Lesbók Morgunblaðsins - 24.01.2004, Side 8
8 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 24. JANÚAR 2004
a) Eftirapanir
Þ
egar það fréttist að Tim Burton ætl-
aði að endurgera Apaplánetu
Franklins J. Schaffner (1968), varð
heilmikill titringur í heimi kvik-
myndanna. Áður en myndin var
tekin til sýninga hér árið 2001 hafði
frést að hún þjáðist einmitt af öll-
um þeim vandamálum sem hrjáð
geta stórmyndir af þessu tagi, yfirbyggingin
hreinlega bæri hana ofurliði. Smart en sillí. Svöl
en snautleg. Og hún er það. Útlendir fréttaritarar
höfðu rétt fyrir sér, Apaplánetan er ekki góð
mynd: handritið er bæði illa skrifað og furðulegt í
laginu og uppásnúningurinn á hinum klassíska
endi gömlu myndarinnar bætir ekkert úr skák.
Hinsvegar er í þessari mynd að finna ýmislegt
það sem gerir Tim Burton-myndir svo dásam-
legar. Besta dæmið um það er einmitt hinn uppá-
snúni endir og þá meina ég myndræn útfærsla
hans. Eins og allir muna þá stefnir Charlton He-
ston í lok fyrri myndarinnar til hafs í von um
frelsi, en finnur í stað þess kórónu frelsisstytt-
unnar grafna í sandinn. Eftir allt er hann ekki á
annarri plánetu heldur á sjálfri jörðinni, í framtíð-
inni. Í öguðum myndskeiðum er þessu öllu komið
til skila: líkt og Heston sjálfur þekkir áhorfandinn
strax þetta kunna margarma tákn og fattar plott-
ið – sannleikinn rennur upp fyrir honum. Í mynd
Burtons er þessu öðruvísi farið: Þegar nærbuxna-
módelið Mark Wahlberg nálgast merki geimskips
síns í eyðimörkinni sér hann skyndilega marga
arma standa út í loftið svo minnir ekki lítið á kór-
ónu frelsisstyttunnar frægu; nema þetta er flak
geimskipsins. Líkt og Wahlberg höfum við séð
fyrri myndina og vitum því að þetta er myndræn
vísun í hana, sem að auki segir okkur að hér er
öllu þveröfugt farið og hann er í raun á annarri
plánetu – í framtíðinni vissulega, en ekki á jörðu.
Myndrænt ákall af þessu tagi er dæmigert fyr-
ir stíl Burtons sem einkennist einmitt af fjöl-
skrúðugum myndatengslum. Hver einasta mynd
ber auðvitað með sér ákveðnar vísanir í hefð og
sögu kvikmyndarinnar en Burton gerir þessa
sjónrænu hlið sérstaklega að viðfangsefni sínu;
þegar honum tekst best upp þá nær hann að flétta
saman söguþráð og myndræðu svo hvort styður
annað. Því eru myndir Burtons sérstaklega
áhugaverðar með tilliti til margvíslegra hug-
mynda um stöðu kvikmyndarinnar, myndmál
kvikmynda og tengsl þessa við hugmyndir um að-
laganir og endurgerðir.
Og nú er einmitt væntanleg ný mynd eftir
þennan undirfurðulega leikstjóra, Big Fish, sem
byggð er á skáldsögu Daniel Wallace (1998) og
fjallar um samband feðga, en að hætti Burtons þá
er þetta ekki eitthvert hefðbundið félagslegt
drama heldur lýsir sagan því hvernig faðirinn
hefur alltaf sagt ævintýrasögur af sjálfum sér,
sem sonurinn skoðar svo ofaní kjölinn til að kynn-
ast föður sínum, en sá hafði lengst af verið fjarri,
væntanlega til að geta lent í öllum ævintýrunum
(og athugið að hér eru ævintýri tekin bókstaflega,
tröllasögur og svona). Þess má vænta að hér sé á
ferðinni enn ein myndræn veislan.
b) Sögustund
Það mun hafa verið árið 1960 sem ungi sem
nefndur var Tim Burton leit dagsins ljós. Eins og
öll almennileg og eðlileg börn ólst hann upp við að
horfa á hrollvekjur og vísindamyndir og hafði sú
eðla iðja bæði varanleg og víðtæk áhrif á piltinn.
Fljótlega hneigðist hugur hans til annarra og
óhefðbundnari átta en þeirra sem hin ameríska
miðlína leggur og sér ekki fyrir endann á því.
Hlaupum nú hratt yfir (hundleiðinlega ævi)sögu
og tökum næst hús á Disney, en eins ólíklegt og
það kann að virðast starfaði Burton þar um tíma
eftir að hafa útskrifast frá hinum virðulega skóla
California Institute of the Arts. Þrátt fyrir að
Disney vissi ekki vel hvað ætti að gera við dreng-
inn sást fljótt að hér var hæfileikamaður á ferð-
inni og Burton fékk tækifæri til að iðka sína und-
arlegu list. Fyrst gerði hann teiknimynd um
Frankenstein sem er almennt talin einskonar fyr-
irrennari jólateiknimyndarinnar Nightmare Be-
fore Christmas (1993), sem Burton hannaði og
framleiddi, en leikstýrði ekki sjálfur. Síðan gerði
hann stuttmynd um frankensteinískan hund og
með þessu vakti hann á sér nægilega athygli til að
verða fyrir valinu sem leikstjóri kúltmyndarinnar
um Pee Wee Herman (1985). En það var ekki fyrr
en með myndinni Beetlejuice (1988, með Michael
Keaton í titilhlutverki) sem leikstjórinn náði al-
menningshylli. Edward Scissorhands (1990) þótti
óvenjuleg en naut ekki almennra vinsælda og
miðasölusmellur varð Burton ekki fyrr en með
Batman (1989). Þarnæst kom Batman Returns
(1992), sem var betri en fyrri myndin en naut ekki
sömu vinsælda, Ed Wood (1994), sem vakti verð-
skuldaða athygli og lof gagnrýnenda (og við vit-
um öll hvað það þýðir), Mars Attacks (1996) sem
féll (það vantaði upp á skort af handritsleysi) og
svo leið og beið þar til Sleepy Hollow birtist
(1999) og loks Planet of the Apes (2001).
c) Að laga að
Tim Burton hefur frá upphafi verið gagnrýnd-
ur fyrir að leggja áherslu á hið myndræna eða hið
sjónræna á kostnað sögu og söguþráðar. Það er
margt til í því: myndir Burtons eru allsérstæðar
og einkennast af óvenjulegri myndrænni sýn og
nákvæmri útfærslu hins sjónræna. Í mörgum til-
fellum hefur þessi gagnrýni verið óréttmæt, en
vissulega hefur hún átt við rök að styðjast á
stundum – til dæmis í Apaplánetunni. Hinsvegar
má segja svona almennt séð að viðhorf af þessu
tagi er svosem ekki nýtt af nálinni og hefur
löngum loðað við kvikmyndaumræðuna sjálfa,
það er, kvikmyndagagnrýnendur hafa gagnrýnt
kvikmyndir – sérstaklega tæknilega fullkomnar
kvikmyndir síðustu áratuga – fyrir að leggja alla
áherslu á hið myndræna á kostnað hins frásögu-
lega – söguþráðarins. Sömu gagnrýnendur eru þá
oft blindir á mikilvægi hins myndræna og ofur-
uppteknir af því að ríghalda sér í frásöguna, sem
vissulega getur aldrei orðið annað en hluti af allri
kvikmyndaupplifuninni.
Áhersla Burtons á hið myndræna kemur oft
fram í sjónrænum vísunum hans í aðrar kvik-
myndir, en margar af myndum Burtons eru eins-
konar aðlaganir. Þó eru þetta ekki endilega að-
laganir í hefðbundnum skilningi orðsins, sem
kvikmyndun á tilteknu skáldverki – þó vissulega
séu dæmi slíks, heldur vinnur Burton mjög frjáls-
lega með fyrirbærið ‘kvikmyndaaðlögun’; oftar en
ekki er þar á ferðinni aðlögun á öðrum kvikmynd-
um ekki síður en bókmenntum. Hann hefur verið
upptekinn af Frankenstein-sögunni, en þá ekki
endilega eins og hún birtist í skáldsögu Mary
Shelley, heldur eins og hún birtist í hinum fjöl-
mörgu kvikmyndaaðlögunum; þannig er Edward
Scissorhands einskonar Frankensteinútgáfa,
sem lýsir því hvernig vísindamaður býr til mann,
en deyr áður en verkinu lýkur og því verður
mannveran að bisast með stærðarskæri í stað
handa. Sjónrænt séð vísar hluti myndarinnar til
klassískra gotneskra hrollvekja, með tilheyrandi
gamaldags mekanisma og dimmum hálfhrundum
kastala. Þessi dökka gotneska sýn er svo í
skemmtilegri mótsögn við litglaða smábæinn sem
kastalinn gnæfir yfir, en þar gerist meginhluti
myndarinnar. Batman-myndirnar eru ekki bara
lauslega byggðar á hinum klassísku Batman-
myndasögum heldur einnig innblásin nútíma
endurskoðun myndasöguhöfundanna Frank Mill-
ers og Alan Moore á þeim og er því líkt og Edw-
ard Scissorhands aðlögun á aðlöguðu efni.
Í kynningu á Mars Attacks er sú mynd sögð
byggð á myndakortum frá Topps, syrpu af geim-
veru- og geimárásarmyndum, sem voru vinsæl á
sjötta áratugnum, en á þeim tíma voru svokall-
aðar BEM-myndir (bug eyed monsters) eða
PES-myndir (pöddu-eygð-skrýmsli) mjög vin-
sælar og lýstu allar innrás pöddu-eygðra-
skrímsla á jörð (lesist Bandaríkin). Það urðu fljót-
lega viðtekin sannindi að þessar myndir lýstu
fremur kaldastríðsótta Bandaríkjanna við roðann
í austri en stjörnustríðsógnum – þær komu síðar.
Burton vísar mjög til þessara mynda, sérstaklega
tveggja: Earth vs. The Flying Saucers (Fred F.
Sears 1956) og War of the Worlds (Byron Haskin
1954) en einnig má sjá ummerki mynda eins og It
Came from Outer Space (Jack Arnold 1953) og
First Men on the Moon (Nathan Juran 1964).
Þessar sjónrænu vísanir eru svo miklar og mik-
ilvægar að líta má á Mars Attacks sem ákveðna
aðlögun á þessum myndum, þrátt fyrir að sögu-
þráðurinn sé nýr.
Allar lýsa þessar myndir samskiptum manna
við geimverur og það sama á við um Mars At-
tacks. Skilaboð koma utan úr geimi og vís-
indaprófessorinn sem er ráðgjafi forsetans álítur
þau vinsamleg. Þetta mat sitt byggir hann á heila-
stærð geimveranna sem hann telur merki þess að
þær séu langt komnar á þróunarbrautinni, ergo:
friðsamar. Því miður reynist hann hafa rangt fyr-
ir sér og geimverurnar gera sér að leik að plaffa
mannkynið niður. Eini mögulegi bjargvætturinn
er unglingslúði og amma hans, en þau uppgötva
að geimverurnar þola illa jóðl. Myndin er ein af
fjölmörgum stórslysamyndum frá síðari hluta tí-
unda áratugarins og það er ljóst að sérvitring-
urinn Burton nýtur þess að rústa hinu hefð-
bundna borgaralega samfélagi Bandaríkjanna og
byggja upp nýtt í staðinn á forsendum unglings-
ins: eigum við ekki bara öll að tjalda og hafa það
huggulegt? er tillaga hans að endurreisn.
d) (Holly)Wood
Plan 9 From Outer Space (1956) er ein af þeim
myndum sem Mars Attacks sækir innblástur til.
Sú mynd hefur í áranna rás hvað eftir annað verið
valin versta mynd allra tíma og leikstjóri hennar,
Edward D. Wood Jr., versti leikstjóri allra tíma.
Árið 1994 gerði Burton einmitt mynd um nefndan
Wood; sú mynd var byggð á ævisögunni Nig-
htmares of Ecstasy eftir Rudolph Grey (1992).
Það er þó ekki sú aðlögun sem grípur auga áhorf-
anda Ed Wood, heldur mun frekar sú staðreynd
að Burton rammar ævisöguna inn í endursköpuð
myndskeið úr myndum Wood, aðallega Plan 9, en
einnig úr uppáhaldsmyndum eins og Bride of the
Monster og Glen or Glenda. Þannig virkar hin
ævisögulega mynd Ed Wood sem einskonar að-
lögun á þessum myndum: líkt og þær er hún
mynduð í svart/hvítu og ýktur leikstíll Johnny
Depp í hlutverki Edward Wood er í takt við þann
ýkta og tilgerðarlega leikstíl sem einkennir
myndir hans.
Þessi ‘aðlögun’ kemur strax fram í upphafs-
atriðinu, kynningunni á því að þetta er saga Edw-
ard Wood, sem er endurorðun á upphafsorðum
Plan 9. Myndavélin nálgast einangrað og að því er
virðist autt hús í dapurlegum skógi. Það rignir og
NÍUNDA ÁÆTLU
Nýjasta afurð bandaríska
kvikmyndaleikstjórans
Tims Burtons, Big Fish,
verður frumsýnd hér á
landi næskomandi föstu-
dag. Í þessari grein er
saga og verk þessa myrka
myndameistara rakin.
Tim Burton er ætíð svartklæddur frá toppi til táar.
„Sleepy Hollow er fyrsta raunverulega hrollvekja T
kvikmyndasögu hrollvekjunnar.“
E F T I R Ú L F H I L D I
D A G S D Ó T T U R