Lesbók Morgunblaðsins - 17.01.2004, Blaðsíða 3

Lesbók Morgunblaðsins - 17.01.2004, Blaðsíða 3
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 17. JANÚAR 2004 3 N ær endalaus umræðan um Sparisjóð Reykja- víkur og nágrennis eða SPRON, eins og hann heitir í skammstafana- tísku samtímans, í kring um hátíðar og áramót kveikti gamlar minningar – og vangaveltur. Ríkissjónvarpið birti kvöld eftir kvöld nöfn þjóðkunnra manna og kvenna, sem gefinn hafði verið kostur á að kaupa sér stofnfjárframlag í sjóðnum, sem væntan- lega var talin ábatasöm fjárfesting. – Menn gátu meira að segja fengið upphæðina sem fram þurfti að reiða lánaða! Ekki var alveg á hreinu hvort þessi nafnabirting var til lofs eða lasts. Alla vega sýndi hún hverjum þeir einstaklingar sem sátu í stjórn spari- sjóðsins höfðu velþóknun á – hvaða ættir og einstaklingar voru þess verðug að fá að leggja fram stofnfjárframlag í sparisjóðinn, sem er svo viðlíka áhættusöm fjárfesting og að kaupa ríkisskuldabréf. Þessir nafna- listar Ríkissjónvarpsins voru reyndar svo- lítið skondin lesning. Þeir sögðu sitt af hverju um innbyrðis tengsl í því smáa valdasamfélagi sem höfuðborg landsins er. Örugglega heldur fréttastofan þessari framhaldssögu áfram og tekur fyrir aðra sparisjóði í landinu með sama hætti. Það verður sjálfsagt líka fróðleg lesning á skjánum. Þetta hefur orðið til þess að lýsa upp gamlar minningar um viðskipti mín við Sparisjóð Reykjavíkur og nágrennis. Ekki það að ég muni það , en þegar ég var skírður um jólaleytið 1939 gaf fjölskyldu- vinur mér sparsjóðsbók með 20 króna inn- leggi í Sparisjóði Reykjavíkur. Talsverð upphæð á þeirra tíma mælikvarða. Næstu árin fóru afmælispeningar og annað nurl inn á þessa bók. Sumarið 1947 vann ég fyrir kaupi í fyrsta sinn á ævinni. Breiddi fisk hjá Guðmundi Jónssyni á Rafnkelsstöðum í Garðinum. Þetta var á reitnum, eða stakk- stæðinu upp við veg við Réttarholtsafleggj- arann, reit sem nú er löngu horfinn undir grös og grænan gróður. Guðmundur var sjálfur í breiðslunni með okkur nokkrum krökkum af bæjunum í kring og börnum sínum þeim Karólínu og Gunnari. Kaupið var króna á tímann og að sjálfsögðu var ekki breitt nema í brakandi þurrki. Þetta var létt vinna, nema þá einna helst að bera blautfiskinn á börum þegar hann var breiddur í fyrsta skipti. Núna væri þetta sjálfsagt kallað barnaþrælkun og bannað með lögum, en mikið lifandis ósköp gerði þetta mér gott. Mér þótti það mikil upphefð þegar mér var treyst til að stakka með þeim fullorðnu. Það var stoltur sjö ára patti sem lagði sumarhýruna sína inn í sparisjóðinn um haustið. Eitthvað talsvert á annað hundrað krónur, minnir mig. Ég rétti Einari Jóns- syni gjaldkera aurana yfir borðið í svarta steinhúsinu á horni Smiðjustígs og Hverfis- götu, sem í mínum augum var einskonar musteri peninganna. Snyrtimennið Einar handskrifaði svo inneignina inn í bókina og rétti mér. Hennar gætti ég sem sjáaldurs auga míns. Eins og gengur og gerist hafa börn ein- kennnilegar hugmyndir um peninga og fjármál. Þegar seðlaskipti fór fram á árinu 1948 átti ég hundrað og tíu krónur á spari- sjóðsbókinni minni. Þá voru hundraðkall- arnir rauðir og tíkallarnir bláir. Við seðla- skiptin snerist þetta við – tíkallarnir urðu rauðir og hundraðkallarnir bláir. Ég hugs- aði með mér að þetta væri nú ekki flókið hjá þeim í sparisjóðnum hvað mig varðaði. Þarna lægju seðlarnir mínir hlið við hlið á hillu í peningageymslunni, merktir mér með nafni og númeri og svo væri bara að setja nýjan bláan í stað gamla rauða hundr- aðkallsins og nýjan rauðan tíkall í stað þess gamla bláa. Afgreitt mál. Á táningsárunum strjáluðust þessi við- skipti og á menntaskólaárunum fór ég að leggja sumarhýruna inn í Iðnaðarbankann í Lækjargötu því hann var svo þægilega nálægt Menntaskólanum í Reykjavík. En á þrítugsaldrinum og fram á fertugs- aldurinn átti ég tvisvar á ári erindi í spari- sjóðinn til að borga af fasteignaláni, þegar við hjónakornin höfðum fest kaup á þriggja herbergja blokkaríbúð. Ekki var það svo að ég, blankur byrjandi í blaðamennsku sam- hliða námi í Háskóla Íslands ætti innan- gengt í sparisjóðinn þar sem manni skildist að langur biðlisti væri eftir slíkum lánum. Aldeilis ekki. Tengdafaðir minn, sem þar þekkti mann og annan fékk lán út á sitt hús sem hann framlánaði okkur og auðveldaði okkur svo sannarlega að eignast þak yfir höfuðið. Þökk sé honum og sparisjóðnum fyrir það. Á þessum byrjunarárum mínum í blaða- mennsku fékk ég gjarnan það verkefni að fylgjast með og skrifa um borgarstjórnar- fundi sem haldnir voru annan hvern fimmtudag. Það voru ekki neinar skemmti- samkomur. Þrír flokkar í minnihluta og fulltrúar þeirra fóru yfirleitt alls ekki í ræðustól til að halda skemmri ræður en svo sem klukkutíma. Samtímis var ég þing- fréttaritari Alþýðublaðsins sáluga og komst að því að þingfundirnir voru hreinar skemmtisamkomur miðað við fundina í borgarstjórn Reykjavíkur. Borgarstjórn kemur mjög að stjórn sparisjóðsins og fulltrúar borgarstjórnar eiga jafnan sæti í stjórn. Um miðjan sjöunda áratuginn sat ég reyndar oft borgarstjórnarfundi sem varaborgarfulltrúi og þar bar málefni sparisjóðsins auðvitað á góma. En seta mín á borgarstjórnarfundunum staðfesti enn frekar hversu hrútleiðinlegar samkomur þetta voru og ég lagði sjálfsagt lítið af mörkum til að gera þær skemmtilegri. Allt þetta hefur verið að rifjast upp fyrir mér í írafárinu um sparisjóðinn og þessa menn sem hafa gríðarlegar áhyggjur af því að þarna sé svo mikið „fé án hirðis“ að til stórra vandræða horfi. Þeir tala um sig sem „fjárhirða“, en þar fara þeir villir veg- ar. Fjárhirðarnir voru á Betlehemsvöllum. Þessir menn eru frekar „féhirðar“ því óneitanlega lítur svo út sem þeir ætli að hirða fé sem viðskiptavinir sparisjóðanna hafa lagt þeim til í áranna rás. Markmiðið virðist vera að koma sparisjóðunum fyrir kattarnef og almenningi er sagt að það sé af hinu góða. Sjálfsagt er það af hinu góða fyrir suma en örugglega ekki fyrir alla. En ef þetta ætlunarverk tekst, þá geta þeir sem þar standa að verki senn farið að leita sér nýrra verkefna. Þá er ekki ólíklegt að þeir beini sjónum sínum að „fyrirtækjunum sem enginn á“ eins og þeir segja stundum, til dæmis Mjólkursamsölunni og Mjólkur- búi Flóamanna. Það eru feitir bitar og þar er sjálfsagt mikið „fé án hirðis“. Er ekki rétt að hirða það? Ég færði þetta með stofnfjárframlögin og sparisjóðinn í tal við kunningja minn og sagði að mér fyndist skrítið að mér skyldi aldrei á nokkuð langri ævi hafa verið boðið að reiða fram stofnfjárframlag og ganga í þennnan göfuga klúbb. Það hlyti eitthvað að vera að. Kannski væri ég of feitur, eða ekki nógu feitur. Kannski væri ég ekki nógu vel ættaður. Ég er af Víkingslækjar- ætt og konan af Bergsætt. Það eru svo sem engin „slekt“. Það hlyti eitthvað að vera að. – Vertu ekki hissa. Vertu ekki spældur, sagði hann. Þetta er mjög einfalt mál: Þú ert bara ekki í „elítunni“. Svo bætti hann við eins og nú er í tísku að segja: Það er bara ekkert flóknara en það. Svo hnýtti hann enn einu tískuorðinu aftan við: Ná- kvæmlega! Einmitt það. Ég er ekki í „elítunni“. Satt best að segja hafði mig innst inni grunað þetta. Nú hefur hinn ógurlegi grunur verið staðfestur. Ég er ekki í „elítunni“. Það lá að. ÞAÐ LÁ AÐ RABB E I Ð U R G U Ð N A S O N eidur@sw2.com.cn EINAR BENEDIKTSSON HNATTASUND Vér köllum ferju á hnatta hyl, en hrópið deyr milli blálofts-veggja. Oss dreymir. Vér urðum aldrei til. Vor öfugsýn er Ginnunga spil, en yfir höfðum oss hvinir eggja. Dularlög semur stjarnastjórnin, með stranga dóma í eigin sök. Skammvinna ævi, þú verst í vök, þitt verðmæti gegnum lífið er fórnin. En til þess veit eilífðin alein rök. Stjörnunnar barn, hví skynjar þú skammt? Í skóla himnanna stöndum vér jafnt. Ein hrynjandi skriða grjóts úti í geimi er guðdómlegt flugeldaskraut vorum heimi. Það veizt þú allt, en elskar það samt. Hafknörrinn glæsti og fjörunnar flak fljóta bæði. Trú þú og vak. Marmarans höll er sem moldarhrúga. Musteri guðs eru hjörtun, sem trúa, þó hafi þau ei yfir höfði þak. Einar Benediktsson (1864–1940) var skáld, lögfræðingur, ritstjóri og athafnamaður. LESBOK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING LISTIR 3 . T Ö L U B L A Ð - 7 9 . Á R G A N G U R | U M S J Ó N Þ R Ö S T U R H E L G A S O N | T H R O S T U R @ M B L . I S EFNI Kristnihald undir Jökli og Drakúla eiga ýmislegt sameiginlegt ef marka má grein eftir Bjarna Bjarnason sem sýnir fram á margvísleg textatengsl í þessum tveimur skáldsögum. John Mortimer er einn af vinsæl- ustu rithöfundum Bretlands en hann hefur meðal annars skrifað spennusög- ur, sjónvarpshand- rit og fræg viðtöl. Jónas Knútsson átti viðtal við Mortimer um skáldskapinn, stjórnmál samtím- ans og menningu. Hannesar- mál halda áfram en í Lesbók í dag birtir Hannes Hólmsteinn Gissurarson svar sitt við gagnrýni Helgu Kress á ævi- sögu Halldórs Lax- ness eftir Hannes og annar gagnrýnandi bókarinnar, Gauti Kristmannsson, birtir grein þar sem bornir eru saman kaflar úr Inn- ansveitarkroniku Laxness og bók Hannesar. Lee Miller var ástkona Man Ray og lengst af minnst sem slíkrar en Miller var einnig ein af at- hyglisverðustu ljósmyndurum síðustu ald- ar. Hanna Guðlaug Guðmundsdóttir skrifar um ævi og verk Millers. FORSÍÐUMYNDIN er tekin á Gljúfrasteini. Ljósmyndari: Einar Falur Ingólfsson.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.