Tíminn Sunnudagsblað - 31.10.1971, Page 3

Tíminn Sunnudagsblað - 31.10.1971, Page 3
vm !Af>A !X*f As»mmÁ> »<*> mr,<xfffAfi A-.'i s< &&? */ v - krv&tew M- V<v \ W toT WJKW Froskar eru engir til á landi okkar, og þeir hafa ekki dafnað hér, þótt hingað hafi verið fluttir. Annars eru froskar meðal þelrra dýra, sem sumu fólki stendur stuggur af. Þeir eru þó harla meinlausir og margt skemmtilegt í fari þeirra. Grænflekkóttu froskarnir eru í rauninni faliegir. En þeir eru ekki á ferli fyrr en fer að skyggja. Á daginn grafa þeir sig niður í sandhauga, þar sem hitinn er við þeirra hæfi, tuttugu tll þrjátíu stig, og kúra þar, unz kvöldar og dimmir. ptmmm (Buto (ijt/to vwi) ís) Froskar stökkva, og sú tegund á metið meðal froska á Norðurlöndum, er lengsta hefur afturfætur. Hún stekkur tvo metra. Þessi frosktegund sást fyrst í Svíþjóð 1907, og hún hefur ekki komizt norðar en á Eyland. Eiturkirtlar eru í likama margra frosktegunda. Vísindamenn hafa fundið eitur, sem nægja myudi tii þess að deyða fjórtán kanínur, í lík- ama eins frosks, Þessi frosktegund er þó talin æt suður í löndum. Stærsta frosktegundin í Norðurálfu getur orðið seytján sentimetra löng. Hún er til á Norðurlöndum, og eiitk- um er talsvert um hana í suðvestur- hluta Skánar. Ber þar talsvert á henni um hlýja vordaga. í líkama einnar tegundarinnar eru kirtlar, sem gefa frá sér óþef, líkan púðurlykt. Þetta er varnarráð. Steðji hætta að, freyðir vökvi úr þessum cirtlum og froðan leggst eins og ■.kjöidur yfir bakið. Af laukfroskum er lauklykt. Lauk- froskar eru náttdýr, og þess vegna verður þeirra sjaldan vart. Á daginn leynast þeir í sandi, þar sem húðin þornar ekki óhóflega og óvinum er torvelt að finna þá. í aprílmánuði og maí má oft heyra biðilssöngva þeirra við seftjarnir, þar sem þeir hafast við. Það er karldýrið, sem þar kyrjar ástaróð af hjartans lyst — niðri á leirbornum tjarnarbotninum. T í M I N N SUNNUDAGSBLAÐ 795

x

Tíminn Sunnudagsblað

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.