Lesbók Morgunblaðsins - 24.01.2004, Side 9
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 24. JANÚAR 2004 9
eldingar blossa. Við förum inn í húsið og að lík-
kistu sem liggur við glugga í einu herberginu.
Kistulokið opnast og maður rís upp og fer með
stutta ræðu sem endar á orðunum: „Treystið þið
ykkur til að heyra hina skelfilegu staðreynd um
sannleikann af níundu áætlun utan úr geimi!“
Nema í Ed Wood er þessu snúið svo: „sannleik-
ann um Edward D. Wood Jr.“ Í myndinni er svo
lögð mikil áhersla á að fjalla um gerð Plan 9 og
hún endar á frumsýningu þeirrar myndar. Án
þess að láta villta óánægju áhorfenda nokkuð á
sig fá horfir Edward Wood uppljómaður á sköp-
unarverk sitt og segir: „Þetta er myndin sem ég
verð þekktur fyrir.“ Það reynist rétt, en kannski á
annan hátt en leikstjórinn hafði vonast eftir.
Lokaskotið sýnir kvikmyndahúsið, með auglýs-
ingaskilti fyrir Plan 9 From Outer Space: Mynda-
vélin lyftist yfir þak kvikmyndahússins og svífur
yfir borgina þar til hún stöðvast á Hollywood-
skiltinu. Síðan er klippt yfir á Ed Wood aftur og
örlögum hans eftir þessa mynd lýst. Þannig gefur
myndmálið til kynna að (ævi)sagan sem við vor-
um að horfa á sé ekki bara saga Wood, heldur sé
hans saga einnig saga sjálfrar Hollywood. Hinn
ömurlegi leikstjóri verður að táknmynd drauma-
verksmiðjunnar; bókstaflega, óraunsærra stór-
mennskudrauma um glamúr og frægð.
Þessi sýn á (Holly)Wood birtist einnig í sam-
skiptum og fundum Woods við fólk. Í einni frægri
senu hittir hann átrúnaðargoð sitt, Orson Welles,
og á við hann stutt og lærdómsríkt spjall um kvik-
myndaleikstjórn. Öllu meira langvarandi var þó
vinasamband leikstjórans við Bela Lugosi – leik-
inn af Martin Landau – sem Wood dáði mjög. Lu-
gosi er frægastur fyrir hlutverk sitt sem vampýr-
an Drakúla í samnefndri kvikmynd, en þegar hér
er komið sögu hefur frægð hans fölnað, og Lugosi
er illa farinn, fátækur eiturlyfjafíkill. Wood tekur
hann upp á arma sína, básúnar hann sem stór-
stjörnu og fær honum hlutverk í myndum sínum
– í Plan 9 er þó varla beint um hlutverk að ræða
þarsem söguþráður myndarinnar er beinlínis
spunninn utanum tilviljanakennda upptöku Wood
af Lugosi, sem reyndist vera sú síðasta. Ed Wood
er því einnig saga Lugosi, og þá sögu má svo vel
sjá sem aðra dæmi(gerða) sögu Hollywood; Lu-
gosi var Ungverji sem átti allt sitt líf erfitt upp-
dráttar í Hollywood og dó í örbirgð en er í dag eitt
af frægustu íkonum kvikmyndanna, og gervi hans
sem Drakúla stendur enn sem hin klassíska
ímynd vampýrunnar sjálfrar. Ein af dramatísk-
ustu senum myndarinnar er þegar Wood hefur
samið einræðu fyrir Lugosi í myndinni Bride of
the Monster, en þar leikur Lugosi brjálaðan vís-
indamann sem hefur verið gerður útlægur úr
heimalandi sínu í Austur-Evrópu. Í einræðunni
lýsir hann útlegð sinni, sorg og einsemd, tilfinn-
ingum sem áttu jafnvel við Lugosi sjálfan og per-
sónu þá sem hann leikur.
Wood dáði Lugosi ákaft og leit á hann sem
einskonar læriföður sinn og hafa margir bent á að
þeirra samband endurspeglar samband Burtons
við leikarann Vincent Price, en hann leikur ein-
mitt lítið hlutverk í mynd Burtons, Edward Scis-
sorhands. Þar er Price – sem þekktastur er fyrir
hlutverk sín í hrollvekjum – einmana vísindamað-
urinn sem býr til Edward sem félaga sinn og son.
Gagnrýnendur hafa verið iðnir við að benda á lík-
ingu milli Edwards – klaufalegs utangarðsmanns
í smáborgarasamfélagi – og Burtons sjálfs. Og
allt þetta hefur Burton viðurkennt og samþykkt
Með því að leggja slíka áherslu á persónu Lu-
gosi verður myndin Bride of the Monster einnig
fyrirferðarmikil í Ed Wood og eykur á þá tilfinn-
ingu að myndin sé ekki síður einskonar aðlögun á
myndum Woods en ævisögu hans.
e) Hin syfjulega kvos
Sleepy Hollow er byggð á klassískri sögu
bandaríska rithöfundarins Washington Irvings,
„The Legend of Sleepy Hollow“ frá 1820. Sagan
er innblásin af þýskum þjóðsögum sem Irving
kynntist þegar hann dvaldi á Englandi. Hún er
undir heilmiklum áhrifum frá gotneskri skáld-
sagnahefð 18. aldar og segir frá kennaranum
Ichabod Crane sem býr í þorpinu Sleepy Hollow.
Þorpið er friðsælt en nokkuð ævintýralegt þó og
hefur á sér orð fyrir að vera dvalarstaður drauga
og norna. Ichabod trúir á allt slíkt og er mjög
draughræddur. Að auki er hann fremur ólánlegur
í útliti en þó ekki að sama skapi feiminn og
ákveður því að stíga í vænginn við ríkustu og fal-
legustu heimasætu þorpsbúa með þeim árangri
að keppinautur hans leikur frægasta draug
þorpsins, höfuðlausa riddarann, og fælir kenn-
arann þarmeð burt. Þrátt fyrir að andrúmsloft
sögunnar sé mjög draugalegt þá velur Irving þá
leið að útskýra hið yfirnáttúrulega, en það var
vinsælt bragð þeirra gotnesku höfunda sem ekki
kærðu sig um að láta hégiljur á borð við drau-
gatrú standa.
Í aðlögun sinni fer Burton allt aðra leið. Sleepy
Hollow verður í meðförum hans að raunverulegu
draugaþorpi, þarsem höfuðlaus riddari gengur
ekki bara ljósum logum, heldur afhöfðar hann
fólk og hefur höfuðin á brott með sér. Kennarinn
hefur breyst í lögreglumann sem trúir á vísindin
og samþykkir ekki tilvist draugsins – fyrr en
hann sér hann með eigin augum. Líkt og í sögunni
stígur hann í vænginn við ríkustu og fallegustu
heimasætuna og líkt og í sögunni bregður keppi-
nautur hans sér í líki draugsins til að stökkva hon-
um á brott. En þar enda líkindin, því Ichabod fer
hvergi, heldur leysir málið og særir drauginn aft-
ur til sinna dauðaheima.
Það draugalega andrúmsloft sem einkennir
söguna er Burton uppspretta að sviðsetningunni í
Sleepy Hollow. Í stað þess að velja raunverulegt
18. aldar þorp til að mynda í kaus Burton að
byggja nýtt í Bretlandi og umvafði það svo þoku.
Það er í raun eins og hann hafi tekið setningar
Irvings bókstaflega, þarsem hann talar um að
andrúmsloftið í Sleepy Hollow sé kynngimagnað
og að jafnvel hinn jarðbundnasti maður missi tök
á ímyndunarafli sínu og fari að dreyma undarlega
drauma. Þetta kemur einmitt fyrir Ichabod, sem
skyndilega fer að dreyma drauma úr bernsku
sinni og rifjar upp bældar minningar um dauða
móður sinnar – en hún hafði verið norn sem faðir
hans lokaði inni í járnfrú.
Sleepy Hollow er fyrsta raunverulega hroll-
vekja Tim Burtons og inn í myndmálið fellir hann
áköll til kvikmyndasögu hrollvekjunnar. Svið-
setningin minnir mjög á yfirbragð bresku Ham-
mer-hrollvekjanna frá sjötta og sjöunda áratugn-
um, sem Burton dáði mikið og til að undirstrika
það lætur hann Christopher Lee, frægan Ham-
mer-leikara sem er þekktastur fyrir hlutverk sitt
sem Drakúla, leika smáhlutverk í myndinni. Í
upphafi myndarinnar er tilurð höfuðlausa ridd-
arans lýst og er sú sena mynduð í svipuðum stíl og
upphafssena Bram Stoker’s Dracula (Francis
Ford Coppola 1992). Lokasenan er hinsvegar
fengin að láni úr frægri Frankenstein-mynd leik-
stjórans James Whale frá 1931. Í mynd Whale
hefur skrímslið yfirbugað skapara sinn og ber
hann upp í afskekkta myllu. Þar takast þeir á þar
til Frankenstein fellur yfir handrið myllunnar, út
á einn vænginn, og fellur þaðan til jarðar. Senan
er sérstaklega fræg fyrir það að meðan á bardaga
þeirra stendur þyrpast þorpsbúar vopnaðir
kyndlum um mylluna og hrópa ókvæðisorð að
Frankenstein – og brenna svo mylluna að lokum.
Með því að beina myndavélinni að afmynduðum
andlitum reiðra þorpsbúa í skuggaleik kyndlanna
uppgötvar áhorfandinn að hlutverkunum hefur
verið snúið við: skrímslið birtist sem fórnarlamb
og þorpsbúarnir eru þorparar.
Á sama hátt skipast veður í lofti í Sleepy Hol-
low þegar Ichabod uppgötvar að höfuðlausi ridd-
arinn er viljalaust verkfæri í höndum illrar norn-
ar sem hefur fangað heimasætuna í gamalli myllu
í því markmiði að láta riddarann afhöfða hana
þar. Nornin hefur allan tímann stýrt draugnum
sem er því í raun fórnarlamb – en það kemur ekki
í veg fyrir að hann elti heimasætuna, Ichabod og
þjón hans um mylluna, og hreki þau út á myllu-
vængina, en þaðan komast þau til jarðar og undan
draugnum. Samspilið við senuna úr Frankenstein
gefur þessari atburðarás slagkraft og er sérlega
gott dæmi um ‘vísun’ eða ‘textatengsl’ sem eru
annað og meira en yfirborðsleg sniðugheit.
Myndskeiðin tvö fléttast saman bæði á sviði hins
myndræna og sviði frásagnarinnar, Sleepy Hol-
low hefur innlimað þetta lykilatriði úr Franken-
stein og túlkunarsögu þess og þannig mætti
fremur líkja þessu við samruna, eða segja sem
svo að myndirnar ‘lesi’ hvor aðra, að því leyti að
textatengslin við mynd Whale varpa nýju ljósi á
mylluatriðið.
Fyrir utan þessar vísandir má sjá fjölmörg
merki fyrri mynda Burtons í Sleepy Hollow. Per-
sóna Ichabods minnir um margt á persónu Edw-
ard Schissorhands, en bæði hlutverkin eru leikin
af Johnny Depp sem lætur vel að leika klaufalega
sérvitringa. Að auki sækir yfirbragð myndarinn-
ar heilmikið til teiknimyndar sem Burton fram-
leiddi og hannaði, Nightmare Before Christmas
(1993). Litanotkunin er allsérstæð, en þrátt fyrir
að vera í lit virkar Sleepy Hollow á stundum
næstum svarthvít, en það er stílbragð sem setti
mjög mark sitt á síðari Batman-mynd Burtons,
Batman Returns.
f) Og boðskapur sögunnar er…
…að aðlaganir eru flókið fyrirbæri. Kvikmynd
er aldrei byggð á neinni einni frummynd, skáld-
sögu, smásögu, ævisögu eða kvikmynd, heldur er
hún flókið samspil fjölda texta, þarsem ‘frum-
myndin’ er aðeins eitt af fjölmörgum hráefnum
sem mynda lokaverkið. Þetta birtist sérlega vel í
myndum leikstjóra eins og Tim Burtons sem
leggur sérlega mikla áherslu á myndræna út-
færslu. Þannig verða myndir hans aldrei einfald-
ar tilfærslur frá einu formi til annars – sögu til
myndar – heldur samspil margra ‘texta’, kvik-
mynda og ritverka, þarsem tungumál kvikmynd-
arinnar býður upp á allt aðra möguleika en
tungumál ritverka og gerir aðrar kröfur um
framsetningarmáta og frásagnarhátt. Það er
þessi möguleiki kvikmyndarinnar sem Burton
nýtir sér til hins ýtrasta og skapar með marg-
víslegum tengslum við fjölbreytta þætti, tungu-
mál, myndmál og leikaraval, flókinn en umfram
allt fallegan vef kvikmynda. Myndir eins og Edw-
ard Scissorhands, Mars Attacks, Ed Wood og
Sleepy Hollow gefa allar innsýn inn í tiltekin
skeið kvikmyndasögunnar og varpa ljósi á það
menningarfyrirbæri sem kvikmyndin er. Þannig
eru myndir Tim Burtons sannir gleðigjafar fyrir
alla kvikmyndaunnendur.
UN TIM BURTONS
Höfundur er bókmenntafræðingur.
Saga Ed Wood er einnig saga sjálfrar Hollywood. Johnny Depp lék titilhlutverkið.
Tim Burtons og inn í myndmálið fellir hann áköll til
“ Christina Ricci í hlutverki sínu.
„Smart en sillí. Svöl en snautleg.“ Mark Wahl-
berg í Apaplánetunni eftir Tim Burton.