Morgunblaðið - 03.05.2004, Qupperneq 7
ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 3. MAÍ 2004 B 7
Aðalfundur
Breiðabliks 2004
Aðalfundur Breiðabliks verður
haldinn í Smáranum þriðjudaginn
25. maí 2004 kl. 18.00
DAGSKRÁ:
Venjuleg aðalfundarstörf
Lagabreytingar
Önnur mál
Stjórnin
NEW Orleans Hornets var ekki á
því að ljúka keppni í NBA-deild-
inni í gær er liðið átti í höggi við
Miami Heat í átta liða úrslitum
Austurstrandarinnar. Heat gat
tryggt sér sigur í einvíginu í gær
en þess í stað vann Hornets,
89:83, og jafnaði þar með einvíg-
ið, 3:3. Liðin eigast við í oddaleik
um sæti í undanúrslitum Austur-
strandarinnar, en liðin voru í 4.
og 5. sæti að lokinni deildar-
keppninni á Austurströndinni.
Liðið sem vinnur oddaleikinn á
þriðjudaginn mætir Indiana
Pacers í undanúrslitum. Sagan er
ekki með Hornets í oddaleiknum
því tölfræðispekingar vestanhafs
hafa sýnt fram á að aðeins 5 sinn-
um hefur það gerst að gestaliðið
hafi sigrað í oddaleik í leikseríu
þar sem úrslit ráðast í sjö leikjum.
Í 75 tilvikum hefur heimaliðið
haft betur.
Stigahæstur í liði Heat í gær
var nýliðinn Dwayne Wade sem
skoraði 27 stig en félagi hans
Eddie Jones var með 19 stig.
Fimm leikmenn Hornets skor-
uðu meira en 10 stig, en George
Lynch var þar atkvæðamestur
með 17 stig líkt og P.J. Brown.
Það var uppselt á leikinn á
heimavelli Hornets í aðeins þriðja
sinn á leiktíðinni en þess ber að
geta að bandaríska Idol-stjarnan
William Hung skemmti áhorf-
endum með söng í hálfleik og að
sjálfsögðu var það lag eftir Ricky
Martin sem fékk að hljóma.
FLENSBURG varð í gær þýskur
bikarmeistari í 30. sinn þegar liðið
bar sigurorð af Hamborg í úrslita-
leik, 29:23, eftir að hafa yfir í leik-
hléi, 14:8. Danirnir í liði Flensburg
voru sem fyrr atkvæðamiklir en Sör-
en Stryger var markahæstur með 6
mörk, Lars Christiansen skoraði 5
og Lars Krogh Jeppesen var með 4.
Hjá Hamborg var Svíinn Jonas Erle-
lind markahæstur með 6 mörk.
Það stefnir í góða uppskeru hjá
Flensborg á leiktíðinni en meist-
aratitillinn er innan seilingar hjá lið-
inu og silfurverðlaun urðu hlutskipti
liðsins í Meistaradeildinni. Þegar
þremur umferðum er ólokið er
Flensburg með 5 stiga forskot á
Magdeburg í Bundesligunni og með
sigri gegn Minden um næstu helgi
verða Flensborgarar krýndir meist-
arar.
Magdeburg tapaði fyrir Ham-
borg, 27:26, í undanúrslitum á laug-
ardaginn og þar með rann síðasta
tækifæri liðsins úr greipum að vinna
titil á leiktíðinni. Magdeburg var
undir í leikhléi, 14:9, en liðið átti
góðan endasprett og fékk gullið
tækifæri til að jafna metin þegar það
fékk dæmt vítakast 4 sekúndum fyr-
ir leikslok. Bennet Wiegert tók víta-
kastið en Goran Stojanovic gerði sér
lítið fyrir og varði vítakastið og
tryggði þar með sínum mönnum
sigurinn.
Sigfús Sigurðsson var marka-
hæstur í liði Magdeburg ásamt
Sprenger og Bennet Wiegert en allir
skoruðu þeir 5 mörk í leiknum. Sví-
inn Jonas Ernelind var atkvæða-
mestur í liði Hamborg með 6 mörk.
AC Milan varð í gær ítalskur
meistari í 17. sinn og í fyrsta
skipti síðan 1999 þegar liðið
bar sigurorð af aðalkeppi-
nautum sínum í Roma á San
Siró. 76.000 áhorfendur sáu
Úkraínumanninn Andriy
Shevchenko skora eina mark
leiksins strax á 2. mínútunni
og var þetta 22. mark hans á
leiktíðinni. Þegar tvær um-
ferðir eru eftir er AC Milan
með níu stiga forskot á Róm-
verja. AC Milan hefur 79 stig,
Roma 70 og fráfarandi meist-
arar, Juventus, sem töpuðu
fyrir Perugia, 1:0.
Eiður Smári Guðjohnsen var í við-tali við enska blaðið Independ-
ent um helgina þar sem hann var
spurður út í hugsanlega komu enska
fyrirliðans á Stamford Bridge.
„Það þarf ekki að ræða neitt um
gæði Beckhams sem knattspyrnu-
manns. Hann er frábær fótboltamað-
ur sem er dáður út um allan heim.
Ég vil helst ekki vera að velta hlut-
um fyrir mér sem eru í lausu lofti,
hvort Chelsea ætti að kaupa hann
eða hvort hann er yfirleitt til sölu.
Ég vil ekki vera að spá í hvort leik-
maður sé að koma til okkar fyrr en
hann er kominn, þegar og ef hann
kemur. Beckham er stórkostlegur
leikmaður sem myndi án efabæta
okkar lið,“ segir Eiður Smári.
Eiður Smári sér ekkert neikvætt
við ef svo fer að Beckham gangi til
liðs við Chelsea: „Ef við getum bætt
okkur þá sé ég ekkert að því að fá
nýja leikmenn en ég held að við þurf-
um ekki á nýjum ellefu leikmönnum
að halda. Þú getur ekki keypt allt í
heiminum. Það verður að vinna með
það sem þú hefur og bæta gæðum of-
an á það. Þetta tímabil hefur gengið
út á það að finna samsetningu og
jafnvægi í liðið og það kemur til með
að halda áfram. Ég vona bara að
Ranieri verði hjá okkur áfram. Við
leikmenn styðjum heils hugar við
bakið á honum en ég óttast samt að
hann verði látinn fara,“ segir Eiður
en hann og félagar hans búa sig nú af
kappi undir leikinn gegn Mónakó í
Meistaradeildinni sem fram fer á
Stamford Bridge á miðvikudaginn.
AÐALSTEINN Eyjólfsson, þjálfari ÍBV, var að vonum kátur með sitt
lið að leikslokum enda spilaði það feikilega vel. „Við mættum með
kollinn í lagi í dag. Við fórum vel yfir okkar leik eftir tapleikinn í
Hafnafirði. Við voru óánægð með okkar leik þar.“ Aðalsteinn sagði
erfitt að taka einhverja eina eða tvær út enda hefði allt liðið spilað vel.
„Leikur Öllu og Sylviu var frábær í dag en allt liðið spilaði vel og
sóknarleikur okkar gekk upp eins og hann væri teiknaður upp á blað.
Við spiluðum flottan handbolta og ég er virkilega ánægður með stelp-
urnar.“
Fyrsti leikur ÍBV og Vals í úrslitum verður á þriðjudaginn í Eyjum.
„Valsstelpurnar hafa verið að spila vel að undanförnu og þær eru
virkilega verðugur andstæðingur. Við hlökkum mikið til leikjanna
enda eru þetta skemmtilegustu leikir ársins og þarna vilja allir vera.“
„Valsstelpurnar virkilega
verðugur andstæðingur“
AC Milan
meistari
New Orleans Hornets
knúði fram oddaleik
Flensburg
bikar-
meistari í
30. sinn
ÍBV byrjaði leikinn mun betur ogfyrstu þrjú mörkin voru þeirra.
Jafnræði var svo með liðunum fram-
an af hálfleiknum og
munurinn aldrei
meira en þrjú mörk.
Gestirnir minnkuðu
muninn niður í eitt
mark þegar tíu mínútur voru til leik-
hlés en þá kom góður kafli Eyja-
stúlkna og þær skoruðu hvert mark-
ið á fætur öðru og þegar flautað var
til leikhlés var munurinn fimm
mörk.
ÍBV hélt uppteknum hætti í síðari
hálfleik og var sóknarleikur liðsins
fjölbreyttur með þær Silviu Strass
og Öllu Gorkorian í miklu stuði.
Mestur varð munurinn tíu mörk en á
lokakaflanum fengu varamenn ÍBV
að spreyta sig.
Julia varði vel
Mesti munur á liðunum lá í mark-
vörslu en Julia varði yfir tuttugu
skot í marki ÍBV á meðan markverð-
ir FH vörðu samanlagt átta skot.
ÍBV spilaði einn besta leik sinn í
langan tíma í gær og átti FH fá svör
við fjölbreyttum sóknarleik Eyja-
liðsins. Gunnur Sveinsdóttir var í
miklum ham í liði FH, skoraði tíu
mörk og var hún og Dröfn Sæ-
mundsdóttir bestu leikmenn liðsins
en Dröfn var öflug í síðari hálfleik.
Eyja-
stúlkur
mæta
Val
EYJASTÚLKUR tryggðu sér í
gær sæti í úrslitum um Íslands-
meistaratitilinn í handknattleik
þegar þær sigruðu FH-stúlkur
nokkuð sannfærandi í oddaleik
liðanna í Eyjum, 37:30. Eyja-
stúlkur mæta Valsstúlkum í úr-
slitarimmunni.
Sigursveinn
Þórðarson
skrifar
Reuters
Eiður Smári Guðjohnsen fagnar marki í leik með Chelsea.
Eiður Smári segir David Beckham velkominn til Chelsea
Þurfum ekki
ellefu nýja menn
ENSK og spænsk blöð héldu um helgina áfram að eyða drjúgu
plássi á síðum sínum undir David Beckham og framtíð hans hjá
Real Madrid. Vaxandi líkur virðast vera á að Beckham yfirgefi Real
Madrid og þó svo að forráðamenn Madridarliðsins segist vilja halda
honum þá er klásúla í samningi hans að komi tilboð frá öðru félagi
sem samsvarar 16 milljörðum íslenskra króna þá getur það fengið
hann. Beckham er því eðlilega orðaður við Chelsea en eini mað-
urinn sem getur pungað út þessari upphæð er Roman Abramovich,
eigandi Chelsea.