Morgunblaðið - 10.05.2004, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 10.05.2004, Blaðsíða 4
ÍÞRÓTTIR 4 B MÁNUDAGUR 10. MAÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ VALENCIA varð spænskur meist- ari í sjötta skiptið í gær, í annað skiptið á þremur árum, þegar liðið lagði Sevilla á útivelli, 2:0. Tveimur umferðum er ólokið í spænsku 1. deildinni en Valencia náði 7 stiga forskoti á Real Madrid. Valencia var með pálmann í höndunum eftir að Real tapaði á heimavelli fyrir Mallorca, 2:3, á laugardagskvöldið og lét tækifærið ekki úr greipum sér ganga. Vicente skoraði strax á 12. mínútu, sitt 12. mark í deildinni í vetur. Undir lok leiksins skoraði síðan Ruben Bar- aja, 2:0, og innsiglaði sigur Val- encia við gríðarlegan fögnuð leik- manna liðsins, sem og stuðnings- mannanna sem voru fjölmargir meðal 38 þúsund áhorfenda. Þar með var tímabil vonbrigð- anna fullkomnað hjá Real Madrid en stórveldið missti af öllum titlum í vetur, þrátt fyrir stjörnum prýtt lið. Til að bæta gráu ofan á svart var það Samuel Eto’o, Kamerúninn sem Real Madrid lét frá sér fara á sínum tíma, sem var í aðalhlutverki hjá gestunum á Santiago Bernabeu og skoraði tvö markanna. Mallorca komst í 2:0 og 3:1. Barcelona varð loks að játa sig sigrað eftir 17 leiki án taps. Einmitt þegar Katalóníuliðið átti möguleika á að fara uppfyrir erkióvinina í Real Madrid og í annað sætið, tap- aði það 1:0 fyrir Celta í Vigo. Luis Edu skoraði sigurmarkið sem getur farið langt með að forða Celta frá falli þó liðið sitji enn í fallsæti. Valencia meistari og Real Madrid tómhent í vetur BOCHUM lagði í gærkvöldi lið Freiborgar, 3:0, og var þetta þrett- ándi leikur félagsins í deildinni á heimavelli þar sem mótherjunum tekst ekki að skora mark. Þessi ár- angur er met í þýsku deildinni og það sem ef til vill er enn ánægju- legra fyrir félagið er að með sigr- inum skaust það í fimmta sætið, síð- asta sætið í þýsku deildinni sem gefur sæti í UEFA-bikarnum. „Það var flott hjá strákunum að fá ekki á sig mark og setja þar með met og ekki var það verra að kom- ast í fimmta sætið. Nú er það al- gjörlega undir okkur sjálfum komið hvort við náum að halda því sæti og spila í Evrópumóti næsta vetur,“ sagði Peter Neururer, þjálfari Bochum. Martin Max gerði sitt tuttugusta mark í deildinni þegar Rostock lagði 1860 München að velli, 3:0. Þar með versnar staða Münchenar- liðsins enn frekar á botninum því þegar tvær umferðir eru eftir er það í þriðja neðsta sæti, fjórum stigum á eftir Herthu Berlín og Kaiserslautern. Ekki er einu sinni víst að það dugi liðinu að vinna báða leiki sína, en það tekur á móti Herthu á laugardaginn og fer til Gladbach í síðustu umferðinni. Kaiserslautern á Schalke úti í næstu umferð og Dortmund heima í síðustu umferðinni og Hertha 1860 á laugardaginn og tekur á móti Köln í síðustu umferðinni. Botn- slagurinn er því hvergi nærri búinn í Þýskalandi. Þrettán heimaleikir án þess að fá á sig mark Gestirnir fengu óskabyrjun því á 19.mínútu gerði Oliver Kahn, fyrirliði meistaranna, slæm mistök sem Ivan Klasnic nýtti sér. Kahn kom langt út í víta- teiginn til að grípa að því er virtist sak- laust skot eða sendingu. Hann missti bolt- ann og Klasnic nýtti sér það. Johan Micoud kom gestunum í 2:0 á 26. mínútu og Aliton bætti við þriðja markinu á 35. Þetta er í fyrsta sinn í þrjá áratugi sem Bayern fær á sig þrjú mörk í fyrri hálfleik. Roy Makaay lagaði stöðuna aðeins á 56. mínútu en 65.000 áhorfendur voru ekkert í vafa hvaða lið er sterkast þessa dagana í Þýskalandi. „Við höfum virkilega unnið fyrir þessu í vetur og höfum haft trú á því að okkur tækist að verða meistari þó svo að við vær- um ekkert að auglýsa það út um allt,“ sagði Micoud eftir leikinn. Þjálfarinn, Thomas Schaaf sem hefur verið með liðið síðan 1999, var einnig ánægður og svo gott sem orðlaus: „Þetta er stórkostlegt!“ Bayern er enn í öðru sæti en alls ekki öruggt með það, en annað sætið gefur beinan rétt til að keppa í meistaradeildinni að ári. Stuttgart og Leverkusen eiga enn möguleika á að skjótast upp í annað sætið Bremen sér meis inn í Mü WERDER Bremen sýndi hvaða lið er best í Þýskalandi á laugardaginn þegar það heimsótti Bayern München, sigursælasta lið landsins og meistara síðasta árs. Stórsigur, 3:1, á útivelli tryggði Bremen sigur í deildinni, þann fyrsta síðan 1993 og þann fjórða í sögu félagsins.  ÞÓRÐUR Guðjónsson lék síðustu 15 mínúturnar með Bochum þegar lið hans vann Freiburg, 3:0, í þýsku 1. deildinni í knattspyrnu í gær. Bochum komst upp fyrir Dortmund og í fimmta sætið með sigrinum.  PÉTUR Hafliði Marteinsson, landsliðsmaður í knattspyrnu, hefur jafnað sig af meiðslum sem hann varð fyrir um fyrri helgi. Hann leik- ur að öllu óbreyttu með Hammarby gegn Trelleborg í sænsku úrvals- deildinni í knattspyrnu í kvöld.  AUÐUN Helgason sat á vara- mannabekk Landskrona allan tím- ann þegar lið hans tapaði, 5:3, fyrir Halmstad í sænsku úrvalsdeildinni í gær.  GYLFI Einarsson lék síðasta hálf- tímann með Lilleström en Davíð Þór Viðarsson var ekki í leikmanna- hópnum þegar lið þeirra gerði jafn- tefli, 2:2, við Molde á útivelli í norsku úrvalsdeildinni í gær.  VEIGAR Páll Gunnarsson lék ekki með Stabæk gegn Bodö/Glimt vegna meiðsla en lið hans steinlá á heimavelli, 5:2.  ÓLAFUR Örn Bjarnason lék allan leikinn með Brann sem tapaði fyrir Sogndal á útivelli, 3:1.  HANNES Þ. Sigurðsson lék fyrri hálfleikinn með Viking sem gerði marklaust jafntefli við Vålerenga á útivelli.  JÓHANNES Harðarson kom inn á sem varamaður á lokamínútunni þegar Start vann Raufoss, 2:1, í norsku 1. deildinni í gær. Start hefur unnið fimm fyrstu leiki sína á tíma- bilinu.  HELGI Kolviðsson var varamaður hjá Kärnten og kom ekki við sögu þegar lið hans vann Mattersburg, 5:1, í austurrísku úrvalsdeildinni á sunnudaginn. Kärnten er enn neðst en er nú þremur stigum á eftir næsta liði, Sturm Graz, þegar tveim- ur umferðum er ólokið.  HREFNA Jóhannesdóttir lék ekki með Medkila vegna veikinda þegar lið hennar tapaði, 2:0, fyrir Team Strömmen í norsku úrvalsdeildinni á laugardaginn. Medkila hefur tapað fjórum fyrstu leikjum sínum og að- eins skorað eitt mark en fengið á sig átján.  BRESKI kylfingurinn Barry Lane sigraði á breska meistaramótinu í golfi sem lauk í gær Lane lék síðasta hringinn á 66 höggum og vann með þriggja högga mun. Argentínu- mennirnir Eduardo Romero og Angel Cabrera komu næstir en Paul Broadhurst, sem var með forystu fyrir síðasta dag, lék skelfilega í gær.  LANE vann þarna sitt fyrsta mót á ervrópsku mótaröðinni í áratug og gerir sér nú vonir um að komast í Ryder-lið Evrópu sem mætir Bandaríkjamönnum í haust. FÓLK Þetta er besti árangur Chelsea ídeildakeppninni í 27 ár en liðið hafnaði einnig í öðru sæti vorið 1977 og þar áður 1963. Eina meist- aratitil sinn til þessa vann Chelsea árið 1955. Eiður Smári lék allan leikinn í fremstu víglínu hjá Chelsea en hann var eini sóknarmaðurinn í leikmannahópi félagsins á laugar- daginn. Hann lék vel og var óhepp- inn að gera ekki út um leikinn um miðjan síðari hálfleik þegar hann lék á Gary Neville og Wes Brown á markteig United en Tim Howard varði frá honum á glæsilegan hátt. Þá hefði Chelsea komist í 2:0 því Jesper Grönkjær skoraði eina mark fyrri hálfleiks með glæsilegu skoti í þverslána og inn. Carlo Cudicini, markvörður Chelsea, varði víta- spyrnu frá Ruud van Nistelrooy undir lok fyrri hálfleiks en breyttist úr hetju í skúrk 13 mínútum fyrir leikslok. Þá missti hann boltann klaufalega og van Nistelrooy þakk- aði fyrir sig og jafnaði, 1:1. Fyrsta mark Hollendingsins síðan í febr- úar og hans 27. á tímabilinu. Þegar þarna var komið sögu var Chelsea manni færra því Robert Huth, veiki hlekkurinn í liðinu, fékk rauða spjaldið á 73. mínútu fyrir endur- tekin brot. „Það er frábær árangur að ná öðru sætinu. Við gerðum okkar besta í dag, það skipti öllu máli að spila vel á þessum magnaða velli og halda okkar stöðu í deildinni,“ sagði Claudio Ranieri, knattspyrnustjóri Chelsea. „Ég er ekki búinn að vera ennþá,“ bætti hann við og vísaði til endalausra frétta um að hann væri á förum frá félaginu. Þetta er aðeins í annað skiptið frá stofnun úrvalsdeildarinnar árið 1992 sem Manchester United hafn- ar ekki í fyrsta eða öðru sæti en það gerðist einnig tímabilið 2001–02. „Ég var búinn að sætta mig við þriðja sætið fyrir leikinn því Chelsea hefði alltaf unnið Leeds í lokaumferðinni hvort sem var,“ sagði Alex Ferguson, knattspyrnu- stjóri Manchester United, sem hef- ur stýrt liðinu í 18 ár. Besti árangur Chelsea í 27 ár EIÐUR Smári Guðjohnsen og félagar í Chelsea tryggðu sér annað sætið í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu á laugardaginn með því að gera jafntefli, 1:1, við Manchester United á Old Trafford. Fjögur stig skilja liðin að fyrir lokaumferð deildarinnar og með þessu varð ljóst að Chelsea fylgir Arsenal inn í riðlakeppni meistaradeildar Evrópu næsta haust en Manchester United þarf að taka þátt í loka- umferð forkeppninnar. Reuters Eiður Smári Guðjohnsen á hér í höggi við Mikael Silvestre og John O’Shea á Old Trafford.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.