Tíminn Sunnudagsblað - 03.09.1967, Blaðsíða 6

Tíminn Sunnudagsblað - 03.09.1967, Blaðsíða 6
ar og sáluhjálpar hálfa jörðina Sandlæk, er liggur í Hólakirkju- sókn í Eystrahreppi og þar með fimm kúgildi búlæg. Viðtakandi fyrir hönd Eiríks var dómkirkjan í Skálholti. Ingibjörg Eiríksdóttir giftist aft- ur eftir lát Jóns, og hét síðari mað- ur hennar Ormur Jónsson. Þau fengu giftingarleyfi frá um'boðs- manni páfa árið 1481 vegna fjór- menningsmeinbuga. Ormur var sonur Jóns sýslumanns í Ögri Ásgeirssonar sýslumanns, Árna- sonar, og konu hans Kristínar Guðnadóttur sýslumanns í Ögri, Oddssonar. Þau Ormur og Ingi- björg bjuggu í Klofa árið 1492, en eftir það er ekki vitað um bústað þeirra. Ormur var sýslumaður í Snæfellsnessýslu 1497-1501. Hann lézt um 1503. Börn þeirra voru Sigurður, er lengi var sveinn Ög- mundar biskups, Kristín, kona Erlings Gíslasonar frá Haga á Barðaströnd, og Sólveig. Árið 1490 varð Stefán Jónsson biskup í Skálholti. Um hann segir í Biskupasögum: „Hann var mikið Ijúfmenni við aiþýðu, en harður við flyisjunga og sakafólk og vlö mikilmenni, sem sig settu á móti honum“. Gárungarnir kölluðu hann „grjótbiskup.“ „því hann lét gjöra allar girðingar í Skálholti og líka göngustéttina suður yfir Hundapoil.“ Stefán biskup lenti fljótlega í deilum við þau Klofahjón. Hinn 19. marz 1492 nefndi hann presta- dóm um kæru sína á hendur þeim. Var Ormur bóndi Jónsson sakaður um að hafa „sett sig ólöglega inn í það vald, sem honum var aldrei bifalað, nefnandi leikmannadóm út yfir heilagrar kirkju málum og tekið tylftareið út af þeim manni, sem í heilagrar kirkju stórmæl- um var bundinn og kirkjunnar for manni bar rétt yfir að segja.“ Húsfrú Ingibjörg var ákærð fyr- ir að hafa tekið undir sína „vernd, í samneyti, sam!þykki og selskap“ Pétur heitinn Ólafsson, áður en hann var i hel sleginn, eftir að það var sannprófað, að hann hefði stolið silfri og kostulegum gripum kirkjunnar og biskupsins i Skál- holti úr sjálfri dómkirkjunni þar heima á staðnum Ingibjörg var dæmd til þess að vinna innan hálfs mánaðar sétt areið að því, að hún hefði hvorkl heyrt sagt af Pétri sjálfum né Jóni djákna, sem kallaður er pung ur, og ekki af neinum öðrum skil- Vísum manni, að áðurgreindur Jón djákni hefði svarið bókareið um það, að Pétur Ólason hefði tek- ið silfur og annað það, er horfið hafði úr dómkirkjunni í Skálholti. En ef hún félli á eiðnum, skyldi hún taka lausn og skriftir fyrir samneyti við sagðan Pétur og gjalda fjársektir. Upphæð sektar- fjár er ekki tilgreind í dóminum, en einn þriðjung þess skyldi hún gjalda á næstu fardögum, annan um Mikjálsmessu, en hinn þriðja í fardögum þar eftir „biskupinum eður hans umboðsmanni í fullvirt- um peningum, hálft í Klofa, en hálft í Skálholti“. Ekki er nú vitað, hvort Ingi- björg kom fram eiðnum. Hennar finnst ekki getið eftir þetta. En líklegt má telja, að hér sé að finna upphafið að deilum Torfa, sonar hennar, við Stefán biskup. UI. Fimmtánda öldin var um margt HöfuSbóliS SkarS á Landi kom miög vlS sögu sttar Torfa í Klofa. -mBás 750 TlHJNN - SUNNUDAGSBLAÐ

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.