Lesbók Morgunblaðsins - 01.03.2003, Blaðsíða 14

Lesbók Morgunblaðsins - 01.03.2003, Blaðsíða 14
14 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 1. MARS 2003 SANNKALLAÐIR stórtónleikar verða haldnir í Langholtskirkju á morgun kl. 16, þegar þar stíga á stokk tveir kórar, Há- skólakórinn og Vox Academica. Hátt í hundrað kórmeðlimir flytja hið þekkta og fallega verk, Gloria, eftir Antoni Vivaldi, ásamt kammersveitinni Jón Leifs Camme- rata. Konsertmeistari er Sigrún Eðvalds- dótir og einsöngvarar þær Sigrún Hjálmtýs- dóttir og Sesselja Kristjánsdóttir. Að auki flytja kórarnir Little Requiem eftir Tavener og Miserere eftir Allegri, Sigrún Hjálmtýs- dóttir syngur Ave Maria eftir Acini og Vo- calisu eftir Rachmaninov. Í lokin frumflytur svo kvennadeild kórsins Um nóttina ég svíf eftir Szymon Kuran sem leikur einleik á fiðlu í verkinu. Þetta mun vera í þriðja sinn sem kórarnir halda stórtónleika af þessu tagi en í fyrra fluttu þeir Carmina Burana og hlutu mikið lof gagnrýnenda fyrir. Stjórnandi kóranna er Hákon Leifsson og spurður um tilefni tón- leikanna segir hann þá tækifæri til þess að gefa kórunum tveimur verðugt verkefni til þess að takast á við. „Kórarnir hafa sína sjálfstæðu efnisskrá og tónleikahald allt árið en það er gaman fyrir þá að takast á við ögrandi verkefni sem eru ólík því sem þeir eru annars að fást við,“ segir hann. „Það fylgir því svo mikil hvatning fyrir kórmeð- limina.“ Opinn félagsskapur Nú voruð þið með Carmina Burana í fyrra en Gloriu Vivaldis í ár. Hvað er það sem ræður förinni þegar þú velur verk fyrir svona stóra tónleika? „Ég reyni að velja verkin þannig að þau séu bæði gefandi og vænleg til árangurs og auðvitað verða þau að henta kórunum vel. Þetta eru kórar sem hafa starfað mikið und- irleikslaust og því ögrandi fyrir þá að takast á við verk þar sem heil kammersveit leikur undir. Þetta er hluti af þeirri ákvörðun minni að hafa starfsár þeirra tvískipt, ann- ars vegar að takast á við verk sem eru flutt undirleikslaust – og hins vegar verk þar sem unnið er með hljóðfæraleikurum. Þannig tel ég mig ná meiri fjölbreytni í starfsemina – og það er bæði skemmtilegra fyrir mig og kórmeðlimina.“ Nú á Háskólakórinn sér langa sögu en Vox Academica er kannski minna þekktur kór. Hvaðan kemur hann? „Um helmingur þeirra sem syngja í Vox Academica hefur sungið í Háskólakórnum, aðrir hafa komið héðan og þaðan. Þetta er opinn félagsskapur en ekki nein frímúr- araregla. Háskólakórinn er hins vegar að mestu skipaður nemendum úr Háskóla Ís- lands þótt vissulega séu undantekningar frá því.“ Hvað geturðu sagt mér um verkin sem flutt verða á tónleikunum? „Fyrsta verkið, Gloría eftir Vivaldi, er ítalskt barrokverk, dýrðarsöngur – og klass- ísk perla. Vivaldi var tónlistarstjóri í kvennaklaustri sem skýrir það kannski hvers vegna einsöngsraddirnar eru skrif- aðar fyrir konur. Ég var sannfærður um að þetta væri verðugt verkefni fyrir kórana, vegna þess að fyrir utan það að vera góð tónlist hentar það mjög vel ungum röddum – eins og eru í Háskólakórnum. Síðan frumflytjum við verk eftir Szymon Kuran sem hann samdi við texta sem dóttir hans skrifaði. Þetta er ákaflega fallegt verk, samið fyrir kvennakór og eiginlega ein- kennilegt að það skuli ekki hafa verið flutt fyrr. Að vísu hefur Szymon leikið það á fiðl- una, með píanói og segulbandi. Requiem eftir Tavener er 20. aldar verk og er það sem menn eru farnir að kalla „mystiska“ tónlist 20. aldarinnar. Þau tón- skáld sem fylla þann hóp eru mjög trúuð og taka mið, í sínum tónsmíðum, af kaþólskum kirkjusöng og þessum mystisku aldagömlu hefðum. Og fyrst að Sigrún Hjálmtýsdóttir er að syngja með okkur var ekki annað hægt en að gefa okkur smáþrill með tveimur aríum sem hún syngur.“ Að ná saman hreinum tóni Hákon hefur stjórnað Háskólakórnum síð- astliðin tíu ár, að frátöldum tveimur árum sem hann tók sér frí til að stunda framhalds- nám. En hann hefur verið óslitið með kórinn síðastliðin þrjú ár. Vox Academica er hins vegar aðeins átta ára og byrjaði smátt. „Við vorum aðeins fimm sem byrjuðum með hann fyrir átta árum, segir Hákon og bætir því við að kórinn hafi dafnað vel á þeim árum. Hvað er það sem laðar fólk í kórstarf í eins stórum stíl og gerist hér á landi? „Við erum svo viðkvæm hvert fyrir öðru hér og sífellt að metast og ég held að fólk þurfi hvíld frá því. Í kórstarfi ertu bara að syngja; þar leggjast allir á eitt að ná saman hreinum tóni. Svo er bara svo yndislegt að syngja, einkum fallega tónlist. Sem dæmi um hvað söngurinn gefur mikið þá fór ég fyrir nokkrum árum með kór í æfingabúðir úti á landi. Við æfðum allan daginn, fram að kvöldmat. Svo var tekinn góður tími í að borða – og eftir matinn hélt fólk áfram að syngja.“ DÝRÐAR- SÖNGUR TVEGGJA KÓRA Morgunblaðið/Jim Smart Háskólakórinn á æfingu. „Í kórstarfi ertu bara að syngja; þar leggjast allir á eitt að ná saman hreinum tóni,“ segir Hákon Leifsson stjórnandi. Háskólakórinn og Vox Academica verða með stórtónleika í Langholtskirkju á sunnudaginn, ásamt einsöngvurunum Sigrúnu Hjálmtýsdóttur og Sesselju Kristjánsdóttur. SÚSANNA SVAVARSDÓTTIR ræddi við Hákon Leifsson, stjórnanda kóranna, um starfsemi þeirra og efnisskrá. ÓLAFUR K. Magnússon – Fyrstu 20 árin á Morgunblaðinu, nefnist sýning sem verður opnuð á neðri hæð Gerðarsafns í Kópavogi í dag kl. 15. Á sama tíma verður opnuð árleg sýning Blaðaljósmyndarafélags Íslands á bestu myndum liðins árs í sölunum á efri hæðinni. Á sýningunni með verkum Ólafs gefur að líta tuttugu myndir frá jafnmörgum árum en Ólafur var ljósmyndari Morgunblaðsins í hálfa öld, frá 1947 til ársloka 1996 en þá lét hann af störfum sjötugur að aldri. Ólafur lést tæpu ári síðar. Ólafur K. Magnússon var fyrsti Íslending- urinn sem lærði fréttaljósmyndun og fyrst- ur til að gera fagið að ævistarfi. Eftir nám í ljósmyndun og kvikmyndagerð í New York og Hollywood var Ólafur ráðinn að Morg- unblaðinu, þar sem hann var um árabil eini fasti ljósmyndarinn. Ólafur hafði lag á að fanga afgerandi augnablik fréttnæmra atburða í ljósmynd- um sem hann undirbyggði með næmri form- rænni skynjun. Þá hafði Ólafur öll bestu einkenni góðs fréttamanns og lagði oft og tíðum á sig ómælt erfiði við að koma sem vönduðustum ljósmyndum fyrir augu les- enda Morgunblaðsins. En Ólafur tók ekki bara fréttamyndir. Hann sinnti öllu því sem þurfti að mynda fyrir blaðið og í afar um- fangsmiklu myndasafni hans eru margar perlur; svo sem myndir af merkum lista- mönnum, myndir sem tengjast íslenskri flugsögu og myndir af mannlífinu. Björn Jóhannsson, fulltrúi ritstjóra Morg- unblaðsins, skrifaði um Ólaf látinn: „Ólafur hafði sérlega næmt auga fyrir hlutverki ljósmyndarinnar, hvort sem um var að ræða fréttamyndir, náttúrulífsmyndir eða svip- myndir af fólki. Reykjavíkurmyndir hans eru merk heimild um þróun borgarinnar á tímum mikilla umbyltinga og enginn ljós- myndari annar á jafnmikið safn mynda úr bæjarlífinu.“ Björn bætir við að Ólafur hafði verið „einstakur ljósmyndari og á því leikur ekki nokkur vafi, að með snilld sinni í ljós- myndun braut hann blað í íslenzkri blaða- mennsku“. Í áratugi var Ólafur áhrifamikill kennari þeirra ljósmyndara sem ráðnir voru að Morgunblaðinu og störfuðu þar við hlið hans. Einn lærisveina Ólafs, Ragnar Ax- elsson, segir: „Óli var sérfræðingur í frétta- myndum og sífellt reiðubúinn að miðla af kunnáttu sinni. Hann lagði áherslu á að ljós- myndarinn sæi fyrir sér, um leið og hann væri að mynda, hvernig myndirnar kæmu út á síðum blaðsins. Hvert væri sterkasta augnablikið í keðju atburðanna. Að lesendur blaðsins fengju ætíð sem besta yfirsýn yfir atburðinn í einni eða tveimur hnitmiðuðum myndum. Þannig vann Óli, reyndi ætíð að setja sig inn í aðstæðurnar enda var hann einstaklega næmur fyrir fréttnæmum at- burðum; einn mesti fréttamaður sem þessi þjóð hefur átt.“ Myndirnar á sýningunni endurspegla mörg helstu viðfangsefni Ólafs á þessum tíma; fréttamyndir, portrett af þekktum sem óþekktum einstaklingum og svipmyndir úr þjóðlífinu. Fjölda ljósmynda eftir Ólaf má í dag skoða og kaupa á Myndasafni Morgunblaðs- ins á mbl.is. Á liðnum misserum hefur um- talsverð vinna verið lögð í að gera mynda- safn hans aðgengilegt um leið og vel hefur verið búið um það. Á netinu eru í dag tæp- lega 5.000 myndir eftir hann, flestar frá átt- unda áratugnum en á komandi árum stend- ur til að innskönnuðum myndum fjölgi jafnt og þétt. Sýningin sem opnuð verður í Gerðarsafni í dag er sú fyrsta sem unnin er upp úr safni Ólafs en ætlunin er að halda fleiri sýningar á verkum hans á komandi árum. MANNLÍFIÐ UM MIÐJA ÖLD Morgunblaðið/Ólafur K.Magnússon Ólafur Thors, forsætisráðherra, á sjötta áratugnum. Morgunblaðið/Ólafur K.Magnússon Aðgerð við Reykjavíkurhöfn um 1950.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.