Lesbók Morgunblaðsins - 07.02.2004, Side 14

Lesbók Morgunblaðsins - 07.02.2004, Side 14
14 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 7. FEBRÚAR 2004 RÚSSNESKUR auðmaður, Vict- or Vekselberg, keypti nú í vik- unni safn Fabergé-eggja sem höfðu verið í eigu fjölskyldu Malcolms Forbes og hef- ur Vekselberg þegar tilkynnt að safnið skuli til Rússlands á ný. Kaupin koma í kjölfar þess að til- kynnt var fyr- ir skemmstu að til stæði að selja níu egg úr safninu á upp- boði hjá Sotheby’s í apríl. Að sögn Vekselbergs eru eggin e.t.v. eitt merkasta dæmið um rúss- neska menningu utan Rússlands, líkt og sagði í fréttatilkynningu sem Sotheby’s sendi frá sér í gær. Að sögn New York Times hefur Vekselby hug á að gera eggin aðgengileg fyrir almenn- ing. Fabergé-eggin voru unnin fyr- ir rússnesku keisarafjölskylduna og síðar seld úr landi til að fjár- magna stuðning við stjórn bolsj- évika. Í dag leitast efnaðir Rúss- ar hins vegar við að kaupa eggin á ný. Vekselby er talinn fjórði ríkasti maður Rússlands og eru auðæfi hans metin á um 170 milljarða króna. Ekki hefur feng- ist gefið upp hvað hann greiddi fyrir Fabergé-safnið en sérfræð- ingar fróðir um markaðsverð eggjanna segja ekki ólíklegt að Vekselberg hafi greitt um 100 milljónir dollara eða 6,8 millj- arða króna fyrir safnið. Nerdrum kærður fyrir falska kæru NORSKI listamaðurinn Stig André Ristesund hefur kært gamlan vin sinn, listamanninn Odd Nerd- rum, fyrir falska kæru að því er fram kemur á vef- síðu norska dagblaðsins Verdens Gang. „Eftir að hafa lesið skrásetningu á yfirheyrsl- unni yfir Ner- drum er mér ekki annað fært en að kæra hann,“ hefur blaðið eftir Ristesund. Forsaga málsins er sú að Nerdrum kærði Ristesund fyrir stuld á rissbók sem sá síðar- nefndi fullyrðir að hann hafi fengið að gjöf frá Nerdrum fyrir greiða árið 1993. Sú kæra leiddi ekki til sakamáls og var málið lagt til hliðar. En þar sem lög- regla gat ekki fundið neinar sannanir þess að Ristesund hefði tekið rissbókina var heldur ekki hægt að taka afstöðu til eignar- réttarins og því eingöngu hægt að höfða einkamál vegna bókar- innar. Af þeim sökum er lög- reglan enn með rissbókina í sinni vörslu. „Það er ekki oft sem lögreglan fær slík mál í hendur,“ segir lög- maður lögreglunnar, Asbjørg Mikalsen, en þar sem hvorki Ristesund né Nerdrum hafa til þessa gert sig líklega til að höfða einkamál kann rissbókin að vera áfram í vörslu lögreglunnar næstu árin. Að sögn blaðsins hefur Nerd- rum neitað að tjá sig um málið. Fabergé- eggin heim til Rússlands ERLENT Eitt Fabergé- eggjanna. Sjálfsmynd sem barn eftir Odd Nerdrum. Hvað var Flúxus? Eins og fram kemur í skemmtilegri og grein- argóðri sýningarskrá, í afar viðeigandi hálfgild- ings dagblaðaformi og enginn ætti að láta framhjá sér fara kom heitið Fluxus fyrst fram í Þýskalandi í september 1962 sem heiti á tón- leikaröð skipulagðri af listamanninum George Macunias, ætlun hans var síðan að nota heitið sem nafn á tímarit en ekkert varð af útgáfu þess. Málin þróuðust hins vegar þannig að farið var að nota samheitið Fluxus um margs konar listaverk sem fram komu á sjöunda áratugnum, tónlist, myndlist, gjörninga. Þessi verk áttu helst mót- herjann sameiginlegan, mótherjinn var fortíðin, módernisminn, borgarlegar hefðir, list í gylltum ramma. Flúxus var list tíðarandans, uppreisn- arkennd og hrá og efniviður hennar var lífið sjálft, efniviður listaverkanna ekki olíulitir og lér- eft heldur hvað sem hendi var næst. Ótal lista- menn unnu á þessum tíma verk sem fella má und- ir stóra Flúxushattinn, listamenn frá Evrópu og Ameríku, Skandinavíu og Íslandi. Dæmigert Flúxusverk er listaverk úr hvers- daglegu efni, t.d. matvöru, það felur í sér vísun til samtíma síns, gjarnan á einhvern uppreisnar- gjarnan hátt, það lætur alla fagurfræði lönd og leið, hún er ein af borgaralegum gildum mótherj- ans. Flúxus notar texta jafnt sem tónlist eða myndir, hátækni síns tíma jafnt sem sláturkeppi. Nákvæm skilgreining á Flúxus er ekki til og mý- mörg verk hafa kannski einhver einkenni Flúxus en einnig naumhyggju eða hugmyndalistar sem kom fram um svipað leyti og síðar og sótti margt til Flúxus. Margt í Flúxus líkist einnig verkum Dadaista, þetta flæði á sér uppsprettu sína í for- tíðinni eins og það hefur líka náð að streyma áfram fram í tímann. Flúxus var ekki hreyfing, enda slík hugsun einmitt andstæð Flúxus sem vildi algjört frelsi. Plexíflúx Listasafnið sýnir verk eftir þrjátíu og tvo er- lenda listamenn og tuttugu og fjóra íslenska. Nafn sýningarinnar gefur til kynna sterk tengsl Flúxus við Þýskaland. Flúxus er þó ekki þýskt fyrirbæri og þessi sýning heldur því ekki beinlínis fram þó hér sé vissulega gert mikið úr hlut Þýskalands í Flúxus. Sýningin birtir þó greinilega að listamenn Flúxus voru af mörgum þjóðernum. Hún gefur þó aðeins sýnishorn af vinnu margra listamanna og sýnir ekki til dæmis hversu mismunandi vægi þeirra var fyrir Flúxus. Tvö stærstu nöfnin eru John Cage sem hafði mik- il áhrif bæði vestan hafs og í Evrópu og síðan Jo- seph Beuys. Það er erfitt að sjá þetta á þessari sýningu, þar sem öll verk hafa sama gildi. Joseph Beuys sinnaðist reyndar við Flúxus og vildi ekki kenna sig við stefnuna heldur safnaði eigin liði, en það er svo önnur saga. Þessi sýning er því fyrst og fremst sýnisbók af list fjölda listamanna og sem slík er hún góð og gild og hingað kominn mikill fjöldi verka sem ekki hefur sést áður hér á landi. Það er augljóst af henni að Flúxus var ekki beinlínis ákveðin listastefna heldur tíðarandi. Sýningin er þess vegna fyrst og fremst verksummerki um ákveð- inn tíðaranda. Það segir sig líka sjálft að erfitt er að varðveita listaverk sem ekki eru gerð til að endast og eru auk þess gerð úr viðkvæmum efn- um. Eina ráðið er að loka þau undir gleri eða plexígleri, það fyrrnefnda áferðarfallegra, það síðarnefnda sterkara og ekki eins viðkvæmt en drepur verkið enn meira niður. Þetta er að sjálf- sögðu óhjákvæmilegur fylgifiskur framrásar tímans og ekkert við því að gera en eykur þó enn frekar á fjarlægð verka sem ekki eldast vel. Á sýningu sem þessari er einmitt forvitnilegt að velta fyrir sér hvaða verk virðast standast tímans tönn og af hverju. Í heildina virka flest þessara verka nú líkt og verksummerki liðins tíma, frekar en að þau lifi enn sjálfstæðu lífi sem listaverk. Hinn gagnvirki þáttur sem oft einkenndi verk Flúxus, en mikil áhersla var jafnan lögð á virkni áhorfandans - það er ekkert nýtt - þessi þáttur er horfinn úr verkunum, þau eru orðin heimildir. Undantekn- ingar eru þó á þessu, til dæmis virka hljóðfæri Joe Jones ennþá og áhorfandinn getur „spilað“ á þau. Helst sýnist mér þau verk sem eru hvað ein- földust að gerð og auðlæsust standast tímans tönn, þannig er til dæmis um teikningar eftir Endre Tót frá árinu 1973-78. Einfaldar línur kall- ast á við handskrifaðar setningar listamannsins sem fjalla um ætlun hans og setja verkin um leið í stærra samhengi. Úr þessum einföldu teikning- um má lesa glettnislega ádeilu á athafnamálverk- ið, á hugmyndina um listamanninn sem snilling, um ætlun og markmið listamanna og um leið dýpri vangaveltur um eðli listaverka. Þessi verk eru mjög í anda Flúxus. Hugmyndafræði Flúxus, eða afneitunin á slíku kemur líka skýrt fram í ljósmyndum Endre Tót þar sem maður heldur á skilti sem á stendur „I am doing nothing“, „I am looking for nobody“ og ætlar síðan á puttanum til „Nowhere“. Nokkur verk á sýningunni minna á að Flúx- uslistamenn notuðu gjarnan leiki og spil eða tilbúin kerfi eins og stafrófið eða skipulagskerfi ýmiss konar sem eins konar miðil til að koma hugmyndum sínum á framfæri, enn einn þátt- urinn sem hélt áfram yfir í konseptlistina. Þannig má nefna verk Takako Saito, Skák fyrir mýs og fleiri í sama dúr. Listaverk sem uppfylla vissar fagurfræðilegar kröfur - nokkuð sem ekki var markmið Flúxus, frekar var reynt að forðast alla fagurfræði – þessi listaverk ná athygli áhorfandans í dag á auðveldari hátt og miðla kannski einhverju þar sem hinum mistekst, þeim sem styðjast við óreiðukenndan oft á tíðum illa læsilegan texta eða óljósar klippimyndir. Þar má nefna konkretl- jóð Emmett Williams, Go Pen an Ode, en hér eins og í fleiri Flúxusverkum er álitamál hvort um er að ræða hugmyndafræðilega list eða Flúxusverk. Hvort sem er þá stendur fagurfræðileg hlið verksins óhögguð. Annað dæmi er kvenmynd Al Hansen úr sígar- ettustubbum, einföld Flúxushugmynd en sjón- rænt áhugaverð. Ómerkilegasta efnivið sem má hugsa sér, sígarettustubbum, er raðað á snobb- lega mottu svo þeir mynda kvenmynd. Þannig deilir hann á borgaraleg gildi sem sameinast í mottunni og gerir um leið grín að - og fylgir- aldagamalli hefð innan málaralistarinnar, kven- myndinni. Þau fáu og smáu verk sem hér má sjá eftir Jos- eph Beuys sýna einfalda og sterka fagurfræði hans vel og ná að lifa sæmilega þrátt fyrir plexí- glerið. Á sýningunni allri er síðan um allt of mörg verk að ræða til þess að hægt sé að gera þeim ein- hver skil og gildir hér sem oftar að hver hefur sinn smekk. Framhaldslíf Flúxus Í íslenska sal safnsins fáum við að sjá list frumherj- anna, verk eftir Jón Gunnar Árnason, Hrein Friðfinnsson, Guðmundssonar- bræðurna og fleiri og síðan nýrri verk eftir til dæmis Eygló Harðardóttur og Margréti Blöndal. Listasagan gengur stöðugt aftur undir nýjum formerkjum og Flúxus er sannar- lega fyrirbæri sem hefur haft mikil og víðtæk áhrif. Það er ekki nema sjálf- sagt á sýningu sem þessari að sýna samtímaverk eins og hér er gert því Flúxus er orð sem ótal sinnum kemur upp í hugann og hefur gert síðastliðinn áratug eða lengur. Eftir hinn póstmóderníska hræri- graut og efnishyggju níunda áratugarins kom fram ný kynslóð ungra listamanna sem sóttu efnivið verka sinna í eigið líf og notuðu hvers- dagslegt hráefni, list þeirra er ekki gerð til að endast, hún er list augnabliksins…hljómar kunn- uglega, ekki satt? Í þessum sal kemur aftur þessi tilfinning um eins konar sýnisbók, lítil dæmi um verk ná (eðli- lega) ekki að mynda neina heild, orkan og sprengikrafturinn sem fylgdi verkum Jóns Gunnars sést ekki hér og við val nýrri verka sýn- ist mér eins og að hér hafi kannski verið einblínt dálítið á efnivið verka og þau valin sem minntu helst á efnisnotkun sjöunda og áttunda áratugar sem byggðist mjög á tré, pappa, daglegum nytja- hlutum ofl. Það hefði kannski verið hægt að horfa meira í hugsunarhátt þann sem býr að baki listaverkinu og finna verk sem mætti segja að væru unnin í anda Flúxus þó þau líti öðruvísi út í dag en þá. Ef til vill hefði verið hægt að ganga lengra í því að reyna að skilgreina birtingarmáta Flúxus í sam- tímanum. Ég myndi til dæmis tengja Þorvald Þorsteinsson myndlistarmann, rithöfund, leik- ritaskáld mm. við Flúxus. Hann leitast oft við að sameina líf og list í verkum sínum og vinnur jöfn- um höndum í marga miðla. Og þannig má halda áfram í flúxuskenndum leik „finnið flúxus“…Eru gjörningar Hannesar Lárussonar Flúxus? Er málverk Steingríms Eyfjörð á Carnegie-sýning- unni í anda Flúxus? List Hlyns Hallssonar er það að nokkru leyti amk., hvað varðar efnivið og framsetningu er þar margt líkt. Nýafstaðin sýn- ing Margrétar Norðdahl í Listasafni ASÍ bjó yfir vissum Flúxus-anda. Verk Þóru Þórisdóttur gera það líka, í þeim býr uppreinsnarandi og kraftur og sum eru gerð úr mjög hversdagslegum hlut- um. Ekki má gleyma list Óskar Vilhjálmsdóttur og einnig má nefna Ingu Svölu Þórsdóttur, Gabríelu Friðriksdóttur og fleiri og fleiri… Þau nýrri verk sem hér eru sýnd geta þó líka verið í anda Flúxus og standa alveg sem slík þó að listamennirnir hafi eflaust ekki haft Flúxus í huga við gerð þeirra. Þannig er einmitt fram- haldslíf Flúxus, áhrifin eru allsstaðar en við tök- um þeim kannski orðið sem sjálfsögðum hlut. Það eitt út af fyrir sig gerir heimsókn á sýn- inguna góðra gjalda verða. Verksummerki liðins tíma Flúxusandinn ríkir enn í verki Hansen frá 1989. EX-24 eftir Jón Gunnar Árnason frá 1969. Áhorfendur geta spreytt sig á að spila á hljóðfæri Joe Jones frá 1977. MYNDLIST Listasafn Íslands Til 14. mars. Listasafn Ísland er opið alla daga nema mánudaga, frá kl. 11-17. LÖNG OG MARGÞÆTT SAGA FLÚXUS Í ÞÝSKALANDI 1962 - 1994 32 ERLENDIR OG 24 INNLENDIR LISTAMENN Ragna Sigurðardóttir

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.