Tíminn Sunnudagsblað - 28.05.1967, Síða 22

Tíminn Sunnudagsblað - 28.05.1967, Síða 22
urinn klesstu bifreið sinni utan í símastaur og námu staðar á hvolfi rétt fyrir utan veginn. Báð- ir voru þeir ómeiddir, en 411en týndi gleraugunum og handritum sínum. Lögreglunni þótti lítill sómi að ferð félaganna og stakk Allen inn á geðveikrahæli. Átta mánuðum síðar var Allen aftur frjáls maður, og þótti hon- um nú tími til kominn að hefja reglubundið líferni. Fór hann að nota jakkaföt og hálsbindi, og um eitt skeið var hætta á, að hann fengi fasta atvinnu við dagblað. Fjölskylda Allens réð sér ekki fvrir gleði, en Allen harmaði hl.it sinn. Reglubundið líferni var hon- um alls ekki að skapi. Eirðarleysi og þunglyndi náðu tökum á hon- um, og árið 1955 leitaði hann til sálfræðings. ..Mig langar til þess að gefa skít i allt saman, vinnuna, fötin, há’s- bindið og ibúðina. Segja því að fara til andskotans og leigja mér hei’bergi með Pétri. Helga mig í- hugun og skáldskap, Blake og eiturlyfjum." „Farðu þá og gerðu þetta“, sagði sálfræðingurinn. „En hvað heldurðu að verði um mig, þegar ég eldist í skítugum nærfötum, leigi rakasælt kjallara herbergi og enginn skiptir sér af mér. Ég, — gráhærður og fátækur og þurrir brauðmolar falla úr greip minni á gólfið." „Blessaður vertu, hafði ekki a- hyggjur af því,“ svaraði sálfræð- -- -lyrinn og klappaði Allen á öxl- a. „Þú hefur persónutöfra, og fólki mun alltaf þykja vænt um þig“ Þá var það ákveðið. Allen gaf skít í allt saman, leigði herbergi með Pétri Orlovsky og fór að yrkja. Hann gaf út fyrstu ljóða- bókina, „Howl“, og varð skyndi- lega landsfrægur. Hlussudólgar dýrkuðu hann sem málsvara sinn, róttækir menntamenn töldu hann boðbera nýrrar stefnu í bandarísk- um bókmenntum, og fína fólkinu. þótti hann tilvalinn sem „happen- ing“ (þ.e. óvæntur og sérstæður gestkomandi í samkvæmum. Öll þessi hlutverk lék Allen af stakri prýði, einkanlega þó samkvæmis- hlutverkið. „Kúltúrsnobbar" buðu honum í ótal veizlur, og þar átti hann það til að fara úr fötum og spranga nakinn um stofur, ræða um skáldskap við karlmenn og um kynlíf við konur. Shiki fu i ku ku. . . Árin liðu, og loks þótti Allen nóg komið. Var hann ekki bara að sýnast. Gegndi hann sínu eina og rétta hlutverki. Vissulega trúði hann á algera alheimsnekt (total cosmic nakedness, en var honum nóg að striplast og hvekkja sið- prútt fólk. Allen átti í miklu hug- arstríði, og loks ákvað hann að ferðast til Austurlanda og leita huggunar í trúspeki. Hann hvarf frá Bandaríkium árið 1961. Sjaldan hefur nokkur maður ferðazt jafn mikið og Allen í þetta skipti. Hann fór til Perú og naut töfralyfsins ayahuasca ásamt nokkr um galdralæknum. Hann vann á kakóekrum í Guatemala. Hann fór til Tangier „og ældi ofan af hús- þökum“. Hann heimsótti Parísar- borg, Prag og Havönu. Hann fór til Indlands. Þar lagði hann stund á trúspeki Hindúa. Námið er strangt, ef ekki er notið leiðsagn- ar gúrú (iþ. e. trúfræðara), og því skálmaði Allen um götur og torg í leit að gúrú og muldraði í sí- felldu: Gúrúgúrúgúrúgúrú. Loks- fann Allen gúrú og i>am Hindúa- fræði. Hann stikaði berfættur um Himalajafjöll, heimsótti tí- bezka munka, iðkaði jóga og önd- unaræíingar, sat dögum saman hugpi í ganjavímu (ganja er eins konar marí.júana, söng möntrur, ferðaðist til Japan og dvaldist í Zenklaustrum, tuldraði með sjálf- um sér hið heilaga orð om unz það varð samhljóma huga hans og hjarta. Og þá fékk Allen aftur vitrun árið 1963. Hann sat í járnbrautar- klefa og varð gagntekinn yfir- náttúrlegri skynjun. Honum þótti hann taka við nýju hlutverki. Dýrð in hans Blake var horfin. Nú voru það mennirnir sjálfir, veröldin eins og hún er í dag, lífið sjálft, sem bað Allen Ginsberg um hjálp. Hann dró upp pappírshefti og orti ljóðið „Breyting“. Þegar til Bandaríkja kom, tók Allen strax upp fyrra líferni, en viðfangsefni ljóða hans urðu önn- ur, og nú varð hann þekktari og virtrari en áður. Mun stjarna hans enn vera skær. Þvi miður brestur greinarhöf- und bæði skilning, þekkingu og vit til að greina frá heimspeki og skáldskap Allens Ginsberg. Þó má geta þess, að Allen er einlægur friðarsinni og elskar háa sem lága. Hann setur frelsið ofar öllu öðru og fordæmir styrjaldir, vígbúnað, stéttaskiptingu, kynjaskiptingu, kúgun, nauðung og allar þær siða- reglur, sem við hin höfum tekið í sátt. Og það þarf víst enginn að efast um, hverjum hann fylgir að málum í Víet-nam. „Blíða nærir líkama mannsins, og sé hún ekki til, deyr hann.“ Shiki fu i ku ku... Og Fólksvagninn ekur frá há- skólabænum. Pétur situr undir stýri. Allen hefur segulbandstæk- ið á hnjánum og syngur möntrur. Júlíus hímir þögull í aftursætinu. í kennslustofum háskólans sitja ungir menn og velta því fyrir sér, hvort þeir eigi að taka Allen Gins- berg alvarlega eða hlæja að hon- um. Greinarhöfundur lætur það einnig lesendum eftir. Shiki fu i ku ku. .. jöm Þeir sen't hugsa sér að halda Sunnudags- blaðinu saman, ættu þv; að athuga fyrr en síðar, hvort eitthvað vantar í hiá þeim og ráða bót á bví. Lausn 19. krossgátu Y<? N \ K £ \ \ \N -a G fí M fí L l. T fl' \ T n L s i M ft \ r ■R u M K 1? R r t K t s a \ fl Þ L fl s K 0 D p R N 0 M L j WtL 0 Ð I E> \ G fl jR fí Ín N T * ó N p I L J N fl s V I (K Nr. u S A 6 w InK \ fc tIl fij N \ l fí U r fflíF fl !K \ R í M1P\ c fi’ R r V \fi Í5 N!fl' \\[Ý Nj\lp L > 1 N G I \|J Ó >L \ H UiGlN E £ ■R Ó I N NO LjP NJ \ fl’ v T I \ R s k flf\ \[ú V fí U M \ T R Glfl \K £ L V R o G G \ ó A \r \ R E M \K A R R 2>N H t L & u R f\ f\ R M D T \16 Ú «\ \ R \ 1? 6 S \ L r \ W S t P \ D P S T ->* fi V H |R I >15 u 0 b f G K Á. L <78 TÍOINN - SUNNUDAGSBLAÐ

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.