Lesbók Morgunblaðsins - 07.02.2004, Side 9

Lesbók Morgunblaðsins - 07.02.2004, Side 9
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 7. FEBRÚAR 2004 9 með veggjum í dagfari sínu, en þó voru öll sviðsljós eitur í hans beinum ef þau léku um persónu hans sjálfs. Oft þegar mikil menningartíðindi gerðust fyrir hans atbeina, kaus hann helzt að nafn sitt lægi í þagnargildi. Hann barst ekki á í einkalífi sínu; heimili þeirra Bjargar var umfram allt hlýlegt, gersamlega laust við íburð annan en þann er saman var dreginn af sönnum auði, í myndum, máli og tónum. Það var ekki átakalaust að sjá þungbæran sjúkdóm herja á þennan náttúrukraft síðustu ár- in, og bar hann þó mein sitt hetjulega. Allt fram undir það síðasta var hann skrafhreifinn og djarfhuga, ýtti óspart undir gáska og geislaði af hrifningu frammi fyrir þokka skáldskapar, tónverks, myndar eða mann- eskju, ellegar frumstæðum gróf- leika og grallaralátum, fjöl- breytilegri háttsemi tilverunnar. Hann skildi eitthvað mikilvægt eftir í hug allra sem höfðu af honum veruleg kynni. Sú meinsemd vill loða við minningaskrif um góða vini, að skrifarinn sjálfur taki þar óþarf- lega mikið efnisrúm. Hvað mig snertir vænti ég að það sé virt mér til hins betra. Þessi ann- marki hefur það sér til afbötunar og útskýr- ingar að vera til vitnis um inntak náinnar og hreinskiptinnar vináttu. Auk fyrsta ljóðakvers míns gaf Ragnar út aðra ljóðabók mína tveimur árum síðar, svo og þrjár skáldsögur á árunum 1969–’80. Fleira bóklegt tók ég stundum að mér á hans vegum, og allt voru þetta ánægjuleg við- skipti. En þar með er ekki nema brot af sög- unni sagt. Ragnar í Smára var hollvættur mér og mínum oftsinnis þegar í nauðir rak, og stundum var ég með öllu grunlaus fyrirfram um einhverja nýstárlega hugulsemi sem lá að baki óvæntri komu hans í kaffi. Hitt ber að játa, að af minni hálfu var örlæti hans í litlu launað, þótt ég hafi ætíð og eftir megni leitazt við að rækja það sem sérstaklega var um samið. Það vill svo til að vinátta er af öðrum eðlistoga en bókhald. Í lok þessarar snöggsoðnu hugleiðingar um góðan dreng og dýrmætan persónuleika vitna ég aftur til minningarorðanna um Magnús Ás- geirsson, sem ég hika ekki við að skoða sem einskonar stefnuskrá Ragnars Jónssonar: „Engin meðöl eru manninum eins holl og góð listaverk, til þess að fá lífsvélina aftur í gang, auka aðstreymi blóðs og lífslofts að orkustöðv- um sálarinnar.“ Þorsteinn frá Hamri naumast hvað prófarkalestur var, enda upp- götvaði ég fljótt hvimleiðar villur, óþarflega margar í ekki stærra kveri. Ýmsum þótti stundum skorta á umsjá af þessu tagi í útgáfu- starfi Ragnars; það var ekki algerlega að ástæðulausu sem hann var öðru hverju sakaður um að láta gösla, hirða ekki um strik og staf- króka þegar framkvæmdagleði hans ætlaði allt um koll að keyra. Slíkar yfirsjónir reyndust þó léttar á metunum þegar litið var til lífshollustu hans og bjartsýni, baráttu í þágu göfugra mál- efna. Oft næddu um hann snarpir vindar, og sýndist sitt hverjum um skeleggar hugmyndir hans, en hafi einhverjum þótt Ragnar misvitur, eins og mælt var um Njál, þá var ekki í því fólg- ið annað en það sem gildir um flesta dauðlega menn, – kannski þó einkum afreksmenn, sem öðrum fremur liggja undir smásjá. Alkunna var, og á orði haft, að ekki stæðu öll fyrirheit Ragnars sem stafur á bók; hann var enginn smámunamaður um mínútur, daga og jafnvel vikur. En þeim mun ríkulegri voru efndirnar þegar til kastanna kom; þær þustu inn um dyrnar eins og heitur stormsveipur, höfðing- legur glaðningur; allt í einu voru komin eins- konar jól. Svoleiðis jól gátu líka allt eins byrjað að ljóma einhversstaðar á götum borgarinnar, í bleytu og sveljanda, ef honum flaug í hug sú að- ferð að elta mann uppi á jeppanum. Ekki verður sagt að Ragnar Jónsson færi tilveran er gerilsneydd og auð- hyggjan leggur kalt markaðs- mat á allt sem lífsanda dregur. Í þá daga var ímynd forstjóra, samkvæmt fordómafullri skil- greiningu hvatvísra ungmenna, bólgin af vitundinni um manna- forráð og fé ásamt yfirborðs- legum virðuleik. En þarna í dyr- unum á Reynimelnum tók mér tveim höndum sjálf lífsorkan holdi klædd; heilnæmur gustur, góðvild, alþýðlegt hispursleysi og allt að því gróf hreinskilni: skýrar eigindir sem settu mark sitt á viðhorf Ragnars Jónssonar til menningarmála og umsvif hans á þeim vettvangi til hinztu stundar. Ekki er að orðlengja það að Ragnar tók æskubrek mín til út- gáfu, hvað sem hann kann að hafa séð bitastætt í þeim, og oft síðan hefur mér raunar þótt miður að hann skyldi ekki vísa mér nánar til vegar um sumt, til að mynda ráð- leggja mér að draga út ýmislegt lítilsiglt sem flaut þar með sakir fljótræðis míns og ungs manns óra. Hvað ytri frágang snerti vissi ég þá Í fornöld á jörðu, nánar tiltekið 1958, þegar ég gekk í fyrsta sinn með handrit á fund Ragnars í Smára, hafði ég aldrei séð hann svo ég vissi til, en margt um manninn heyrt. Þremur árum fyrr hafði ég lesið eftir hann ritgerð sem enn stóð mér efnislega fyrir hugskots- sjónum líkt og meitluð í minnið, þrátt fyrir óstýrilæti, flökt og reikult ráð unglings- áranna. Þetta voru minningarorð í Morgun- blaðinu um Magnús Ásgeirsson skáld frá sumr- inu 1955, þeirra á meðal þessi orð: „Hann hélt æ lengra á vit næturinnar, lengra niður í hyl- dýpið þar sem hinir ógæfusömu bræður hans háðu stríð sitt og unnu þar miklu dýrmætari sigra en hinir, sem létu daginn lýsa sér um refilstigu flatneskjunnar og sólina verma sig, en nutu þó draumlauss svefns hins vanmáttuga borgara.“ Þegar ég rifja nú upp í heild sinni þessa fögru ritsmíð, kemur hún mér fyrir sjónir eins og nokkurskonar lykill að skilningi á háleitum hugmyndum Ragnars og ósérplægnum stór- virkjum í þágu hinna ýmsu listgreina á landi hér. Hann var maðurinn sem hikaði aldrei við að veita því efni brautargengi sem hann skynj- aði listrænt og mannvænt lífsmark með, og lét sig litlu varða hvort það ætti eftir að gera frek- lega í blóðið sitt á torginu háa og helga, þar sem RAGNAR Ragnar og Björg ásamt Rudolf Serkin. Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon Halldór Kiljan Laxness á blaðamannafundi með Ragnari í Smára. Myndin er tekin 1976/77. RAGNAR JÓNSSON í dag í tilefni aldar- kl. 16. Kynnir verður nnarsdóttir, setur há- k flytja verk eftir Bach. on leikari les úr erindi onskunni“, og kvæðið án Karlsson. Gunnar rleik Jónasar Ingi- gir frá kynnum sínum son tónskáld flytur tja verk eftir Mozart. r Gunnarsdóttir syngur eik Jónasar Ingimund- Reykjavíkur flytur rmaður Tónlistarfélags kur og Karlakórinn r Árni K. Harðarson og (Úr útsæ rísa Íslands fjöll eftir Pál Ísólfsson og Davíð Stefánsson). Flytjendur eru Sinfón- íuhljómsveit Íslands, Karlakór Reykjavíkur og Karlakórinn Fóst- bræður. Stjórnandi Kjartan Óskarsson. Eyrarbakki Í Húsinu á Eyrarbakka verður opnuð sýningin, Myndir af skáldum, kl. 15 á morgun. Þar gefur að líta 20 og í Eyrarbakkakirkju verður afmælisins minnst með dagskrá sem hefst kl. 17.. Einar Njálsson, sveitarstjóri Árborgar, flytur ávarp. Unglingakór Skálholtskirkju flytur nokkur íslensk lög undir stjórn Hilmars Agnarssonar org- anista. Gylfi Gíslason myndlistarmaður segir frá Ragnari. Gunnar Björnsson sellóleikari og Haukur Guðlaugsson orgelleikari flytja lög eftir Pergolesi, Debussy og Saint-Saëns. Haukur Arnarr Gíslason orgelleikari og Haukur Guðlaugsson píanóleikari flytja verk eftir Ha- ydn. Á Stað á Eyrarbakka verður dagskrá með vinum, velunnurum og aðstandendum Ragnars og Bjargar og hefst dagskráin kl. 19. Kynnir er Dagný Björg Davíðsdóttir. Barnakór Selfosskirkju syngur. Kventett, blásarakvintett kvenna, leikur nokkur lög og Sigrún Hjálm- týsdóttir syngur ennfremur nokkur lög. g Ragnars Jónssonar í Smára

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.