Lesbók Morgunblaðsins - 27.12.2003, Qupperneq 15
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 27. DESEMBER 2003 15
Myndlist
Borgarskjalasafn, Grófarhúsi: Ólíkt –
en líkt. Til 2. febr.
Gallerí Sævars Karls: Claus Egemose.
Til 31. des.
Gerðuberg: Myndskreytingar úr nýjum
barnabókum. Til 11. jan.
Hallgrímskirkja: Bragi Ásgeirsson. Til
25. febr.
i8, Klapparstíg 33: Hreinn Friðfinnsson.
Undir stiganum: Magnús Logi Kristinsson.
Til 10. jan.
Listasafn Árnesinga, Hveragerði:
Fjölbreytt jólasýning. Til 4. jan.
Listasafn Einars Jónssonar: Opið fyrir
hópa eftir samkomulagi í desember og
janúar.
Listasafn Íslands: Íslensk myndlist
1960–80. Til 11. jan.
Listasafn Reykjavíkur – Ásmund-
arsafn: Nútímamaðurinn. Til 20. maí.
Listasafn Reykjavíkur – Hafnarhúsi:
Ólafur Magnússon – konunglegur hirð-
ljósmyndari. Til 4. jan. Erró-stríð. Til 3.
jan.
Listasafn Reykjavíkur – Kjarvals-
staðir: Ferðafuða. Myndlistarhúsið á
Miklatúni. Til 25. jan.
Listhús Ófeigs:
Ína Salóme. Til 30. des.
Mokkakaffi:
Olga Pálsdóttir. Til 10. jan.
ReykjavíkurAkademían:
Örn Karlsson – yfirlitssýning. Til 1. febr.
Safn – Laugavegi 37: Opið mið.–sun.
kl. 14–18. Íslensk og alþjóðleg samtíma-
listaverk. Breski listamaðurinn Adam Bar-
ker-Mill. Lawrence Weiner: Fimm nýjar
teiknimyndir. Til 1. mars. Hreinn Friðfinns-
son. Til 15. febr. Leiðsögn alla laug-
ardaga kl. 14.
Skálholtsskóli:
Staðarlistamenn – Jóhanna Þórðardóttir.
Jón Reykdal. Til 1. febrúar.
Skaftfell, Seyðisfirði:
Fredie Beckmans. Til 11. janúar. Snorri
Ásmundsson. Til 8. jan.
Þjóðmenningarhúsið:
Handritin. Skáld mánaðarins – Jóhannes
úr Kötlum. Hvað er heimsminjaskrá
UNESCO? Til 31. des.
Þjóðminjasafnið – svona var það.
Leiklist
Þjóðleikhúsið: Jón Gabríel Borkmann,
frums. fös.
Tilkynningar, sem birtast eiga á þessari
síðu, þurfa að berast í síðasta lagi árdegis
á fimmtudegi, á netfangið menn-
ing@mbl.is.
er nú ekki mjög algengt að troðfylla stóra
tónleikasali, það gera helst stórsöngv-
ararnir. Það myndast geysilega mikil
stemning á þessum tónleikum og mikið
kikk að leika fyrir fullu húsi áheyrenda.“
Hvers vegna er trompettinn svona vin-
sælt hátíðahljóðfæri?
„Hraustlega blásið í lúður kemur blóðinu
til að hreyfast í flestum okkar og við eins
og ósjálfrátt réttum úr okkur og sperrum
eyrun. Hér áður fyrr var hann notaður til
að blása til orrustu og í kvikmyndum er
mjög gjarnan leikið á trompeta ef eitthvað
stórfenglegt er að gerast. Þó trompetinn
sé glaðvær þá á hann líka sína tregatóna
sem hreyfa ekkert síður við okkur. T.d.
notar Mahler trompetinn jöfnum höndum
við jarðarfaratónlist og gleðióma og Adag-
io Albinonis er svolítið angurvært. Það er
engin spurning, það á vel við að blása glað-
vært á þessum þáttaskilum.“
Fara trompetar og orgel vel saman?
„Já þessi hljóðfæri fara nefnilega mjög
vel saman. Þau eru bæði blásturshljóðfæri
og hljómurinn í trompetum blandast mjög
vel við andardrátt orgelsins. Í einhver
skipti vorum við Ásgeir niðri, en Hörður
lék á lausa hljómborðið uppi í orgelinu, þá
fannst mér gæta vissrar fjarlægðar. En
eftir að við fórum innanum pípurnar þá
finnst mér nálægðin meiri og hljómurinn
blandast miklu betur.“
Hvað er nýtt á efnisskránni?
„Konsert fyrir tvo trompeta og orgel eft-
ir Johann Melchior Molter er nýtt á efnis-
skránni. Hann samdi fimm konserta fyrir
tvo trompeta og orgel og flytjum við einn
þeirra í umritun Roberts Pouls Block.
Einnig flytjum við Vatnasvítu Händels í D-
dúr. Hún er upprunalega samin fyrir
hljómsveit en við flytjum útsetningu fyrir
tvo trompeta og orgel í umritun Ásgeirs H.
Steingrímssonar. Eftir Scarlatti flytjum
við Toccötu í D-dúr í umritun Eberhart
Kraus. Verkið var einnig upprunalega
samið fyrir orgel en síðar var tveimur
trompetröddum bætt við. Eftir Bach flytur
Hörður Tokkötu og fúgu í d-moll og við
allir Adagio í g-moll eftir Albinoni. Það er
nokkuð kaldhæðnislegt að eitt hans allra
frægasta verk skuli ekki nema að sáralitlu
leyti vera eftir hann sjálfan, bassalína og
sex fyrstu taktarnir af laglínu úr svítu.
Remo Giazotto tónlistarfræðingur bjó svo
til restina af verkinu útfrá þessum fyrstu
töktum, fyrir strengjasveit og orgel. Ég
hef svo aðlagað verkið fyrir tvo trompeta
og orgel.“
Er einhver leið að strengja áramótaheit í
öllum þessum blæstri?
„Nei, maður hefur nú um annað að
hugsa. En þetta er góð hugmynd. Maður
ætti e.t.v. að prófa og vita hvort þyturinn
gefi heitinu aukinn kraft svo úr rætist.
Hvernig ver fjölskyldan þessum síðasta
degi ársins?
„Það er alltaf tilhlökkun að koma í Hall-
grímskirkju. Tónleikarnir eru löngu orðnir
hluti af þessum síðasta degi ársins í lífi
fjölskyldu minnar. Fyrir börnin mín til-
heyra þeir rétt eins og hangikjötið og rjúp-
urnar. Allt er í mjög föstum skorðum. Há-
tíðin hefst á tónleikunum. Að þeim loknum
er komið við á brennum á leið í hátíðamat-
inn. Þegar áramótaskaupinu sleppir er
tekið til við flugeldasýninguna.“
Hátíðahljómar við áramót er yf-irskrift síðustu tónleika ársins.Nú eins og jafnan fyrr eru þeirhaldnir í Hallgrímskirkju kl. 17 á
gamlársdag. Það eru þeir Ásgeir H. Stein-
grímsson og Eiríkur Örn Pálsson ásamt
orgelleikara kirkjunnar Herði Áskelssyni
sem sjá um að blása saman árin. Á efnis-
skránni eru verk eftir Albinoni, Bach,
Händel, Scarlatti og
Molter.
„Þessir tónleikar eru
nú farnir að telja á ann-
an tuginn en nú komum
við saman í ellefta sinn í Hallgrímskirkju á
þessum árlegu tímamótum,“ segir Eiríkur
Örn. „Það verður sami stíllinn hafður á
eins og undanfarið, við höldum okkur við
hressi- og hátíðleika barokktónlistarinnar,
förum ekkert útfyrir það. Í fyrra gáfum
við út geisladiskinn Trompetería sem
geymir m.a. verk sem við höfum flutt und-
anfarin ár á þessum tónleikum. Nú
ákváðum við að bjóða uppá eitthvað nýtt
svo fólk fái ekki leiða á okkur. Kjölfestan
er þó Adagio eftir Albinoni og Toccata og
fúga í d-moll eftir J.S. Bach sem Hörður
leikur.“
Þið þekkist líklega vel eftir svona langan
tíma. Þurfið þið nokkuð að æfa ykkur?
„Jú það er rétt við þekkjum hvor annan
mjög vel en æfum eftir sem áður fyrir tón-
leikan. Það er ekki auðvelt að spila þessa
tónlist þó það sýnist svo og okkur veitir
ekki af að dusta rykið vel af okkur.
Á þessum ellefu árum hafa margir fast-
bundið tónleikana í kladdann sinn og að-
sóknin hefur vaxið ár frá ári. Nú er svo
komið að kirkjan er nánast troðfull, en það
Hljómar trompeta í
andardrætti orgelsins
STIKLA
Hátíðahljómar
í Hallgrímskirkju
helgag@mbl.is
Næsta v ika menning@mbl.is
LISTASAFN KÓPAVOGS
gerðarsafn, hamraborg 4
12. desember - 22. febrúar
opnunartímar:
alla daga nema mánudaga
kl. 11 - 17
leiðsögn:
miðvikud. og fimmtud. kl. 12
laugard. og sunnud. kl. 15
www.carnegieartaward.com
Nina Roos, Untitled from Habbit Suddenly Broken
c a r n e g i e
a r t
awa r d
2 0 0 4
LISTVINAFÉLAG Hallgrímskirkju stendur fyrir dagskrá með jóla-
söngvum og ritningarlestrum í Hallgrímskirkju kl. 17 á morgun, sunnu-
dag. Þar gefst fólki kostur á að syngja þekkta jólasöngva með félögum
úr kórum kirkjunnar og að hlýða á valda lestra úr Ritningunni sem
tengjast jólunum.
Formið byggist á gamalli hefð á Englandi sem nefnist Festival of
Nine Lessons and Carols og var fyrst flutt á þennan hátt í Kapellu Kinǵs
College í Cambridge árið 1918. Ritningarlestrarnir eru lesnir af fulltrú-
um frá mismunandi starfshópum kirkjunnar, fyrsta lestur flytur barn,
næsta kórsöngvari og þannig koll af kolli og endar með lestri Karls Sig-
urbjörnssonar, biskups Íslands. Á eftir hverjum lestri er fluttur jóla-
sálmur með efnislega skírskotun í lesturinn, þar á meðal nokkrir al-
þekktir jólasálmar sem allir geta sungið með.
Hallgrímskirkja býður áhugasömum kórsöngvurum, ungum sem
öldnum, að bætast í hópinn og að mæta á æfingu með Mótettukór Hall-
grímskirkju klukkan 15 sama dag, þar sem nótum verður útdeilt og
söngvarnir verða æfðir undir stjórn Harðar Áskelssonar, sem einnig
leikur á Klais-orgel Hallgrímskirkju. Á milli æfingar og flutnings verður
boðið upp á heitt súkkulaði í safnaðarsalnum. Á meðal söngva á efnis-
skránni má nefna nokkra þekkta jólasálma í útsetningum David Will-
cocks. Öllum er heimill ókeypis aðgangur.
Hægt er að skrá þátttöku á netfangið list@hallgrimskirkja.is.
Allir fá að syngja í
kór Hallgrímskirkju
Morgunblaðið/Jim Smart
Mótettukór Hallgrímskirkju á æfingu.
HAMRAHLÍÐARKÓRINN rekur sögu jólanna,
frá boðun Maríu til fæðingar Jesú í Betlehem, á
tónleikum í Kristskirkju annað kvöld, sunnu-
dagskvöld, kl. 20. Efnisskráin ber yfirskriftina
Kemur hvað mælt var“ eftir samnefndu ljóði
Þorsteins Valdimarssonar, og inniheldur hún
ýmsar perlur tónlistarsögunnar helgaðar text-
um sem tengjast jólunum. Meðal annars verða
flutt baskneska jólalagið Boðun Maríu við texta
Sigurbjörns Einarssonar biskups, Sing joyfully
eftir William Byrd, tvö þekkt tónverk við helgi-
textann O magnum mysterium, bæði eftir T.L.
de Victoria og Francis Poulenc, O beatum et
sacrosanctum diem eftir Peter Philips, Come
let’s rejoice eftir John Amner og Hodie christus
natus est eftir J.P. Sweelink. Gunnar Eyjólfsson
leikari les texta sem tengja verkin.
Hluti af efnisskrá tónleikanna var fluttur í
Ríkisútvarpinu á aðfangadagskvöld.
Aðgangur að tónleikunum ókeypis.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Hamrahlíðarkórinn með stjórnandanum, Þorgerði Ingólfsdóttur, á æfingu í Háteigskirkju.
Saga jólanna
í tali og tónum