Lesbók Morgunblaðsins - 22.11.2003, Blaðsíða 9
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 22. NÓVEMBER 2003 9
B
orgarferðir eru alltaf að verða vin-
sælli meðal landans og misjafn til-
gangur með þeim. Til þess að
gera ferðina enn áhugaverðari er
oft gott og gaman að skreppa í
leikhús. Fyrir þá sem eru á far-
aldsfæti til okkar fornu höfuð-
borgar, Kaupmannahafnar, eða
annarra borga í Danaveldi þá er næsta víst að
fólk kemur ekki að tómum kofunum hvað varðar
úrval af sýningum í leikhúsunum. Oft getur verið
erfitt að sjá trén fyrir skóginum en til að auðvelda
leitina verður í þessari grein minnst á það helsta
og áhugaverðasta sem í boði er.
Ein áhugaverðasta sýningin í Kaupmannahöfn
í vetur er gestasýning í Betty Nansen-leikhúsinu
í Frederiksberg. Á ferðinni er sýning sem hefur
slegið í gegn út um allan heim. Hún heitir Woyz-
ek og er í uppfærslu Roberts Wilsons með tónlist
eftir Kathleen Brennan og Tom Waits. Robert
Wilson er af mörgum talinn einn merkilegasti
leikhúsmaður/myndlistarmaður síðari ára. Vissu-
lega eru skiptar skoðanir vegna uppsetninga
hans á jafnt nýjum sem klassískum verkum þar
sem fólk annað hvort elskar eða hatar sýning-
arnar hans… og ekkert þar á milli.
Í sama leikhúsi verður einnig sýning frá fyrra
ári með Ghitu Nörby (Matador) og Bodil Udsen
en þær eru tvær af stærsu dívum dansks leik-
húss, í verki eftir Moliére sem heitir á dönsku
Misantropen eða Mannhatari. Þessi sýning hefur
fengið einróma lof gagnrýnenda enda frægar
leikkonur á ferð og ekki á hverjum degi sem
svona viðburður á sér stað. Hún verður sýnd frá
desember fram í febrúar á næsta ári. Heimasíða:
www.bettynansen.dk.
Margir Íslendingar þekkja Konunglega leik-
húsið í Kaupmannahöfn sem er við Kongens Ny-
torv. Það er mikil upplifun að koma þar inn þar
sem mikið var lagt í bygginguna á sínum tíma og
er hún því öll hin glæsilegasta. Þar verða margar
sýningar í boði í vetur t.d. Don Juan eftir Moliére,
sem virðist vera vinsæll þetta árið í dönsku leik-
húsi, Antigóna eftir Jean Anouilh, Resteplads eða
Afgangsrými í mjög lauslegri þýðingu, eftir Elf-
rede Jelenik sem skrifaði Kæru Jelenu, Tvær
konur eftir David Hare, Casanova eftir David
Greig og Draumur á Jónsmessunótt eftir Shake-
speare. Í boði er líka fjöldinn allur af ballett- og
óperusýningum sem gaman væri að kíkja á.
Heimasíða: www.kgl-teater.dk
Folketeatret er annað stórt leikhús sem stend-
ur við Nörregade. Þar verða hinir dönsku kaffi-
brúsakarlar á ferðinni með sýningu sem heitir
Triple Espresso eða Þrír espresso – greinilega
létt og skemmtilegt. Einnig verður ný uppfærsla
á Hringjaranum frá Notre Dame með tónlist eftir
hinn vinsæla poppara Sebastian. Hann hefur
mikið verið að vinna í leikhúsi undanfarin ár og
skemmst er að minnast uppsetningar á Línu
Langsokk hér í Danmörku fyrir nokkrum árum
sem hann gerði nýja tónlist við, en sú sýning fékk
mikla aðsókn. Þá er verið að sýna breska verð-
launaverkið 4 slips i modvind eða 4 bindi í mót-
vindi eftir Tim Firth. Verkið fjallar um fjóra
menn sem í hópeflisferð hafna á eiðieyju eftir að
skip þeirra sekkur. Þeir verða því að bjarga sér
þar, sambandslausir við umheiminn. Spennandi
gamanleikrit um karlaveröld og hvort þeir geti
lifað af eftir að hafa tekið ákvörðun um hvernig
skipta eigi pylsu í fernt. Þá verður einnig í Folke-
teatret hefðbundin jólasýning sem virðist vera
hefð fyrir hér í Danmörku. En slíkar sýningar eru
margar í Kaupmannahöfn. Þær eru aðeins sýnd-
ar í nóvember og desember ár eftir ár og alltaf
eins. Slíkar sýningar má einnig sjá í Tívolí sem nú
er opið um jólin. Heimasíða leikhússins er
www.folketeatret.dk og þeir sem hafa áhuga á að
kynna sér betur jólasýningar í Tívolí þá er heima-
síðan www.tivoli.dk.
Fyrir þá sem vilja eitthvað nýtt og öðruvísi þá
eru CaféTeatret, Husets Teater og Kaleidoskop
mest spennandi leikhúsin. Í CaféTeatret eru
margar litlar og tilraunakenndar sýningar, t.d.
einleikir eftir unga höfunda og er því spennandi
að fara þangað og skoða grasrótina. Sérstaka at-
hygli vekur sýning sem nefnist Sting og er eftir
Skotann Anthony Neilson. Í Bretlandi var hann á
síðasta ári kallaður „bjartasta vonin í leikhús-
heiminum“. Husets Teater er þekkt fyrir að bjóða
upp á ný dönsk og erlend verk sem oft hafa vakið
heimsathygli. Fyrsta verk vetrarins er nýtt og
danskt: Verdens ende eftir Astrid Saalbach með
okkar ástsælu dönsk-íslensku leikkonu Charlotte
Böving sem fór á kostum í Hinni smyrjandi
jómfrú í Iðnó í fyrravetur. Nú gefst aðdáendum
hennar tækifæri til að sjá hana leika á dönsku en
verkið er frumsýnt í september og sýnt út októ-
ber. Arabíska nóttin eftir Roland Schimmer-
pfenning sem hlaut nýverið verðlaun í Þýskalandi
verður líka á fjölunum ásamt enn einu verðlauna-
verkinu en það kemur frá Bretlandi og er eftir
Caryl Churchill. En hann hefur skrifað fjöldann
allan af verkum sem aldrei hafa ratað upp á ís-
lenskt svið. Verkið heitir Kopier eða Hermikráka.
Í Kaleidoskop er m.a. verið að sýna Power lunch
eftir Óskarsverðlaunahafann Alan Ball (Americ-
an Beauty), nýstárlega leikgerð af Ofviðrinu eftir
Shakespeare, gamanleikinn Kúnstin að deyja eft-
ir Paolo Nani og Íslendinginn Kristján Ingimars-
son. Að lokum verður grimmdarverkið Dada sýnt
sem fjallar um þá miskunnarlausu veröld sem við
búum í þar sem sjálfsmorð er möguleiki…
Heimasíður: www.kaleidoskop.dk / www.cafe-
teatret.dk / www.husetsteater.dk.
Í Östre Gasværk-leikhúsinu verður heims-
frumsýning á nýju verki sem ber nafnið Leon-
ardo Da Vinci eftir Lars Kaalund. Þessi sýning
ætti að höfða til þeirra sem áhuga hafa á viða-
miklum leiksýningum, en alls taka um 70 mans
þátt í uppsetningunni. Mikið auglýst sýning þar
sem períódubúningar verða allsráðandi. Sýningin
fjallar um ástir, örlög og átök Leonardos við
Michelangelo. Heimasíða: www.oestre-gas-
vaerk.dk.
Erling eftir norska skáldið Ingvar Armbjörn-
sen virðist ætla að verða vinsæl sýning bæði á Ís-
landi og í Danmörku þetta árið. Hægt er að sjá
hana í mismunandi uppfærslum; í Kaupmanna-
höfn hjá Nörrebros-leikhúsinu, í Árósum á Sva-
legangen, í Freyvangi á Akureyri og í Loftkast-
alanum í Reykjavík. Tími hans var greinilega
kominn…
Annað sem gæti verið áhugavert að sjá í
Nörrebros-leikhúsinu er ný útfærsla af Með fulla
vasa af grjóti eftir Marie Jones sem hefur verið
sýnt yfir 150 sinnum í Þjóðleikhúsinu á Íslandi. Í
Danmörku heitir hún Ægte Jyder eða Ekta Jóti.
Verkið er í nýrri staðfærðri útfærslu og gerist nú
ekki á Írlandi heldur í Danmörku, í litlum bæ á
Jótlandi þar sem verið er að gera Dogma-mynd
og fullt af stjörnum mætir í bæinn. Vissulega
spennandi að sjá hvernig til tekst að staðfæra
jafn staðbundið verk. Heimasíða: www.nbt.dk.
Þá eru alls um 30 söngleikir sýndir í Danmörku
í vetur og nægir að nefna nokkra sem í boði eru:
Með fullri reisn, Söngvaseiður, Óperudraugur-
inn, Jesús Kristur súperstjarna, Atlantis og Kab-
arett. Það er nánast hægt að ganga að því vísu að
verið sé að sýna einhvern af þessum söngleikjum í
hvaða stórborg sem er í heiminum, aðdáendum
þeirra til mikillar ánægju. Best er að skoða úrval-
ið á heimasíðu www.billetnet.dk.
Það sem kemur skemmtilega á óvart er hið gíf-
urlega framboð á barna- og fjölskyldusýningum í
Kaupmannahöfn og nágrenni en þær eru um 26
talsins. Þá eru ekki taldar með allar farandsýn-
ingarnar sem er verið að sýna út um alla borg í
leikskólum, görðum og grunnskólum. Danir hafa
löngum verið þekktir fyrir að vera barnvænir og
það sést á framboðinu í leikhúsunum. Flestar
þessara barnasýninga eru unnar með fáum leik-
urum og einfaldri leikmynd til að hægt sé að
flakka með þær um allt land. Meðal verka sem er
verið að sýna eru líka góðir kunningjar eins og
Karíus og Baktus, Dýrin í Hálsaskógi og íbúarnir
í Kardimommubænum sem eru fastagestir á leik-
sviðinu hér eins og á Íslandi. Áhugaverð barna-
leikhús í Kaupmannahöfn eru: Teatret Zeppelin
www.zeppelin.dk, Comedievognen www.come-
dievognen.dk og Anemone teatret www.ane-
moneteatret.dk.
Nú að verkefnaskrá leikhúsanna úti á landi. Á
stóra sviðinu í Álaborg er sýnt nýtt erlent verk
eftir David Edgar sem heitir Albert Speer og hef-
ur slegið í gegn bæði í Bretlandi og Svíþjóð. Verk-
ið er byggt á bók Gitte Serenys Albert Speer: His
Battle with Truth. Það fjallar um náið samstarf
Alberts og Hitlers og í því er tekin fyrir hönnun
Alberts á hinni „Nýju Berlín“ sem aldrei varð
meira en stórkostlegt líkan á borði. Mikil átök,
mikið drama. Lér konungur eftir Shakespeare
verður sýndur eftir áramót í uppsetningu Made-
leine Rön Juul sem er nýráðin leikhússtjóri í Ár-
ósum. Þá verður Fucking Baal eftir Brecht/Ber-
dal einnig í boði og verk eftir Moliére sem heitir á
dönsku De Lærde Damer eða Hinar lærðu konur
í lauslegri þýðingu. Í Árósum er m.a. ein mjög
áhugaverð sýning sem heitir På sporet af den
tabte tid eða Á slóð hins glataða tíma eftir Frakk-
ann Marcel Proust. Þetta mun vera frumsýning á
Norðurlöndunum í leikstjórn Euyn Johannessen.
Mannmörg sýning sem gerist í kringum fyrri
heimsstyrjöldina og er byggð á samnefndri bók
höfundar. Í Óðinsvéum er hvað áhugaverðust á
stóra sviðinu sýning sem heitir Den Garrige eftir
Moliére eða Aurasálin eins og hún heitir á ís-
lensku. Það er Preben Harris sem fer með aðal-
hlutverkið í þessari sýningu en hann er eitt af
stóru nöfnunum í leikhúsheiminum hér í Dan-
mörku en hann er líka þekktur sem leikstjóri og
leikhússtjóri.
Eitt það áhugaverðasta í leikhúsheiminum á
landsbyggðinni eru sýningarnar á litlu sviðunum í
Óðinsvéum, Árósum og Álaborg. En þau munu, í
samvinnu við Konunglega leikhúsið í Kaup-
mannahöfn, sýna 6 nýja danska einþáttunga.
Fyrirkomulagið er með þeim hætti að hvert leik-
hús fyrir sig setur upp og frumsýnir tvö verk á
árinu en fær síðan 4 gestasýningar frá einhverj-
um hinna leikhúsanna í heimsókn. Ekki vitlaus
hugmynd það. Yfirskrift þessa samstarfs er „Hið
nýja drama“.
Heimasíður stóru leikhúsanna úti á landi eru:
www.odenseteater.dk / www.aalborg-teater.dk /
www.aarhusteater.dk.
Það er sem sagt af nógu að taka í Danmörku og
endalaust væri hægt að telja upp sýningar og fara
ýtarlegar ofan í efnisskrárnar, en það eru að
minnsta kosti 302 sýningar sem verða á fjölunum
í vetur. Það er nokkuð augljóst að Moliére er í
tísku núna, eins og Lars Norén var fyrir nokkrum
árum, aðdáendum þessa franska snillings til mik-
illar ánægju. Gaman er að minnast á það að mikið
er talað um að árið 2005 muni H.C. Andersen
tröllríða leikhúsinu í tilefni af tveggja alda fæð-
ingarafmæli skáldsins og er spennandi að sjá
hvernig leikhúsið ætlar að heiðra þennan ástmög
sinn.
Til að fá upplýsingar um leikara og leikstjóra
þá er auðvelt að nálgast þær á þeim vefsíðum sem
bent hefur verið á en einnig er bent á bæklinginn
Ta’ i Teatret en þar má finna allar upplýsingar
um leikhúsin á StórKaupmannahafnarsvæðinu.
Bæklinginn má nálgast á upplýsingamiðstöð
ferðamanna beint á móti aðaljárnbrautarstöðinni.
Áður en farið er að panta miða er gott að hafa í
huga að verðið á miðunum er misjafnt eftir því
hvar í salnum setið er. Yfirleitt er hægt að finna
skýringarmyndir á www.billetnet.dk þar sem sjá
má hvað hvert og eitt sæti kostar. Það borgar sig
að panta tímanlega þar sem Danir eru þegar
byrjaðir að bóka miða og farið er að fyllast á vin-
sælustu sýningarnar. Nú þegar eru sýningardag-
ar komnir langt fram í tímann þannig að auðvelt
er fyrir þá sem þegar hafa bókað ferðir til Dan-
merkur að tryggja sér sæti. Þeim sem aftur á
móti eru ekki búnir að bóka ferð eða vilja ekki
binda sig er bent á að oft er hægt að kaupa miða
við innganginn í leikhúsunum klukkutíma fyrir
sýningu. Miðar eru þó ekki seldir ódýrar á síð-
ustu stundu. Algengasta miðaverð á sýningar í
Danmörku er á bilinu 145–295 dkr.
Nú er bara að skella sér í leikhús og sjá listina
sem verður til í augnablikinu en ekki í rituðu máli.
Nánari upplýsingar um leikhúsin, verkin og
miðapantanir eru á eftirfarandi heimasíðum:
www.billetnet.dk / www.ta-i-teatret.dk/
www.ctv.dk.
302 LEIKSÝNINGAR
Í DANAVELDI
Ljósmynd/Thomas Petri
Don Juan eftir Moliére, Antigóna eftir Jean Anouilh, Resteplads eða Afgangsrými í mjög lauslegri
þýðingu, eftir Elfrede Jelenik sem skrifaði Kæru Jelenu, Tvær konur eftir David Hare, Casanova eftir
David Greig og Draumur á Jónsmessunótt eftir Shakespeare eru meðal þess sem Konunglega leik-
húsið í Kaupmannahöfn býður upp á í vetur.
Höfundur er leikari og leikstjóri.
E F T I R G U N N A R
G U N N S T E I N S S O N
Mikið er að gerast í
dönsku leikhúslífi um þess-
ar mundir. Hér er sagt
frá því helsta sem í boði
er og leiðbeint um það
hvernig er best að bera
sig að við miðakaup.