Tíminn Sunnudagsblað - 30.09.1972, Blaðsíða 5

Tíminn Sunnudagsblað - 30.09.1972, Blaðsíða 5
A veginum í Njarðvlkurskriðum. Sér yfir Njarðvikina til illgöngufjalla norðan hennar (Ljósm: P. Jónsson) og Langanes út á Font. tjtsýni er óra- vitt og stórfagurt af Gönguskarði i heiðskiru veðri. Sigurður var skemmtilegur i skrafi niður Osfjallið, sagði mér öll örnefni, svo sem Grjótfjall, Smátindafjall, Skollamelar, Fláamelar, Bratta- brekka, Stapavik, Fossvik, Kross- höfði, Hviteyri, Nauteyri og mörg önn- ur. Hann hafð verið göngustjóri i Ösfjalli i tuttugu ár og sagði mér, að hann hefði stundum komizt i hann krappann, til að mynda lent i snjó á bringspalir. Ég hugsaði með mér, að þá hefði komið sér illa fyrir hann að vera klofstuttur. En heim komu þeir fénu sagði hann, og þegar komið var niður að fljótinu voru selir hér og hvar að stinga upp kolli. Ég spurði Sigurð, hvort hann hefði ekki stundum unnið á selkópi á vorin við fljótið, en hann kvað það hefði verið sjaldan. — Einu sinni var ég þó nærri búnn að vinna á griðarstórum sel. sem lá uppi á sandi norðan við fljótið. sagði hann. Hann kvaðst hafa verið með sterka reku og læðzt að kobba og veitt honum mikinn áverka eða svöðusár. en selurinn komst eftir Sunnudagsblaö Tímans það i fljótið og skildi þar með þeim. Þessi saga var alkunn, og fylgdi henni, að tveim dögum siðar hefði Sigurður Jakobsson, bóndi á Ósi skotið griðarstóran sel við fljótið og meðfram dindli hans var ofurlitil rispa i skinnið. Taldi Sigurður á Ósi, að þetta væri áverkinn, sem nafni hans á Hey- skálum hefði veitt selnum með rekunni. Við Sigurður gengum i hægðum okk- ar inn með fljótinu að ferjustaðnum, og kom Þorkell þegar er Sigurður kallaði og reri sterklega yfir, lagði ferjunni að klöpp, þar sem við stigum þurrum fótum á far. Heima á Heyskál- um var þegar settur upp pottur að sjóða vatn og áhöld, og gekk bólu- setningin fljótt og vel. Enginn kind drapst úr fári á Heyskálum eftir þetta enda var það bólusett á hverju ári. Ég fór þangað næstu haust og á fleiri bæi i Hjaltastaðaþinghá, unz bændur þar fóru að bólusetja sjálfir. Haustiö 1923, gerðist ferðalag mitt i Heyskála allsögulegt. Mig minnir, að farið væri að liða á október. Ég lagði af stað að heiman á auðri jörð og i góðu veðri, kom i Heyskála og bólusetti þar, en hélt siðan að Hrafnabjörgum. Þaðan fór ég i Þórsnes. 1 Þórsnesi bjó Eirikur Þorkelsson og Stefania kona hans með Steinþóri syni sinum, lista- mannsefni ungu að árum. Mér þótti sá piltur ræðinn og skemmtilegur. Eftir bólusetningu og gistingu i Þórsnesi fór ég i Unaós. Aðalbjörn vissi af ferð minni og var að hýsa féð i rökku- byrjun, er ég kom i Ós. Mér var siðan boðið i eldhús og sat ég þar smástund yfir kaffi og við skemmtispjall við þau hjónin. En allt i einu ruku hundarnir upp með gesta- gelti, og Pétur Póstur og bóndi á Hjaltastað riður i hlað. Við vorum þá komnir út og þegar Pétur snarast af baki, segir hann umsvifalaust við mig: Þú getur fengið folandið, það fylgir móður sinni eins og þú sérð. Ég vil losna við það undan hryssunný og þú getur tekið það með þér ofanyfir. Pétur segist vera að fara út á Höfða eftir vörum og skilja folaldið eftir. Ég kvaðst vera smeykur um, að mér gengi illa að koma folaldinu heim, þar sem ég sé hestlaus og folaldið ekki taumvant. Pétur taldi það engin vand- kvæði að koma þvi yfir fjallið. Það 725

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.