Lesbók Morgunblaðsins - 24.04.2004, Page 11
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 24. APRÍL 2004 11
Hvað er stöðurafmagn?
SVAR: Flestir kannast við að hafa strokið
uppblásinni blöðru hratt fram og aftur eftir
hári sínu og látið hana svo loða við vegg í
stutta stund. Eftir meðferðina stendur hárið
gjarnan beint út í loftið og er svolitla stund að
jafna sig. Hvort tveggja, blaðran og hárið, hef-
ur fengið rafhleðslu og sagt er að myndast hafi
stöðurafmagn (e. static).
Hið sama gerist í rauninni þegar við greið-
um þurrt hár með greiðu sem er líka þurr. Ef
við berum greiðuna á eftir að bréfsnifsum á
borði, þá sjáum við þau lyftast þegar hún nálg-
ast og setjast jafnvel á greiðuna.
Uppruni orðsins rafmagn er hliðstæður
uppruna erlenda orðsins sem hefur sömu
merkingu, samanber til
dæmis electricity á ensku.
Stofn þess orðs, elektron, er
kominn allar götur úr forn-
grísku og þýðir einmitt raf.
Menn hafa sem sagt vitað
mjög lengi að efni eins og raf
„rafmagnast“ þegar þau eru
strokin með viðeigandi efn-
um, til dæmis silki, og sýna
þá svipaða hegðun og áður
var lýst.
Á 18.–19. öld fundu menn á
þessu skýringu sem byggist
á hugtakinu rafhleðsla. Raf-
hleðsla getur verið ýmist já-
kvæð eða neikvæð og oftast
er jafnmikið af báðum teg-
undum í efninu þannig að
hlutirnir sem heild verða þá
óhlaðnir. En stundum er
hægt að flytja hleðslu milli
hluta þannig að annar verður
þá jákvætt hlaðinn en hinn
fær jafnmikla neikvæða
hleðslu. Það er einmitt þetta
sem gerist í dæmunum sem nefnd voru hér á
undan um blöðruna og hárið, greiðuna og hár-
ið, og um rafið og silkið.
Tvær rafhleðslur ýta hvor annarri frá sér ef
þær hafa sama formerki, eru annaðhvort báð-
ar jákvæðar eða báðar neikvæðar. Ef þær hafa
hins vegar gagnstætt formerki, önnur jákvæð
en hin neikvæð, þá dragast þær hvor að ann-
arri. Þegar rafhleðsla er borin að óhlöðnum
hlut getur rafhleðslan færst til í honum þannig
að gagnstæð hleðsla safnast þeim megin sem
upphaflega hleðslan er en hin hliðin á hlutnum
verður þá hlaðin á sama veg og hún. Þetta
verður til þess að samanlagt myndast aðdrátt-
arkraftur milli hleðslunnar og hlutarins þó að
hann sé eftir sem áður óhlaðinn sem heild.
Það er einmitt þetta sem gerist þegar raf-
hlaðin blaðra er borin að vegg. Gagnstæð raf-
hleðsla safnast fyrir í veggnum næst blöðrunni
og aðdráttarkrafturinn frá henni verður meiri
en fráhrindingarkrafturinn frá samstæðu
hleðslunni sem ýtist lengra inn í vegginn. Hið
sama gildir um greiðuna og bréfsneplana sem
við nefndum hér á undan.
Á tuttugustu öld mótaðist enn nánari eða
dýpri skýring á rafmagni, rafhleðslu og stöðu-
rafmagni. Hún byggist á innri gerð efnisins
þar sem frumeindir (atóm) og rafeindir gegna
lykilhlutverkum, en óþarft er að rekja hana
nánar hér.
Rafhleðsla í hlut hefur tilhneigingu til að
jafnast út og dreifast um hlutinn með raf-
straumi eða leiðingu (e. conduction) sem svo er
kölluð. Efnin í kringum okkur eru hins vegar
yfirleitt ýmist leiðarar eða einangrarar; þau
leiða rafstraum ýmist mjög vel eða mjög illa.
Ef rafhleðsla er í einangrandi efni og slík efni
eru allt um kring getur hleðslan haldist þar
lengi, en hún flyst hins vegar í burt og jafnast
út ef einhvers staðar eru leiðarar sem flytja
hana greiðlega.
Rafleiðni loftsins sem við öndum að okkur
breytist mjög með rakastigi loftsins. Þurrt loft
leiðir rafmagn mjög illa en rakt loft miklu bet-
ur. Hlutir sem fá með einhverjum hætti á sig
rafhleðslu tapa henni því fljótlega ef loftið er
rakt en halda henni lengi í þurru lofti. Það sem
við köllum stöðurafmagn er því algengast við
slíkar aðstæður.
Hurðarhúnar úr málmi í tréhurðum eru gott
dæmi um þetta. Húnninn er leiðandi þannig að
rafhleðsla dreifist greiðlega um yfirborð hans
en tréð er einangrandi þannig að hleðslan fer
ekki greiðlega þá leiðina burt. Ef loftið í kring
er hins vegar rakt afhleðst húnninn þá leiðina.
Annað kunnuglegt dæmi um þetta er fjöl-
skyldubíllinn. Hann getur auðveldlega tekið á
sig rafhleðslu með núningi við loftið, ekki síst
ef hann er hreinn og nýbónaður og loftið er vel
þurrt. Margir kannast líklega við að hafa feng-
ið á sig rafhögg („stuð“) frá bíl við slíkar að-
stæður. Þetta rafhögg er í rauninni skyndi-
legur rafstraumur sem verður þegar hleðslan
á bílnum eða svæðinu sem við snertum hleyp-
ur gegnum okkur og til jarðar.
Þar sem stöðurafmagn er í rauninni ekkert
annað en rafhleðsla er það mælt með hleðslu-
mælingu. Slíkt má gera með ýmsum tækjum
og tólum nú á dögum en elsta tækið til þess er
svokölluð rafsjá (e. electroscope).
Þorsteinn Vilhjálmsson prófessor í vísindasögu og
eðlisfræði við HÍ og Ögmundur Jónsson.
HVAÐ ER
STÖÐURAF-
MAGN?
Hverjar eru helstu orkulindir Íslendinga, hvað
getið þið sagt mér um Kuipers-beltið og Oort-
skýið, hvernig urðu orkulindirnar til, hvort býr steinn yfir meiri orku
uppi á fjalli eða niðri í fjöru og er hægt að búa til olíu með aðferðum
efnafræðinnar? Þessum spurningum og fjölmörgum öðrum hefur verið
svarað að undanförnu á Vísindavefnum og hægt er að lesa svörin á
slóðinni www.visindavefur.hi.is.
VÍSINDI
Það er víðar rafmagn en í háspennulínum.
Morgunblaðið/Jónas Erlendsson
1907
SIGFÚS ER
SÖNGSKÁLD
Í Lögréttu 24. apríl 1907 var
sagt að ýmsir menn hefðu
fengist við lagasmíð og samið
fáein snotur sönglög „en
þessi söngvagerð hefur aldr-
ei borið íslenskan blæ og aldrei stórfelldan
blæ“. Það geri hins vegar mörg lög Sigfúsar
Einarssonar. „Þau bera með sér að hann er
söngskáld, hann tekur hinum öllum fram og
mörg sönglög hans eru rammíslensk, það eru
gömul rímnalög risin upp í nýjum og fögrum
búningi listarinnar, full af andagift.“ Nefnd
voru sem dæmi lögin Á Sprengisandi, Syngur
lóa og Fánasöngur. „Þetta er allt vísir til þess
að Sigfús geti orðið oss Íslendingum það sem
Grieg hefur verið Norðmönnum. Vel má það
rætast að Sigfús verði einhvern tíma jafn
hjartfólginn þjóðinni fyrir sönglög sín eins og
Jónas Hallgrímsson hefur orðið fyrir kvæði
sín.“
1914
FANNHVÍTT OG
UMFLOTIÐ SÆ
„Uppdrátt að hlutabréfum
Eimskipafélagsins hefur
Stefán Eiríksson hinn odd-
hagi gert. Er efst nafn fé-
lagsins skráð með glöggum
og skrautlegum stöfum en á miðju er Ísland
fannhvítt og umflotið sæ. Í rammanum eru
myndir af eimskipi sem siglir með ströndum
fram, Fjallkonunni, Ingólfi Arnarsyni og Leifi
heppna. En Þórshamar er í hornum og á hann
að vera ímynd þreks þess er til þess hefur
þurft að koma svona fyrirtæki á fót meðal fá-
tækra Íslendinga.“ Þannig sagði Árvakur, 24.
apríl 1914, frá útliti hlutabréfa fyrirtækisins
sem stofnað var þremur mánuðum áður. Stef-
án (f. 1863, d. 1924) var landsþekktur fyrir út-
skurð.
1923
MARGHJÓLA
SKRIÐBÍLL
Greint var frá því í Morg-
unblaðinu 24. apríl 1923 að
Frakkar hefðu farið í rann-
sóknarferð yfir Sahara-
eyðimörkina á marghjóla
skriðbíl, sem reynst hefði vel, og sagt að bíl-
arnir „komist fullum fetum yfir snjóalög og
fannir. Ef bílar þessir eru svo góðir sem af er
látið ætti það að vera auðvelt að halda uppi
reglubundnum bílferðum frá Reykjavík austur
yfir fjall, hversu sem viðraði, og ódýrara
myndi það verða en járnbrautin.“
1937
ÍSLAND Á
UMBÚÐUNUM
Nýja dagblaðið sagði frá því
24. apríl 1937 að Hafliði
Baldvinsson fisksali hefði út-
vegað sér ný hraðfrystitæki.
„Notar hann tæki þessi til
þess að frysta fiskflök, nú sem stendur að-
allega þorsk og ýsu, en í sumar hyggst hann að
frysta mestmegnis kola og lúðu. Um fiskflökin
er búið í smjörpappír og uppdráttur af Íslandi
límdur á umbúðirnar. Eru nálægt 14 pund í
hverjum pakka.“ Blaðið sagði að Hafliði hefði
sent slík fiskflök til Englands en einnig hefði
hann selt talsvert af þeim í skip og á sjúkra-
hús. Hafliði (f. 1888, d. 1949) var bróðir Jóns
Baldvinssonar, verkalýðsleiðtoga og alþing-
ismanns.
1945
LOFTUR OG LIT-
MYNDIRNAR
„Loftur Guðmundsson ljós-
myndari er kominn til lands-
ins eftir nærri eins árs dvöl í
Ameríku. Þar kynnti hann
sér nýjustu tækni á sviði
ljósmyndunar,“ sagði Morgunblaðið 24. apríl
1945. Hann sagðist í samtali við blaðið hafa
gert sér „sérstaklega far um að kynnast lit-
myndun mannamynda. Lagði ég mikla stund á
að kynna mér notkun ljósa í sambandi við slíka
ljósmyndun. Með þessum nýju aðferðum í
meðferð ljósa kynnist maður betur sér-
einkenni hvers manns, sem er ákaflega stórt
atriði í ljósmyndun á fólki. Ég vonast til að
geta fengið litmyndatökuefni áður en langt um
líður. Ekki gat ég þó tekið neitt með mér af
því, enda er á því útflutningsbann.“ Hann
keypti sér vélar af fullkomnustu gerð fyrir
ljósmyndastofu sína og átti von á að fá þær eft-
ir tvo mánuði.
1963
KÖLD BIÐ
EFTIR MJÓLK
„Mikið ófremdarástand hef-
ur ríkt í Vestmannaeyjum í
sambandi við mjólk-
urafgreiðslu,“ sagði Þjóðvilj-
inn 24. apríl 1963. Fyrir
páska höfðu um hundrað manns verið í bið-
röðum við mjólkurbúðirnar tvær í bænum, í
norðanroki og ellefu stiga frosti. „Um anna-
tímann fellur það í hlut húsmæðra með ung-
börn á handleggnum eða gamalmenna að
sækja mjólkina og standa í þessum biðröðum
og er hver dagur samfelld hrakningasaga.
Fólkið er orðið langþreytt á þessu ástandi og
háværar kröfur eru til bæjaryfirvalda að sker-
ast í málið.“
1982
ÚTKROTUÐ
BIÐSKÝLI
Dagblaðið Vísir fjallaði um
útkrotuð stætisvagnaskýli
24. apríl 1982. Forstjóri
Strætisvagna Reykjavíkur
sagði að allt væri útkrotað í
biðskýlunum og að tímatöflurnar fengju ekki
stundlegan frið. Haft var eftir vagnstjóra að
skýlakrass og skiltaplokk væri séríslenskt fyr-
irbæri og að þetta væri makalaus árátta. Blað-
ið sagði að sum skýli fengju aldrei að vera í
friði og að dæmi væru um að ný skýli væru öll
útkrotuð á einum degi. Áletranirnar voru bæði
á íslensku og ensku, ástarjátningar (Hilli og
Brynhildur, sönn ást), óánægja með félagana
og skólann (I hate school) og brot úr vinsælum
dægurlagatextum (Video killed the radio star).
T ÍÐARANDINN Á TUTTUGUSTU ÖLD
„Höfum byrjað framleiðslu á nýrri gerð af bókahillum. Hægt er að kaupa eina hillu í einu eftir því
hve bókakostur er mikill. Kynnið yður verð og sýnishorn,“ sagði í auglýsingu í Alþýðublaðinu 24.
apríl 1955. Það var fyrirtækið Hansa hf. á Laugavegi 105 í Reykjavík sem kynnti hér nýjung sem
varð mjög vinsæl og þekkt undir nafninu Hansa-hillur.
NÝ GERÐ AF
BÓKAHILLUM
J Ó N A S R A G N A R S S O N T Ó K S A M A N