Lesbók Morgunblaðsins - 07.02.2004, Síða 15
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 7. FEBRÚAR 2004 15
Næsta v ika menning@mbl.is
Laugardagur
Salurinn kl. 11–14.30
„Waste of money?“ Málþing
um íslenska nútímalist í
tengslum við Carnegie Art Aw-
ard-sýningu í Listasafni Kópa-
vogs – Gerðarsafni.
Borgarleikhús – nýja svið
kl. 15 Myrkir músíkdagar:
Flaututónleikar. Berglind María
Tómasdóttir, flauta/bassa-
flauta, Ingólfur Vilhjálmsson,
klarínett, Nicole Vala Cariglia,
selló, Kristinn Árnason, gítar,
og Ása Briem, píanó, flytja
verk eftir Þorstein Hauksson,
Huga Guðmundsson og
George Crumb.
Hásalir, Hafnarfirði kl. 17
Kammerkór Mosfellsbæjar,
Kammerkór Hafnarfjarðar og
Kammerkór Reykjavíkur, ein-
söngvarar og hljóðfæraleik-
arar.
Listasafn Reykjavíkur –
Hafnarhús kl. 10.35–15 Í
tengslum við sýninguna Frost
activity verður listasmiðja fyrir
10–12 ára börn. Á morgun
verður leiðsögn um sýninguna
kl. 13 og 15.
Listasafn ASÍ kl. 14 Sýnd
verða verk úr listaverkagjöf
Ragnars Jónssonar sem jafn-
framt var stofngjöf Listasafns
ASÍ.
Opið alla daga, nema
mánudaga, kl. 13–17. Að-
gangur er ókeypis.
Íslensk grafík, Hafnarhús-
inu, Tryggvagötu 17 kl. 15
Á sýningunni Fljúgandi teppi
(Flying Carpet) gefur að líta
152 verk eftir 165 konur frá 24
löndum. Opið fimmtudaga til
sunnudaga kl. 14–18.
Listasafn Reykjanesbæjar
kl. 15 Portúgalski málarinn
Carlos Barão sýnir verk unnin
með blandaðri tækni á striga.
Opið alla daga frá kl. 13–17.
Gallerí Fold, Rauðarárstíg
kl. 15 Elín G. Jóhannsdóttir
opnar málverkasýningu í Bak-
salnum. Sýningin nefnist Sker. Í
Rauðu stofunni opnar Sonja
Georgsdóttir sýningu á papp-
írsverkum. Opið daglega kl.
10-18, laugardaga kl. 10-17
og sunnudaga kl. 14-17.
Listasafn Reykjavíkur –
Kjarvalsstaðir kl. 16 Sam-
sýning þriggja listakvenna í
vestursalnum og einkasýning
Alistairs Macintyres í miðrým-
inu.
Ljósmyndasafn Reykja-
víkur, Grófarhúsi kl. 16
Leifur Þorsteinsson – Fólk og
borg. Myndirnar eru svart/
hvítar frá 1963 til dagsins í
dag. Þær bregða upp ýmsum
stemmningum úr Reykjavík.
Gallerí Skuggi, Hverf-
isgötu 29 kl. 17 Anna Jóa
opnar sýningu sína sem nefnist
Tímamót. Hún samanstendur
af ljósmyndum, teiknum af
strætisvagnastöðinni Hlemmi á
ýmsum tímum. Opið fimmtu-
daga til sunnudaga kl. 13–17.
Aðgangur er ókeypis.
Kaffi Sólon kl. 17 Elsa Niel-
sen opnar fyrstu einkasýningu
sína. Elsa vinnur með akrílliti
og sand á striga. Hún útskrif-
aðist frá Listaháskóla Íslands
1999 og er í Félagi íslenskra
teiknara.
Sýningin stendur til 5. mars.
Skartgripagalleríið Hún
og hún, Skólavörðustíg
17b Kristín Jónsdóttir frá
Munkaþverá opnar sýningu á
textílverkum. Kristín hefur hald-
ið margar einkasýningar hér á
landi og erlendis og tekið þátt í
fjölda samsýninga.
Sunnudagur
Borgarleikhúsið kl. 13.30
Myrkir músíkdagar. Hljómsveit
Tónskóla Sigursveins D. Krist-
inssonar flytur íslensk verk eftir
John Speigt, Erik Mogensen,
Örn Guðmundsson, Hróðmar
Inga Sigurbjörnsson og Örn
Grundfjörð.
Íslenska óperan kl. 16
Svipmynd af Sigrúnu Hjálmtýs-
dóttur er yf-
irskrift stefnu-
móts við
sópr-
ansöngkon-
una. Með
henni á svið-
inu verða þau
Einar Thor-
oddsen læknir og Anna Guðný
Guðmundsdóttir píanóleikari.
Hallgrímskirkja kl. 17
Myrkir músíkdagar: Mót-
ettukór Hallgrímskirkju, Schola
cantorum. Stjórnandi Hörður
Áskelsson. Flutt verða verk eftir
Hreiðar Inga Þorsteinsson,
Benjamin Britten, Krzysztof
Penderecki, Hjálmar H. Ragn-
arsson og Frank Martin.
Salurinn kl. 20 KaSa-
hópurinn flytur lítt þekkt kamm-
erverk eftir austurríska tón-
skáldið Johann Nepomuk
Hummel.
Hjallakirkja kl. 20 Marteinn
H. Friðriksson leikur á Björg-
vinsorgelið.
Hann leikur ein-
göngu verk eftir
J.S. Bach sem
hann hefur val-
ið sérstaklega til
að sýna getu og
fjölbreytni org-
elsins sem hefur
27 raddir sem skiptast á tvö
hljómborð og fótspil.
Hafnarborg kl. 14 Leiðsögn
um minningarsýningu á
myndverkum Elíasar Hjörleifs-
sonar.
Mánudagur
LHÍ í Laugarnesi kl. 12.30
Ulrike Isenberg myndlist-
armaður sýnir stuttmyndir eftir
Hans Richter (1888–1976),
sem var einn af frumkvöðlum
Dada-hreyfingarinnar. Ulrike
sýnir einnig viðtal við franska
„hljóðmálarann“ Knud Victor
og verk eftir nemendur í
listaháskólanum í Bremen.
Salurinn kl. 20 Tvíblöð-
ungar og píanó. Eydís Franz-
dóttir, óbó, Kristín Mjöll Jak-
obsdóttir, fagott, og Unnur
Fadila Vilhelmsdóttir, píanó,
flytja tónlist eftir Petr Eben,
Alain Craens, Svein Lúðvík
Björnsson og Francis Poulenc.
Listasafn Íslands kl. 20
Myrkir músíkdagar: Caput –
heimshornatónlist. Einleikari
er Pétur Jónasson gítarleikari.
Stjórnandi er Joel Sachs. Flutt
verða verk eftir Snorra S. Birg-
isson, Steingrím Rohloff, Davíð
Brynjar Franzson, Áskel Más-
son, Valentin Bibik, Dimitri Ya-
now-Yanovsky og Robert
Sierra.
Þriðjudagur
Ýmir kl. 20 Myrkir mús-
íkdagar: Stengjakvartettinn
Húgó flytur verk eftir György
Kurtág, Hafliða Hallgrímsson,
Hauk Tómasson og Béla Bar-
tók.
Miðvikudagur
Norræna hús-
ið kl. 12.30
Háskóla-
tónleikar. Krist-
jana Stef-
ánsdóttir syngur
við píanóund-
irleik Agnars
Más Magn-
ússonar Lög unga fólksins: Vin-
sæl popplög síðustu áratuga í
léttum djassútsetningum.
Ýmir kl. 20 Myrkir mús-
íkdagar: Camerarctica flytur
verk eftir Óliver Kentish, Árna
Egilsson, Krzyztof Penderecki
og Elínu Gunnlaugsdóttur.
LHÍ, Skipholti 1 kl. 12.30
Ásrún Kristjánsdóttir fjallar um
verkefnið Lýsi, www.lysir.is.
Sagt verður frá aðdraganda
þess að ráðist var í það að
skrásetja og mynda myndefni í
íslenskum handritum, og gera
efnið aðgengilegt fyrir almenn-
ing, hönnuði og listamenn.
Fimmtudagur
Háskólabíó kl. 19.30 Sin-
fóníuhljómsveit Íslands. Einleik-
arar eru útskriftarnemar LHÍ:
Gyða Valtýsdóttir, selló, Helga
Þóra Björgvinsdóttir, fiðla, Ing-
rid Karlsdóttir, fiðla, og Mel-
korka Ólafsdóttir, flauta.
Hljómsveitarstjóri er Niklas
Willen. Fluttir verða: Fiðlu-
konsert eftir Jean Sibelius,
sellókonsert eftir Dimitri Shos-
takovich, flautukonsert eftir Ja-
ques Ibert og fiðlukonsert eftir
Johannes Brahms.
Salurinn kl. 20 Karlakór
Kjalnesinga. Gestur þeirra
Guðrún Gunnarsdóttir. Stjórn-
andi er Páll Helgason. Um
undirleik sjá Óskar Einarsson á
píanó, Jóhann Ásmundsson á
bassa og Sigfús Örn Óttarsson
á trommur.
Kristjana
Stefánsdóttir
Marteinn H.
Friðriksson
Sigrún
Hjálmtýsdóttir
Sinfóníuhljómsveitáhugamanna heldurtónleika í Seltjarn-arneskirkju kl. 17 á
morgun. Einleikarar eru Sif
Tulinius fiðluleikari og Jón-
ína Auður Hilmarsdóttir
víóluleikari. Stjórnandi er
Ingvar Jónasson.
Hljómsveitin er að hefja
sitt 15. starfsár og þú hefur
verið stjórnandi frá upphafi.
Hvernig
hefur geng-
ið? „Í upp-
hafi sögð-
um við
strax að við
værum ekki
byltingarsinnuð, vildum láta
starfið þroskast og þróast í
rólegheitum. Það finnst mér
hafa tekist nokkuð vel. Okk-
ur hefur vaxið ásmegin og
við höfum meira að segja
ráðist í Tjækovskí- og
Brahms-sinfóníur. Það er
nú ekki á færi allra áhuga-
mannahljómsveita. Einnig
höfum við frumflutt íslensk
verk sem tónskáld hafa
samið fyrir okkur. Við erum
mjög montin af því. Ég hef
lifað lengi í klassíkinni en
læt hljómsveitina einnig
spila ný verk því maður
verður að lifa daginn í dag.
Þegar ég starfaði í Sví-
þjóð kynntist ég áhuga-
mannasveitum og fannst
vera gat í okkar tónlistarlífi
hvað þetta varðar þegar ég
kom heim. Ég talaði um
þetta við Jón Nordal og þá
kom í ljós að í Íslensku
hljómsveitinni, undir stjórn
Guðmundar Emilssonar,
léku bæði atvinnumenn og
áhugamenn. Þá var einnig
starfandi Sinfóníuhljóm-
sveit Reykjavíkur undir
stjórn Garðars Cortes. Þess-
ar hljómsveitir lögðust svo
af en mér fannst vanta
hreina áhugamanna-
hljómsveit. Jón Nordal
leiddi mig og tvo aðra úr
þessum hljómsveitum sam-
an og við stofnuðum Sinfón-
íuhljómsveit áhugamanna.“
Hvaðan kemur fólkið í
hljómsveitinni?
„Til okkar kemur fólk úr
öllum áttum. Fólk sem sinn-
ir öðrum störfum en hefur
einhvern tímann lært á
hljóðfæri. Oft er það þannig
að hljóðfærið hefur legið í
skápnum í nokkur ár en svo
er dustað af því rykið og það
öðlast annað líf í okkar hópi.
Flestum og öllum til mik-
illar ánægju. Svo eru þarna
tónlistarkennarar, tónlistar-
nemendur, þarna eru einnig
þrír prófessorar við Há-
skóla Íslands. Aldursbilið er
frá táningsaldri uppí eft-
irlaunaaldurinn. Svo þetta
er breið fylking.“
Hvaða verk verða flutt að
þessu sinni?
„Við byrjum á Adagio og
Fúgu eftir W.A. Mozart.
Þetta verk er sérkennilegt
því það hefur tvö Köchel
númer, 546 og 426. K.V. 426
er fúga sem hann skrifaði
fyrir tvö píanó. Svo breytti
hann verkinu í fúgu fyrir
strengjasveit og bætti þessu
adagio framanvið og varð
þetta þá eins og prelúdía og
fúga. Annað verkið er Sin-
fónía konsertante fyrir tvo
einleikara. Þar spila tvær
ungar dömur einleiks-
hlutverkin, Sif Tulinius og
Jónína Auður Hilm-
arsdóttir. Þetta verk stend-
ur afskaplega nærri hjarta
mínu því ég hef svo oft spil-
að víóluhlutverkið, bæði hér
heima, í Ameríku og nokkr-
um sinnum í Svíþjóð. Mér
finnst þetta verk vera eitt-
hvert það fallegasta sem
samið hefur verið.
Þriðja og síðasta verkið
er sinfónía eftir Joseph Ha-
ydn, oftast nefnt með und-
irtitlinum „Surprise“. Hann
samdi þetta verk í London
og er það ein af seinni sin-
fóníunum hans, afskaplega
fallegt verk.“
Leikur þú ennþá með
hljómsveitinni?
„Nei, ég er löngu hættur
að spila. Ég hef í nógu að
snúast því starfið hefur und-
ið upp á sig. Ég hef sem bet-
ur fer góða samstarfsmenn
mér við hlið, m.a. Pál Ein-
arsson jarðeðlisfræðing,
sem hefur verið formaður
frá byrjun, við höfum alltaf
átt gott samstarf. Ég fór á
eftirlaun fyrir sjö árum og
finnst ríkur tími að vera
kominn á þennan aldur, en
maður þarf að passa sig að
tala ekki of mikið um sjálfan
sig.“
Verkið stendur nærri hjarta mínu
STIKLA
Sinfóníu-
tónleikar í
Seltjarnar-
neskirkju
helgag@mbl.is
Morgunblaðið/Golli
Ingvar Jónasson heldur hér um einleikarana Jónínu Auði Hilmarsdóttur og Sif Tulinius.
Myndlist
Gallerí Fold, Rauð-
arárstíg: Elín G. Jóhanns-
dóttir. Sonja Georgsdóttir. Til
22. febr.
Gallerí Kling og Bang:
Ingo Fröhlich. Til 8. febr.
Gallerí Skuggi: Anna Jóa.
Til 29. febr.
Gallerí Veggur, Síðumúla
22: Kjartan Guðjónsson. Til
20. mars.
Gerðuberg: Stefnumót við
safnara. Til 29. febr.
Hafnarborg: Minningar-
sýning um Elías Hjörleifsson.
Til 14. mars.
Hallgrímskirkja: Bragi
Ásgeirsson. Til 25. febr.
Hús málaranna, Eið-
istorgi: Hrafnhildur I. Sig-
urðarsdóttir. Til 21. febr.
i8, Klapparstíg 33: Victor
Boullet. Til 28. febr.
Listasafn Akureyrar:
Bjarni Sigurbjörnsson. Svava
Björnsdóttir. Til 7. mars.
Listasafn ASÍ: Listaverka-
gjöf Ragnars í Smára. Til 14.
mars.
Listasafn Borgarness:
Axel Kristinsson. Til 25. febr.
Listasafn Einars Jóns-
sonar: Opið fyrir hópa eftir
samkomulagi.
Listasafn Íslands: Flúxus í
Þýskalandi 1962–1994.
Flúxtengsl – íslensk verk
(1965–2001). Til 14. mars.
Listasafn Reykjanes-
bæjar: Carlos Barao. Til 14.
mars.
Listasafn Reykjavíkur –
Ásmundarsafn: Nútíma-
maðurinn. Til 20. maí. Ásdís
Sif Gunnarsdóttir. Til 29.
febr.
Listasafn Reykjavíkur –
Hafnarhús: Ólafur Elías-
son. Til 14. mars.
Listasafn Reykjavíkur –
Kjarvalsstaðir: Samsýning
þriggja listakvenna í vest-
ursalnum. Í miðrými er
einkasýning Alistair Mac-
intyre. Til 28. mars.
Listasafn Sigurjóns
Ólafssonar: Sigurjón
Ólafsson í alfaraleið. Til 30.
maí.
Ljósmyndasafn Reykja-
víkur, Grófarhúsi: Leifur
Þorsteinsson – Fólk og borg.
Til 9. maí.
Norræna húsið: Textílverk
Jana Vyborna. Til 29. febr.
Siri Gjesdal, textílverk. Til 7.
mars.
Nýlistasafnið: Gauthier
Hubert og Guðný Rósa Ingi-
marsdóttir. Til 8. febr.
Safn – Laugavegi 37: Op-
ið mið.–sun. kl. 14–18.
Breski listamaðurinn Adam
Barker-Mill. Lawrence Wein-
er: Fimm nýjar teiknimyndir.
Til 1. mars. Hreinn Friðfinns-
son. Til 15. febr. Jón Sæ-
mundur Auðarson og Særún
Stefánsdóttir. Til 1. mars.
Leiðsögn alla laugardaga kl.
14.
Safn Ásgríms Jónssonar,
Bergstaðastræti 74: Þjóð-
sagnamyndir Ásgríms Jóns-
sonar.
Teits gallerí, Engihjalla 8:
Jóhannes Dagsson. Til 12.
febr.
Þjóðmenningarhúsið:
Handritin. Heimastjórn
1904. Skáld mánaðarins:
Aldamótaskáld. Þjóðminja-
safnið - Svona var það..
Leiklist
Þjóðleikhúsið: Líf og list á
heimastjórnarárunum, fös.
Dýrin í Hálsaskógi, sun.
Græna landið, lau. Vegurinn
brennur, lau.
Borgarleikhúsið: Chic-
ago, lau., fös. Lína lang-
sokkur, lau., sun. Öfugu
megin uppí, sun. Sporvagn-
inn Girnd, lau,. fös. Erling,
sun. In transit, frums. sun.
Mið. Grease, mið.
Iðnó: Tenórinn, sun., fim.
Sellófon, fös.
Loftkastalinn: Eldað með
Elvis, lau., fös.
Hafnarfjarðarleikhúsið:
Meistarinn og Margaríta,
lau., fös.
VALKYRJA Wagners verður sýnd af DVD mynddiski í Norræna
húsinu, kl. 13 á morgun. En það er Richard Wagner félagið á Ís-
landi sem stendur nú fyrir sýningum á óperunum fjórum úr Nifl-
ungahring Wagners. Nú er komið að annarri sýningunni, Val-
kyrjan. Sýndar verða upptökur af hinni margrómuðu
Bayreuthuppsetningu franska leikstjórans Patrice Chéreau með
hljómsveitarstjóranum Pierre Boulez. Upptakan var gerð árið
1980. Helstu söngvarar eru þau Jeannine Altmeyer og Peter Hof-
mann, sem fara með hlutverk Völsungasystkinanna, Signýjar og
Sigmundar, Donald McIntyre sem syngur Óðin, Gwyneth Jones
Brynhildi og Matti Salminen Hunding.
Sýningin tekur tæpa fjóra tíma í flutningi. Henni er varpað á
veggtjald og er með enskum skjátexta. Aðgangur ókeypis.
Wagner í Norræna húsinu