Tíminn Sunnudagsblað - 31.10.1971, Blaðsíða 6

Tíminn Sunnudagsblað - 31.10.1971, Blaðsíða 6
stóð á að Maren gat skroppið heim til Guðrúnar. Einnig mun Guðrún hafa látið Marenu njóta tilsagnar, er hún kom í heimsókn til móður sinnar. Þorsteinn Erlingsson bar hlýjan hug til tengdamóður sinnar og mat hana mikils, en fremur er þó eftir- farandi nýárskveðja til Svanhildar ástaróður til Guðrúnar en venju- leg nýársósk: „Þökk fyrir bezta barnið þitt, burðurinn sá var fagur. Hún er nú eina yndið mitt og, eilífur nýársdagur“. Guðrún hélt mjög til haga hin- um ástúðlega heimilis- og fjöl- skyldukveðskap Þorsteins. Fannst mér paikið til um, er ég, norður í landi hjá Marenu, las þessi ljóð og stökur í Þyrnum, og Maren sagði mér frá systkinunum í Þing- holtsstræti 33. Fannst mér sem engin íslenzk börn ættu yndislegri foreldra né hétu fallegri nöfnum en þessi systkini: Brynjólfur, son- ur Guðrúnar, en kjörsonur Þor- steins, og alsystkinin: Svanhildur og Erlingur. Börnum þessum voru valin ýmis gælunöfn. Ein af mörg- um vísum Þorsteins varðandi fjöl- skyldu hans er þessi, ort til Guð- rúnar: „Alltaf finnst mér ferðin kát og fært í öllum stöðum, meðan við höldum heilmn bát og hópnum okkar glöðum“. Þorsteinn var elskulegur heimil- isfaðir ‘og barnavinur, sem fram kemur meðal annars í stökum, er Guðmundur Guðmundsson, skóla- skáld, orti til hans, fer hér á eftir ein þeirra: „Og kærleikans kvöldljóð þú kvaðst yfir sæng, er breiddirðu yfir blundandi börnin þinn væng“. Guðrún var með Þorsteini á Bíldudal, þar sem hann var rit- stjóri Arnfirðings og fluttist með honum til Reykjavíkur, þar sem þau bjuggu fyrst í leiguíbúðum, en síðan í eigin húsi, er þau byggðu af meiri stórhug en fjárafla. Það var Þingholtsstræti 33. Þær minn- ingar, er ég á sjálf um þennan átað, munu fléttast minningum M^renar og skerpa þá mynd, er ég geyrni um þetta fágæta heimili, 79 3 réttnefnt hús -ikáldsins, sem ég kynntist ekki af eigin raun fyrr en eftir lát skáldsins. Maren dró upp fyrir mér ógleymanlega mynd af Þorsteini, er hann sat í ruggustól við skrif- borð sitt, sneri að því hlið en baki í glugga, ruggaði sér hægt og raul- aði fyrir munni sér meðan hann orti og ritaði ljóð sín á blað, er hann hafði ofan á bók á kné sér. Skrifstofa Þorsteins var með tveimur háum gluggum, er vissu að götunni í átt til tjarnarinnar. í stofuhorninu við innri gluggann stóð skrifborð Þorsteins. Hvít, sterkjuð tjöld voru fyrir gluggum, dregin til hliðanna með silkisnúr- um eða böndum. Gluggakisturnar voru þéttsettar pottablómum. Stofublóm voru þá mjög í tízku. Auk blómgvaðra jurta voru fagur- grænar blaðjurtir í hengipottum og í stórum pottum á háum súl- um. En ekki hefði þurft neina tízku til þess, að Guðrún ræktaði blóm bæði innan húss og í garðinum sín- um. Hún var mikill blómavinur og þrátt fyrir mikið annríki við kennslu og margþætt heimilisstörf á gestkvæmu barnaheimili gaf hún sér ætíð tíma til að hlúa að blóm- unum sínum, enda döfnuðu þau með afbrigðum vel. Guðrún virtist ætíð vita, hvað blómunum leið og hvers þau þyrftu með, hlífði þeim viðkvæmari við sterkri sól, vökv- aði þau með gætni og fór í því sem öðru eftir þörfum sérhvers blóms. Oft bar hún þau út í mild- an regnskúr. Til er frásögn um eitt blóma hennar, er óx mjög ört, en var ekki að sama skapi sterklegt. Nefndi Þorsteinn blómið illgresi, og er svo bar til að Guðrún skildi það eftir inni, er hún bar hin blóm- in út í gróðrarregn, Varpaði Þoi'- steinn fram þessari stöku: „Þið hafið illa inni gleymt illgresinu mínu. Það hefur líka á daginn dreymt dögg í horni sínu“. í garðinum við Þingholtsstræti 33 var hver blettur ræktaður, þar voru tré, berjarunnar, blóm og grænmeti. Steyptur veggur var fyr ir framan húsið að götu, en á lóða- mörkum að húsabaki var hlaðinn grjótgarður. Á vorin hljómaði þrastasöngur frá laufgreinum trjánna, en þegar harðnaöi í veðri hópuðust fuglar að húsinu, því að fengs var von, húsráðendur voru miklir fuglavin- ir, svo sem alkunnugt er. Margir hinna litlu garðgesta áttu þeim líf að launa, er harðindi sóttu fast að. „Litlu vinir, verjist þið, við eigum ekki að deyja, aftur lifna lauf á við, langaði mig að segja. Þessi hörðu harmaspor hyggurðu drauma tóma, þegar þú litli vin í vor vappar á milli blóma“, orti Þorsteinn, en Guðrún gerði framtíðarráðstafanir til . . . að friða vininn svanga, sem komu dauðans kvíðir þar um kalda nótt og langa, með stofnun sólskríkjusjóðsins. Furðulegt, hvernig þeim hjónum tókst að sameina þetta tvennt, fuglamergð í garðinum sínum og heimilisköttinn, sem að sjálfsögðu varð að fá að fara út til að viðra sig og sleikja sólskinið. Guðrún hélt þvi fram að Þorsteinn hefði upprætt drápfýsn kattarins með fortölum og liefði kötturinn sýnt mikla sjálfsafneitun með því að láta fuglana í friði. Þorsteinn Erlingsson var xnikill dýravinur almennt, en hafði alveg sérstakar mætur á köttum, fannst þeir gæddir tign, skapstyrk og heillyndi. Marga hljóða rökkur- stund raggaði hann sér með kött í fangi. Trúlegt er að á slíkri stundu hafi þessi vísa orðið til: „Margra hunda- og mannadyggð má sér aftur veita, en þegar ég tapa þinni tryggð þýðir ei neitt að leita“. Maren átti margar lærdóms- og ánægjustundir á hinu unaðslega og eftirminnilega heimili Guðrúnar og Þorsteins. Hún saumaði eftir til- sögn Guðrúnar veggmynd í ljós- blátt atlassilki, tvo hvíta svani á seftjörn. Silkið var strengt á stóra ísaumsgrind, meðan myndin var saumuð. Meðal annars, sem Maren saumaði í tímum hjá Guðrúnu, var blaðasliðra, burstahengi og mynda- rammar úr klæði. Allt var þetta saumað með listsaum og sett upp á bókbandsvinnustofu, fínleg lauf T I M I N i\ - Sl NNUÞAGSslil.Af)

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.