Tíminn Sunnudagsblað

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Tíminn Sunnudagsblað - 22.09.1968, Qupperneq 21

Tíminn Sunnudagsblað - 22.09.1968, Qupperneq 21
ó Grímsstöðum. Ef til vill er hann pióðuríbróðir hennar, en að öðrum jkosti frændi hennar. Hann liðsinn- ír henni, en gerir ekki skyldu sína að snúa henni við. Snjófríður fer með hans fuiltingi í Möðrudal. Þar er séra Bjarni Jónsson enn prestur. Hann átti fyrst Irigibjörgu, aðra, dóttur séra Gunnlaugs Sölva sonar, og nú á hann Ragnhildi Bergþórsdóttur, en móðir hennar er Ragnhildur Ásmundsdóttir blinda á Hrafnabjörgum í Hlíð, Ólafssonar prests og skálds á Sauða nesi, Guðmundssonar. Hún er frænka Snjófríðar, og séra Bjarni hirðir ekki um húsagann, heldur hjálpar þessari stúlku ofan á Jök- uldal. Þar búa dáðadrengir að venju, komnir út af Þorsteini jökli, og eru „kaldir karlar.“ Þorsteinn Magnússon, nágranni séra Bjarna á Kjólsstöðum í Möðrudal 1703, býr þá á Eiríksstöðum eða Hákonar- stöðum. Ragnhildur, dóttir hans, gamla Eiðanafnið, er þó orðin hús- freyja á Brú. Snjófríði brestur ekki liðsemd þarna á stroki sínu, enginn heftir för hennar, enda er þetta létteyg stúlka, dristug og forsug, sem líklega þýðir skapstór og karlmannsígildi. Og nú strýkur Snjófríður austur yfir Fljótsdals- heiði. Ekki verður nú bent á frændur hennar eða tengdamenn í Fljótsdal, en Þorsteinn Magnús- son og Guðrún, kona hans, Guð- mundsdóttir, eiga þar frændur. Og Snjófríður strýkur austur yfir Hallormsstaðarháls og er komin heim í Skriðdal. Nú verður Snjófríði allt til bjarg «r. Þeir mega auglýsa eftir henni á allþingi upp á það, að Skriðdalur verndar sína Snjófríði. Sýslumað- ur er Bessi Guðmundsson og sit- ur á Skriðuklaustri. Faðir hans, Guðmundur Bessason á Melrakka- nesi, er eflaust frændi hennar, niðji Þorláks prests í Eydölum, ívarssonar, er var faðir Snjófríð- ar í Möðrudal, formóður Snjófríðar Magnúsdóttur. Presturinn í Þing- múla er hóskólalærður, séra Eirík- Ur, sonur Sölva i Hjarðarhaga, Gunnlaugssonar er fyrr gat. Ingi- björg, systir hans, er gift í annað sinn, Sveini Sveinsyni, og býr á Borg. Og á Borg býr Eyjólfur Jónsson, sá sem bjó á Eiríksstöð- um á Jökuldal 1703. Kona hans heitir Guðrún Magnúsdóttir, og af því að Eyjólfur fer af Dal, áreiðan- lega ættarslóðum, í Skriðdal, hafa mönnum fundizt líkur fyrír því, að þessi Guðrún, sé dóttir Magn- úsar í Geitdal, Snjólfssonar. Kannski er hún systir Snjófríðar. Þó varla, líklega föðursystir henn- ar. Nú er Snjófríður tuttugu og níu ára gömul eftir skráðum aldri 1703 sennilega ofháum. Þá er þarna í dalnum tuttugu og sex ára gamall maður, Árni Jónsson, sonur Ingi- bjargar Sölvadóttur, og ég tel hik- laust bróðursonur Eyjólfs á Borg. Það líða tvö ár. Þá ræðst Árni í það að kvænast þessari „karlmann- Iegu“ stúlku, létteygðri, það er að segja léttri undir brún eins og Sigrún, en bólugrafinni eftir fjár ans bóluna 1708. Þau eru brátt kennd við búskap í Geitdal, og ekki þarf að taka það fram, að aldrei spyrzt til þeirra í Axarfirði með klögumál. Það er friðsælt í Geitdal. Þarna í Geitdal fæðast börn þeirra, Ólöf, sem fyrr segir, er varð kona Jóns pamfíls og eru niðjarnir eins og sandur á sævarströnd og ættar- einkenni mjög gáfur og snilli, fyr- ir utan karlmennsku, sem er sjálf- „Húsið bakvið húsiny/ Framhald af bls. 731 hann að vera alveg rólegan, og það var hann líka. Þegar maður horfist í augu við mikla hættu er eins og færist yfir mann undarleg ró, hjartslátturinn jafnast og mað- ur gengur beint að því að bjarga sér.“ í Þingvallasveit fór Ólafur oft, ýmist úr Hvalfjarðarbotni, yfir Leggjabrjót, eða úr Lundarreykja- dal. Einu sinni ætlaði hann suður 1 Lundarreykjadal og áfram til Þing valla frá Augastöðum í Hálsasveit, í hríðarveðri, en þegar hann kom upp undir Okið fór að birta, svo hann hélt bezt að fara bara beint af augum, hallaði sér austuileið- ina og komst seint um kváldið niður að Hrauntúni í Þingialla- sveit. Það er ekiki furða, þótt þetta aldna gönguspjót sé orðið þreytt í fótunum. Annars segir hann, að þáð hafi verið steypuvinna hér í Reykjavík, sem fór verst með hann. „Þá voru firna erfiðar skorpur, þrjá fjóra daga og langt aðgerða- Ieysi á milli.“ Stundum var lítið um vinnu á kreppuárunum, en Ólafi og Fann- eyju lagðist alltaf eitthvað til. Og varla verður ágirndin þeim að sögð. Næst var Sólrún, en frá henni sagði ég allmikið í skraf- inu við Sigstein, áður nefndu. Þá var Gunnlaugur, sem drepinn var í Hrafnkelsdal 1749 tuttugu og fimm ára gamall, mikið karlmenni. Og svo hét dóttir þeirra Oddný. Það er eflaust Oddný Árnadóttir, móðir Asmundar Ásmundssonar, er var faðir Oddnýjar móður Guð Jaugar, móður Einars H. Kvarans, seinni kona Eyjólfs Jónssonar, Jónssonar pamfíls. Hefur hún sjálf sagt verið frænka Eyjólfs. Ekki er vitað um fleiri börn Árna og Snjó- fríðar, og urðu þau bæði vel öldr- uð. Varð Árni úti, er hann var nær sjötugsaldri. Átti hann þá heima í Geitdal, en þar bjó þá Sólrún dóttir hans. Læt ég hér Við lynda. Þetta er sagan af karlmannlegu, létteygu, skapstóru, bólugröfnu stúlkunni, sem fór yfir fjöllin þau sjö, eins og Mjallhvít, og getur nú birzt niðjum sínum, sandmörgum, í lýs- ingu landsins mestu manna, stað- festri á bók. banameini. Þau segja mér söguna af Kristínu lækni. Kristín hafði verið kölluð í hús til'fátækrar margra barna móður, þar sem veikindi voru. Þegar hún hefur lokið vitjuninni og er á för- um, vill konan borga henni, eins og venja er. En læknirinn vill ekkert taka fyrir: „Ég hef ekki fengið neitt plagg upp á, að ég fái aurana yfirfærða í Himnaríki.“ Þetta finnst okkur öllum prýði- leg saga. Svo fáum við okkur tíu dropa, rétt í lokin, því nú er ýsan soðin. Og gömlu hjónin hrista höfuðið yfir fréttum blaðanna. „Það er allt að ganga af göflunum“, segja þau.“ Jarðskjálftar, stríð, hungursneyð, sprengjur, skriðdrekar í Prag og krónan fallin! „Það er kappið eftir krónunum, sem gerir fólkið vitlaust," segir Fanney. „Og sjáið nú, hvað traust- ar þær eru.“ „Og trúleysið“, botnar Ólafur. „Guð lætur ekki að sér hæða.“ Litla stofan þeirra er veröld, þar sem illar fréttir hljóma eins og skröksögur, enda segir gamall kunningi þeirra: „Ef allir væru eins sáttir og sam- lyndir og þau Ólafur og Fanney, væri öðru vísi um að litast í heim- inum!“ Inga. T 1 M 1 N N — SUNNUDAGSBLAÐ 741

x

Tíminn Sunnudagsblað

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.