Tíminn Sunnudagsblað - 22.09.1968, Síða 4

Tíminn Sunnudagsblað - 22.09.1968, Síða 4
Englalíf á miðöldum Fyrri kona Adams og legíónir Lúsifers Réttlátir englar á flugi og fallnir englar I kös iörðu neðar. Franskt málverk frá tólftu öld. Öll höfum við margsinnis heyrt talað um hinar himnesku hersveit- ir, herskara engla, sem svifa um í hvítum klæðum. „Þig lofi allur 'englaher, alheimsverndarinn blíði“ 'segir í sálminum. Það kemur okk- 'ur því ekki sérlega á óvænt, þótt •við rekumst á það, að á fjórtándu öld, þegar menn gerðu sér mjög far um að kasta tölu á englana, var svo talið af þeim, er næst þótt- ust fara hinu rétta, að þeir væru 1301.655.722. Nú var svo, að á eiinu skeiði tilveru sinnar var englun- um nokkuð hrasgjarnt, og árið 1273 reiknaðist kardínálanum í ÍTusculum svo til, að fallnir engl- ar væru 133.306.668. Hér ber að vísu nokkuð á milli, því að það ! var priðjungur englanna, sem féll. ;En menn höfðu ekki neinar tölv- i ur til þess að létta sér flókin reikn- ing á dögum samtíðarmanna Giss- urar jarls og Kolbeins Auðkýlings, svo það er nokkurt vorkunnarmál, • þótt minni háttar villur kunni að hafa slæðzt í slíkt englatal. ; Öllum er vitanlegt, að margoft ; er getið engla í ritningunni. Þó eru | þar einungis þrír nefndir með nafni: Erkienglarnir Gabríel, Mík- ael og Rafael. En annars staðar er . að finna nöfn mörg þúsund engla ; — jafnt í ritum kristinna manna, . Gyðinga og Múhameðstrúarmanna, ! sem ritum af persneskum og babý- ; lonskum uppruna. Orðið engill er i runnið af heitinu angiras í fornri ; sanskrít, og til Hebrea bárust hug- myndirnar um englana frá Persáu j og Babýlon. Þannig eru bæði Mík- ael og Gabríel kynjaðir úr guð- fræði Babýloníumanna. Gabríel er einna frægastur engla, því^að hana i 724 bar mönnum orðsendingar og for- sagnir guðs eins og kunnugt er af ritningunni, og hann sagði Mú- hameð fyrir hina helgu skrift, er hann setti saman, kóraninn. Nálega jafntiltæk eru okkur þó nöfn tveggja annarra engla, sem að vísu er ekki getið að góðu. Annar þeirra er Lúsifer, ljósberinn, sem var erkiengill í öndverðu, en stóð fyrir hinni örlagaríku englaupp- reisn, er svo lauk, að honum og liðskosti hans öllum var steypt niður í undirheimana, líkt og her- foringjastjórnin gríska sendir sitt óaldarfólk til eyjarinnar Jarosar. Þar gerðist Lúsifer höfðingi mikill svo sem alkunna er, því að hann er enginn annar en djöfullinn sjálfur. Aftur á móti gerum við okkur ekki nema að hálfu leyti grein fyrir stöðu hins engilsins, sem mjög er tóðnefndur. Það er Mammon, sem nú er einungis tal- inn átrúnaðargoð þeirra, sem orð- aðir eru við auragirnd, en var þó i öndverðu ein hinna svifléttu, himnesku vera, en seinna ámbassa- dor helvitis i Englandi (og varð að sögn talsvert ágengt í embætt- inu). Sú er hugmynd okkar um engla, að þeir líkist mjög hraustum og holdugum börnum með rjóðar eplakinnar, klæðist síðum, hvítum kyrtlum og svifi um á svanavængj um, syngjandi og þeytandi langa lúðra. Þessa hugmynd höfum við fengið frá myndagerðarmönnum miðalda, meðal annars frá stór- meisturum eins og Rafael, er mál- aði margt þvílíkra englabarna, og kirkjufélög ýms og trúflokkar margir hafa dyggilega staðfest með okkur þessa hugmynd um vaxtar- lag og ástand engla méð litríkum myndum, sem börnunum eru gefn- ar á samkomum og í skólum. En hæpið er að treysta því, að englahjörðin sé öll skipuð gullin- hærðu, oföldu ungviði, sem allt er nauðalikt hvað öðru. í himnaför sinni sá Múhameð til dæmis engil með sjötíu púsund höfuð, og voru á hverju höfði hans sjötíu þúsund munnar, sjötíu þúsund tungur í hverjum munni og gat hver tunga talað sjötíu þúsund tungumál. Eng- T í M I N N — SUNNGDAGSBLAÐ

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.