Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 24.04.2004, Qupperneq 9

Lesbók Morgunblaðsins - 24.04.2004, Qupperneq 9
veru sæborg, vera sem er samsett úr lífræn- um og ólífrænum efnum: íbúum og bygging- unni. Sem slíkt er húsið ókennilegt, því sæ- borgin sem samsett vera, utan hefðbundinna tvíhyggjuskilgreininga lífs og ólífs, er alltaf uppspretta ókennileika (leikföngin muniði), en þegar þessi samruni – sem við erum þrátt fyrir allt orðin vön – er rofinn magnast ókennileikinn. Á sama hátt – en samt annan – eru rusla- pokamyndirnar frá götum Lundúnaborgar merki um rofin tengsl, sem þó geta aldrei fyllilega rofnað. Líkt og húsin stilla ruslapok- arnir sér bústnir upp í miðjum og mannauð- um myndfleti, og kalla á vangaveltur um borgarmenningu. Myndirnar eru partur af sýningu á verkum Hrafnkels á Safni (Lauga- vegi 37), sem hófst í febrúar og lýkur í apríl. Þær eru sex talsins og sýna ruslapoka úti á götuhornum eða uppvið hús og verslanir. Ruslapokarnir birtast í ýmsum litum, rauð- um, appelsínugulum, grænum, hvítum og svo hinum hefðbundna svarta. Í bakgrunni sumra sjáum við borgarlandslag á fleygiferð, aðrir eru í kyrrara og eyðilegra umhverfi. Við suma pokana liggur einmanalegt rusl, plastglas eða servíetta, eins og það hafi oltið upp úr pok- anum eða verið hent í hrúguna af tilfallandi vegfaranda. Myndirnar eru ekki eins form- fagrar og húsamyndirnar, það er ekki þetta fullkomna samspil skurðlína og ferhyrninga, þær eru órólegri í byggingu, enda ruslið merki hinnar fullkomnu og endalausu óreiðu. Þó er, þegar nánar er að gáð, samskonar myndbyggingarhugsun í myndunum, lína götu eða húsveggjar sem myndar láréttan skurð bakvið alla pokana. En rusl er eitthvað sem við viljum ekki skoða, ekki einu sinni sjá, bókstaflega, því við gerum allt til að koma því úr augsýn, felum ruslafötur undir borðum og inni í skápum, hendum ruslapokum út í tunnu sem er falin bakvið hús – í borgum eins og London eru ruslapokar settir út á gangstétt á ákveðnum tímum bara til að vera látnir hverfa. Ruslið er önnur birtingarmynd sæborgarinnar, skil- anna milli hins lífræna og ólífræna: það er við, en samt ekki, ruslið er líf okkar, afleiðing lífs okkar, það sem við viljum losna við úr lífi okk- ar. Fyrir Freud er sjálfsverund okkar skipt upp og því erum við mótsagnakennd; og stöð- ugt í leit að jafnvægi. Fyrir Júlíu Kristevu sem vinnur með kenningar Freuds er þetta jafnvægi ómögulegt, því sjálfsverund okkar verður einmitt til í mótsögninni: hún verður til í því stöðuga ferli sem einkennir allt líf okkar, því að reyna að varpa ruslinu, úr- gangnum, úrkastinu, frá okkur í þeim tilgangi að skapa okkur tæra – hreina – sjálfsmynd. Ruslið, úrgangurinn sem er hluti af okkur, en þó ekki, er þannig samkvæmt kenningu Kristevu uppspretta hryllings, óhugnaðar, ókennileika jafnvel. Ruslið er því hin hliðin á húsinu: það sem á þar ekki heima, það sem er óheimilislegt, en er um leið afleiðing af sæ- borgar(a)legu sambandi okkar við húsið. Ruslapokarnir þarsem þeir standa fremur einmana úti á götu eru þrútnir af okkur, lífi okkar, þeir geyma leyndardóma heimilisins, og eru heimild um alla okkar heimilislegu siði: þar snúa bökum saman allt of háa vísanótan fyrir fötunum sem þú hefur ekki efni á og seg- ir öllum að kosti miklu minna og pakkningin utan af morgunkorninu sem er jú svo heilsu- samlegt. Allt undirstrikast þetta svo í tæknilegri hlið listaverksins: ljósmyndinni. Ljósmyndin hef- ur í gegnum sögu sína borið með sér ákveðna hugmynd um heimildagildi: ljósmyndin er hin sannleiksbæra ímynd, sönnunargagn; ljós- myndin bara er, hún sýnir það sem augað/ linsan nemur. En þetta er auðvitað bara eins og hvert annað bull: líkt og augað síar úr og sér sumt og ekki annað rammar linsan inn og fangar sumt og ekki annað. Þegar myndin er tekin er hún mögulega spurning um ákveðna ‘heimild’ að grípa hús/rusl á filmu. En síðan eru myndirnar unnar í tölvu og í því ferli breytast þær í myndverk, listamaðurinn vinn- ur þær eins og málari. Roland Barthes sem skrifaði heilmikið um ljósmyndir sagði að það væri tæknin sem gerði ljósmyndina að hinni sannleiksbæru ímynd. En hér er það öfugt, það er tæknin sem fjarlægir ljósmyndina sannleikanum, mótar hana og ummyndar. Barthes hefði ábyggilega fundist þetta frem- ur ókennilegt alltsaman, hin heimilislega heimild er orðin að einhverju öðru. En nú er ég ósanngjörn gagnvart Barthes sem einmitt fjallaði svo mikið um það að ljósmyndin er tækni augnabliksins, og geymir því alltaf í sér bæði framtíð og fortíð: myndirnar af húsun- um og ruslapokunum kalla einmitt á svo ein- kennileg viðbrögð – alveg einstök tilfinning – því þær stilla upp fyrir okkur, frysta frammi fyrir okkur, einhverju sem er í raun ferli: hús- in á myndunum, svona dásamlega auð og ófullnægð, eru í dag fullbyggð, full af fólki og minningum og á sama hátt – en þó annan – er þetta rusl komið út á ruslahauga, endurunnið, grafið, tvístrað eða kramið. Fyrir og eftir: framtíðin býr í húsunum, fortíðin í ruslinu. Því ég er nefnilega ekki að segja að ljós- myndir Hrafnkels Sigurðssonar séu hryll- ingsmyndir, þótt ég máti við þær kenningar um ókennileika og hroll; tilfinning ókennileik- ans er ekki eitthvað sem tilheyrir grárri forn- eskju freudísks feðraveldis á fyrstu áratugum tuttugustu aldar, sæborgin er dæmi um það hvernig þessi tilfinning heldur áfram að finna sér ný form og nýjar birtingarmyndir. Er þá allt ókennilegt: já, á einhverjum tímapunkti í lífi þess. Kannski. Förum ekki út í það, skoð- um frekar hvað þessi tilfinning gerir við okk- ur sem áhorfendur listaverka. Hélène Cixous (svo ég droppi einu nafninu enn) segir að kenning Freuds um ókennileikann snúist, þegar öllu er á botninn hvolft, um dauða. Ókennileikinn minnir okkur á dauðleikann og er þessvegna ókennilegur. Er það tilfinningin sem ég upplifi? Ekkert endilega, þótt vissu- lega minni bæði óbyggð hús og ruslapokar mig á hverfulleika tilverunnar og allt það. En það svarar ekki spurningunni um fegurðina, ekki gleyma því að myndirnar eru fallegar; ruslapokamyndirnar minntu mig á árstíða- málverk, glampandi rauðir ruslapokar með jólaljós í baksýn, hvítir pokar eins og snjór, grænir fyrir vorið, appelsínugulir fyrir sum- arið og þeir svörtu fyrir gráblátt stórborg- arhaustið. Allar kenningar um hrollvekjandi hrísling ókennileikans eru sammála um að í hryllingnum búa ekki síður tilfinningar heil- lunar og hrifningar en viðbjóðs og ótta. Það er málið. Það sem er bara skelfilegt er bara skelfilegt; hrollvekjan, hryllingurinn býr yfir miklu fleiri blæbrigðum og er því alltaf knú- inn mótsögnum og togstreitu. Og sem slíkur þá hreyfir ókennileikinn við okkur á svo margan hátt, hann snertir við einhverju innra með okkur sem opnar okkur sýn inn í sjálf okkur (heimili okkar, úrgangurinn okkar) og gefur okkur jafnframt nýja sýn á umhverfi okkar og það hvernig við skynjum það. Þetta er jú markmiðið hjá Freud og freudistum: allt endurspeglast til baka á okkur sjálf, segir okkur eitthvað um okkur og okkar samsettu sjálfsverund. Myndir Hrafnkels sýna áhorfandanum inn í tvo heima – og jafnvel fleiri. Hið ofurkunn- uglega form ljósmyndarinnar verður ókenni- legt í tæknilegri meðhöndlun; í stað raunsæis skapast einhverskonar ofurraunsæi sem áhorfandinn finnur sig knúinn til að stíga inní og máta sig við. Þannig kalla myndir Hrafn- kels Sigurðssonar fram margar og mótsagna- kenndar tilfinningar sem endurspeglast í við- fangsefni hans og myndbirtingu þess: mörk, mót, millibilsástand, sem ljósmyndin gerir varanlegt, í augnablik. Eftirskrift: Þessi grein er sprottin upp úr spjalli lista- mannsins og greinarhöfundar, um verk þess fyrrnefnda og fyrirlestur þeirrar síðarnefndu um Freud og ‘das unheimliche’. Og Hrafnkell spurði: Er ekki eitthvað skylt með þessum ókennilegu heimilapælingum Freuds og húsa- myndunum mínum? Heimildir: Barthes, Roland, „Rhetoric of the image“, í Image, Music, Text, þýð. Stephen Heath, London, Fontana 1977. Barthes, Roland, Camera Lucida: Reflections on Photography, þýð. Richard Howard, New York, Hill and Wang 1981. Cixous, Hélène, „Fiction and Its Phantoms: A Reading of Freud’s Das Unheimliche“, New Literary History 7:3, 1976, pp. 525–548. Freud, Sigmund, „The Uncanny“ (1919), í Art and Literature, vol. 4, The Pelican Freud Library, þýð. Jame Strachey, ritstj. Albert Dickson, Harmondsworth, Penguin 1988. Jón B.K. Ransu, „Að skilgreina sig og umhverfið“, í Lesbók Morgunblaðsins, 28. febrúar 2004. Kristeva, Julia, Powers of Horror: An Essay on Abjection, þýð. Leon S. Roudiez, New York, Columbia University Press 1982. Höfundur er bókmenntafræðingur. Ljósmyndir/Hrafnkell klárað, á annað vantar bara svalir, hin eru frumstæðari, utan um sum er enn slegið timbri, veggirnir nýsteyptir og mótar fyrir gluggum. EÐA HÚS OG HÍBÝLI LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 24. APRÍL 2004 9

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.