Lesbók Morgunblaðsins - 24.05.2003, Page 6

Lesbók Morgunblaðsins - 24.05.2003, Page 6
6 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 24. MAÍ 2003 Þ AÐ er greinilega til hópur fólks í heiminum sem kallar sig Kúrda. Enginn efast um það en hvort þeir geti kallað sig þjóð er aftur á móti umdeilanlegra. Það helsta sem vinnur gegn því að þeir geti talist þjóð er hversu sundurleitur hópurinn er. Innri og ytri sundr- andi öfl beinast að þeim úr öllum áttum og vegna þeirra þykir sumum meira að segja undr- um sæta að þeir skuli yfirleitt telja sig sérstak- an hóp. Kúrdar tala hvorki allir sama tungu- málið né aðhyllast sömu trúna, félagslegt skipulag þeirra einkennist af mikilli lagskipt- ingu og almennt séð er menning þeirra nokkuð misjöfn eftir einstökum hópum. Auk þess hafa þeir alltaf verið landfræðilega klofnir og dreifð- ir um önnur ríki sem hefur leitt til þess að þeir hafa mætt mismunandi þrýstingi innan ólíkra ríkja. Þessi sundurleitni hefur torveldað Kúrd- unum að mynda sterka samkennd og trú á sam- eiginlega hagsmuni, sjálfsmyndir og örlög. Sundrandi öfl Það hefur oft verið talað um „kúrdískt tungu- mál“ en í rauninni er ekkert eitt slíkt til. Eins og Jack David Eller segir í bók sinni From Culture to Ethnicity to Conflict (1999) er reyndin sú að hópurinn talar mörg skyld en ólík tungumál og mállýskur sem eru innan hinnar vestur-írönsku málafjölskyldu indó-evrópska málahópsins. Sum þeirra eru mjög svipuð en sum það ólík að enginn skilningur er á milli þeirra. Auk þess tala sumir Kúrdar ekkert af þeim málum sem talin eru tilheyra hópnum sökum samlögunar (þvingaðrar eða sjálfviljugrar) við ríkin sem þeir búa í og því tala margir þeirra einungis tyrknesku, arabísku eða persnesku. Hópurinn hefur því eðlilega ekki heldur sameiginlegt rit- mál og hann hefur notast við þrjár mismunandi leturgerðir, þ.e. arabíska, latneska og kyrill- íska. Thomas Hylland Eriksen hefur bent á í bókinni Ethnicity and Nationalism (1993) að samræmt menntakerfi sem nær til alls eða að minnsta kosti stórs hluta almennings skiptir sköpum fyrir þróun samkenndar meðal með- lima þjóðar því það gerir þeim kleift að læra samtímis hvað það þýðir að tilheyra þjóðinni og hver saga hennar er og einkenni. Þar sem Kúrdarnir búa ekki yfir sameiginlegu tungu- máli hafa þeir lítinn grundvöll fyrir kerfi af þessu tagi sem setur þeim óneitanlega skorður varðandi samsemd og samkennd. Þar af leið- andi rennir tungumálið litlum stoðum undir sameiningu hópsins. Fjöldi trúarbragða er ekki síður Þrándur í Götu samheldni hans. Meirihluti Kúrda er múslimar og íslam er því talin „eðlileg“ trú hópsins en fjölbreytileikinn innan íslam, ásamt annars konar trúarbrögðum sem finnast á með- al Kúrdanna, gerir það að verkum að þeir geta ekki notað trúna til að stuðla að einingu hóps- ins. Sú skipting sem einkennir íslam almennt, þ.e. í súnníta og sjíta múslima, er einnig ríkjandi hjá Kúrdum. Skiptingin hefur ekki valdið sérstökum deilum hjá hópnum, frekar en almennt gerist í íslömskum ríkjum, en hún auð- veldar að sjálfsögðu heldur ekki sameiningu hans. Til að flækja málin svo enn frekar skiptast þessar tvær stefnur í alls konar minni trúarreglur og -hópa auk þess sem sumir Kúrd- ar eru kristnir, gyðingtrúar eða aðhyllast óhefðbundnari trú eins og alevisma og yazid- isma. Alevismi tilheyrir reyndar íslam en hann hefur gjarnan verið talinn villutrú sem hefur leitt til árekstra milli þeirra sem fylgja honum og þeirra sem fylgja hefðbundnari íslamskri trú. Yazidismi hefur einnig verið talinn villutrú en hann er blanda íslam, kristni, gyðingdóms og heiðindóms. Martin van Bruinessen segir í bók- inni The Kurds (1992) að þessi trú hafi í gegn- um tíðina verið misskilin vegna þess að margir utanaðkomandi telja (ranglega) að ein af ver- unum sem yazidistarnir dýrka sé Satan en það hefur leitt til þess að þeir eru taldir djöfladýrk- endur. Það er því ekkert skrítið að trúin sé ekki heldur grundvöllur fyrir tilfinningu um einingu þjóðarinnar. Fáir telja sig eflaust eiga samleið með „villutrúarmönnum“ og „djöfladýrkend- um“ og því elur trúin á sundurlyndi hópsins frekar en að sameina hann. Fornt ættbálkaskipulag einkennir hópinn og eins og í svo mörgum ættbálkasamfélögum þá eru kúrdísku ættbálkarnir í eilífri samkeppni hver við annan. Kúrdana skortir opinbert valdakerfi þannig að í staðinn fyrir að fylkja sér í sameiningu á bak við einn leiðtoga styður fólk venjulega æðsta mann síns ættbálks. Þetta ger- ir hollustu mjög persónulega og fólk á því erfitt með að viðurkenna vald annarra en höfðingja síns. Hollusta við ættbálkinn er því ríkjandi meðal Kúrdanna og telja margir að það sé helsta hindrunin gegn sterkri kúrdískri þjóð- arvitund. Það er þó ekki bara sambandsleysi milli ættbálkanna heldur einnig milli íbúa dreif- býlis og þéttbýlis. Margir Kúrdar, sérstaklega borgarbúar, hafa misst tengslin við ættbálkinn sinn og telja sig þess vegna ekki hluta af ætt- bálkasamfélaginu. Félagslegt skipulag er því enn eitt sundrandi aflið sem lifir meðal hópsins. Þar sem Kúrdarnir eru dreifðir um mörg ríki, þ.e. Tyrkland, Írak, Íran, Sýrland, Armen- íu og Azerbajdzhan, hafa þeir ekki allir búið við sömu aðstæðurnar og því orðið fyrir ólíkum áhrifum. Menning þeirra hefur þess vegna þróast í margar ólíkar áttir og hún er langt frá því að vera heildstæð. Þetta hefur leitt til þess að ósjaldan eiga Kúrdar í til dæmis Írak auð- veldara með að tengjast Írökum en öðrum Kúrdum í til dæmis Tyrklandi eða Íran og hefur það truflað þjóðernishreyfingar þeirra í að ná að snerta alla meðlimi hópsins í einu og skapa sameiginlega þjóðarvitund. Ekki nóg með það að Kúrdarnir séu svona sundurleitir sjálfir eins og raun ber vitni heldur hafa ríkin sem þeir eru dreifðir um alið á sundrungu þeirra til að koma enn frekar í veg fyrir að þeir geti verkað sem sterk heild. Írak og Íran, sem löngum hafa haft stirð samskipti sín á milli, vinna meira að segja saman til að bæla niður þjóðernisvakningu Kúrdanna. Tyrkir hafa einnig lagt mikið upp úr því að kæfa þjóðerniskennd þeirra með því að banna tungumál þeirra, menningu og önnur kúrdísk einkenni eins og kúrdíska stjórnmála- flokka sem þeir telja grafa undan einingu tyrk- neska ríkisins (sbr. frétt í Morgunblaðinu 14. mars 2003). Miklir hagsmunir eru í húfi fyrir þessi ríki því ef þjóðernishreyfingar Kúrdanna yrðu það sterkar að þær gætu sameinað allan hópinn í öflugri sjálfstæðisbaráttu ættu ríkin á hættu að missa landsvæði til Kúrdanna og að öllum líkindum um leið mikilvægar auðlindir eins og olíu og vatn. Þau vilja því auðsjáanlega gera sem minnst úr þjóðernishreyfingu kúrd- íska hópsins. Sameiningaröfl Mörk þjóðarinnar afmarka nánasta samfélag fólks og skilgreina þannig hverjir teljast með- limir hennar og hverjir ekki, þ.e. greina „okk- ur“ frá „hinum“. Þjóðernissinnar geta að sjálf- sögðu ekki búið til þjóðir úr engu og það verður að vera einhver tenging milli fólksins sem á að mynda þjóðina þannig að „við“ afmarkist vel frá „hinum“. Umfjöllunin hér að ofan hefur hins vegar sýnt að í tilfelli Kúrdanna verður „við“ greinilega stundum að „hinum“ og því hefur þeim reynst erfitt að nýta mátt þjóðernishyggj- unnar til að virkja hópinn sem sérstaka þjóð og uppfylla drauma sína um eigið ríki. Þrátt fyrir þetta líta Kúrdar á sig sem sérstakan hóp, frá- brugðinn Persum, Anatólum og aröbum, því þeir eigi meira sameiginlegt og séu líkari hver öðrum heldur en þjóðunum í kringum þá. Þeir telja því að þeir séu annað og meira en bara minnihlutahópur í margmenningarríkjum. Þetta er einn af þeim þáttum sem vinna með því að þeir geti kallað sig þjóð. Engin ein ákveðin formúla er til fyrir þjóð (sumar þjóðir skilgreina sig út frá tungumáli, aðrar út frá trúarbrögðum og enn aðrar út frá sögu, kynþætti, uppruna, menningu og land- svæði eða einhvers konar blöndu af þessum eða öðrum þáttum) en það sem verður þó alltaf að vera til staðar, ef þjóð á að rísa, er sameig- inlegur vilji meðlima hópsins. Til að skapa heildarniðurstöðuna, þ.e. þjóðina, skiptir tilvist eða fjarvist einstakra þátta ekki máli heldur bara tilvist fullnægjandi aðstæðna til samskipta og skilnings. Til dæmis eru fjögur tungumál töl- uð í Sviss en Svisslendingar eru samt ein þjóð því hver þeirra hefur lært nógu marga siði, venjur, tákn, minningar, sögulega atburði og annars konar tengingar sem í sameiningu gera þeim kleift að eiga betri samskipti hver við ann- an en fólk sem tilheyrir annarri þjóð þó að það tali sama málið. Þetta þýðir að sundurleitni Svisslendinga er ekki fyrirstaða fyrir tilvist þjóðarinnar og því þarf sundurleitni Kúrdanna ekki heldur að vera raunveruleg fyrirstaða fyrir tilvist kúrdísku þjóðarinnar. Það má því segja að kúrdíska þjóðin sé allir þeir sem, sökum um- hverfisins og aðstæðnanna sem þeir búa við, finna hjá sér ákveðinn skilning um kúrdísk ein- kenni og tilfinningu um sérstakan félagsskap sín á milli. Það eru litlar sannanir til fyrir því að Kúrdar hafi litið á sig sem einstaka þjóð fyrr en á síðari hluta 19. aldar eða í byrjun þeirrar tuttugustu. David McDowall segir í bók sinni A Modern History of the Kurds (1996) að talið sé að þjóð- arvitund Kúrdanna hafi komið til þegar ríkin sem þeir bjuggu í fóru að endurskilgreina sig út frá þjóðerni og þeim fundist sér neitað um sín eigin kennileiti í kjölfarið. Kúrdarnir líta til fornrar sögu og hugmynda um sameiginlega forfeður (hugsanlega ímyndaðra) til að mynda samstöðu sem þjóð. Í fjögur þúsund ára göml- um súmerskum áletrunum er sagt frá hópum sem hafa verið skilgreindir sem Kúrdar eða for- feður þeirra og þó hægt sé að efast um áreið- anleika þessara heimilda breytir það ekki þeirri staðreynd að Kúrdar nú á dögum geta tengt sig við þessa ævafornu hópa. Það er vissulega ómetanlegt fyrir hóp af fólki í baráttu fyrir sjálfsákvörðunarrétti sínum. Kúrdar hafa einnig litið á ákveðið svæði, þ.e. Kúrdistan, sem eins konar staðfestingu á að þeir séu þjóð. Ríkin sem Kúrdistan sker geta vel neitað tilvist þess en í augum Kúrdanna er það ættjörð þeirra. Þjóðernissinnar vísa til þess að Kúrdar hafa búið á svæðinu frá ómunatíð til að veita kúrdísku þjóðinni sérstaka tengingu við það. Auk þess hefur Kúrdistan ákveðna dul- ræna ásjónu hjá Kúrdum sem „fjallið“ sem er bæði ímyndaður og raunverulegur staður. Þrátt fyrir að margir Kúrdar yfirgefi sveitina og fjallið og flytji til borga eða bæja missir þessi ímynd um Kúrdistan ekki mátt sinn og samein- ingarafl. Það er vegna þess að þjóðir eru fyrst byggðar í huganum áður en þær birtast í hlut- veruleikanum og Kúrdistan er táknmyndin um einingu kúrdísku þjóðarinnar. Ættbálkaskipulagið sem Kúrdarnir búa við hefur verið uppspretta sundrunar og veikleika hópsins, eins og áður hefur verið fjallað um, en þrátt fyrir það hefur skipulagið einnig verkað sem samloðunarkraftur, meira að segja fyrir Kúrda í borgum. Michael Ignatieff hefur gert rannsókn meðal Kúrdanna og segir í bókinni Blood and Belonging (1993) að fastheldni þeirra hvað varðar hollustuna við ættbálkinn hafi að mörgu leyti verndað þá gegn samlögun og inn- limun í aðra hópa. Þó það sé ansi þversagna- kennt hefur skipulagið því bæði torveldað og auðveldað samkennd Kúrdanna. Það er hins vegar ekki óþekkt að ættbálkaþjóðir styðjist við ættbálkaskipulagið innbyrðis en þjóðarskipu- lagið út á við. Guðmundur Hálfdanarson sagnfræðingur segir í greininni „Hvað gerir Íslendinga að þjóð?“ (Skírnir, 1996) að hver þjóð túlki söguna eftir eigin hentugleika til að skapa sjálfsmynd hópsins og einingu hans. Samkenndin byggir þess vegna bæði á því sem menn muna og því sem menn „gleyma“. Þeir velja að gleyma því sem sundrar hópnum og muna það sem sam- einar hann og þess vegna eru minningarnar alltaf að hluta til sögulegur skáldskapur. Það skiptir því í rauninni engu máli hvort kúrdískur hópur hafi verið til í fjögur þúsund ár eða ekki. Það sem skiptir máli er að Kúrdar nota hann nú til að skapa sjálfsmynd og einingu hópsins sem þjóðar. Þetta er hinn sögulegi skáldskapur í hnotskurn. Í augum kúrdískra þjóðernissinna er það engin spurning að kúrdíska þjóðin sé náttúrulegt fyrirbæri (en ekki félagslega sköp- uð eins og hún raunverulega er) og því ævaforn og hverjum Kúrda í blóð borin. Kúrdísku þjóð- ernissinnarnir sjá söguna í ákveðnu ljósi (rétt eins og allir aðrir þjóðernissinnar) og nota forn- ar goðsagnir, tákn og sögu til að staðfesta kúrd- ísk einkenni og sjálfsmyndir. Þannig greina þeir „okkur“ frá „hinum“. Niðurstaða Eru Kúrdarnir þá þjóð eða ekki? Nú þegar ég hef vegið rökin með því og á móti get ég ekki annað en svarað þessari spurningu játandi. Að mínu mati eru þeir þjóð. Þjóðin er margþætt hugtak því það felur í sér alls konar þætti sem hafa mismunandi áhrif á fólk og sem það telur mismikilvæga og túlkar á ýmsa vegu. Þjóðin er kraftmikil blanda skynjunar og veruleika. Hún er ekki bara samsafn einhverra einstaklinga heldur hópur fólks sem hefur ákveðna samloð- un og samstöðu og er tengt í eina heild í gegn- um sameiginlega þætti sem það telur skapa sér sérstöðu sem þjóð. Það er vissulega margt sem sundrar Kúrdun- um en sameiningaröflin eru engu að síður til staðar og þau virðast hafa yfirhöndina. Það má að vissu leyti líkja aðstæðum Kúrdanna við að- stæður Bandaríkjamanna. Bandaríska þjóðin er það sem hefur verið kallað „deigla“ (e. melt- ing pot) því hún er mynduð úr alls konar ólíkum hópum (breskum, írskum, ítölskum og fleiri). Heildin var því sundurleit til að byrja með en sameiginlegur vilji hópanna til að vera þjóð var hins vegar yfirsterkari muninum á milli þeirra. Eins og áður hefur komið fram er þessi sameig- inlegi vilji grundvallaratriði fyrir tilvist þjóðar og sú staðreynd að Kúrdarnir telja sig eiga meira sameiginlegt og séu líkari hver öðrum heldur en þjóðunum í kringum þá, þrátt fyrir mikla sundurleitni, finnst mér sanna að þeir hafi þennan vilja. Þegar kemur að því að flokka hópinn og finna honum stað í flóknum heimi gera Kúrdarnir bersýnilega skýran greinar- mun á sjálfum sér og öðrum þjóðum í kringum þá. Þjóðernishyggjan, þjóðernishreyfingarnar og þjóðarvitundin eru kannski veik en það kem- ur þó ekki í veg fyrir að þeir líti á sig sem þjóð. Stundum getur minningin um ákveðið tákn í fortíðinni verið nóg til að skapa og viðhalda samkennd þjóðar og Kúrdarnir styðjast einmitt við forna sögu til að færa sönnur á það að þeir séu þjóð. Sagan, ásamt tengslunum við ættjörð- ina, gerir þá að þjóð í þeirra augum og þar sem skoða verður hverja þjóð út frá hennar eigin forsendum (en ekki út frá því hvernig aðrar þjóðir skilgreina sig vegna þess að hver hópur skilgreinir sig sem þjóð út frá sínum þörfum og því sem hann telur mikilvægast fyrir sig) tel ég engan vafa á því að þeir séu sérstök þjóð. Sagan og ættjörðin veita Kúrdunum sameiginlegan skilning og tilfinningu sem gerir það að verkum að þeir eiga auðveldara með að eiga samskipti og skilja hver annan heldur en annað fólk þó það hafi sömu trú eða tali sama mál og ein- hverjir þeirra. Þeir finna einingu í gegnum sög- una og Kúrdistan og eru því tilbúnir að við- urkenna þau réttindi og skyldur gagnvart hver öðrum sem gerir meðlimi hóps að þjóð. Reuters Kúrdískir hermenn halda fána kúrdíska lýðræðisflokksins á loft í norðurhluta Íraks í apríl sl. ERU KÚRDAR ÞJÓÐ? E F T I R D Ö G G G U Ð M U N D S D Ó T T U R Kúrdar virðast sundurlaus hópur fólks. Þeir tala ólík tungumál, aðhyllast mismunandi trú og búa við mismunandi félagslegt skipulag í nokkrum löndum. En eru þeir samt þjóð? Höfundur er nemi í mannfræði við Háskóla Íslands.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.