rétt hjá. Liðsforinginn getur fengið hann lausan. Ég verð að fá að sjá hann, fá að faðma hann að mér. Ég skal gera allt, sem liðsforinginn biður mig um. Ég gef honum kartöflurn ar og hænsnin og geiturnar og mjölið ög rósaolíuna og teið, sem ég fékk frá Asserbædsjan. Og helgimyndirnar, sem ég hef falið og þýzku hermennirnir sækjast svo mikið eftir, og silkidúk, sem ég á, og gullmen og — og dúfurnar líka — dúfurnar hans. Ég þýddi orð konunnar á þýzku, og liðsforinginn sagði við mig: — Hvað gerir maður ekki, þeg- ar dúfur eru f boði. Og við kon- una sagði hann: Jæja, kerling, þú skalt fá strákfjandann heim. Á morgun er sunnudagur, og þá för- um við og sækjum hann. Já, við komum með hann hingað — hing- að heim, skilurðu. Og þú notar tímann vel og matreiðir dúfurnar 474 * T I M 1 N N — SUNNUDAGSBLAÐ

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.