Lesbók Morgunblaðsins - 24.01.2004, Page 2

Lesbók Morgunblaðsins - 24.01.2004, Page 2
2 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 24. JANÚAR 2004 RITHÖFUNDURINN Tracy Chevalier, sem hvað þekktust er fyrir metsölubók sína Girl With a Pearl Earring sem hún byggði á sam- nefndu mál- verki Jo- hannes Ver- meer, leitar enn á náðir listasögunnar við skrif sinn- ar nýjustu sögu. Bókin nefnist The Lady and the Unicorn og byggir hún hana á þekktu 15. aldar veggteppi með sama nafni. Að mati New York Times tekst Chevalier einkar vel að forðast að endurtaka sjálfa sig þrátt fyrir að velja svipað viðfangsefni og síð- ast. Segir gagnrýnandi blaðsins hana ná að skapa heildstæðar persónur er falli vel að tíma- bilinu, en sagan er látin gerast í París á 15. öld, auk þess sem bók- in sé full lýsinga á smáatriðum og mannlegri hlýju. Paterson sigursæll SKOSKA skáldið og tónlistar- maðurinn Don Paterson hefur verið sigursæll það sem af er árs, en hann hlaut í vikunni T.S. Eliot-ljóða- verðlaunin fyrir ljóðasafn sitt Landing Light, sem hann hafði þegar hlotið Whitbread- verðlaunin fyrir í flokki ljóðabóka í janúarbyrjun. Pater- son hefur þar með orðið fyrstur manna til að hljóta hin virtu T.S. Eliot-verðlaun í tvígang, en hann hlaut þau fyrst árið 1997. Enn á eftir að koma í ljós hvort Landing Light verður valin bók ársins hjá Whitbread, en verðlaunaafhend- ingin fer fram næsta þriðjudag. Tómas skrýtni FLJÓTANDI, hljóðlátir draugar svífa um nýjustu sögu Dean Koontz og endurspegla sam- félagið eins og höfundurinn telur það verst. Bókin nefnist Odd Thomas, eða Tómas skrýtni eins heiti hennar gæti útlagst á ís- lensku, og seg- ir þar frá hin- um 20 ára gamla Tómasi sem býr yfir þeim sérstaka hæfileika að sjá meira en flestir aðrir, m.a. látna stúlku sem heimsækir hann í upphafi bókarinnar og tekur Tómas í kjölfarið upp á því að elta morðingja hennar á röndum. Af lýtalækningum FRÆÐIMAÐURINN Virginia L. Blum tekur lýtalækningar fyrir í nýjustu bók sinni, Flesh Wounds, sem að hluta til er byggð á slæmri reynslu höfundarins sjálfs af mis- heppnaðri fegrunaraðgerð. Í bókinni veltir Blum iðnaðinum í heild sinni fyrir sér og kastar að mati gagnrýnanda Guardian fram mörgum athyglisverðum spurningum, m.a. hvernig lýta- lækningar hafi náð að verða svo vinsælar að mikill fjöldi manna sé reiðubúinn að greiða háar fjár- hæðir fyrir fegrunaraðgerðir á ári hverju, en líkt og Blum bendir á þá gengust allt að tvær milljónir manna undir slíkar aðgerðir árið 2000. ERLENDAR BÆKUR Sögur úr listasögunni Don Paterson Dean Koontz Tracy Chevalier N ýju ári fylgja jafnan fögur fyrirheit. Við ætlum að hætta að reykja, byrja að leggja fyrir til elliáranna og grennast um nokkur kíló enda afar ófínt að vera feitur og blankur með rettuna lafandi úr munn- vikinu. Líkamsræktarstöðvarnar róa hver á fæt- ur annarri á gjöful mið hins góða ásetnings og auglýsa árskortin á sérstöku tilboðsverði sem aldrei fyrr. Nú þykir enginn maður með mönn- um nema hann æfi a.m.k. þrisvar í viku í ein- hverri virtri stöð, helst í Laugum þar sem er séraðstaða fyrir þann þjóðfélagshóp sem vill veita sér og hefur efni á dýrari þjónustu og sér- stökum munaði. Í líkamsræktarstöðvum lands- ins þrammar fjöldi fólks á vélknúnum hlaupa- brettum með heyrnartól í eyrum og sjónvarpsrásir fyrir augum, lyftir lóðum og hoppar á pöllum við dúndrandi tónlist – í nafni heilsu og fegurðar sem er jú forsenda hamingj- unnar. Fjölmiðlar styðja markaðsöflin af heilum hug í að breiða út boðskap heilsuímyndarinnar. Greinar og viðtöl um heilsurækt og hreyfingu birtast daglega í blöðum og sjónvarpi ásamt slagorðum um hollustuátak og nýjan lífsstíl og í auglýsingunum sést bara ungt, grannt, stinnt og fallegt fólk. Á alheimsnetinu fyrirfinnast ótal vefir og slóðir um frumskóga mataræðis, megr- unar og magaæfinga enda varla nokkur maður (les: kona) gjaldgengur í nútímasamfélagi nema útlitið sé í lagi samkvæmt Evrópustöðlum. Varla er minnst á hreyfingu eins og hressandi göngu- ferð, skokk um hverfið eða sundsprett í laugum borgarinnar enda skilar slíkt sport ekki einni einustu krónu í gríðarlega veltu heilsumafíunn- ar. Þeir sem ekki nenna eða vilja hreyfa sig en þurfa samt nauðsynlega að grennast og styrkj- ast geta orðið fórnarlömb áróðurs sölumanna fæðubótarefna sem flutt eru inn til landsins í stórum stíl. Gamalt bragð er notað til að lokka fólk að þessum efnum en það er að nota tvær myndir af sömu manneskju, á annarri er hún feitlaginn mjög, á hinni hefur hún grennst um tug kílóa, líður greinilega miklu betur og er reyndar orðin öll önnur ... Svínasúpan er gamanþáttur á Stöð 2 sem hóf göngu sína á nýja árinu. Þekktir spaugarar koma að þættinum ásamt hinum vinsælu pöru- piltum Sveppa og Audda úr 70 mínútum en þeir sýna ágæta leikaratakta þrátt fyrir litla reynslu á því sviði. Skemmtiatriðin eru mörg hver ansi svínsleg. Þau ganga út á furður, afkárahátt og ýkjur, aulagang og neyðarlegar uppákomur; pípulagningamaður nokkur finnur ekki álfinn sinn, lögreglan stöðvar bílstjóra með valds- mannslegum tilburðum til að spyrja hann hve lengi eigi að harðsjóða egg og sallarólegur verkamaður gengur nokkra kílómetra til að ná í tommustokk fyrir félaga sinn sem er svo með hann í vasanum þegar betur er að gáð, ha ha, ha. Prumpuhljóð og prumpulykt gera ávallt lukku og krydda Svínasúpuna heldur betur. Handrits- höfundum súpunnar eru mjög mislagðar hend- ur, sum atriðin eru stórskemmtileg en önnur svo léleg að engu tali tekur. Eftirminnilegt er atriði sem gerist í gróðurhúsi. Þar er heimilisvinur í heimsókn og viðhefur bölv, klám og ragn í hverri setningu til að lýsa hrifningu sinni á blómaræktinni. Orðbragðið fór fyrir brjóstið á mörgum svolanum þótt sjónvarpsþulur hefði varað við því áður; víða voru börn (grislingar) í heimahúsum að horfa á grínið enda þátturinn á besta útsendingartíma þegar fjölskyldan safnast saman fyrir framan skjáinn til að njóta íslenskr- ar dagskrárgerðar eins og hún gerist best. Til- gangur höfundanna í umræddu atriði hefur sennilega verið að ögra áhorfendum, rífa þá upp úr smáborgarahættinum, tepruskapnum og helgislepjunni, en hann einn helgar ekki meðalið þegar atriðið er algjörlega ófyndið. Nú er Hauk- urinn fráni hættur á Rás 2 og ógnar valds- mönnum ekki lengur með hárbeittri ádeilu og beisku gríni. Það mæðir því nú á Spaugstofunni að uppfylla hlutverk spéspegils samfélagsins þar sem atburðir eru skoðaðir í skoplegu ljósi, for- ystumenn þjóðarinnar spottaðir og bitur raun- veruleikinn gerður bærilegur um stund. Svína- súpan leitast ekki við að veita stjórnvöldum og fjölmiðlum viðnám og aðhald eins og Haukurinn, Spaugstofan og jafnvel Áramótaskaupið gera. Þar ræður fáránleikinn og lágkúran ríkjum. Hvort er núna ár apans eða svínsins? FJÖLMIÐLAR ÁR SVÍNSINS? Svínasúpan leitast ekki við að veita stjórnvöldum og fjöl- miðlum viðnám og aðhald eins og Haukurinn, Spaugstofan og jafnvel Áramótaskaupið gera. S T E I N U N N I N G A Ó T TA R S D Ó T T I R MÉR finnst mjög sérkennilegt og raunar með ólíkindum, þegar menn, sem kalla sig fræðimenn, hafa uppi harða dóma um bók mína, Halldór, um leið og þeir taka fram, að þeir hafi ekki lesið hana og ætli ekki að gera það. [...] Ég hlýt síðan að mótmæla því, sem Árni Daníel Júlíusson og fleiri segja hér á Kistunnni, að sérfræðingar hafi fordæmt bókina og vinnubrögð mín. Hvaða sérfræðingar? Og sérfræðingar í hverju? Ég var ekki að skrifa ritgerð í bókmenntafræði, held- ur ævisögu. Einu sérfræðingarnir, sem máli skipta, eru því sérfræðingar um eða í ævisöguritun. Og ævisöguritarar hafa farið mjög varlega í að dæma bók mína eða gagnrýna. [...] Gagnrýnendur mínir hafa ekki sést fyrir, eins og ég hef bent á. Þeir hafa fengið óskipta fjölmiðlaathygli. Ég kveinka mér alls ekki undan því, enda öllu vanur. En hitt blasir við, að umræða um það, hvernig eigi að skrifa góða ævisögu og nýta til þess heimildir, þar á meðal misjafnlega áreiðanlegar æskuminningar, og hversu nálægt megi ganga texta annars manns í lýsingu á atvikum, aðstæðum og einstaklingum, hefur breyst í furðulega og heiftúðuga herferð gegn mér, jafnt innan háskólans sem utan. Hannes Hólmsteinn Gissurarson Kistan www.visir.is/kistan Hluti fyrir heild Gísli Gunnarsson heldur því nú aftur fram hér á Kistunni að „varla nokkur gagnrýnandi“ hafi lesið bókina Halldór eftir Hannes Hólmstein Gissurarson. Hann talaði einnig óvarlega um kollega sína við Háskóla Íslands í sjónvarps- viðtali og hélt fram sömu alhæfingu, að þeir hefðu ekki lesið hana og einnig að þeir vildu banna honum að lesa hana. Nú kemur í ljós að hér var um það að ræða sem bókmenntafræðingar kalla „hluti fyrir heild“ og aðeins einn „fræði- maður á förnum vegi“ hafði látið eitt- hvað þvíumlíkt út úr sér, kannski af því að viðkomandi treysti þeirri gagnrýni sem fram kom með dæmum sem nú fjölgar dag frá degi. [...] Ég geri einnig þá kröfu til Gísla Gunnarssonar að hann alhæfi ekki um gagnrýnendur og kollega sína á grundvelli einhvers sem einn mað- ur sagði við hann. Ég veit um fjölda manna sem hafa lesið bókina Halldór og ég hef ekki aðeins lesið hana sjálfur heldur einnig þurft að samlesa margar aðrar bækur við hana til að sjá hvaðan margir textahlutar rötuðu í hana. Það er dæmalaus lesning og ótrúlegt að nokkur fræðimaður skuli vilja mæla því bót. Gauti Kristmannsson Kistan www.visir.is/kistan Morgunblaðið/Þorkell Sambandið rofið. „HEIFTÚÐUG HERFERГ IVið hugleiðum það örugglega of sjaldan hvaðaáhrif miðlarnir sem við notum dagsdaglega hafa á okkur. Og þá er ekki átt við inntak þessara miðla eða skilaboð þeirra heldur áhrif miðlanna sjálfra, tækn- innar sem miðlað er með. Hvaða áhrif hafa til að mynda rafvæddir miðlar á borð við sjónvarp og tölv- ur haft á líf okkar og hugsun? IIAð mati kanadíska bókmennta- og fjölmiðlafræð-ingsins Marshalls McLuhans (1911–1980) get- um við enn ekki gert okkur fulla grein fyrir því hvaða áhrif þessir tilteknu miðlar hafa haft á okkur vegna þess að við erum enn of upptekin af inntaki þeirra sem er, samkvæmt kenningum McLuhans, eldri miðlar, ljósmyndin og kvikmyndin í tilfelli sjónvarps- ins en prentið, útvarpið, sjónvarpið, síminn, sím- bréfið í tilfelli tölvunnar. McLuhan er hins vegar sannfærður um að samfélög hafi ætíð mótast meira af eðli þeirra miðla sem menn hafa samskipti með en efninu sem miðlað er eða inntaki þess. IIIOg McLuhan skoðaði ekki aðeins áhrif hinnahefðbundnu miðla, svo sem bókarinnar, dag- blaðsins, sjónvarpsins og útvarpsins, á líf okkar og samfélag heldur leit hann svo á að allir manngerðir hlutir væru miðlar. Í frægustu bókinni sinni, Und- erstanding Media. The Extensions of Man, rannsak- aði hann áhrif 26 miðla en á meðal þeirra voru veg- ir, föt, húsnæði, peningar, klukkur, hjólið, reiðhjólið og flugvélin, bifreiðin, leikir og vopn. Allir þessir hlut- ir hafa haft geysileg áhrif á líf okkar með einum eða öðrum hætti, þeir hafa beinlínis breytt lífi okkar, breytt gangi þess, breytt merkingu þess og því eru þeir augljóslega miðlar einhverra tíðinda, nýrra tíðinda, ólíkt mörgum þeim miðlum sem við köllum því nafni dagsdaglega. IVMcLuhan benti á að nýir fjölmiðlar hefðu alltaffyrst í stað verið boðberar gamalla tíðinda og því væri það ekki innihald þeirra sem skipti máli þegar áhrif þeirra eða þýðing fyrir samfélagið væru könnuð. Þannig hefðu 90% alls efnis sem prentað var fyrstu tvær aldir prenttækninnar verið ættuð frá mið- öldum. Sextánda og sautjánda öldin höfðu sökum þessa mun meiri aðgang að miðaldatextum en mið- aldamenn sjálfir höfðu haft. Á sama hátt hóf sjón- varpið göngu sína með því að miðla gömlu efni að stórum hluta, ekki síst gömlum bíómyndum, og gerir það raunar enn. Netið er einnig gott dæmi þessa en þar er fyrst og fremst að finna efni sem einnig er hægt að finna á prenti eða í útvarpi og sjónvarpi. Enn hef- ur Netið varla fært okkur ný tíðindi. Áhrif þessara nýju miðla á skynjun mannsins á heiminum, hugsun hans og starfshætti eru hins vegar gríðarleg. VSatt að segja hlýtur hver maður sem fylgist meðefni fjölmiðla að verða þess var að þar er ekki margt nýtt að sjá eða heyra. Eilíf endurkoma hins sama er hinn sorglegi veruleiki þeirra. Tíðindin verða ekki í fjölmiðlunum sjálfum heldur ann- arsstaðar, í öðrum miðlum. NEÐANMÁLS

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.