Lesbók Morgunblaðsins - 24.04.2004, Qupperneq 16
16 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 24. APRÍL 2004
B
jörg Atla opnaði myndlist-
arsýningu í Hafnarborg 17.
apríl síðastliðinn. Þar sýnir
hún alls 39 málverk í Sverr-
issal og Apóteki. Sýningin ber
heitið Með nesti og nýja skó
og vísar heitið meðal annars
til ólíks aldurs myndanna á
sýningunni. „Þrjár elstu myndirnar eru
nestið. Nýju skórnir eru svo myndirnar
sem ég vann eða lauk við að vinna á ár-
unum 2002–2004,“ segir Björg í samtali
við Morgunblaðið.
Myndirnar vinnur Björg með þynntum
akrýllitum í opinn grunn, það er að segja
á ómeðhöndlaðan striga. Fyrst vinnur hún
í strigann flatan á gólfinu, en strekkir
hann svo á blindrammann og heldur áfram
að vinna myndina. „Ég leitast við að ná
fram flæði, gegnsæi og rytma í myndum
mínum. Tæknin sem ég nota í upphafi
verksins minnir svolítið á akvarellu sem
unnin er á bómullarpappír. Skilin milli for-
grunns og þess sem flæðir inn í strigann
eru oft óljós og það skapar skemmtilega
spennu í myndinni, að mínum dómi,“ segir
Björg.
Þó að akrýlliturinn hafi orðið fyrir val-
inu á sýningunni nú, hefur Björg lengi
notað olíuliti í verkum sínum. En hún seg-
ir akrýllitinn höfða sterkt til sín. „Hann
hefur ýmsa skemmtilega eiginleika, til
dæmis að hann þornar fljótt og ég get
þynnt hann mjög mikið. Mér finnst akrýl-
liturinn í raun meira nútímaefni, litarefnið
er það sama og í olíu og akvarellu.“
Bergmál tilfinninga, skynjunar og
reynslu segir Björg vera grunnstefin í við-
fangsefnum sínum að þessu sinni. „Maður
getur engu að síður notað landslag eða
himinvíddir til þess að koma þessari tján-
ingu á framfæri, en ég legg áherslu á lit-
inn og reyni á þanþol hans. Það má
kannski fella stílinn undir abstrakt-
expressjónisma, sem var vinsæll í New
York eftir stríð. Mér finnst svo margt í
honum sem taka má upp og halda áfram
með, því hann hentar mínum karakter
vel,“ segir Björg. Hún segist hafa dottið
niður á þessa aðferð þegar hún var við
nám í Myndlista- og handíðaskóla Íslands í
byrjun 9. áratugarins. „Þá var ég með
hálfónýtan segldúk á gólfinu, sem mér var
í raun alveg sama hvernig færi um. Ég
prófaði mig áfram og þá kviknaði eitt-
hvað, sem mig langaði að halda áfram með
seinna. Og nú er ég að sýna afrakstur
þess.“
Björg starfaði sem meinatæknir áður en
hún fór að fást við myndlist og hefur það
starf haft nokkur áhrif á verk hennar.
„Mér fannst svo gaman að horfa í smá-
sjána og fylgjast með breytingum á lit-
uðum upplausnum, að ég gleymdi mér
næstum. Meðan ég vann á rannsóknastof-
unni voru mér gefnir akrýllitir og fljótlega
eftir það hellti ég mér út í myndlistina,
nám, kennslu og listsköpun. Mér finnst
meinatæknin, þessi vísindalega vinna, hafa
reynst mér mjög góður grunnur.“
Sýning Bjargar í Hafnarborg verður op-
in til 10. maí.
Bergmál tilfinn-
inga og skynjunar
Morgunblaðið/Ásdís
„Ég leitast við að ná fram flæði og gegnsæi í myndum mínum,“ segir Björg Atla um sýningu sína
í Hafnarborg, sem ber heitið Með nesti og nýja skó.
Morgunblaðið/Ásdís
Vökudraumur er heiti þessa verks, sem prýðir sýningu Bjargar.
Í tilefni Viku bókarinnar sendir Salka frá sértvær bækur. Önnur þeirra nefnist Ótuktinog er eftir Önnu Pálínu Árnadóttur söng-konu. Hún greindist með krabbamein fyrir
5 árum og segir hér frá reynslu sinni og hvernig
hún hefur bókstaflega náð að hugsa sig út úr því
gífurlega óöryggi og vanlíðan sem fylgir erf-
iðum veikindum. Morgunblaðið birti ítarlegt
viðtal við Önnu Pálínu sl. sunnudag þar sem hún
sagði frá þessari erfiðu
reynslu og tilurð bókarinn-
ar.
Eigðu við mig orð er til-
vitnanakver sem þær Sölku-
stöllur, Hildur Hermóðs-
dóttir og Kristín Birgis-
dóttir, tóku saman.
„Tilvitnanirnar eru valdar
héðan og þaðan og eru í
formi ljóða, söngtexta, orða-
tiltækja og textabrota úr
skáldsögum og viðtölum.
Bókin skiptist í nokkra kafla
sem ávarpa lesandann og bjóða honum í ferða-
lag um lífið og tilveruna þar sem tilvitnanirnar
geta bæði gefið okkur svör, hugleitt með okkur
eða undirstrikað líðan okkar. Fjallað er um vin-
áttu, ást – og algleymi, erótíkina og glundroð-
ann sem fylgir henni – stríð og vopnaglamur og
síðast en ekki síst þá staðreynd að stundum er
lífið í dúr og stund-
um í moll,“ segir
Kristín um bókina.
„Margrét Laxness
hannaði bókina og
hafði það að aðal-
markmiði að skapa
útlit sem undir-
strikaði efni bókar-
innar.“
Matreiðsla und-
ir berum himni
Í maí kemur út
bókin Um hjartað liggur leið sem er þýðing Sig-
urðar Skúlasonar á völdum köflum úr tveimur
þekktustu bókum Jacks Kornfields. „Þessi met-
söluhöfundur hefur kennt hugleiðslu undanfar-
in þrjátíu ár og er mikilsvirtur leiðbeinandi í
andlegri iðkun. Hann hvetur okkur til að fylgja
leið hjartans og nota hæfileika okkar til að
skapa frið jafnt hið ytra sem innra. Hann leggur
áherslu á gildi þess að losa sig við neikvæðar
hugsanir, að rækta kærleikann og komast að
því hver við erum í
raun og veru.
Kornfield tvinnar
forna austurlenska
speki við nútíma-
hugsunarhátt Vest-
urlandabúa og er
einn mest lesni leið-
beinandi á þessu
sviði.
Einnig kemur út
í maí bókin Með
veislu í farangrin-
um sem ber sann-
arlega nafn með rentu og er nýstárlegt upp-
skriftakver fyrir ferðaglaða sælkera, hvort sem
þeir eru á fjöllum, í tjaldútilegu eða í sumarbú-
stað. Hér eru á ferðinni einfaldar, en oft á tíðum
frumlegar uppskriftir eftir þaulvana leiðsögu-
menn, þær Ingibjörgu G. Guðjónsdóttur og
Ragnheiði I. Ágústsdóttur, sem undanfarin 15
ár hafa eldað utan dyra við ævintýraleg skilyrði
og duttlungafulla veðráttu. Auk þess að vinna
með hefðbundið hráefni nýta þær sér náttúruna
og láta hana um að krydda matinn jafnt sem til-
veruna. Fróðleiksmolar sem gera útivistina
bæði skemmtilegri og auðveldari eru á hverri
síðu. Bókin er prýdd fjölda litmynda auk þess
sem áferð hennar er sérstaklega gerð fyrir úti-
veru.“
Fleiri bækur á leiðinni
Af öðrum bókum sem Salka gefur út á árinu
nefnir Kristín þriðju bókina eftir Victoriu Mor-
an sem heitir á frummálinu Fit from within
(Hreystin kemur innan frá) og margir hafa beð-
ið eftir. Handbók um afeitrun líkamans kemur
út í haust og síðla árs kemur út bók er nefnist
Konur sem hugsa um of (Women who think too
much), auk tveggja þýddra skáldsagna úr heimi
kvennabókmennta. Meðal efnis fyrir unglinga
kemur út þriðja spennubók Ragnars Gísla-
sonar, höfundar Töru og Setuliðsins. Gerður
Berndsen gefur út sína fyrstu skáldsögu fyrir
unglinga og þar á Krissa, aðalpersónan, ekki
einungis sjálf í vandræðum heldur líka foreldr-
ar hennar sem stríða við áfengisvandamál.
„Rykið verður dustað af Mary Poppins og
fyrsta bókin um hana birtist í haust í nýrri út-
gáfu. Síðast en ekki síst má nefna nýja skáld-
sögu eftir Kristínu Ómarsdóttur sem kemur út
fyrir næstu jól og fleira er í farvatninu sem við
gefum ekki upp að sinni, en alls mun Salka gefa
út rúmlega tuttugu bækur á árinu,“ segir Krist-
ín Birgisdóttir að lokum.
Kristín
Birgisdóttir
Líflegt og fjölbreytt