Tíminn Sunnudagsblað - 30.09.1972, Page 10

Tíminn Sunnudagsblað - 30.09.1972, Page 10
t uppsátri á Sæbóli á Ingjaldssandi og sér yfir fjörö. 730 Sunnudagsblað Timans Kristjana Jónsdóttir, kölluð Kitta gamla, hét gömul kona, er átti heima á Sæbóli á Ingjaldssandi á uppvaxtarár- um minum. Hún þáði af sveit, enda fór hún ekki út úr bæ til vinnu öll þau ár, sem hún dvaldist á Sæbóli hjá Jóni Bjarnasyni og konu hans, Sveinfriði Sigmundsdóttur, og áttu hún hæga og góða ellidaga hjá þeim ágætu hjónum. Sæból er næsti bær við æskuheimili mitt og ekki langt á milli, enda kom ég langoftast á þennan bæ af nágranna- bæjunum. Þau voru æöimörg erindin að sjónum, bæði að þörfu og leik. Ég sá þvi Kristjönu oft og hafði af henni náin kynni, og þar eð hún var aö mörgu leyti „öðru visi en fólk er flest”, fór ekki hjá þvi, að hún vekti eftirtekt, og festist i minni. Hún var eins og ein af fjölskyldunni, enda tók hún miklu ást- fóstri við yngsta barnið á heimilinu, sem fæddist um það leyti, er hún kom að Sæbóli. Það var Jón Sveinn Jóns- son, sem var i áratugi bjó á Sæbóli, en er nýfluttur til Flateyrar. Kristjana var mjög einkennileg i út- liti og háttum. Hún var mjög smá vexti, en snotur og bauð af sér góðan þokka, glaðlynd og skipti sjaldan skapi. Andlitið smáfellt, brúnleitt með sérkennilegu og óvenjulegu lifarafti. Kúpt var hún i herðum og rétti sjaldan alveg úr sér, enda voru fætur hennar bognir og gekk hún á jörkunum. Sagt var, að beinkröm eða „enska sýkin”, er hún fékk i æsku ætti sök á þvi. Þessi ár, sem ég man eftir henni, mun hún sjaldan hafa farið niður af lofti, en sat á rúmi sinu, kembdi, spann og prjónaði, — oftast var hún prjónandi. Hún var frábær tónskaparkona, þó ekki gæti hún mikilvirk kallazt. Band spann hún svo fint, að fáar ætla ég að hafi leikið slikt eftir. Hér tók ofan af (þ.e. togið af ullinni), hærði þelið vandlega og kembdi sjálf, spann, tvinnaði og þrinnaði. Or þessu fina bandi prjónaði hún skotthúfur á kven- fólk, og hygg ég að flestar konur og heimasætur á Sandinum og liklega viðar hafi átt skotthúfur, sem Kristjana hafði unnið i og prjónað, og tæplega þótti sú kona vel búin, sem ekki átti skotthúfu frá Kristjönu. Skotthúfurnar ýmist seldi hún eða gaf, oftast hygg ég, að hún hafi gefið þær, en þegar hún seldi þær, var veröið 1 króna, annars held ég að þetta hafi verið dálitið breytilegt, og jafnvel að húfan hafi farið niður i 25 aura. En hvað sem um það er, þá var þessi vinna mjög rómuð, þar sem til þekkt- ist og mjög eftirsótt. Kristjana átti sér einn tyllidag, sem hún æviniega hélt upp á, það var Gvendardagur 16. marz, þ.e. dánar- dagur Guömundar góða Hólabiskups. Vægi gott veður á Gvendardag og hún gæti gefið kaffi, sagði hún, að „Gvend- ardagur hefði nú verið góður, bæði út- vortist og innvortis”. Fyrir skotthúfu- peningana keypti hún kringlur, til þess að gefa með Gvendardagskaffinu. Það brást varla, að hún gæfi kaffi og kringlur á Gvendardag. Kristjana var fluglæs og kunni ódæmi af sögum og ljóðum. Tólfsona- kvæði kunni hún allt og fór oft með það, einnig langan flokk, er hún nefndi Geðfró o.m.fl. Ég sé mikið eftir þvi, að hafa ekki skrifað upp ýmislegt af þvi, sem hún kunni, en úr þvi verður ekki bætt. Kitta min var áreiðanlega dálitið hagmælt. Hún skaut oft fram visum. Eina visu kann ég, en hún mælti fram eitt sinn er sr. Sigtryggur kom til að messa. Hún segir, er hann kom upp i loftsgatið: Góðan daginn, Guðsmaður, gáfaðasti prestur. Sómamaður Sigtryggur, sifellt bezti gestur. Kristjönu þáttur I

x

Tíminn Sunnudagsblað

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.