Lesbók Morgunblaðsins - 18.01.2003, Side 11
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 18. JANÚAR 2003 11
Er hægt að beygja skeiðar með
hugarorku?
SVAR:
Nei, það er ekki hægt. Ef það væri hægt þá
væri líka ýmislegt annað í kringum okkur öðru-
vísi en það er og hugmyndir okkar um umheim-
inn mundu gerbreytast.
Yfirleitt þarf verulegan kraft til þess að
beygja skeiðar og við gerum það með beinni
snertingu eins og allir vita. Hins vegar er ekki
með öllu útilokað að hægt sé að nota sterkt seg-
ulsvið til að beygja skeið úr mjúku járni, og það
væri þá ekki bein snerting. En veik rafseg-
ulsvið hafa hverfandi áhrif í þá átt að beygja
venjulegar skeiðar, jafnvel teskeiðar!
Eðlisfræðileg orka sem tengist hugsun
manna er lítil og kemur
það til dæmis fram í lítilli
næringarþörf vegna
„hugarvinnu“. Taugaboð
flytjast milli staða í
mannslíkamanum með
rafhrifum sem eru svipuð
veikum rafstraumi. Slík-
um straumi fylgir seg-
ulsvið í kring ef þar er
lofttæmi eða því sem næst
eða ákveðin efni eins og
loft. Ef leiðandi efni er
kringum strauminn eða
myndar einhvers konar
hylki kringum hann, þá er
ekkert rafsegulsvið utan
hylkisins.
Ímyndum okkur nú
mann sem hugsar „baki
brotnu“ og við viljum gera
mælingar utan höfuðsins
eða líkamans til marks
um að hann sé að hugsa.
Það sem hér hefur verið
sagt um rafsegulsvið ut-
an tauganna þýðir að slík
svið utan höfuðsins eru hverfandi. Við getum
hins vegar mælt taugaboðin í heilanum með
rafskautum sem eru í beinni snertingu við höf-
uðið. Straumurinn sem verður milli slíkra
skauta er þó mjög veikur og mundi engan veg-
inn duga til að beygja jafnvel minnstu teskeið!
Þessu til frekari áréttingar má nefna tölur.
Segulsvið við mannshöfuð af völdum raf-
strauma í heilanum er í stærðarþrepinu 10-15
Tesla og minnkar hratt með fjarlægð frá höfð-
inu. Til samanburðar má nefna að jarðseg-
ulsviðið er um 0,5 * 10-4 Tesla. Sviðið frá heil-
anum er því um 100 þúsund milljón sinnum
veikara en jarðsegulsviðið. Til að færa hlut úr
járni úr stað, til dæmis skeið á eldhúsborði, þarf
segulsvið í stærðarþrepinu 10-2 Tesla og enn
sterkara svið þyrfti til að beygja skeiðina, lík-
lega 0,1–0,5 Tesla eftir aðstæðum. Við þyrftum
því fyrst að búa til svið sem væri 100 milljón
milljón sinnum sterkara en venjuleg segulsvið
frá heilanum og síðan að stjórna því einhvern
veginn til þess að beygja skeiðina.
Leó Kristjánsson, jarðeðlisfræðingur við Raunvís-
indastofnun, og Þorsteinn Vilhjálmsson, prófessor í vís-
indasögu og eðlisfræði við HÍ.
Af hverju breytast vöðvar í fitu eftir
að þjálfun er hætt?
SVAR:
Það er ekki rétt að vöðvar breytist í fitu í
bókstaflegri merkingu. Rétt er að líta á þetta
sem tvö aðskilin ferli sem vissulega geta þó
gerst samtímis að einhverju leyti, til dæmis
þegar þjálfun er hætt. Bæði ferlin má þó senni-
lega tengja orkubúskap líkamans.
Í fyrsta lagi hafa vöðvar tilhneigingu til að
rýrna við notkunarleysi. Þetta þekkja allir sem
hafa einhvern tíma verið settir í gifs vegna
beinbrots. Þessi vöðvarýrnun getur gerst nokk-
uð hratt. Engin viðhlítandi skýring er til á því
af hverju þetta gerist en það er eins og lík-
aminn vilji losna við þá vöðva sem hann hefur
ekki not fyrir. Vöðvar eru þungir og það hefur
neikvæð áhrif á orkubúskap líkamans að
burðast með þá ef þeir eru ekki notaðir.
Þess má geta að fiskar sýna ekki þessa til-
hneigingu í sama mæli. Hjá þeim kostar miklu
minni orku að burðast með vöðva sem ekki eru
not fyrir, en hjá landdýrum. Uppdrifskrafturinn
sér til þess að fiskurinn er yfirleitt í flotjafnvægi
við vatnið og verður ekki þyngri í vatninu þó að
vöðvar bætist við hann. Eini orkukostnaðurinn
stafar því af aukinni fyrirferð og meiri núningi
frá vatninu þegar fiskurinn hreyfir sig.
Í öðru lagi hefur líkami manna tilhneigingu til
að safna orku í formi fitu. Margir þættir hafa
áhrif á það og einna mikilvægastur er hreyfing-
arleysi eða minni hreyfing (eins og þegar þjálfun
er hætt). Aðrir þættir eru helstir samsetning og
orkuinnihald fæðu, aldur og erfðir. Umframorka
myndast í líkamanum þegar inntaka á orku (kol-
vetnum, próteinum og fitu) er meiri en orkuþörf
sem er aðallega háð hreyfingu og grunn-
orkuþörf. Oftast er miklu af þessari umfram-
orku eytt með því að mynda varma sem fer út í
umhverfið.
Hins vegar gerist það í sumum tilfellum að
líkaminn fer að safna hluta þessarar umfram-
orku. Þetta gerir hann með því að setja eitthvað
af orkunni sem við fáum úr mat í fituvefi lík-
amans í stað þess að brenna henni. Þessi upp-
safnaða fita er því í raun ekkert annað en
geymsla á umframorku. Áðurnefndir þættir
(hreyfing, næring, aldur og erfðir) hafa síðan
áhrif á hvort og í hve miklum mæli þessi orku-
söfnun verður. Þegar fólk hættir þjálfun en
heldur áfram að borða jafnmikið og áður, eykst
þessi umframorka í líkamanum talsvert. Við það
verða hægfara breytingar á fitumagni líkamans.
En nú má auðvitað spyrja: „Af hverju safnar
líkaminn umframorku sem fitu en ekki sem
vöðvum?“ Segja má að þetta sé kjarninn í upp-
haflegu spurningunni! Líklegasta skýringin er
sú að orkan er mun léttari sem fituvefur en
vöðvavefur. Ef geyma á til dæmis 100 kkal
(418,6 kílójúl) rúmast þær í um það bil 125 g af
vöðva en sama magn kemst fyrir í aðeins 12–15
g af fituvef, og eru þá vatn og sölt meðtalin.
Af hverju söfnum við orku? Sjálfsagt er það
með mennina eins og mörg önnur dýr sem eiga
það til að safna og geyma orku þegar nóg er til
af henni: Þá eru til varabirgðir ef það skyldi
harðna í ári!
Þórarinn Sveinsson, dósent í sjúkraþjálfun við HÍ.
ER HÆGT AÐ
BEYGJA SKEIÐAR
MEÐ HUGARORKU?
Á meðal spurninga sem hefur verið svarað á Vís-
indavefnum að undanförnu má nefna: Bera allir
Sikhar sama eftirnafn, er hægt að búa til kúlulaga segulstál og hvar á
landinu er helst að finna flöguberg?
VÍSINDI
Reuters
Líkami manna hefur tilhneigingu til að safna orku í formi fitu.
E
INHVERJIR kynnu að spyrja
sig hvað rekur Suðurnesja-
menn til að setja upp Laxness-
fjöður í virðingar- og þakk-
arskyni við Nóbelskáld Íslend-
inga.
Árið 1939 kom út bók með
myndum eftir Jóhannes Kjar-
val. Formála bókarinnar skrifaði Halldór Lax-
ness. Níu ára las ég þennan formála og hafði
hann á mig djúp og varanleg áhrif. Þar fjallaði
höfundur um huglægt og hlutlægt mat manna
og sýndi fram á að það að sjá hlutlægt var að
sjá hlutina eins og þeir sýnast vera en hins
vegar væri hið huglæga raunveruleikinn sjálf-
ur. Auðvitað skildi barnið ekki þessi hugtök en
fann í töfrum málsnilldar Laxness það sem
það síðan hefur trúað og hafði þá eignast vin
sem aldrei brást því.
Flestum Íslendingum sem komnir eru til
vits og ára hlýtur að vera í fersku minni sá
áróður sem rekinn var gegn Suðurnesjamönn-
um þess efnis að þar sinntu menn eingöngu
hermangi og lægju flatir fyrir erlendum læpu-
skapsódyggðum en ræktuðu síður en svo þjóð-
lega menningu.
En eins og barnið átti hauk í horni áttu Suð-
urnesjamenn sömu hjálparhellu í Laxness
enda í það minnsta jafn miklir bókmenntaiðk-
endur og aðrir Íslendingar. Bækur eins og
„Sjálfstætt fólk“, „Íslandsklukkan“, „At-
ómstöðin“ og „Paradísarheimt“ svo eitthvað sé
nefnt og ljóðasetningar eins og „sumir fóru
fyrir jól, fluttust burt úr landi, heillum snauðir
heims um ból, hús þeir byggðu á sandi, í út-
löndum er ekkert skjól, eilífur stormbeljandi“
– og „eins og hún gaf þér íslenskt blóð úngi
draumsnillíngur, megi loks hin litla þjóð leggja
á hvarm þér fíngur meðan harpa hörpuljóð á
hörpulaufið sýngur“. Þannig mætti lengi telja
það sem stappaði stálinu í þá sem stóðu í eld-
línunni í baráttu íslenskrar menningar gagn-
vart varhugaverðum áhrifum erlendis frá.
Skáldjöfurinn og heimsborgarinn Laxness
kenndi okkur að meta margt sem til fyr-
irmyndar var með öðrum þjóðum en standast
jafnframt hvers kyns læpuskap og ódyggðir.
Hvernig varð Laxness-fjöðrin til? Ég fer
hvert sumar til Kinnarstaða við Þorskafjörð
þar sem ég var krakki í sveit á sumrin. Í einni
slíkri ferð var ég staddur ofan við Skáldstaði
sem er skammt frá Kinnarstöðum. Það var al-
veg kyrrt og engin umferð. Ég stöðvaði bílinn,
steig út og naut friðarins stundarkorn.
Skyndilega var eins og þyngdi yfir og ég sá
stóran haförn fljúga. Hann fór hægt og hafði
allt umhverfið á valdi sínu, lyfti sér síðan hátt
til lofts með súgi. Þegar ég síðan kom í fjöruna
á Kinnarstöðum og var farinn að vaða í sjónum
eins og ég gerði krakki sá ég arnarfjöður sem
flaut við fjöruborðið og skynjaði um leið sam-
hengið. Þannig var Halldór Laxness eins og
haförn sem hafði íslenska þjóð undir áhrifa-
valdi sínu í sínum bókmenntum og dró æv-
inlega arnsúg í fluginu. Ég tók fjöðrina með
mér og hafði hana til fyrirmyndar þegar ég
mótaði laxness-fjöðrina sem nú stendur
stækkuð í bronsi.
Halldór Laxness var ævinlega upptekinn af
börnum og því væri við hæfi að veita við-
urkenningu þeim börnum á skólaaldri sem
sýndu athyglisverðan árangur í máli og stíl
þeim til hvatningar og móðurmálskennurum
til stuðnings í þeirra ómetanlega starfi.
Morgunblaðið/Svanhildur Eiríksdóttir
Sigríður dóttir skáldsins afhjúpaði Laxness-fjöðrina í Reykjanesbæ síðastliðið haust og
var móðir hennar, Auður Laxness, viðstödd ásamt listamanninum, Erlingi Jónssyni.
HAUKUR
Í HORNI
Höfundur er myndlistarmaður. Verk hans, Laxness-
fjöðrin, var nýverið afhjúpað í Reykjanesbæ.
E F T I R E R L I N G J Ó N S S O N