Lesbók Morgunblaðsins - 01.03.2003, Blaðsíða 8

Lesbók Morgunblaðsins - 01.03.2003, Blaðsíða 8
8 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 1. MARS 2003 O PINN fundur sem menn- ingarmálanefnd Reykjavíkur efndi til 7. febrúar sl. um sýninga- stefnu Listasafns Reykjavíkur hefur orðið mörgum tilefni til íhug- unar um sýningahald safnsins. Fundurinn fjallaði öðrum þræði um kvartanir nokkurra listamanna um að þar sem ákvörðun um sýningar væru alfarið í höndum forstöðumanns safnsins ættu þeir þess ekki kost að sýna í safninu. Þeir vilja að horfið verði aftur til fyrirkomulags sem var lagt af fyrir meira en áratug, og fólst einfaldlega í því að ákveðnir salir safnsins voru leigðir út til listafólks í samræmi við umsóknir. Í tilefni af þessum umræðum tel ég rétt að lýsa að nokkru með hvaða hætti sýningar í Listasafni Reykjavíkur eru skipulagðar, og hvernig það skipulag hefur þróast. Fyrst ber að nefna, að formlega séð varð Listasafn Reykjavíkur fyrst til á síðasta ári, þegar borgarráð staðfesti samþykkt um starf- semi safnsins. Fyrir þann tíma hefur safnið starfað í samræmi við reglugerð um safn Ás- mundar Sveinssonar og samþykkt um Kjarvals- staði, sem báðar voru komnar til ára sinna. Listasafn Reykjavíkur sér um menningar- starfsemi í Ásmundarsafni við Sigtún, á Kjar- valsstöðum og í húsnæði safnsins í Hafnarhús- inu, sem var opnað árið 2000. Elsti hluti safnsins eru Kjarvalsstaðir, sem voru opnaðir 1973. Frá upphafi starfseminnar á Kjarvalsstöðum var viðhöfð sú vinnuregla, að sýningar í húsinu voru ýmist haldnar á vegum húsráðenda – sem voru þá stjórn Kjarvalsstaða, síðar menningarmála- nefnd, og fyrstu árin einnig Félag íslenskra myndlistarmanna – eða að listamenn gátu leigt sér aðstöðu í húsinu og sáu sjálfir um allt sem laut að sýningunum. Á 9. áratugnum varð þró- unin smám saman í þá átt að menningarmála- nefnd stóð fyrir öllum veigamestu sýningum í húsinu, og varð sú þróun meira áberandi eftir að faglega menntaður forstöðumaður var ráðinn til starfa 1988. Sýningahald á Kjarvalsstöðum hefur alltaf verið umdeilt, en sú menningarmálanefnd sem stýrði málum safnsins á þessum tíma var þó sannfærð um réttmæti þeirrar þróunar að bjóða listafólki í auknum mæli að sýna í stað þess að leigja sali Kjarvalsstaða út. 1992 steig hún skrefið til fulls, og lagði til við borgarráð að nefndin stæði alfarið að listsýningum á Kjar- valsstöðum. Það var samþykkt. Þetta þýddi að það fyrirkomulag lagðist af fyrir meira en áratug að listamenn sæktu um sýningaraðstöðu á Kjarvalsstöðum. Þess í stað var ákveðið að bjóða listamönnum að sýna end- urgjaldslaust, en það verkefni fól menningar- málanefnd í raun forstöðumanni safnsins. Í greinargerð með tillögunni var bent á að þessi breyting myndi stuðla að aukinni þjónustu við listamenn og gera þeim kleift að kynna list sína á sem bestan hátt. Það er vert að benda á að í greinargerð með tillögunni 1992 voru listamenn hvattir til að kynna starfsfólki Kjarvalsstaða og menningar- málanefnd list sína og hafa þannig frumkvæði að sýningum eftir því sem kostur væri, þó að þeir gætu ekki lengur sótt um að leigja sali á Kjar- valsstöðum til sýninga á eigin vegum. – Þetta gekk eftir, og eru hugmyndir og ábendingar listafólks enn mjög mikilvægur þáttur í hvernig sýningar verða til í safninu. Það er einnig athyglisvert að umræðan um að hverfa aftur til fyrra horfs og leigja sali safnsins út til listamanna hefur komið upp með reglu- legum hætti, sem augljóslega má tengja borg- arstjórnarkosningum og skipun nýrra menning- armálanefnda. Þessi stefna var sett í stjórnartíð sjálfstæðismanna í Reykjavíkurborg árið 1992. Umræðan kom upp á ný 1995, eftir að Reykja- víkurlistinn hafði tekið við stjórn borgarinnar. Meirihluti menningarmálanefndar undir for- ystu Guðrúnar Jónsdóttur arkitekts ákvað að standa við hina mörkuðu stefnu, og studdi m.a. dyggilega tilraunir til að auka hlut alþjóðlegrar listar í sýningardagskrá safnsins í kjölfar aukins alþjóðlegs samstarfs; meirihluti Reykjavíkur- listans var greinilega samþykkur þessu fyrir- komulagi. Nú er þessi umræða komin upp enn á ný, en í kjölfar borgarstjórnarkosninga á síðasta ári var skipuð ný menningarmálanefnd undir forystu Stefáns Jóns Hafsteins fyrir hönd Reykjavíkurlistans. En hvernig hefur þessi stefna verið í fram- kvæmd? Frá 1997 hafa sýningar á vegum Listasafns Reykjavíkur orðið til með mismunandi hætti. Þær hafa ýmist orðið til vegna hugmynda eða ábendinga sem koma frá einstökum listamönn- um hér á landi, hópum þeirra eða samtökum; önnur verkefni hafa komið til vegna tilboða frá eða samstarfi við erlenda aðila – listamenn, gall- erí, söfn – og enn önnur eiga upphaf sitt meðal starfsfólks safnsins með einum eða öðrum hætti. Hafa ber í huga að Listasafn Reykjavíkur er þjónustustofnun við borgarbúa, og verður því ekki rekið fyrst og fremst með hagsmuni lista- manna í huga. Sem þjónustustofnun á sviði myndlistar má segja að safnið gegni tvíþættu hlutverki: annars vegar ber því að gera listaverk í eigu Reykjavíkurborgar sem best aðgengileg fyrir sem flesta, og hins vegar á það að efna til listsýninga sem gera borgarbúum og gestum kleift að fylgjast með því sem er að gerjast í myndlistinni á hverjum tíma. Unnið er að fyrra markmiðinu með því að halda sýningar á sérsöfnunum sem eru í eigu Listasafnsins (Ásmundarsafni, Kjarvalssafni og Errósafni) og er þeim þjónað með föstum sýn- ingum og föstu sýningarrými, sem gegnir m.a. miklu hlutverki fyrir fræðslustarf safnsins. Al- menn listaverkaeign safnsins er uppistaðan í sumarsýningum og ýmsum öðrum sérverkefn- um, en auk þess lánar safnið listaverk til sýn- ingar í borgarstofnunum og í öðrum söfnum, eft- ir því sem kostur er. Að síðara markmiðinu er unnið með með því að bjóða góðu listafólki, innlendu og erlendu, að halda sýningar í sölum safnsins. Deilan um sýn- ingahald safnsins stendur væntanlega um þenn- an hluta af sýningadagskrá safnsins. Við val á sýningarverkefnum í þessum síðari flokki eru nokkrir þættir hafðir til hliðsjónar: – Að bregða upp eins fjölbreyttri mynd af listalífinu og hægt er; þannig skiptast á sýningar á málverkum, höggmyndum, ljósmyndum, byggingarlist, innsetningum, myndböndum, gjörningum – listaverkum sem eru unnin í hverjum þeim miðli sem listamönnum dettur í hug að nota. – Að bjóða hingað erlendu listafólki sem getur gefið landsmönnum innsýn í það sem helst er að gerjast erlendis, hvort sem um er að ræða ungt listafólk á uppleið eða þekktari nöfn, sem þegar hafa öðlast nokkra viðurkenningu á listasviðinu. – Að velja til sýninga innlenda listamenn sem eru að gera mikilvæga hluti sem standast fylli- lega samanburð við það sem er að gerast á al- þjóðavettvangi. Síðustu ár hefur safnið þannig boðið listunnendum að sjá verk eftir ýmsa mæt- ustu listamenn þjóðarinnar, jafnt hina eldri (svo sem Kristján Davíðsson, Hallstein Sigurðsson, Magnús Pálsson, Hafstein Austmann, Þor- björgu Pálsdóttur og Gest Þorgrímsson) sem hina yngri (svo sem Ólaf Elíasson, Einar Gari- balda Eiríksson, Ásmund Ásmundsson, Gjörn- ingaklúbbinn, Ingu Svölu Þórsdóttur og Bjarg- eyju Ólafsdóttur) og verk fjölda góðra fulltrúa kynslóðanna þarna á milli. Það er mikil áskorun og heiður að fá að takast á við það verkefni að velja listafólk til sýninga í safninu og geta þannig stutt við bakið á list- rænni sköpun, sem hefur burði til að verða veigamikill þáttur í íslensku listalífi. Það segir sig sjálft að þar sem gróskan er mikil í myndlist- inni hér á landi er fjöldi þeirra hugmynda, ábendinga, tilboða og möguleika sem koma fram mun meiri en safnið nær að vinna úr á hverjum tíma. Þetta verður til þess að það komast ekki allir að sem vilja til að sýna í safninu, og um leið verður að játa að ekki eiga allir jafnmikið erindi á slíkan sýningarvettvang. Samkvæmt staðfestri samþykkt um starf- semi safnsins er það hlutverk forstöðumanns safnsins að takast á við þetta gjöfula viðfangs- efni. Seint verður hægt að fullyrða endanlega um hvernig hefur til tekist, en það er ánægju- legt til þess að vita að erlend listatímarit og söfn eru farin að veita sýningum safnsins vaxandi at- hygli, og á síðustu árum hafa safninu borist ýmis tilboð um samstarfsverkefni, sem vonandi eiga eftir að skila sér í aukinni kynningu á íslenskri myndlist á erlendum vettvangi. Forstöðumaður safnsins tekur endanlegar ákvarðanir um sýningahald í Listasafni Reykja- víkur, enda er hann ábyrgur fyrir öllum rekstri þess. Þetta er spennandi verkefni fyrir hvern þann sem tekst á við það, en til að tryggja vissa fjölhæfni í starfsemi safnsins til lengri tíma er forstöðumaður safnsins ráðinn tímabundið til starfa. Hver forstöðumaður hefur því aðeins áhrif á sýningastefnu safnsins á sínum starfs- tíma; núverandi forstöðumaður lætur af störf- um í síðasta lagi á miðju ári 2005, en eftir það ræður menningarmálanefnd nýjan aðila sem yf- irmann safnsins, sem þá hefur mögulega aðrar áherslur í sýningahaldi en nú eru viðhafðar. Það eru uppi ýmsar kenningar um hlutverk og eðli listasafna í samtímanum. Ólafur Gíslason gerði þau mál m.a. að umræðuefni í grein sinni í Lesbók Morgunblaðisins 15. febrúar sl., sem bar yfirskriftina „Listasafnið á tímum fjölhyggj- unnar“ og rakti þar helstu kenningar á þessu sviði með skemmtilegum hætti. Þeir sem hafa fjallað um þessi mál fyrir hönd Reykjavíkurborgar hin síðari ár hafa hallast að þeim kenningum að listasafn eigi ekki að reyna að vera ákvörðunaraðili um hinn rétta fagur- fræðilega smekk, heldur eigi öðru fremur að vera vettvangur og miðstöð miðlunar á þeim ólíku straumum, innlendum sem alþjóðlegum, sem eru uppi á hverjum tíma. Að baki liggur það viðhorf að Listasafn Reykjavíkur eigi að hýsa ólík sjónarmið og þau skoðanaskipti sem listin getur vakið og miðlað í samfélaginu á hverjum tíma, og er það viðhorf endurspeglað í þeirri samþykkt sem safnið starfar eftir. En hvernig hefur þetta komið fram í sýninga- dagskrá safnsins síðustu ár? Í yfirliti yfir sýningahald í Listasafni Reykja- víkur frá 1997–2003 (að báðum árum meðtöld- um, með fyrirvara um breytingar á áætlunum yfirstandandi árs) má sjá nokkuð fjölbreytta dreifingu sýninga (sjá meðfylgjandi töflu). Rúmlega 60% af sýningum þessa tímabils eru helgaðar íslenskri myndlist, en tæplega 40% snúa að alþjóðlegri list. Fjöldi einkasýninga og samsýninga reynist nokkuð svipaður. Sé litið til vægis einstakra miðla í sýningarflórunni eru skilgreiningar ef til vill umdeilanlegar, en þó má sjá þar ákveðnar heildarlínur; málverkin eru sá miðill sem mest er sýndur, en sýningar helgaðar höggmyndum, ljósmyndum, byggingalist og hönnun koma þar á eftir. Þær sýningar sem eru nefndar „blandaðar“ í þessu yfirliti hafa ekki verið markaðar einum miðli fyrst og fremst, en innihalda – auk ofangreindra miðla – listaverk unnin í formi myndbanda, innsetninga, grafík- listar, lýsinga úr handritum, gjörninga, texta, plakata o.s.frv. Þó er áberandi að málverkið er í lykilhlutverki í nær þriðjungi þessara „blönd- uðu“ sýninga, þannig að hlutur þess hefur reynst veglegur í sýningadagskrá safnsins á þessum árum. Það verður tæpast annað sagt en að sýningar í safninu hafi verið ólíkar og fjölbreyttar á þess- um tíma, og því einsýnt að flestir listunnendur hafi getað fundið þar eitthvað við sitt hæfi, og á meðan sumt hafi verið kunnuglegt hafi annað orðið til að opna augu þeirra fyrir áður óþekkt- um möguleikum listarinnar. Þannig er eðlileg- ast að opinbert listasafn starfi nú á tímum – sem vettvangur ólíkra strauma og sjónarmiða í list- inni, þannig að gestir þess geti kynnst sem mestu af þeirri ólgu, sem er að finna í sam- tímalist. Mótun sýningadagskrár er engu að síð- ur sífelld leit að jafnvægi, sem þó verður von- andi aldrei náð, því val á sýningum verður aldrei að endanlegri formúlu, sem getur gengið eftir í það óendanlega; slíkt ber dauðann í sér. Það er erfitt að sjá að afturhvarf til fyrri hátta – með því að leigja út einhverja sýningarsali Listasafns Reykjavíkur – muni bæta þessa sýn- ingarflóru. Ein ástæða þess að núverandi fyr- irkomulag var tekið upp á sínum tíma var sú að leigusýningar í safninu voru vægast sagt um- deildar að gæðum, og þóttu á stundum bera keim af því að eiga innkomu sína að þakka póli- tískum þrýstingi. Einnig var staðan orðin sú að einungis var hægt að verða við um fjórðu hverri umsókn um leigu á sýningarsal, en margir lista- menn töldu engu að síður að með því einu að sækja um hefðu þeir helgað sér rétt á sýningu á Kjarvalsstöðum, þó síðar yrði; það var komin upp biðraðamenning í sýningahaldi. Það er erfitt að ímynda sér að listafólk sækist eftir að innleiða slíkt fyrirkomulag að nýju, og einnig er ekki augljóst með hvaða hætti það mundi þjóna hagsmunum borgaranna, eigenda safnsins. Ef þessi háttur yrði tekinn upp að nýju væri Listasafn Reykjavíkur jafnframt orðið mjög sérstakt í samfélagi sambærilegra safna, bæði hér á landi og á alþjóðavísu, þar sem þró- unin hefur orðið sífellt meiri í átt til sérhæf- ingar. Ekki er vitað til þess að útleiga sýning- arsala tíðkist í nokkru safni höfuðborga Norðurlanda né nokkurra annarra landa sem Íslendingar vilja bera sig saman við. Þróunin í samfélaginu hefur á öllum sviðum verið í átt til aukinnar fagmennsku. Reykjavík- urborg hefur hin síðari ár verið að þróa sitt stjórnkerfi í átt til aukinnar dreifistýringar, til faglegrar stjórnunar í stað pólitískrar, og í þá átt að auka ábyrgð forstöðumanna á þeim rekstri sem þeim er treyst fyrir. Ákvörðun um breytingu til fyrri hátta varðandi sýningahald í Listasafni Reykjavíkur væri því greinilega úr takti við þessa þróun. Það er eitt helsta viðfangsefni menningar- málanefndar Reykjavíkurborgar á hverjum tíma að marka stefnuna í starfsemi menning- arstofnana borgarinnar, íbúum Reykjavíkur til heilla. Það mun nefndin einnig gera varðandi Listasafn Reykjavíkur, enda er safnið þjónustu- stofnun við borgarbúa, og á sem slík að vera vettvangur lifandi menningar- og listaumræðu á hverjum tíma. SÝNINGASTEFNA LISTA- SAFNS REYKJAVÍKUR Morgunblaðið/Sverrir Íslensk samtímalist í Listasafni Reykjavíkur eftir Guðjón Bjarnason og Bjarna Sigurbjörnsson. Hlutverk listasafna hefur verið til umræðu að und- anförnu. Hér er fjallað um hlutverk Listasafns Reykja- víkur, sýningastefnu þess og framkvæmd hennar. E F T I R E I R Í K Þ O R L Á K S S O N Höfundur var skipaður forstöðumaður Listasafns Reykjavíkur 1997. Ráðningartíma hans sem for- stöðumanns safnsins lýkur 2005.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.