Lesbók Morgunblaðsins - 13.03.2004, Síða 15

Lesbók Morgunblaðsins - 13.03.2004, Síða 15
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 13. MARS 2004 15 Næsta v ika menning@mbl.is Laugardagur Hallgrímskirkja kl. 12 Næstur til að leika í tónleika- röðinni „Klais- orgelið hljómar“ er Eyþór Ingi Jónsson. Hann leikur og kynnir valin orgelverk frá barokktím- anum, m.a. föstusálmforleika eftir J.S. Bach, en einnig verk N. Bruhns, M. Weckman, Böhn og D. Buxtehude. Seltjarnarneskirkja kl. 15 Samkór Mýramanna. Tónleik- arnir verða teknir upp og verða á væntanlegum geisladiski kórsins. Borgarleikhúsið kl. 15.15 Breskar fantasíur á 15:15 tón- leikum. Poulenc-hópurinn flytur kammertónlist eftir Benjamin Britten, Peter Warlock og Arn- old Bax. Ráðhúsi Reykjavíkur kl. 15.30 Lúðrasveitin Ringerike Janitsar leikur úrval norskra og íslenskra verka. Á fimmta tug hljóðfæraleikara á öllum aldri skipa sveitina undir stjórn Ein- ars Jónssonar básúnuleikara. Lúðrasveit Verkalýðsins leikur einnig á tónleikunum. Aðgang- ur er ókeypis. Listasafn Akureyrar kl. 15 Á sýningunni „Allar heimsins konur“ eru 176 verk eftir 176 konur frá jafnmörgum löndum. Í vestursal er innsetning eftir Önnu Líndal, Halló Akureyri! Safnið er opið virka daga frá kl. 12–17. Ráðhús Reykjavíkur, kaffi- stofa Lóa Guðjónsdóttir sýnir fjórar vatnslitamyndir sem hún tileinkar árstíðunum. Sýningin nefnist Litaljóð. Sunnudagur Laugarneskirkja kl. 16 Dagný Marinósdóttir flautuleik- ari og Þorvaldur Már Guð- mundsson gítarleikari flytja verk eftir Béla Bartók, Gabriel Fauré, Jacques Ibert, Isaac Alb- éniz, Augustin Barrios Mang- oré og Máximo Diego Pujol. Auk þess verður flutt nýtt verk eftir Eirík Árna Sigtryggsson sem samið var sérstaklega fyrir dúóið. Seltjarnarneskirkja kl. 17 Sinfóníu- hljómsveit áhugamanna flytur verk eftir Beethoven: Pro- metheus- forleikuinn, Sin- fóníau nr. 5 og píanókonsert nr. 3. Einleikari er Jón Sigurðsson. Stjórnandi er Tryggvi M. Baldvinsson. Salurinn kl. 20 KaSa- hópurinn býður uppá „fusion“- tónleika. Gestir hópsins er hljómsveitin Búdrýgindi, Páll Palomares fiðluleikari og tón- skáldið Hugi Guðmundsson. Flutt verður frumsamin tónlist eftir Búdrýgindi, m.a. frumflutt verkið Skissur eftir Huga. Þá verður flutt verk eftir bandaríska tónskáldið Robert Dick, Techno Yaman. Langholtskirkja kl. 20 Sin- fónísk blásarasveit frá River Falls-háskólanum í Wisconsin í Bandaríkjunum gerir hér stuttan stans á leið sinni til tónleika- halds í Evrópu. Stjórnandi er Kristin Tjornehoj. Hljómsveitina skipa um sextíu tónlistarnemar og flytja þeir veraldleg og kirkjuleg verk sem eru sér- staklega samin fyrir sinfóníska blásarasveit og einnig útsetn- ingar fyrir sveitina. Allegro-skólinn, Tranavogi 5 Suzukitónlistarskólinn Allegro er fimm ára í ár og heldur af til- efninu tónleika með núverandi og fyrrverandi nemendum skól- ans á aldrinum 4–20 ára. Þetta eru aðrir tónleikar skólans sem haldnir eru af tilefninu. Listasafn Íslands kl. 12–17 Nemendur frá LHÍ ræða um Flúxussýninguna og svara spurning gesta sem kvikna. Hafnarborg kl. 14 og kl. 16 Gunnar Örn verður með leið- sögn um minningarsýninguna á myndverkum Elíasar Hjör- leifssonar. Þetta er síðasti sýn- ingardagurinn. Listasafn Reykjavíkur – Ás- mundarsafn kl. 14 Erling Klingenberg segir frá sýningu sinni í Píramídanum. Opið daglega kl. 13–16. Kjarvalsstaðir kl. 15 Ragn- hildur Stefánsdóttir ræðir verk sín og skoðar sýninguna ásamt sýningargestum. Sýningin er samsýning Ragnhildar, Önnu Eyjólfsdóttur og Þórdísar Öldu Sigurðardóttur. Safnið er opið daglega kl. 10–17. Gamla bókasafnið, Mjó- sundi 12, Hafnarfirði, kl. 15 Sögusýningin „Gandhi, King, Ikeda. Friður fyrir kom- andi kynslóðir“ fjallar um líf og störf þessara friðarleiðtoga. Sýningin leggur áherslur á mannleg gildi og hetjulega bar- áttu þessara einstaklinga fyrir betri heimi. Hún hefur verið sett upp víða um heim. Opið frá kl. 14 alla daga til 28. mars. Mánudagur Listaháskóla Íslands, Skip- holti 1 kl. 12.30 Roxy Thoren flytur fyrirlesturinn „Integrating Landscape and Architecture“. Roxi Thoren útskrifaðist sem arkitekt og landslagshönnuður frá Háskólanum í Virginiu og leitast við að sameina þessar tvær greinar í hönnun sinni. Þriðjudagur Salurinn kl. 20 Theresa Bok- any, fiðla, og Anna Guðný Guðmundsdóttir, píanó, flytja Sónötu fyrir fiðlu og píanó í g- moll „Djöflatrillan“ eftir Gius- eppe Tartini, Sónötu fyrir fiðlu og píanó op. 12, nr. 1 í D-dúr eftir Ludwig van Beethoven og Sónötu fyrir fiðlu og píanó í A-dúr eftir César Franck. Listaháskóli Íslands, Skip- holti 1, kl. 12 Breski myndlist- armaðurinn Kenneth Devine flytur fyrirlesturinn „The Hap- hazard Colour Machine “ og í kjölfarið verður opið hús á sama stað (stofu 113) á fimmtu- dag frá kl. 12.30. Gestum verð- ur boðið að verða þátttakendur í verkefninu The Haphazard Colour Machine. Gallerí Hún og hún, Skóla- vörðugstíg 17 Síðasti sýning- ardagur á verkum Kristínar Jónsdóttur frá Munkaþverá. Miðvikudagur Norræna húsið kl. 12.30 Háskólakórinn , undir stjórn Há- konar Leifssonar á Háskóla- tónleikum. Flutt verða verk eftir Báru Grímsdóttur, Gunnar Reyni Sveinsson, Jón Ásgeirsson og Pál P. Pálsson. Norræna húsið kl. 20 Sveinn Einarsson leikstjóri fjallar um uppáhalds norræna leikskáldið sitt, August Strind- berg. Sveinn segir frá skáldinu og þeim leikritum sem hann hefur sett upp eftir Strindberg. Fimmtudagur Háskólabíó kl. 19.30 Sin- fóníuhljómsveit Íslands. Hljóm- sveitarstjóri: Rumon Gamba. Einleikari: Joseph Ognibene og einsöngvari Paul Agnew tenór. Flutt verða verk eftir Wolfgang Amadeus Mozart, Divertimento Kv. 136 (125a) og Sinfónía nr. 29. Benjamin Britten, Serenaða fyrir tenór, horn og strengi. Henry Purcell/Benjamin Britten, Chaconne í g moll. Grand hótel kl. 19.30 Bar- bara Berger, höfundur bók- arinnar Skyndibitar fyrir sálina, heldur fyrirlestur ásamt Tim Ray. Þau útskýra leiðir til að finna það sem við leitum að. Bára Grímsdóttir Paul Agnew Tryggvi M. Baldvinsson Eyþór Ingi Jónsson Morgunblaðið/Jim Smart Guðrún Norðdahl við eitt verka sinna í Íslensk grafík. Guðrún Norðdahl opnarsýningu í sal Íslenskrargrafíkur í Hafnarhúsinukl. 15 í dag. Guðrún hefur búið og starfað í Bandríkjunum und- anfarin ár en sýnir nú í fyrsta sinn á Íslandi. Hún er arkitekt frá Arki- tektaskólanum í Árósum og vann sem slík í 10 ár. Þá breytti hún um stefnu fór til Bandaríkjanna í mynd- listarnám. Hvað kom til að þú ákvaðst að snúa þér að myndlistinni? „Ég hef frá því ég var lítil telpa átt þann draum að verða myndlistar- maður. En ég gerði ekkert við þann draum fyrr en ég var rúmlega 30 ára er ég stóð á miklum tímamót- um í lífi mínu. Þá var annaðhvort að fara í „langt sumarfrí“ eða skipta um ham. Ég söðlaði um, gerði upp líf mitt og ákvað að hlúa að æsku- draumnum og það er dásamlegt að komast í takt við púlsinn sinn.“ Guðrún lauk MFA-námi í myndlist árið 1997 frá Louisiana Tech Uni- versity. Hún hlaut margar við- urkenningar fyrir list sína meðan á námi stóð og tók þátt í mörgum sýn- ingum. Eftir námið flutti hún til Atl- anta í Georgíufylki og hélt þar nokkrar sýningar á vegum Bender Fine Art Gallery. Hún kom heim árið 1998 en hélt áfram að sýna verk sín í Atlanta, Monroe og í New Orleans. Guðrún segir það ekki hafa verið auðvelt að komast inn í skólann í Bandaríkjunum, „vegna þess að ég hafði ekki þennan „típíska“ mynd- listarbakgrunn. Ég vann mig í gegn- um brimgarðinn og komst inn í mastersnám eftir að ég var búin að vera rúmt ár myndlistarnámi. Oft kemur það sér vel að vita ekki al- mennilega hvað maður er að fara út í. Bandaríkjamenn eru með fastmót- aðar skoðanir og strangar reglur og komst ég að því síðar að ég fór mjög óhefðbunda leið inn í námið. Regl- urnar voru ekkert að þvælast fyrir mér, einfaldlega vegna þess að ég þekkti þær ekki. Ég fór áfram á eld- móði og brennandi áhuga. Þar kom að mér var boðið í mastersnámið eft- ir að ég hafði fengið verðlaun fyrir skúlptúr í skólanum. Ég byrjaði að mála í fyrra og í nóvember ákvað ég að nú væri rétti tíminn til að halda sýningu á Íslandi.“ Hvað ertu að fást við í myndlist- inni? „Viðfangsefnið er manneskjan og „veran“. Í gegnum tíðina hafa komið aftur og aftur til mín konur og ver- ur. Sumar eru lengi að birtast en aðrar koma fljótt, þetta byrjar oftast eins og samtal. Mér er hugleikin sú vídd sem okkur flestum er hulin og tengist verndurum og leiðbein- endum okkar. Ég mála frekar ex- pressjónískt, blanda saman faglegu sjónarmiði og einnig innsæinu. En ég gef áhorfandum eftir að túlka út frá eigin orðabók.“ Myndir Guðrúnar eru margbreyti- legar. Stundum eru táknin mjög augljós en stundum óræð. Verurnar og manneskjan renna saman eins og ljóð, í formi og litum, er kveikir for- vitni og löngun til að skilja það sem „sagt“ er. Hvað tekur við, nú þegar þú ert búin að ljúka þessu verkefni? „Mér finnst ég lifa spennandi tíma núna, rétt eins og ég sé á upphafs- punkti á nýjan leik. Ég ætla fylgja eftir sýningunni á Íslandi og þeim samböndum sem ég hafði í Ameríku og sjá hvert það leiðir mig.“ Sýningin er opin fimmtudaga til sunnudaga kl. 14–18 og lýkur 28. mars. Dásamlegt að finna púlsinn sinn STIKLA Málverka- sýning í sal Íslenskrar grafíkur helgag@mbl.is Myndlist Gallerí Fold, Rauðarár- stíg: Kjartan Guðjónsson. Björk Bjarkadóttir. Til 20. mars. Gallerí Kling og Bang: Eirún Sigurðardóttir. Til 28. mars. Gallerí Skuggi, Hverfis- götu: Samsýning fjögurra listakvenna. Til 4. apríl. Gallerí Sævars Karls: Inga Elín og Ragnheiður Ing- unn. Til 18. mars. Gallerí Veggur, Síðumúla 22: Kjartan Guðjónsson. Til 20. mars. Gerðarsafn: Mynd ársins 2003, (BLÍ) og ljósmyndir Magnúsar Ólafssonar. Til 21. mars. Gerðuberg: „Þetta vil ég sjá“. Spaugstofumenn velja verk á sýninguna. Til 8. apríl. Hafnarborg: Minningar- sýning um Elías Hjörleifsson. Til 14. mars. Hallgrímskirkja: Hörður Ágústsson. Til 26. maí. Hönnunarsafn Íslands, Garðatorgi: Smíðisgripir Péturs Tryggva gull- og silfur- smiðs. Til 31. mars. Íslensk grafík, Hafn- arhúsi: Guðrún Norðdahl. Til 28. mars. Kunstraum Wohnraum, Ásabyggð 2, Akureyri: Jón Laxdal Halldórsson. Til 25. apríl. Listasafn Akureyri: „Allar heimsins konur“. Innsetning Önnu Líndal. Til 9. maí. Listasafn ASÍ: Listaverka- gjöf Ragnars í Smára. Til 14. mars. Listasafn Einars Jóns- sonar: Opið laugardaga og sunnudaga kl. 14–17. Listasafn Íslands: Flúxus í Þýskalandi 1962–1994. Flúxtengsl – íslensk verk (1965–2001). Til 14. mars. Listasafn Reykjanes- bæjar: Carlos Barao. Til 14. mars. Listasafn Reykjavíkur – Ásmundarsafn: Nútíma- maðurinn. Til 20. maí. Pýra- mídinn: Erling Klingenberg. Til 28. mars. Listasafn Reykjavíkur – Hafnarhús: Ólafur Elías- son. Til 25. apríl. Listasafn Reykjavíkur – Kjarvalsstaðir: Vestursalur: Samsýning þriggja listakvenna. Mið- rými: Alistair Macintyre. Til 28. mars. Listasafn Sigurjóns Ólafssonar: Sigurjón Ólafsson í alfaraleið. Til 30. maí. Listhús Ófeigs, Skóla- vörðustíg: Kjartan Guð- jónsson. Til 24. mars. Ljósmyndasafn Reykja- víkur, Grófarhúsi: Ljós- myndasýning Leifs Þorsteins- sonar – Fólk og borg. Til 9. maí. Norræna húsið: Mynd- skreytingar Knut H. Larsen. Til 18. apríl. Nýlistasafnið: Daníel Þor- kell Magnússon, Haraldur Jónsson og Hrafnkell Sig- urðsson. Til 14. mars. ReykjavíkurAkademían, Hringbraut 121: Hrefna Harðardóttir. Til 31. mars. Safn – Laugavegi 37: Op- ið mið.–sun. kl. 14–18. Andreas Serrano, Richard Prince og Carsten Höller. Hrafnkell Sigurðsson. Til 1. apríl. Finnur Arnar. Til 1. apríl. Leiðsögn alla laugar- daga kl. 14. Safn Ásgríms Jónssonar, Bergstaðastræti 74: Þjóð- sagnamyndir Ásgríms Jóns- sonar. Þjóðmenningarhúsið: Handritin. Skáld mánaðar- ins: Aldamótaskáldin. Heimastjórn 1904. Þjóðarbókhlaða: Heima- stjórn 100 ára. Upphafsár prentlistarinnar á Íslandi. Til 1. apríl. Leiklist Þjóðleikhúsið: Þetta er allt að koma, lau., fös. Dýrin í Hálsaskógi, sun. Græna landið, lau., fim. Vegurinn brennur, fim. Borgarleikhúsið: Lína Langsokkur, lau., sun. Öfugu megin upp í, lau. Þrjár Marí- ur, lau., sun. Chicago, fös. Draugalestin, fim. Sporvagn- inn. Íslenski dansflokk- urinn: Æfing í Paradís, Lúna, fim. Iðnó: Höfundaleikhús Dramasmiðjunnar – Korter, lau., sun. Tenórinn, lau. Sellofon, fim. Loftkastalinn: Eldað með Elvis, lau., fös. VÍ: Sólstingur, sun., fim. Möguleikhúsið: Hattur og fattur og Sigga sjoppuræn- ingi, mið., fim., fös. Tveir menn og kassi, sun. Hafnarfjarðarleikhúsið: Meistarinn og Margaríta, fös. Brim, lau., sun. Austurbær: stelpur.com, lau., fös. Ýmir: 100% hitt, fös. Tjarnarbíó: Hugleikur – Sirkus, lau., sun. Snúður og Snælda, Leik- fél. eldri borgara: Rapp og rennilásar, sun., mið. Halaleikhópurinn, Há- túni 12: Fílamaðurinn, lau., sun. Leikfélag Kópavogs: Múrtsinn, Sun. Leikfélag Akureyrar: Draumalandið, lau.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.