Lesbók Morgunblaðsins - 07.06.2003, Blaðsíða 2

Lesbók Morgunblaðsins - 07.06.2003, Blaðsíða 2
2 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 7. JÚNÍ 2003 BRESKI rithöfundurinn Fay Weldon, sem efalítið er hvað þekktust fyrir sögu sína Ævi og ástir kven- djöfuls, sendi nýlega frá sér bókina Auto da Fay sem byggist á minningum rithöfund- arins sjálfs. Ekki er þó beinlínis um ævisögu að ræða heldur valda kafla úr sögu Weldon, þar til hún, á fertugs- aldri, skilar af sér handritinu að sjónvarpsleikriti sem markar upphafið að velgengni hennar. Að sögn gagnrýnanda New York Times eru skrif Weldon um margt bæði ómild og skorð- uð, þó glóðin í skrifum höfundar nái vissulega að halda lesendum við efnið. Bestu vinir Bergers THOMAS Berger sendi nýlega frá sér sína 22. skáldsögu sem fengið hefur góð viðbrögð gagn- rýnenda og er jafnvel tal- in í hópi hans bestu verka. Bókin nefnist Best Friends, eða Bestu vinir, og líkt og Berger er von og vísa er sagan eins konar harm- leikskómedía þar sem höfundur leikur sér með mýtuna um líf samtímamannsins. Best Friends, er líkt og heiti bókarinnar, byggð upp í mörg- um lögum og breytist skilningur lesenda á hugtaki titilsins í sam- ræmi við kynni þeirra af ást- arþríhyrningnum sem sagan fjallar um. Ungfrú óvenjuleg BÓK sænska rithöfundarins og teiknarans Johanna Rubin Dranger hefur notið mikilla vin- sælda í Evrópu undanfarið. Bókin nefnist Miss Remarkable and Her Career, sem útleggja mætti sem Ungfrú óvenjuleg og starfsframi hennar. Um er að ræða myndskreytta svarta kómedíu og Miss Re- markable and Her Career verið lýst sem eins konar andsvari við Bridget Jones. Á meðan Bridget drekkir hins vegar sorgum sín- um í ís og dagbókarskrifum sem einkennast af sjálfsvorkunn berst ungfrú óvenjuleg við öllu alvarlegri málefni á borð við þunglyndi og kröfuharða for- eldra. Óvæntur Orange- verðlaunahafi BANDARÍSKI rithöfundurinn Valerie Martin hlaut Orange- verðlaunin fyrir bestu skáld- sögu sem skrifuð var af konu, að því er tilkynnt var í vikunni. Valið þótti nokkuð óvænt, en Martin skaut þar höf- undum á borð við Zadie Smith og Donnu Tartt ref fyrir rass. Bók Martin nefnist Property, eða Eignin, og segir frá eig- inkonu sykurreyrsplantekru- eiganda í New Orleans, sem bölvar mikið þeim fjötrum sem heimilislífið leggur á hana. ERLENDAR BÆKUR Minningar Fay Weldon Thomas Berger Fay Weldon Valerie Martin H UGKVÆMUR innflytjandi getnaðarvarna hefur tekið upp á þeirri nýbreytni að auglýsa tiltekið vörumerki í dagblöðum og tímaritum með teikningum af „stellingu dagsins“. Herferðinni er meðal annars fylgt eftir með útvarpsauglýsingum þar sem ástsæll leikari lýs- ir ítarlega hvernig karl og kona eigi að koma sér í stellingu dagsins. Hann mælir jafnvel með tón- list við hæfi og gefur til kynna æskilegan takt með því að lesa orðin „upp og niður“ af vaxandi ákafa áður en fram kemur hvaða smokkategund býður upp á stellingu dagsins. Þriggja ára dóttir mín hlustaði hugfangin á slíka lýsingu á „sleða- stellingunni“ fyrr í þessari viku en er líklega enn að furða sig á hversu hratt ætlast var til að fólkið færi „upp og niður“ sleðabrekkuna. Vafalítið eiga þessar auglýsingar eftir að vekja tilætlað fjaðrafok – hneykslun í lesenda- bréfum, kaldhæðnislegan Lesbókarpistil, húm- orslausa ályktun í útvarpsráði, jafnvel umræður í sjónvarpi um áframhaldandi klámvæðingu samfélagsins. Innan fárra vikna mun smokka- innflytjandinn sjá vörumerki sínu borgið í bili og láta deigan síga. En það er líka hugsanlegt að framtak hans komi af stað viðameiri Kama Sutra-bylgju sem farið gæti um íslenskt samfélag í sumar eins og dásamlega langdreginn vellíðunarskjálfti. Áður en við vitum af hafa atvinnulausir háskólanemar opnað vefinn www.stelling.is í von um að sala auglýsinga dekki kostnaðinn. Hugsanlega sjá símafyrirtækin vit í því að bjóða viðskiptavinum sínum að fá send skilaboð með lýsingu á spenn- andi stellingum ásamt viðeigandi hringitónum. Unglingaþáttur í sjónvarpi efnir til samkeppni um listrænustu stellingar sumarsins og fer loka- keppnin fram með pompi og pragt á ylströnd- inni í Nauthólsvík. Prentmiðlarnir láta ekki sitt eftir liggja heldur yfirheyra landsþekkta ein- staklinga um eftirlætisstellingarnar (sbr. „Gæludýrið mitt“). Framtakssamir hjúkrunar- fræðingar auglýsa námskeið í „Hjálp í stell- ingum“. Glanstímarit fá stjörnufræðinga til að lýsa þeim stellingum sem eiga best við pör úr ólíkum stjörnumerkjum og í einu þeirra birtist umdeilt viðtal við nýkjörinn þingmann undir yf- irskriftinni „Set mig aldrei í stellingar“. Les- endur verða fyrir vonbrigðum þegar í ljós kem- ur að viðtalið fjallar ekkert um einkalíf viðkomandi heldur aðeins pólitík og Evrópu- sambandið. Þannig tifar tíminn frá okkur, í hröðum takti, fram eftir sumri. Við vöknum andstutt upp við að það er komið haust, heimsóknum á www.stelling.is fer hríðfækkandi, sala á verjum dregst aftur saman. Um nokkra daga skeið er eins og allur vindur sé úr íslensku þjóðinni. En þá birtast hvít segl úti við sjóndeildar- hringinn, ný og spennandi málefni sem kalla á óskipta athygli íslenskra fjölmiðla. Og við verð- um þá vafalítið tilbúin að setja okkur í nýjar stellingar. NÝJAR STELLINGAR Vafalítið eiga þessar auglýs- ingar eftir að vekja tilætlað fjaðrafok – hneykslun í les- endabréfum, kaldhæðnislegan Lesbókarpistil, húmorslausa ályktun í útvarpsráði, jafnvel umræður í sjónvarpi um áframhaldandi klámvæðingu samfélagsins. J Ó N K A R L H E L G A S O N LJÓST er að pólitísk stefnumótun á sveitarstjórnarstiginu hefur mikil áhrif – ekki síður en stefnumótun stjórnvalda á landsvísu og hægt er að benda á nokkra þætti í þessum kafla sem hafa samhljóm með hik- andi velferðarstefnu – skilyrtri vel- ferð. Þar má nefna lága framfærslu- styrki sem duga ekki fyrir lágmarksútgjöldum og einnig tak- markaðan stuðning við börn í fátækt- araðstæðum. Þetta er sú umgjörð sem velferðarkerfið á Íslandi skapar fólki og börnum þess sem kippt er út af vinnumarkaði vegna veikinda, ör- orku, atvinnuleysis og lágra tekna, og hvað sárast er þessu fólki að horfa upp á börn sín sitja stöðugt hjá og koðna niður í depurð og vonleysi. Þannig sprettur fram hin dulda fé- lagsgerð borgarsamfélagsins. Harpa Njálsdóttir Fátækt á Íslandi við upphaf nýrrar aldar. 2003. Fabúlan, lögmál frásagnarinnar Eins og fram kom í grein minni í Skírni, „Fanggæslu vanans“ er engu líkara en að margir sagnfræðingar hafi tekið Jón Prímus trúanlegan þeg- ar hann svarar Umba með þeim orð- um að „eftilvill komist maður næst sköpun heimsins í stærðfræðiform- úlum,“ því þangað hefur sagnfræðin sveigst á síðustu áratugum tuttugustu aldar. Ég hygg að tilraunir sagn- fræðinga til að reikna söguna niður í formúlur hafi haft ófyrirsjáanlegar afleiðingar fyrir hugvísindi. Séra Jón Prímus viðurkenndi hins vegar hreint út að hann kynni ekki stærðfræði. Séra Jón vissi hvað hann söng enda hafði hann numið sagnfræði í sex ár í Þýskalandi áður en hann fór að gera við á guðsvegum. Ætli megi ekki segja að einsögumenn um heim allan hafi flykkt sér undir merki Séra Jóns Prímusar þegar þeir jörðuðu meðalmann lýðfræðinnar við hátíð- lega athöfn og tóku til við að vinna út frá lögmálum frásagnarinnar, „fabúlunni“. Sigurður Gylfi Magnússon Að stíga tvisvar í sama strauminn. Skírnir vor 2003. Brú milli tveggja stranda Jóhannes úr Kötlum er það íslenzkt skáld, sem stendur traustustum fótum í hvorri ljóðhefðinni um sig, þeirri, sem skáld nútímans erfðu frá fyrri kynslóðum, og hinni, sem þau skópu sjálf. Það er honum að þakka að verulegu leyti, að hér hefur ekki orð- ið bylting í ljóðagerð á þessum mannsaldri, heldur breyting. Hann hefur verið brú milli tveggja stranda, tvennra tíma. Hann hefur átt drjúgan þátt í því að tengja fortíð og nútíð og leggja með því traustan grundvöll að framtíð íslenzkrar ljóðagerðar. Gylfi Þ. Gíslason Minni um nokkra íslenska listamenn. 2003. Morgunblaðið/RAX SAMHLJÓMUR HIKANDI VELFERÐARSTEFNU Fuglar himinsins. I Ólafur Elíasson, sem tekur þátt í Feneyjatvíær-ingnum fyrir hönd Danmerkur innan skamms, segir í viðtali í Lesbók í dag að merkja megi nýja strauma í myndlist samtímans. „Ég held [...] að mín kynslóð listamanna hafi unnið með það hvernig við sjáum okkar innri ver- und, hvernig við sjáum okkur sjálf og hvernig við sjáum okkur í samfélaginu – í staðinn fyrir að skoða bara samfélagið og vera um leið táknmynd þess. Að mínu mati felur þema tvíæringsins núna það líka í sér að listin er ekki lengur táknræn fyrir samfélagið; hún er í samfélaginu. Og jafnframt að áhorfandinn eða fólkið getur stigið eitt skref til baka til að virða samfélagið fyrir sér og stigið svo aftur inn í það. Um þessar mundir liggur hin tákn- ræna virkni því hjá fólkinu en ekki samfélaginu.“ Ólafur vekur jafnframt athygli á hugmynda- fræðilegum straumhvörfum er tengjast skilgrein- ingum á sjálfsmyndinni og hugmyndum um útópíu og segir að þó breytingar hafi orðið síðastliðin hundrað ár sé „„andhverfan“ enn til staðar, en að mínu mati snýst hún ekki um ytri áform lengur, heldur innri áform.“ „Ég vildi gefa mynd af því hversu fjölhæfur Jónas var og valdi til þýðingar ólíkar birtingarmyndir ljóðagerðar hans, dæmi um prósaskrif hans og nokkrar af hans eigin þýðingum á þýskum og dönskum skáldskap. Þar sem náttúruvísindin voru stór þáttur í ævistarfi Jónasar, læt ég fylgja þýð- ingar á ritgerðum er hann vann á sviði jarð- og landfræði og fjalla nokkuð um þann þátt í ævi hans í inngangskaflanum.“ IIÞannig mælist Dick Ringler sem hefur lagt sigeftir þýðingum og rannsóknum á verkum Jón- asar Hallgrímssonar um árabil. Íslendingar hafa allar götur verið sannfærðir um snilld Jónasar en útlendir unnendur ljóðlistar hafa til þessa að mestu farið á mis við þennan ljóðsnilling 19. ald- ar. Ekki þarf að efast um að Jónas stendur þægi- lega jafnfætis þeim stóru evrópsku ljóðskáldum rómantísku sem hvað mest er haldið á lofti og hef- ur helst skort á aðgengið að list hans. Vandi íslenskra bókmennta fyrr og síðar við að ná eyrum og augum umheimsins hefur ávallt verið fólgin í tungumálinu og skorti á góðum þýðingum. Það er því full ástæða til að taka því fagnandi þeg- ar erlendur fræðimaður tekur slíku ástfóstri við höfuðskáldið að hann gerir það aðgengilegt ensku- mælandi fólki án þess að slá af fræðilegum kröfum um framsetningu. III Enginn er spámaður í sínu föðurlandi ergömul og oft kveðin vísa. Einar Pálsson fræði- maður mátti reyna sannleiksgildi þeirrar kenn- ingar á eigin skinni þar sem hann kom nær ávallt að luktum dyrum íslenskra fræðimanna er hann vildi kynna rannsóknir sínar á miðaldafræðum. Sannarlega fór hann aðrar leiðir en hefðbundnar en hið stóra ritverk hans Rætur íslenskrar menn- ingar á vafalaust eftir að finna sér fylgjendur um langa hríð. Pétur Halldórsson myndlistarmaður hefur um árabil kynnt sér rannsóknir Einars og hefur nú á prjónunum vinnslu margmiðlunar- verks um kenningar hans þar sem saman fari bók og myndrænar skýringar á kenningunum um upp- runa íslenskrar menningar og tengslum hennar við forn trúarbrögð og menningu annars staðar í veröldinni. FJÖLMIÐLAR NEÐANMÁLS

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.