Lesbók Morgunblaðsins - 27.12.2003, Síða 3

Lesbók Morgunblaðsins - 27.12.2003, Síða 3
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 27. DESEMBER 2003 3 LESBOK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING LISTIR 5 2 . T Ö L U B L A Ð - 7 8 . Á R G A N G U R | U M S J Ó N Þ R Ö S T U R H E L G A S O N EFNI Yfirlit og álit eru fastur viðburður í síðustu Lesbók ársins. Sex blaðamenn og gagnrýnendur skrifa um það helsta sem borið hefur við á jafnmörgum sviðum menningarlífs á landinu undanfarið ár. Höfundar eru: Bergþóra Jónsdóttir skrifar um tónlist, Heiða Jóhannsdóttir um kvik- myndir, Lilja Ívarsdóttir um danslist, Soffía Auður Birgisdóttir um bókmenntir, Sveinn Haraldsson um leiklist og Þóroddur Bjarnason um myndlist. Einnig hefur verið leitað til tólf einstaklinga til að segja álit sitt á því sem gerðist á þessum sviðum á árinu. Ævisaga Halldórs Laxness eftir Hannes Hólmstein Gissurarson hefur vakið nokkra athygli á þessu hausti. Helga Kress fjallar um ritið og gerir meðal annars athugasemdir við vinnubrögð höfundarins og heimildafærslu hans. Hversu góðir voru Bítlarnir? er spurt í Lesbók í dag og þrír sérlegir aðdáendur hljómsveitarinnar leitast við að svara. Þeir eru Pétur Jónasson, Grétar J. Guðmundsson og Arnar Eggert Thorodd- sen. FORSÍÐUMYNDIN er verkið Með þökk eftir Gjörningaklúbbinn. Unnið fyrir Lesbók. Í slendingar taka ekki strætó. Við kunnum það ekki, viljum það ekki og getum það ekki. Það síðast- nefnda undir því yfirskini að leiða- kerfið sé svo ómögulegt, veðrið svo hráslagalegt, biðskýlin haldi ekki vindum, fargjaldið of hátt, bílstjór- arnir fúlir. Svo er það heldur ekki mjög smart. Það eru bara börn, unglingar og fólk á einhvers konar bótum sem tekur strætó á Íslandi. Samt eru allir sammála um að fleiri eigi að taka strætó; sýni samfélagslega meðvit- und og ábyrgð og nýti almenningssam- göngurnar, sem við rekum með ærnum til- kostnaði. Reykvíkingar eru ánægðir með borgina sína – ánægðari en nokkru sinni fyrr og það staðfesta þeir í viðamikilli skoðanakönnun Gallup, sem birtist fyrir skömmu. Meirihlutinn er mjög sáttur við þjónustu borgarinnar, finnst Reykjavík örugg, hrein og barnvæn borg – en það er bara eitt sem angrar nánast alla sem létu skoðun sína í ljósi: Það er allt of mikið af bílum í Reykjavík. Englendingar hafa haft á orði að heim- ilið sé ígildi kastala í lífi sérhvers manns. Hve lítilmótleg sem híbýlin kunna að vera er maðurinn herrann og húsbóndinn á sínu heimili. Við Íslendingar höfum löngum verið heldur lítillát þegar kemur að híbýl- um en þeim mun stórlátari þegar um er að ræða fararskjóta. Hin rómantíska sögu- skýring á þessu dálæti væri að hér sé á ferðinni okkar forni arfur frá djörfum sæ- förum og víkingum, sem síst vildu sitja kjurrir og una vondum hag – heldur leggja í víking og gera strandhögg í fjarlægum löndum. Nærtækara er ef til vill lunderni afskekkts eyjaskeggjans, sem sífellt þráir að brúa fjarlægðina yfir í sjóndeild- arhringinn; komast í skjól fyrir myrkur eða næstu él. Dýrkun Íslendinga á hestinum hefur alla tíð jaðrað við trúarofsa og sýnir sig nú síðast í því að íslenski hesturinn er lagður að jöfnu við hin fornhelgu vé Alþingis með því að landbúnaðarráðherrann hefur út- hlutað honum sérstökum umboðsmanni. Íslenskar bókmenntir eru fullar af sögum af því hvernig vakur gæðingur með reistan makka gerir eiganda sinn að höfðingja – hve aumt svo sem annað veraldlegt vafst- ur hans kann að vera. Dýrkun hins fjórfætta fararskjóta hefur þó vikið inn í agnarlítinn menningarkima miðað við alltumvefjandi og heltakandi dýrkun einkabílsins. Nú er það Bíllinn sem er hinn háværi samnefnari fyrir allt það sem máli skiptir í lífi okkar. Þetta gljáandi vígi á hjólum sem er orðið skýr- asta tákn þess sem íslensk þjóð metur hvað mest; hann er ígildi kastalans sem Ís- lendingurinn átti aldrei, birtingarmynd kynorku og sjálfstæðis þess sem fer sínar eigin leiðir, skilaboðaskjóða um efnahag og völd, smekk og aldur, gáttin á milli borgar og náttúru; Bubbi upplifir kyrrð og stemningu – svona ,,sumarbústaðafíling“ einn með sjálfum sér í bílnum. Hann getur haft sína hentisemi og gert það sem hon- um sýnist; hann er sinn eigin herra. Menn þurfa ekkert að fara lengra – undir stýri eru allir með jól í hjarta – alltaf. Aðrir bílasalar eru á háskalegra svæði; þar er sungið um hraðskreiðu, dirfskufullu bílana og eigendur þeirra sem ,, lifa ekki að eilífu – það er nú eða aldrei“ – syngur iðrunarlaus rokkarinn á meðan ungur maður ekur eins og andskotinn á skjánum því hann verður örugglega aldrei hluti af tölunni sem hækkar stöðugt á bílflakinu uppi á Sandskeiði. Bíllinn okkar er ekki aðeins hinn full- komni fylgihlutur – heldur hinn fullkomn- andi hlutur. Við höfum byggt borgina okk- ar utan um þarfir einkabílsins; byggingar rísa eins og ísjakar upp úr hafsjó bíla- stæða, nú er komin út bókin um bílinn, verslunarmiðstöðvar auglýsa sig; STÆRSTA BÍLASTÆÐI Á ÍSLANDI – og allir fyllast trylltri tilhlökkun og löngun til að upplifa hina óviðjafnanlegu stemn- ingu á STÆRSTA BÍLASTÆÐI Á ÍS- LANDI. Svo eru það hinir sem höfða til frumhvatanna: Öryggi – í hættulegasta ferðamáta sem enn hefur verið fundinn upp: Hvað þýðir það að bílasala sé ,,örugg- ur staður til að vera á“? Hvað á það að þýða? Þau segja líka eitthvað óeft- irminnilegt um traust og hamingju og lífið – sem er á þessum ,,örugga stað til að vera á“ sem selur bíla. Eftir allt sem nú hefur verið sagt verður þessi rabbhöfundur að játa að hann á í ástríðufullu sambandi við einkabílinn. Bíll- inn minn er frábær; hann er silfurgrár, sterklegur, hannaður af þýskri útsjónar- semi og fullkomnunaráráttu og hentar mér vel. Ég veit hvernig Bubba líður. Kannski gæti ég meira að segja ekki lifað án hans. Fjölskyldan virkar vegna dyggr- ar þjónustu þessa bíls – annars myndi yngri sonurinn e.t.v. daga uppi á leikskóla því enginn kæmist í tæka tíð til að ná í hann í lok dags, sá eldri yrði örugglega lagður í einelti af því hann gæti ekki tekið þátt í öllum þeim þroskandi og göfgandi námskeiðum, sem í boði eru fyrir börn – íþróttaiðkun, tónlistarnámi og félagsstarfi eftir skóla. Þar eð fjölskyldan býr í tölu- verðri fjarlægð frá hringiðu miðborg- arinnar, myndi hún snarlega dæmast í menningarlega og félagslega útlegð án at- beina einkabílsins. Líf okkar yrði óbæri- legt án bílsins. Samt finnst mér endilega að miklu fleiri eigi að taka strætó því það er allt of mikið af bílum í Reykjavík. Þeir menga, taka pláss, spilla þjóðarsálinni og skipulaginu, kosta allt of mikið og gera okkur feit og löt. Mér finnst vetnisverkefnið frábært, Strætó er að taka upp nýtt og betra leiða- kerfi, það er ódýrt að ferðast með þeim og bílstjórarnir eru almennt huggulegir og geðprúðir menn. Ég er sannfærð um að þróaðar almenningssamgöngur séu einn af hornsteinum hvers þess borgarsamfélags sem vill rísa undir nafni. Ég bara skil ekki af hverju fólk er ekki duglegra að taka strætó! HINN FULL- KOMNANDI HLUTUR RABB S V A N H I L D U R K O N R Á Ð S D Ó T T I R skonn@mi.is GYRÐIR ELÍASSON HINSTA KVEÐJA Þessi steinn á sandinum, dökkblár sjórinn og þokan á fjallatindum Ég hendi steininum út í sjóinn og hverf í þokuna Þeir sem sakna mín láti Veðurstofuna njóta þess Gyrðir Elíasson (f. 1962) á að baki fjölda ljóðabóka, skáldsagna og smásagnasafna. Ljóðið Hinsta kveðja er úr nýjustu ljóðabók hans Tvífundnalandi (2003).

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.