Tíminn Sunnudagsblað - 03.09.1967, Blaðsíða 7

Tíminn Sunnudagsblað - 03.09.1967, Blaðsíða 7
stór í sniðum. Þá safnaðist melri auður á hendur fárra höfðingja- ætta er dæmi eru til fyrr og síð- ar hérlendis, og þá tíðkaðist enn, að höfðingjar riðu um héruð með f jölmenni, gerðu hver öðrum heim reiðar og stunduðu vígaferli. Torfi í Klofa var skilgetið barn þessarar aldar. Rangárfþing fór ekki varhluta af vigaferlum á uppvaxtarárum Torfa. Sumarið 1471 gerðu þeir Þorvarður Eiríksson og Narfi Teits son ásamt flokki manna heimreið að Krossi í Landeyjum og drógu bóndann þar, Magnús Jónsson, sem var kvæntur Ragnheiði, móð- ursystur Torfa, nakinn úr faðmi konu sinnar og vógu hann, en síðan slógu þeir, drógu, hröktu og lömdu Ragnheiði og rændu fé frá henni. Um eða skömmu fyrir 1480 var nágranni Torfa, Oddur Ásmunds- son, lögmaður á Stóruvöllum hálshöggvinn á dyraþröskuldin- um heima hjá sér af útlendum vík- ingum. Þeir komu um haust til Eyrarbakka, en höfðu vetursetu á Stokkseyri. Vorið eftir, um vertið arlok, drápu þeir ráðsmanninn í Skálholti út á Bjarnarstöðum 1 Selvogi, en riðu síðan austur að Stóruvöllum, en að loknu hervirki sínu þar sigldu þeir utan. Torfa í Klofa er ekki getið í gerningum eða dómum, sem varð veitzt hafa, fyrr en árið 1491. Hann hefur þá verið kominn yfir þrítugt og kvæntur fyrir löngu. Kona hans hét Helga Guðnadóttir, dóttir Guðna Jónssonar, sýslu- manns á Kirkjubóli, sem var bróðir .Orms, stjúpföður Torfa. Móðir Helgu var Þóra, óskil- getin dóttir Björns ríka Þorleifs- sonar, hirðstjóra á Skarði á Skarðs strönd. Bróðir Helgu var Björn Guðnason, sýslumaður í Ögri, vopnabróðir Torfa í deilum við Stefán biskup. Undirrót deilna Torfa við Stefán biskup var sú, að Torfi tók að sór alla sakamenn og hélt marga í biskups forboði, svo að hann kom engum refsingum yfir þá, og gengu þeir kvittir og óleystir. Einnig var hann óhlýðinn biskupi bæði um kirkjureikning og tíund- arhald. Varð því mili þeirra mjög fátt og mikill óvinskapur, og sat Torfi oft um biskup. Einn vetur þegar allir staðar- menn í Skálholti voru komnir í ver, bjó Torfi sig að heiman með þrjátíu menn og ætlaði til Skól- holts og taka biskup höndum. Þjórsá var þá isi lögð milli fjalls og fjöru. En er þeir komu að Nautavaði, sýndist þeim áll í ánni suður eftir öllu. Þeir riðu þaðan að Kaldárholti, en sáu þar ekki fyrir enda álsins og snéru því all- ir aftur. En þennan sama dag var áin riðin, jafnt eftir sem fyrir. Annað sinn kom Torfi heim í Skálholt, en er biskup frétti það, lét hann læsa öllum dyrum. Torfi gekk að norðurdyrum kirkjunnar barði mikið högg á þær og spurði, hvort skolli væri inni. Þá var ekki heima í Skálholti nema einn biskupssveinn, sem Loftur hét. Hann hljóp að dyrunum og anz- aði: „Inni er skolli og ekki hrædd- ur, bíddu til þess hann er klædd- ur, djels hórusonurinn, hver sem þú ert!“ Torfi svaraði: „Ertu þarna Stráka-Loftur? — þessu mundir þú ekki anza, ef þú þættist ekki yfir fleiru búa en ég af veit.“ Og með það reið hann á brott. Af þessari áreitni við biskup lét Torfi ekki, fyrr en svo bar til á Allþingi, er hann gekk til lög- réttu, að mönnum sýndist lítill, svartur flóki köma norðan frá Skjaldbreið í mynd lítils fugls og steypa sér yfir hann. Rak hann þá upp mikil hljóð og varð svo sterkur, að átta menn héldu hon- um, áður en hann var færður í bönd. Kom biskup þar að með kennilýð öllum, sem á þingi var. Hvolfdi hann fyrst stakksermi sinni yfir höfuð Torfa, þvi að öll- um ofbuðu augu hans og óhljóð. Eftir það féll biskup á kné. til bænar og allir með honum, með lestrum og söngvum. Sefaðist Torfi þá nokkuð og stilltist það- an í frá. Eftir þetta áttu þeir bisk- up ekki í útistöðum neinum, enan þó varð aldrei þelalaust milli þeirra. Árið 1502 lét Torfi drepa dansk an fógeta, er Lénharður hét, á Hrauni í Ölfusi. Hafði hann setzt að í Arnarbæli með ránum og heitazt við Torfa, hótað að drepa hann. Gekk Torfi til skrifta við Stefán biskup fyrir dráp Lénharðs og sætti litlum fésektum, því að biskup kvað hann hafa unnið það verk manna heppnastan. Með Lénharði á Hrauni var mað ur sá átján vetra, er Eysteinn hét Brandsson, og varði hann einn dyrnar, svo að enginn komst inn, fyrr en þeir rufu húsin. Eysteinn þessi kemur oftar við sögu. Árið 1505 gaf Stefán biskup Eystein á vald Helgu Guðnadóttur, ekkju Torfa í Klofa, um allt það, sem hann hefði til hans að tala. Hinn 25. júlí 1510 hófst eldgos í Heklu með miklu steinkasti víða í Holtum og suður um Rangórvelli allt til Odda, og einn maður rot- aðist fyrir karldyrum í Skólholti af þessum steinagangi. Eysteinn bjó þá í Mörk á Landi: „Hann flúði í þessum eldsgangi með konu sína og maður með honum, maður urinn drapst á flóttanum, en hann kom konunni undir einn stóran melbakka og breiddi jdir hana föt og þófa, en hann komst sjálfur með harðfengi tl bæja, en þó mjög barinn og stirður.“ Árið 1527 var óvild með þeim biskupunum Jóni Arasyni á Hól- um og Ögmundi Pálssyni í Skál- holti, og fjölmenntu báðir til Al- þingis. Kom Jón með níu hundruð manna, en Ögmundur með þrettán hundruð, og þóttu horfur á, að til bardaga mundi draga. Góðir menn gengu á milli að sætta þá. og varð að ráði, að hvor þeirra skyldi fá mann til þess að ganga á hólm. Fékk Jón biskup til þess Atla nokkurn, en ögmundur Ey- stein Brandsson, og fór hólm- gangan fram hinn 1. júlí. „Þeir börðust Iengi og vann hvorki, fyrr en Eysteinn tók það ráð, að hann barði hanzkana af höndum honum og hjó undir hann og felldi hann til jarðar, því Eysteinn var ram- ur að afli.“ Á' Alþingi 1504, sem var hið_ síðasta, er Torfi sat, gerði hann aðsúg að Árnóri sýslumanni Finnssyni. Finnbogi Jónsson lög- maður hafði skipað Arnór í dóm, en Torfi stefndi honum burt úr dóminum. Finnbogi lögmaður dæmdi stefnuna ónýta, og gekk Torfi þá að dóminum með lið vopnað bogum, byssum, sverðum spjótum og arngeirum. Náði hann Arnóri á einmæli og lét menn sína standa svo þétt kringum hann, að hann mátti hvergi burt komast. Síðar á þinginu gekk dóm ur vegna þessa atviks. Torfi í Klofa kemur síðast við skjöl 3. júlí 1504, en hann hefur látizt fyrir 11. febrúar 1505. Tvenn ar sagnir fara af þvi hvernlg 'Framhald á bls. 765. 751 T f M 1 N N - SUNNUDAGSBLAB

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.