Tíminn Sunnudagsblað - 28.05.1967, Blaðsíða 20

Tíminn Sunnudagsblað - 28.05.1967, Blaðsíða 20
SHIKIFUIKUKU Tilraun um atómskáldið Allen Ginsberg í upphafi skal á það bent, að höfundur þessa greinarkorns hef- ur aldrei komizt í persónuleg tengsl við skáldið Allen Ginsberg, — að staðreyndir eru teknar úr bandarískum betri-manna-blöð- um, og getur því sumt verið ýkt og logið, — að lýsingar á einka- lífi skáldsins eru óprenthæfar, — að greinin er ekki skrifuð handa dagfarsprúðum manneskjum. Shiki fu i ku ku fu shiki shiki soku ze ku ku soku ze shiki. Form er eigi frábrugðið tæmi, tæmi eigi frábrugðið formi. Form er tæoni, tæmi er form. Shiki fu i ku ku. .. Seint að kvöldi er Fólksvagni ekið um úthverfi háskólabæjar í Bandarikjunum. í vagninum sitja þrír kyndugir náungar, tveir í framsæti og einn í aftursæti. Bif- reiðarstjórinn hefur lokka að belt- isstað. Farþeginn á hlið honum ber gleraugu í svartri umgerð, en að öðru leyti hylur hann kófþykkt hárstrý, sem virðist hvorki hafa verið kembt né klippt síðan eig- andi þess náði fyrsta andardrætt- inum. Hann hallar sér aftur í sæt- ið og gólar á annarlegri tungu. Shiki fu i ku ku... Farþeginn í aftursæti horfii þögull á fólkið og húsin í kring. Hann er fölur og gelgjulegur og gæti í senn verið tíu ára og sextug ur. Þeir aka hratt, svo hvin í hjól- um, þegar bifreiðin þeytist fyrir horn. Shiki fu i ku ku. . . Hverjir eru þarna á ferð? Fólk- ið á gangstéttunum gónir með undrunarsvip, og karlmenn drepa á garðsláttuvélum, svo þeir heyri betur söngvælið. Er þetta Móse spámaður ásamt Jósúa Núnssyni og Aroni presti? Eru þetta ótínd- ir glæpamenn frá New York, koinn ir hingað til þess að myrða konur og selja eiturlyf? Eða eru þetta þrjú villidýr, sem gert hafa upp- reist móti ríkjandi siðalögmálum og fyrirlíta almennt velsæmi, hreinlæti og heilbrigt líf? Shiki fu i ku ku... Maðurinn, er spangólar á bak við gleraugun og skeggið, heitir Allen Ginsberg, og hann er fræg- asti hlussudólgur (beatnik) á norð- urhveli jarðar og þekktasta og jafnframt alræmdasta atómskáld Bandaríkja. Hann er kominn hing að til þess að lesa ljóð fyrir stú- denta háskólans. Þeir bíða hans ■með eftirvæntingu, því i augum þeirra er Allen Ginsberg sannorð- ur og kærleiksríkur fræðari um allt, er breytt gæti jörðinni úr steingerðu kjarnorkuhelvíti í himn eska paradís. Og Allen Ginsberg er margt fleira. Hann er ókrýndur konung- ur LSD-neytenda og forseti fé- lags áhugamanna um frjáls kyn- mök. Þegar Allen stundaði nám við menntaskóla í Kólúmbíu, var hann nefndur „Columbia College Criminal Genius“ eða „afburðamað ur í glæpsamlegu athæfi“, og fáir munu jafn tíðir gestir í húsakynn- um lögreglunnar. Hann er mjög fróður um austræn trúarbrögð, hefur tekið ótal launvígslur og dvalizt á fjórum eða fimin tilveru- stigum. Hann hefur ferðazt um meginhluta jarðkringlunnar og tekið sér margt fyrir hendur, ver- ið betlari, búddamunkur og bók- menntagagnrýnandi, og ýmist er hann hylltur og dáður eða níddur og fyrirlitinn. Hann hefur sent frá sér þrjár ljóðabækur: „Howl“ (Ýlf ur „Kaddish" (þ.e. Gyðingiegur sorgarslagur og „Reality Sand- wiches“ (Samlokur raunveruleik- ans), en bækur þessar nefna sum- ir salernispappír og nota þær ekki til annarra hluta, og aðrir telja skáldskap Ginsbergs opinberun mannkærleikans og boðskap al- heimsfriðar. Allen Ginsberg brosir góðlát- lega að dómum þjóðar sinnar. Hann vælir bara sína búddísku möntru í Fólksvagninum og slær hljómfallið á segulbandstæki, er geumir nokkur ljóð, ort uin dag- inn. Shiki fu i ku ku. .. Bifreiðarstjórinn er Pétur Orlov sky, „unnusti“ og einkavinur AIl- ens, „hinn dularfulli og fíngerði nj-.öur, swn ekur sjúkrabifreið“. Farþeginn í aftursætinu er bróðir Péturs, Júlíus. Sem barn truflaðist hann á geðsmunum og dvaldist fjórtán ár í húsagörðum ríkis- spítala, en Pétur og Allen tóku hann loks til sín, og nú situr hann í aftursætinu á Fólksvagnin- um, hvert sem farið er, og segir aldrei eitt aukatekið orð. Vinir hans kalla hann „Julie“ og stund- um „Buster Keaton“. Og áfram þýtur Fólksvagninn, og garðsláttuvéiunum er snúið í gang. Ljóðalestur í samkomusal há- skólans, og þröng er á þingi. All- en Ginsberg stendur í púltinu líkastur afrískum töframanni, klingir tíbezkum fingurbjörgum og syngur búddískar möntrur. Pét- ur leikur undir á lítið harmóníum. Möntrur eru búddísk heigiljóð, en Allen telur þær frábærar til þess að túlka tilfinningar blátt á- fram og milliliðalaust. Allir vel menntaðir og hrifnæmir lesendur hljóta að skynja þessa tilfinningu: Shiki fu i ku ku fu shiki shiki soku ze ku ku soku ze shiki. (Bara að Jónas hefði þekkt þetta bragar- form). Þegar söngnum er lokið, hefst Ijóðaflutningur Allens og stendur í tvær klukkustundir samfleytt. Allen þrumar og hvíslar, og að hálftíma liðnum hefur hann sagt allt, sem bannað er að segja í Bandaríkjum, lýst öllu, sem bann- að er að lýsa, fordæmt allt, sem njóta skal virðingar, og vakið for- boðnar hugsanir í hugum áheyr- enda sinna. Skáldinu er ekkert viðkvæmnismál. Hann segir frá einkalífi sínu og flytur persónu- legar játningar án þess að blikna eða blána. Hann lofsyngur mann- legt eðli, hvort sem það er heil- brigt. eða sjúkt, og fyrirlítur orða- tiltæki eins og „oft má satt kyrrt liggja“. Gróftyngdum mönnum þykir hann stundum ganga einum of langt í orða- og efnisvali, en stúdentarnir líta með lotningu á þennan undarlega spámann, sem ræðir um skuggahliðar mannlífs- ins eins og venjulegt fólk talar um veðrið. Öllum kemur hann í bobba. Eitt sinn var hann spurð- ur, hvers vegna hann hirti ekki um að klippa á sér hárið og snyrta skeggið. „Hárið á mér er bara þarna“, svaraði hann, „það er ekki fáni eða tákn um eitthvað, það er bara þarna“. 476 T í M I N N — SUNNUDAGSBLAÐ

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.