Tíminn Sunnudagsblað

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Tíminn Sunnudagsblað - 30.09.1972, Qupperneq 21

Tíminn Sunnudagsblað - 30.09.1972, Qupperneq 21
rUEDUK náttúrunnar Hafið þið heyrt um dvergselina, sem íshafsfarar tala um — m jög smávaxna hringanór, sem eru ekki nema 60 sm langir ársgamlir. Menn halda, að þeir hafi staðnað i vexti vegna þess að þeir villtust undan mæðrum sinum ungir að aldri. En hringanórinn er ætið litill selur, þótt ekki sé hann dvergvaxinn, verður varla lengri en 120-180 sm. Hann er viða um höf — var til að mynda áður algengur i norður- hluta Eystrasalts og Finnska flóa. Þar lá hann oft á land- skerjum og var skotinn úr landi. Hann kunni einnig vel viö sig á rekatrjám. Hringanórinn kæpir um miðjan vetur úti á isnum, og kópurinn fær næringarmestu móðurmjólk, sem til er. Hann getur synt og kafað nokkurra daga gamall. A sama hátt og hringanórinn hefur orðið innlyksa i Eystrasalti, varð hann eftirlegukind i nokkrum stórvötnum, svo sem Ladoga og Saima. Þar hefur hann unað lifi siðan þessi vötn voru hluti ishafs. Hringanórinn er eitthvert mikil- vægasta veiðidýr fjölda fólks á ströndum heimskautslanda. Hann gefurbæði skinn og kjöt. Eskimóa- fjölskylda veiðir um 400 seli á ári. Hringanórinn er liðtækur við fiskveiðar og sundfimur vel, svo að hann leikur sér að þvi að hremma væna laxa, og henn eltir laxa langt upp i ár. Hann hefur sézt allt að 60 km. frá árósum. Hringanórinn syndir í kafi og kemur upp til þess að anda með 7-8 minútna millibili. Þeir geta þó verið i kafi allt að 20 minútum, og skutlaðir selir koma helzt ekki upp fyrr en þeir eru mjög aðþrengdir. Hringanórinn getur sofiö i kafi eins og aðrir selir. Þeir sofa oft á botni á grunnsævi en renna i hring upp og niður hálfsofandi á 5-6 minútna fresti til að mynda að og frá öndunaropi á is. Sunnudagsblað Tímans 741 '.V.'.V.V.V.V.V.V.V.W.V.V.V/.V,

x

Tíminn Sunnudagsblað

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.