Lesbók Morgunblaðsins - 24.04.2004, Qupperneq 15
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 24. APRÍL 2004 15
Næsta v ika menning@mbl.is
Laugardagur
Gerðarsafn kl. 15 Í aust-
ursal sýnir Rebekka Rán
Samper tví- og þrívíð verk
ásamt myndbandsgjörningi.
Ragna Fróðadóttir er með inn-
setningu í Vestursal. Opið alla
daga, nema mánudaga, kl.
11–17.
Listasafn Reykjavíkur –
Ásmundarsafn kl. 14
Guðný Guðmundsdóttir ræðir
verk sín í Píramídanum og
skoða sýninguna ásamt sýn-
ingargestum.
SÍM-húsið, Hafnarstræti
16 kl. 14 Anne Pesce, mynd-
listarmaður frá Frakklandi
sýninguna NordurSudurAust-
urVestur. Hún dvelur í apr-
ílmánuði í gestavinnustofu
SÍM. Gestalistamaður er
Pierre Laurent Cassiere og
verður hann með laptop per-
formance „wetmoon sounds“
kl. 16.
Gallerí Tukt, Hinu Húsinu
Pósthússtæti kl. 16 Erlend
ungmenni opna samsýningu.
Verkin eru unnin með bland-
aðri tækni og hafa þau öllu
unnið út frá þemanu „And-
stæður“. Til 8. maí.
Hallgrímskirkja kl. 12
Guðmundur Sigurðsson org-
anisti Bústaðakirkju flytur og
kynnir orgelverk tengd Am-
eríku, m.a. nokkra kunna
negrasálma í djassútsetn-
ingum. Auk þess flytur hann
sálmaforleik eftir Smára Óla-
son um íslenskt passíusálma-
lag.
Ráðhús Reykjavíkur kl.
14 Stórsveit Reykjavíkur efnir
til hinnar árlegu Stór-
sveitaveislu. Auk Stórsveit-
arinnar koma fram sex skóla-
stórsveitir. Kynnir á
tónleikunum er Friðrik Theó-
dórsson.
Víðistaðakirkja kl. 16
Karlakórinn Þrestir í Hafn-
arfirði heldur vortónleika.
Stjórnandi er Jón Kristinn
Cortez og undirleikari Jónas
Þórir. Einsöngur Jóhann Sig-
urðarson.
Íslenska óperan kl. 20
Óperustúdíó Listaháskóla Ís-
lands og Íslensku óperunnar
sýnir styttri gerð gamanóper-
unnar Sígaunabaróninn eftir
Johann Strauss. Hljómsveit-
arstjóri er Gunnsteinn Ólafs-
son og leikstjóri Pétur Einars-
son.
Sunnudagur
Hátaíðasalur Mennta-
skólans við Hamrahlíð kl.
14 Vorvítamín. Hamra-
hlíðakórarnir fagna vori.
Ýmir kl. 16 Blásarakvintett
Reykjavíkur flytur sextetta fyrir
píanó og blásara eftir Jean
Francaix og Ludwig Thuille,
blásarakvintett eftir Frans
Danzi og sónata fyrir klarinett
og píanó eftir Johannes
Brahms. Gestur kvintettsins er
píanóleikarinn Vovka Ashke-
nazy.
Háteigskirkja kl. 16 Karla-
kór Selfoss undir stjórn Lofts
Erlingssonar. Undirleikari er
Julian Edward Isaaks.
Salurinn kl. 20 Igor Kamenz
píanóleikari flytur Sónötu í
D-dúr og Sónötu í C-dúr,
„Waldsteinsónatan", eftir
Beethoven, Prelúdíur eftir
Sckrjabin og Sónatan í h-moll
eftir Liszt. Igor Kamenz (1965)
var barnungur orðinn gesta-
stjórnandi hjá Útvarpshljóm-
sveitinni í Moskvu og í Bolshoi.
Íslenska óperan kl. 20
Óperustúdíó Listaháskóla Ís-
lands og Íslensku óperunnar
sýnir styttri gerð gamanóper-
unnar Sígaunabarónsins eftir
Johann Strauss.
Hótel Borg kl. 21 Tríó Kára
Árnasonar leikur á Múlanum.
Flutt verður tríótónlist í anda
hljómsveita Elvin Jones og Joe
Lovano, standardar og önnur
þekkt stef í útsetningum tríós-
ins. Tríóið skipa þeir Kári
Árnason á trommur, Sigurður
Flosason á saxófón og Tómas
R. Einarsson á bassa.
Þriðjudagur
Salurinn kl. 20 Alexandra
Cherny-
shova sópr-
an og Gróa
Hreinsdóttir
píanó flytja
tólf lög á
átta tungu-
málum.
Dagskráin
skiptist í tvo
hluta með rómantískum lög-
um/aríum úr kirkjutónlist og
óperum og nútímalegar aríur.
Víðistaðakirkja kl. 20
Karlakórinn Þrestir í Hafnar-
firði heldur vortónleika. Ein-
söngvari er Jóhann Sigurðar-
son.
Langholtskirkja kl. 20
Karlakór Hreppamanna syng-
ur innlend og erlend kóralög.
Einsöngvari með kórnum er
Ólafur Kjartan Sigurðarson.
Stjórandi er Edit Molnár en
undirleikari Miklós Dalmay.
Fimmtudagur
Hafnarborg kl. 12 Evr-
ópskir dansar er yfirskrift
næstu hádegistónleika. Fiðlu-
leikarinn Zsigmond Lázár og
Antonía Hevesi píanóleikari
flytja Ungverskan dans nr. 5
eftir Brahms, konsertpolka eftir
F. Poliakin, ungverska þjóð-
dansa eftir V. Monti, klezmer-
lagið „Fihren Di Makhetonim
Aheim“ og rúmenskan þjóð-
dans.
Norræna húsið kl. 20
Hørsholm Percussion og Ma-
rimba Ensemble: 13 ungir
slagverks- og marimbuleik-
arar á aldrinum 16–24 undir
leiðsögn Ole Pedersen. Á efn-
isskrá eru m.a. verk eftir Mil-
haud, Bach og Chopin.
Háskólabíó kl. 19.30 Sin-
fóníu-
hljómsveit Ís-
lands og
Óperukórinn
í Reykjavík.
Stjórnandi
er Rumon
Gamba.
Flutt verður
Metamophorsen eftir Richard
Strauss og Sinfónía nr. 9 eftir
Ludwig van Beethoven.
Salurinn kl. 20 Söngdeild
Tónlistarskóla Kópavogs frum-
flytur óperu einþáttunginn
Amalía fer á ball eftir Gian
Carlo Menotti. Aðgangur er
ókeypis. 2. Sýning mánudag-
inn 3. maí.
Hafnarborg kl. 20 Karla-
kórinn Þrestir í Hafnarfirði
heldur vortónleika. Einsöngv-
ari er Jóhann Sigurðarson.
Föstudagur
Hótel Saga kl. 18 Vinafélag
SÍ býður til samverustundar
fyrir sinfóníutónleika. Árni
Heimir Ingólfsson fjallar um 9.
sinfóníu Beeethovens með að-
stoð hljóðfærisins og hljóm-
tækja.
Háskólabíó kl. 19.30 Sin-
fóníuhljómsveit Íslands og Óp-
erukórinn í Reykjavík. Stjórn-
andi er Rumon Gamba. Flytt
verður Metamophorsen eftir
Richard Strauss og Sinfónía
nr. 9 eftir Ludwig van Beet-
hoven.
Norræna húsið kl. 12–13
Marit Åhlen,
sérfræðingur í
rúnaskrift,
heldur hádeg-
isfyrirlestur í
ráðstefnusal:
„Runskriften i
ett europeiskt
perspektiv och
Europa ur runinskrifternas
perspektiv“. Fyrirlesturinn fer
fram á sænsku.
Marit Åhlen
Rumon Gamba
Alexandra
Chernyshova
Morgunblaðið/Ásdís
Hjördís Brynja í sal Íslenskrar grafíkur.Í
sal Íslenskrar grafíkur í Hafn-
arhúsinu kl. 16 í dag opnar Hjör-
dís Brynja málverkasýningu.
Ekki er hægt að segja að vinnu-
aðferðir hennar séu mjög hefð-
bundnar því hún vinnur verk sín með
ævafornri aðferð, þ.e. egg-
olíutemperu. Slík verk sjást alla jafn-
an ekki mikið hér á landi en hún hef-
ur unnið með
þessa aðferð sl.
10 ár. Hún hef-
ur einnig unnið
með svokallaða
vaxtemperu, búið til freskur og not-
fært sér fleiri fornar mynd-
listaaðferðir. Sýninguna nefnir hún
„Microcosmos / Macrocosmos“ og er
tilraun til að finna hið smáa í hinu
stóra og öfugt. Málverkin eru máluð
á síðustu tveimur árum. En hvað er
eggolíutempera?
„Eggolíutempera er ævaforn að-
ferð þar sem blandað er saman eggi,
línolíu, vatni og litadufti. Aðferðin er
algerlega náttúruleg og þarf ég m.a.
ekki að nota terpentínu. Þessi aðferð
hefur reynst mjög vel og enn þann
dag í dag má sjá verk frá tímum
Forn-Egypta sem lítið eða ekkert
hafa látið á sjá. Eggolíutemperan er
miklu þynnri en olíulitirnir sem ger-
ir það að verkum að maður þarf að
vinna myndina aftur og aftur. Ég
nota sand í grunninn til þess að
byggja upp áferðina á striganum.
Svo mála ég mörg lög milli þess sem
ég slípa myndina niður með sand-
pappír og hætti ekki fyrr en ég er
búin að ná því fram sem ég leita að.
Þetta getur oft tekið langan tíma, en
mér finnst meira spennandi að vinna
með eggolíutemperuna en olíuna,
það færir mig nær náttúrunni og
sjálfri mér. Ég elska liti og á við þá
mitt innra samtal og nota yfirleitt
aldrei svart eða hvítt í verkum mín-
um. Oft nota ég ekki fleiri en 2–3 liti
og skoða samspil þeirra útfrá sam-
tali mínu við þá. Ég kýs að vinna
verkin mín alveg frá upphafi, auk
þess að búa til litina smíða ég blind-
rammann, strekki og grunna strig-
ann sjálf. Eina hjálpartækið er tón-
list sem ég nota mikið við vinnu
mína.“
Hjördís Brynja á að baki 20 ára
feril sem listamaður og hefur komið
víða við og notað margar mismun-
andi aðferðir í list sinni. „Ég byrjaði
frekar hefðbundið, olímálun, skúlp-
túr, ljósmyndir, kvikmyndir og graf-
ík. Síðan fór ég mína eigin leið og
finnst ég oft vera í miklum til-
raunum og lít svolítið á mig sem
rannsóknarlistamann. Ég hef mikið
verið að velta því fyrir mér hvað er á
bak við það sem blasir við og reyni í
verkum mínum að tjá það sem ekki
er sýnilegt. Hvað er t.d. bak við
hindranir, hólinn, inní hellinum,
hvað er fyrir utan hið takmarkaða
sjónarhorn sem glugginn gefur okk-
ur? Þetta eru allt spurningar sem ég
velti upp í verkum mínum en ég er
ekki síst að skoða sjálfa mig.“
Hvers virði er það fyrir þig að
mála?
„Það er mér næstum allt. Ég segi
stundum við vini mína að ég verði
eins og önugur hundur sem fær ekki
göngutúrinn sinn ef ég hef ekki mál-
að lengi. Þegar ég var 27 ára gömul
greindist ég með MS-sjúkdóminn og
þá urðu mikil straumhvörf í lífi
mínu. Ég var ákveðnari en nokkru
sinni í því að gera allt sem í mínu
valdi stæði til að gefa mig listinni á
vald. Fyrst eftir greininguna leið
mér eins og ég væri með eldvörpu í
eftirdragi, en myndlistin hefur hjálp-
að mér að vinna með tilfinningar
mína og tjáningu.“
Hjördís Brynja hefur haldið sýn-
ingar í Frakklandi, Svíþjóð og Ís-
landi. Á dögunum var henni boðið að
sýna í hinu virta Gallerie Gora í
Montreal í Kanada. Gora, http://
www.gallerygora.com, sérhæfir sig
í sýningum og sölu á samtímalist og
tekur þátt í fjölmörgum alþjóðlegum
sýningum.
Hvernig kom það til að þér var
boðið í galleríið?
„Ég var eiginlega uppgötvuð,“
segir Hjördís Brynja og skellihlær,
„forsvarsmennirnir sáu verkin mín á
Netinu og sendu mér bréf inn um
netlúguna mína sl. haust og buðu
mér að halda sýningu í júlí nk. Þar
sem Gora er í tengslum við gallerí
útum allan heim, er möguleiki á því
að þeir sendi mig í önnur gallerí ef
vel tekst til. Alla vega eru ofsalega
spennandi tímar framundan.“
Sýningin stendur til 9. maí. Opið
er fimmtudaga til sunnudaga, kl. 14–
18.
Myndlistin
losaði mig við
eldvörpuna
STIKLA
Málverkasýning
í Íslenskri grafík
helgag@mbl.is
Myndlist
Gerðarsafn: Rebekka Rán
Samper í austursal, Ragna
Fróðadóttir í vestursal, Bjarni
Sigurbjörnsson neðri hæð. Til
16. maí.
Kling og Bang, gallerí,
Laugavegi: Jón Óskar. Til
25. apríl.
Hafnarborg: Hafnar-
borg: Rafn Hafnfjörð sýnir
ljósmyndir og Björk Atla
akrýlmálverk. Til 10. maí.
Handverk og hönnun,
Aðalstræti 12: Afmælissýn-
ing. Til 25. apríl.
Hallgrímskirkja: Hörður
Ágústsson. Til 26. maí.
Hönnunarsafn Íslands,
Garðatorgi: Kristín Ísleifs-
dóttir. Til 30. júní.
i8, Klapparstíg 33: Birgir
Andrésson. Til 30. apríl.
Íslensk Grafík, Hafn-
arhúsinu: Hördís Brynja. Til
9. maí.
Jón forseti, Aðalstræti:
Finnur Arnar. Til 2. maí.
Kunstraum Wohnraum,
Ásabyggð 2, Akureyri:
Jón Laxdal Halldórsson. Til
25. apríl.
Listasafn Akureyri: Inn-
setning Önnu Líndal. Til 9.
maí.
Listasafn ASÍ: Finna B.
Steinsson. Björk Guðnadóttir.
Til 10. maí.
Listasafn Ísafjarðar: Guð-
björg Lind Jónsdóttir. Til 1.
júní.
Listhús Ófeigs, Skóla-
vörðustíg: Sigurður Örlygs-
son. Til 30. apríl.
Listasafn Einars Jóns-
sonar: Opið laugardaga og
sunnudaga kl. 14–17.
Listasafn Íslands: Íslensk
myndlist 1900–1930. Ragna
St. Ingadóttir. Til 2. maí.
Listasafn Reykjanes-
bæjar: Kristján Jónsson.Til 2.
maí.
Listasafn Reykjavíkur –
Ásmundarsafn: Nútíma-
maðurinn. Til 20. maí. Guðný
Guðmundsdóttir í Píramíd-
anum. Til 2. maí.
Listasafn Reykjavíkur –
Hafnarhús: Ólafur Elíasson.
Til 25. apríl.
Listasafn Reykjavíkur –
Kjarvalsstaðir: Vestursalur:
List frá Barcelona. Miðrými:
Erla Þórarinsdóttir. Til 9. maí.
Listasafn Sigurjóns Ólafs-
sonar: Sigurjón Ólafsson í
alfaraleið. Til 30. maí.
Ljósmyndasafn Reykja-
víkur, Grófarhúsi: Leifur
Þorsteinsson – Fólk og borg.
Til 9. maí.
Mokka: Hulda Vilhjálms-
dóttir.
Norræna húsið: Sigrún
Eldjárn. Til 9. maí.
Orkuveita Reykjavíkur,
Bæjarhálsi 1: Finnbogi Pét-
ursson, Svava Björnsdóttir,
Kristján Guðmundsson, Þór
Vigfússon, Hreinn Friðfinns-
son. Til 6. maí.
Safn – Laugavegi 37: Op-
ið mið.–sun. kl. 14–18. Andr-
eas Serrano, Richard Prince
og Carsten Höller. Hrafnkell
Sigurðsson. Finnur Arnar. Til
9. maí. Leiðsögn alla laug-
ardaga kl. 14.
Safn Ásgríms Jónssonar:
Þjóðsagnamyndir Ásgríms
Jónssonar.
Þjóðmenningarhúsið:
Handritin. Skáld mánaðarins:
Sjón. Heimastjórn 1904.
Þjóðminjasafnið – svona var
það.
Þjóðarbókhlaða: Heima-
stjórn 100 ára.
Leiklist
Þjóðleikhúsið: Þetta er allt
að koma, lau, fös. Dýrin í
Hálsaskógi, sun. Græna
landið, sun., fim. Sorgin
klæðir Elektru, lau., sun., fim.,
fös.
Borgarleikhúsið: Lína
Langsokkur, sun. Chicago,
lau., fim., fös. Leikhústvenna:
Sekt er kennd og Draugalest-
in, sun. Paris at night, sun.,
mið. Sporvagninn Girnd,
lau., fös. Grease, lau., sun.
Iðnó: Sellofon, lau. Tenórinn,
sun. Yndislegt kvöld, lau.,
sun.
Hafnarfjarðarleikhúsið:
Meistarinn og Margaríta, lau.
Loftkastalinn: Eldað með
Elvis, fös.
Austurbær: 5stelpur.com,
fös.
Félagsheimili Seltjarn-
arnes: Saumastofan, lau.,
sun.
Leikfélag Akureyrar:
Sveinsstykkið, lau., sun.
Í LISTASAFNI Íslands gefst gestum og gang-
andi að taka þátt í póstkortagerð frá kl. 11–
14 í dag. Um er að ræða átjándu alþjóðlegu
póstkortasamkeppni Barnalistasafnsins í
Wuppertal sem fer fram í samstafi Goethe-
Zentrums og fræðsludeildar Listasafns Ís-
lands. Foreldrar og aðstandendur barna eru
hvattir til að koma á safnið með börnin og
hlusta á sögur í sögutjaldinu og búa síðan til
póstkort til að senda í samkeppnina eða til að
senda vinum og vandamönnum. Til eru frá-
sagnir og sögur um fljúgandi dreka, fuglinn
Fönix, þrumuguðinn Þór og mörg önnur spenn-
andi fyrirbæri sem ljá hugmyndafluginu vængi.
Sögurnar verða lesnar bæði á íslensku og
þýsku.
Börnin búa til póstkort