Lesbók Morgunblaðsins - 27.12.2003, Blaðsíða 12

Lesbók Morgunblaðsins - 27.12.2003, Blaðsíða 12
12 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 27. DESEMBER 2003 Nú jólin koma, við jötuna skreytum. Jákvæðar hugsanir öðrum við veitum. Því friður um sálina fer. Með gleði í hjarta við göngum um stræti. Og gleðjumst og fögnum í barnslegri kæti. Við kaupum svo konfekt og ber. Í kaupóðum heimi við hömumst að skúra. Og helgarnar nýtum við ekki í að lúra. Því smákökur þurfum við þá. Á afmæli Jesú við ætlum að gefa, svo ótalmargt, börnin við reynum að sefa. Þá er jafnvægi jólunum á. Svo hringja um sexleytið klukkurnar kæru. Og kominn er logi á stjörnuna skæru. Við klæðumst svo hvítu og kjól. Í hjartanu finnum við hátíðleik slíkan. Og hugann svo blíðan og kærleiksríkan. Nú birtast hin blessuðu jól. BIRGITTA H. HALLDÓRSDÓTTIR Höfundur er rithöfundur. NÚ KOMA JÓL

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.