Lesbók Morgunblaðsins - 13.03.2004, Qupperneq 14
14 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 13. MARS 2004
TATE-listasafnið í London hýsir
þessa dagana sýningu á verkum
listamannanna Damien Hirsts,
Sarah Lucas og Angus Fair-
hursts. Sýningin nefnist In-A-
Gadda-Da-Vida og má þar finna,
að sögn gagnrýnanda breska
dagblaðsins Daily Telegraph, öll
helstu sérkenni listamannanna,
sem gjarnan hafa verið nefndir
Young British Artists – eða Ungu
bresku listamennirnir, m.a.
brons-górillur, sígarettuskúlp-
túra og rotnandi hræ Hirsts. Að
sögn blaðsins má líkja sýningunni
við eins konar framþróunar-
skýrslu á ferli listamannanna
þriggja, sem nú eru reyndar að
nálgast fertugt en hafa þekkst og
unnið saman allt frá námsárum
sínum. Þannig eiga verk þeirra
að kallast á, styrkja hvert annað
og minna áhorfendur jafnt á það
sem sameinar þau sem það sem
skilur þau að, auk breytinganna
sem orðið hafa í list þeirra Hirst,
Lucas og Fairhursts í gegnum
tíðina.
Inka-múmíur
finnast í Perú
FORNLEIFAFRÆÐINGAR til-
kynntu á dögunum um fund á
múmíum frá Inka-tímanum í út-
jaðri Lima, höfuðborgar Perú. Að
minnsta kosti 22 múmíur fundust
við uppgröftinn, og hafði vefmið-
ill Voice of America eftir Guill-
ermo Cock, sem fer fyrir upp-
greftrinum, að múmíurnar væru
frá tímabilinu 1470–1530.
Þúsundir múmía hafa fundist í
Perú á undanförnum árum.
Syndir á sviðinu
HNEYKSLISMÁL kaþólsku
kirkjunnar í Boston, er sneri að
kynferðislegri misnotkun presta
á börnum, hefur nú verið gert að
leikriti sem frumsýnt var í Chic-
ago í vikunni. Verkið nefnist Sin:
A Cardinal Deposed og eru flest-
ar orðræður verksins byggðar á
yfirlýsingum sem gefnar voru út
vegna kirkjulegra réttarhalda
vegna málsins á árunum 2002 og
2003, en að auki er byggt á bréf-
um og yfirlýsingum rómversk-
kaþólskra presta, lækna, fórnar-
lamba og foreldra þeirra. Verkið
hefur vakið sterk viðbrögð að
sögn New York Times, sem segir
áhorfendur marga greinilega
vera hrærða, en í leikritinu er
dregin fram lifandi mynd af við-
brögðum Bernard Law, kardín-
ála í Boston, við þessu hneyksl-
ismáli í erkibiskupsdæmi sínu.
Hluti af áhrifamætti verksins er
þá, að mati blaðsins, að það bygg-
ist eingöngu á raunverulegum at-
burðum.
Yfirvöld kirkjunnar hafa ekki
viljað tjá sig um verkið.
ERLENT
Reuters
Hirst, Lucas og Fairhurst.
Damien Hirst
í Tate-safninu
SÝNINGAR þeirra Eirúnar Sigurðardóttur í
Kling og Bang og Erlings Þ.V. Klingenbergs í
Pýramídaröð Ásmundarsafns fjalla báðar um
hlutverkaleik þó að á ólíkan hátt sé. Verk Ei-
rúnar sýna á beinskeyttan og hnyttinn hátt
karl- og kvenímyndir en Erling fæst við að birta
á kaldhæðinn en um leið hálfnöturlegan hátt
hlutverk listamannsins og kannski þá aðallega
hins hvíta gagnkynhneigða karlmanns í vest-
rænum heimi í dag.
Dulinn máttur gervinaglna
Gervineglur hafa áður orðið Eirúnu efniviður
í áhrifamikil og hnyttin ljósmyndaverk en nú
heldur hún áfram með þetta þema sem er gegn-
umgangandi í sýningu hennar, að hluta til a.m.k.
og verður tákn pjatts, tilbúins kvenleika, ógnar
og grimmdar. Á sýningu sinni varpar Eirún upp
nokkrum flötum á sígildu viðfangsefni, ímynd-
um kynjanna og þá aðallega ímynd konunnar.
Ljósmyndaröð sýnir par í sígildum kven- og
karlmannsstellingum skipta um hlutverk þar til
konan situr gleið með útglennta fætur á meðan
karlmaðurinn krossleggur sína bljúgur. Önnur
mynd af parinu er gerð í gömlum stíl en með
óhefðbundnum svipbrigðum og stellingum.
Þriðja ljósmyndaserían sýnir konu og barn í
skóglendi og eins og í fleiri verkum notar Eirún
hér minni áhorfandans til að skapa stemmningu
verksins, ekkert á myndunum birtir okkur að-
steðjandi ógn en allt það magn af amerísku rusli
sem hefur farið í gegnum höfuð þess sem skoðar
skapar í huga hans yfirvofandi hættu sem steðj-
ar að varnarlausri konu og barni í skógi eða al-
menningsgarði. Hér eins og í fleiri verkum kem-
ur ógnin þó líka innan frá, birtist á lítilli
saklausri hendi. Teikningar Eirúnar af „ritara-
fuglinum“ eru kraftmiklar og það sama má
segja um stuttar teiknimyndir sem hún sýnir í
litla herberginu inn af, en það rými er góð við-
bót við annars frekar takmarkað rými Kling og
Bang.
Eirún er á svipuðum slóðum í list sinni og
leikkonurnar í „Slap the pony“, enda er hún af
svipaðri kynslóð kvenna og býr við sama efn-
ishyggju-framapots-kvenna-í-krísu-samfélag,
svo það er e.t.v. ekki að undra. Eirún er bæði
fyndin og beinskeytt án þess að vera allt of yfir-
borðsleg í verkum sínum og það er með verk
hennar eins og með verk Gjörningaklúbbsins á
stundum, að því opnari sem þau eru því sterkari
verða þau, þau verk sem bjóða upp á of einfalda
túlkun lifa styst.
Listamaður í krísu
Erling Þ.V. Klingenberg hefur í nokkur ár
tekið að sér það hlutverk að vera eins konar
hirðfífl, sá sem bendir á það sem miður fer með
því að gera grín að sjálfum sér. Grínið hefur þó
alltaf alvarlega undirtóna, ekki síst finn ég fyrir
þeim hér. Oft er það sá sem mest gerir grín sem
hvað mest liggur á hjarta og kraftur og ein-
beitni Erlings sýnir klárlega að hann hefur
margt að segja. Myndbandið sem Erling sýnir
nú er að mínu mati sterkasta verk hans hingað
til, með því veltir hann upp spurningum um
hlutverk og hegðun listamannsins á óþægilegan
hátt. Grímuklæddi maðurinn sem stöðugt reynir
að halda jafnvægi á blindri ferð er óhugnanlegri
en aðrar týpur sem Erling hefur kynnt til sög-
unnar. Það er athygli vert hversu mjög þessi
karakter Erlings vekur upp amerísk kvik-
myndaminni, líkt og verk Eirúnar vitna óbeint
til vestrænnar ímyndaframleiðslu, þetta sýnir
klárlega hversu samdauna samfélag okkar er
orðið gildum og hugmyndum þeim sem ríkja í
okkar vestræna heimi, hversu lítið hlutverk
okkar íslenska bakgrunns getur stundum verið.
Grímuklæddi maðurinn minnir helst á persónu
úr Föstudagurinn þrettándi VII eða einhverri
álíka hryllingsmyndaframleiðslu, nema hvað
hann er ráðvilltur og veit ekki hvert hann stefn-
ir.
Gosbrunnur Erlings er svo enn ein kaldhæðin
ádeilan á svokallaðan sköpunarmátt listamanns-
ins. Sem dæmi um breytta tíma má skoða þetta
verk með hliðsjón af ljósmyndaverki ameríska
listamannsins Bruce Naumanns „Portrett af
listamanninum sem gosbrunni/uppsprettu“, frá
sjöunda áratug síðustu aldar, en hún sýnir lista-
manninn spýta út úr sér vatnsbunu. Á sínum
tíma var þessu verki
Naumanns líklega ætl-
að að vera eins konar
óður til listsköpunar
sem byggði á því sem
hendi var næst, sem
ekki var heilög, sem
ekki var efniskennd.
Kannski var líka í því
vísir að sömu ádeilu og
felst í verki Erlings,
ádeilu á ímynd lista-
mannsins sem upp-
sprettu, ádeilu á 19.
aldar ímyndina um
listamanninn sem inn-
blásinn snilling, þá allt
of lífseigu ímynd. En
Erling gengur miklu
lengra en Bruce með
hugmynd sína og gos-
brunnur hans býr ekki
yfir krafti bununnar
hjá Naumann heldur
lekur hér bunan án af-
láts úr munninum líkt
og endalaus listfram-
leiðslan sem fer svo
stöðugt í sjálfhverfan
hring og bunar aftur
út. Afstaða Erlings er
öllu svartari og böl-
sýnni en Bruce hér
forðum. Hér má velta
því fyrir sér hvernig
hægt væri að deila á
listamanninn sem hug-
myndasmið án þess að
vera sjálfur listamaður
og hugmyndasmiður?
Er hægt að stíga út
fyrir rammann sem
verið er að deila á?
Sá á kvölina sem á völina
List þeirra Erlings og Eirúnar er dæmigerð
fyrir samfélagið sem við búum við í dag. Verk
þeirra sýna listavel aðstöðuna sem við búum öll
við í dag, sem manneskjur og listamenn sem eru
stöðugt að velja og hafna, í sífelldri mótun og
aðlögun hefðbundinna hlutverka, sem konur og
karlmenn, listamenn eða læknar...
Ljósalist hjá Sævari Karli
Á allt öðrum nótum er sýning þeirra Ingu El-
ínar og Ragnheiðar Ingunnar sem nú sýna
ljósaverk í sýningarsal Sævars Karls. Verkin
sem þær sýna falla þó frekar undir hattinn list-
ræn hönnun en samtímalist. Það eru helst verk
Ragnheiðar Ingunnar sem vekja eftirtekt en í
þeim samræmir hún á tilfinningaþrunginn hátt
ljós, arkitektúr og sterka líkamlega tilfinningu.
Í þessum verkum kemur saman tilfinning fyrir
húmor, hugvitssöm framsetning á blessuðum
snúrunum sem alltaf fylgja ljósum og allt að því
of sterk líkamleg tilfinning, sterkust í verkinu
sem minnir á tvö brjóst sem koma út úr veggn-
um. Þetta verk minnti mig á mjaltavél fyrir litla
fyrirburatvíbura sem ekki geta enn drukkið
sjálfir og varð fyrir vikið í mínum huga næstum
óþægilega líkamlegt. Hér er þó frekar um að
kenna ofvirku ímyndunarafli konu með barn á
brjósti heldur en ætlun listakonunnar en er um
leið kannski lýsandi dæmi um það hversu sjálf-
stæðu lífi hlutir geta lifað í huga áhorfandans,
óháð ætlun skapara þeirra. Það gengur vel upp
að sýna listræna hönnun í þessum sal og það má
láta sér detta í hug að sýningarsalur Sævars
gæti sérhæft sig í að vera vettvangur ungra og
framsækinna listrænna hönnuða en þá vantar
stað til að koma verkum sínum á framfæri.
Hlutverka-
leikir
MYNDLIST
Gallerí Kling og Bang
BLÖNDUÐ TÆKNI, EIRÚN SIGURÐARDÓTTIR
Til 28. mars. Opið fimmtudaga
til sunnudaga frá kl.14–18.
Ásmundarsafn
PÝRAMÍDARNIR BLÖNDUÐ TÆKNI,
ERLING Þ.V. KLINGENBERG
Til 28. mars. Ásmundarsafn
er opið daglega frá kl. 13–16.
Gallerí Sævars Karls
LJÓSABIÐA, LJÓS, INGA ELÍN
OG RAGNHEIÐUR INGUNN
Til 18. mars. Opið á verslunartíma.
Eirún Sigurðardóttir er beinskeytt, fyndin og margræð í Kling og Bang.
Erling Þ. V. Klingenberg eys af brunni sköpunar-
máttar síns í Ásmundarsafni.
Húmor og líkamleg nálgun við arkitektúrinn einkenna ljós Ragnheiðar Ingunnar hjá Sævari Karli.
Ragna Sigurðardóttir