Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 31.01.2004, Qupperneq 6

Lesbók Morgunblaðsins - 31.01.2004, Qupperneq 6
6 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 31. JANÚAR 2004 K veðskapur hefur verið í eðli Íslendinga allt frá Agli Skallagrímssyni og fram á okkar daga. „Ég minnist sex- tán skálda í fjórða bekk“, kvað Tómas Guðmundsson á fyrri hluta aldarinnar sem leið. Hann sagði líka í viðtals- bók sinni við Matthías Johannessen að skáld- skaparsýkin hagaði sér „eitthvað svipað og aðrar landlægar farsóttir, sem stinga sér allt- af niður öðru hvoru og fara sér þá mjög hægt, en færast þess á milli í aukana“. Þannig var þetta vafalaust, en sú spurning leitar á hug- ann hvort nútímalífið hafi útrýmt þessari far- sótt og hvort þeir Tómas og Davíð Stefánsson hafi verið síðustu Íslendingarnir sem oft hafa verið nefndir þjóðskáld vegna vinsælda ljóða þeirra meðal almennings. Skáldskaparbylgjan næst á undan þeirri sem Tómas lýsir reis hæst á síðustu áratugum nítjándu aldarinnar. Eitt þekktasta skáld þess tímabils, Hannes Hafstein, gerði það sér til gamans um eða eftir aldamótin nítján hundr- uð að yrkja sextán vísur sem allar höfðu penn- ann, blekið og þerriblaðið að yrkisefni, en skopstældu að öðru leyti skáldskaparstíl og yrkisefni fimmtán skáldbræðra hans og hans sjálfs að auki. Þessar „þerriblaðsvísur“ urðu landfleygar og gengu handskrifaðar manna á milli, en fyrst munu þær hafa komið á prenti í Ljóða- bók Hannesar sem út kom 1916. Vinsældir þeirra stöfuðu kannski ekki síst af því að Hannes gaf aldrei upp hvern verið væri að stæla í hverri vísu. Þær urðu því löndum hans tilefni til að etja kappi um þekkingu á ljóða- gerð nítjándu aldarinnar. Síðast munu þerriblaðsvísurnar hafa birst sem getraun í jólablaði Tímans árið 1988 í um- sjón Maríu Önnu Þorsteinsdóttur, kennara. Þegar hún gerði grein fyrir aðsendum lausn- ÞERRIBLAÐSVÍSUR HANNES E F T I R H A N N E S H A F S T E I N I Blaðið góða, heyr mín hljóð, hygg á fregnir kvæða mínar, minna ljóða blessað blóð blætt hefur gegnum æðar þínar. Dagsins runnu djásnin góð dýr um hallir vinda, morgunsunnu blessað blóð blæddi um fjalla tinda. (Sigurður Breiðfjörð) II Því var þerriblað í þegna heimi oft í eldi hrakið að entu starfi, að það aldregi, sem önnur blöð, dugði til kamars né kramarhúsa. Þá var Sæmundur, á sinni jarðreisu, oft í urð hrakinn út úr götu, að hann batt eigi bagga sína sömu hnútum og samferðamenn. (Bjarni Thorarensen) III Þurrkutetur, þægðarblað, þú, sem ástarklessur drekkur. Ljúft þú unir þér við það, þurrkutetur, gljúpa blað. Hverfur þér að hjartastað hver einn lítill pennaflekkur, þurrkutetur, þægðarblað, þú, sem ástarklessur drekkur. Fífilbrekka, gróin grund, grösug hlíð með berjalautum, flóatetur, fífusund, fífilbrekka, smáragrund, yður hjá eg alla stund uni best í sæld og þrautum, fífilbrekka, gróin grund, grösug hlíð með berjalautum. (Jónas Hallgrímsson) IV Hvar sem hnígur hortittur, hlussum mígur ritvargur, brátt upp sýgur blekdrekkur bull, sem lýgur mannhundur. Byggðir smýgur blóðþyrstur brauð út lýgur mannhundur, loks þó hnígur hordauður, hans á mígur leiði hvur. (Bólu-Hjálmar) V Síðasti slagurinn er hans sló – slettist á blaðið klessa. En með blaðinu þerri þó þurrkaði ’ann vætu þessa. Rennvotar þerrar það rúnar. Fyrsti slagurinn er hún sló – strengirnir fagurt gjalla – hestar og fé í heiði og skóg högunum sinntu valla. Rammar slær hún rúnar. (Grímur Thomsen) VI Á himinskýjum skáldsins andi flaug sem skrýtinn bláfugl eða apótek, og himinljósa leiftur í sig saug líkt eins og þerripappír drekkur blek. (Benedikt Gröndal) VII Þerripappír þóknast mér því hann drekkur, eins og ég. Blekaður því hann einatt er. Allt er þetta’ á sama veg. (Páll Ólafsson) VIII Þerripappír, satt eg segi, sýgur, frá ég, ár og síð. Meir þó bergði Boðnar legi Bragi gamli á fornri tíð. Skáldið ástar, satt eg segi, sem að enginn jafnast við, endurrisið á þeim degi, er menn skildu Sónar klið. (Gísli Brynjúlfsson) IX Einn þerripappír, gljúpur, grár, hann gerir þurrt, ef bleki’ er slett. Svo þerrar drottinn tállaus tár og tekur burtu synda blett. (Steingrímur Thorsteinsson) X Pappír pettaði penninn flughraði, hljóp of hugstaði hratt á blekvaði. En í óðhlaði ei varð stórskaði, því ég þurrkaði á þerriblaði. Varast varg ala, vitrum flátt tala, margt við mey hjala, ÞERRIBLAÐSVÍSUR eða Íslensk anthologi rituð á þerriblað

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.