Tíminn Sunnudagsblað - 31.10.1971, Page 7

Tíminn Sunnudagsblað - 31.10.1971, Page 7
voru vélhöggin á allar brúnir. Guörún teiíknaði mikið af blóm- um á ísaumsefni, jafnvel hvítir dúkar með útklipptum saum báru hulinn svip af blómum, væri nán- ar að gáð. Guðrún kenndi baldéringu og þykir mér líklegt, að Maren hafi baldérað hjá henni borðana á upp- hlutinn sinn. Um þessar mundir færðist í vöxt, að konur, og eink- anlega ungar stúlkur, kæmu sér upp bolbúningi, tel ég víst að Guð- rún hafi með baldéringarkennslu sinni og áhrifum glætt þennan áhuga. Hún var því hlynnt, að val- in væru léttari efni og bolbúning- ur yrði að öllu leyti frjálslegri fatnaður en peysufötin. Hún vék frá hinum ríkjandi svarta lit, hvað upphluti snerti, valdi sérstakt pils- snið fyrir kornungar stúlkur, hafði pilsin styttri en áður hafði tíðkazt og flauelsbekk neðan á þeim, hún tók upp skarðahúfur fyrir telpur og unglinga í stað skotthúfunnar. Þannig búningi kom hún upp handa Svanhildi dóttur sinni og vinstúlku hennar, Ásfriði Ásgríms, og vöktu þessar tvær stúlkur mikla athygli bæði sakir þessa nýstárlega klæðnaðar og fríðleiks. En þetta gerðist löngu eftir að Maren var í tímum hjá Guðrúnu, því að þá voru þær, Svana Búbú Gullbrá og Dúa Ásgríms aðeins litlar telpur. Guðrún hafði til sölu heima hjá sér og hjá kunningjakonum sínum úti um land, meðal annars Marenu, ýmislegt til íslenzks búnings, peysuslifsi af ýmsum gerðum, silki í svuntur og fleira. Hún lagði mik- ið að sér við að bæta efnahag þeirra Þorsteins, og átti drjúgan þátt í þvx með útsjón sinni, atorku og áræði, að þeim tókst að koma sér upp glæsilegu húsi og fallegu heimili, þar sem mikilli risnu var haldið uppi. 3. Iðimám. Maren lærði karlmannafatasaum hjá klæðskera, er hafði saumaskóla fyrir stúlkur og útskrifaði þær sem fullgildar saumakonur til starfa á kai'lmannafataverkstæð- um. Lengra nám þurfti þá til að fá klæðskeraréttmdi, og mér er mjög til efs, að konur hafi átt kost slíkra réttinda, að líkindum hefur þeim verið ætlað að vera undir- tyllur karlmannanna í þessari sem öðrum starfsgreinum, og þær lát- ið sér það hlutskipti lynda af hefð og vana. T í >M I N N — SUNNUDAGSBLAÐ Maren Magnúídótfir Konur voru þá varla meira en hálfdrættingar á við karlmenn, hvað kaupgjald snerti, þó að marg- ar þeirra væru fyllilega jafnokar karla, hvað vinnuafköstum og vandvirkni viðvék, og fullfærar við það verk, sem þeim var 1 hendur fengið. En klæðskerinn var að sjálf sögðu yfirmaður þeirra. Hann valdi efni með viðskiptavinunum, tók mál af þeim, sneið fötin, mát- aði þau og tók við þeim fullbún- um frá saumakonunni og skilaði þeim af sér. Það var hann, sem fókk hrós og þökk fyrir, þegar vel tókst, en væru einhverjar misfell- ur á verkinu gat haim, ef hann var svo gerður, kennt saumakon- unni um, þó að hún hefði hvorki sniðið né mátað fötin, og hefði yf- ir sér verkstjóra, er var skylt að fylgjast með, hvernig vinnan var af hendi leyst, og alveg sérstaklega hvernig fötin fóru, er þau voru fullgerð. Sjaldgæft mun hafa ver- ið, að handbragð saumakonunnar hafi verið til lýta og valdið óánægju. Stúlkur, sem lærðu saumaskap með reglubundnu námi, voru myndarlegar og vel verki farnar, og tíðarandinn var slíkur, að kasta ekki höndum til verka. Trúmennska, skyldurækni og sam- vizkusemi voru þá ríkjandi eigin- leikar, ásamt öðrxmi fleiri, er nefndir hafa verið fornar dyggðir. Saumakonur, er hugðu á sjálf- stætt starf í iðn sinni, gáfu nánar gætur að venki klæðskerans, hvern Systurnar frá Hornl i Skorradal ig hann bar sig til við að taka mál og máta, og fleira var hægt að læra fyrir þær, er vildu kynna sér leyndardóma vandaðrar klæðagerð ar til hlýtar. Eflaust hafa þær reynt að fara dult með það, hvern- ig þær forfrömuðu sig í þeirri iðn, sem þeim var ekki ætlað að verða meistarar í. En skeð gat, að einn og einn klæðskeri væri svo gerður, að hann kynni að meta ár- vekni saumastúlknanna og stað- fastan áhuga þeirra á meiri fullkomnun í starfsgrein sinni og veitti þeim mikilvæga tilsögn. Þeg- ar svo þessar stúlkur lögðu stund á saumaskap upp á sitt eindæmi í sveitum eða annars staðar, þar sem klæðskeri var ekki til staðar, kom í ljós, að þær voru ekki að- eins fullfærar í herrafatasaumi, heldur lögðu þær stund á fjölþætt- ari fatasaum en klæðskerarnir. Þær komu meira til móts við hin- ar margvíslegu þarfir heimilanna og saumuðu auk þess ekki aðeins úr nýjum efnum, heldur „ventu“ flíkum og saumuðu upp úr göml- um minni flíkur, þar xsem hægt var að sníða af hið snjáðasta. Hvort afkoma stúlkna, sem unnu sjálfstætt, varð betri en þeirra, sem voru í fastri vinnu á verk- stæðum, skal ósagt látið. Trúlega hefur meiri tími ódrýgzt hjá þeim. er unnu í lausavinnu, en þær höfðu þó möguleika til að fá fast gjald fyrir hvern klæðnað, án þess Framhald á bls. 809 799

x

Tíminn Sunnudagsblað

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.