Lesbók Morgunblaðsins - 12.06.2004, Síða 3
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 12. JÚNÍ 2004 3
Steinunn Sigurðardóttir
hóf skáldaferilinn fyrir 35 árum með útgáfu
ljóðabókarinnar Sífellur. Um þessar mund-
ir kemur út Ljóðasafn sem inniheldur allar
sex ljóðabækur Steinunnar. Þröstur Helga-
son ræðir við skáldið um ferilinn.
Ronald Reagan allur
nefnist grein eftir Soffíu Auði Birgisdóttur
þar sem fjallað er um tvær ævisögur um
forsetann fyrrverandi, sjálfsævisöguna
Where’s the Rest of Me? frá 1965 og ævisög-
una Dutch: A Memoir of Ronald Reagan frá
1999 eftir Edmund Morris.
José Saramago
hefur sent frá sér nýja skáldsögu er nefnist
Ensaio sobre a Lucidez eða Ritgerð um
skýrleika. Bókin fjallar um lýðræði. Her-
mann Stefánsson segir hana sæta tíðindum.
Þjóðareignarréttur
eða mannkynseignarréttur þarf að mati
Þorsteins Gylfasonar að verða til smám
saman í vandaðri viðureign við afmörkuð
vandamál. Þorsteinn fjallar um þrjár þraut-
ir þessu tengdar, handritamálið, erfða-
mengi mannsins og blóm á Madagaskar.
FORSÍÐUMYNDIN
er af verki eftir Erró, Mae West (1989, 99 x 70 cm, olíulakk á striga).
Úr myndaflokknum 1002 nætur.
M
ikið hefur að und-
anförnu verið rætt
og ritað um lýðræðið
og þingræðið á land-
inu bláa og ég held
það sé óhætt að
segja að óvenju heitt
hafi verið í kolunum.
Það er kannski eitt af einkennum lýðræð-
isins að hver og einn skuli fá að láta skoðun
sína í ljós, jafnvel með gífuryrðum. Í ein-
ræðisríkjum dettur engum nema ofur-
hugum og geðsjúklingum slíkt í hug, enda
ættu þeir í erfiðleikum með að koma ádrep-
um sínum á framfæri þar sem öllum fjöl-
miðlum er stjórnað af sterkum, einráðum
flokki. Og af því að mikið hefur verið rætt
um eignarhald á fjölmiðlum og hættur því
samfara þá megum við ekki í öllu því fári
gleyma mestu hættunni, sem er sú að Rík-
isvaldið nái undir sig mestöllum fjölmiðl-
unum.
En aftur að einræðisríkjunum. Hand-
tökur, hreinsanir, pyntingar og morð á blá-
saklausu fólki eru daglegt brauð í löndum
með slíkt stjórnarfar. Það segir dálítið um
eðli mannskepnunnar að enginn hörgull
virðist vera á böðlum og pyntingameist-
urum á þeim bæjum. Um leið og samein-
aður flokkur allra landsmanna er kominn
til valda spretta þeir upp eins og gorkúlur
og sinna starfi sínu af slíkum flinkheitum
og vandvirkni að ekki er annað sýnna en
þeir hafi fundið draumastarfið. Ekki veit ég
hvers vegna sérstakan hroll setur að mér
þegar ég heyri minnst á herforingjastjórnir
í Suður-Ameríku. Af nógu slíku er þó að
taka víðs vegar í heiminum. Kannski teng-
ist það frásögnum af öllum mannshvörf-
unum og dauðasveitum sem skjóta börn á
færi í fátækrahverfum enda talið mikið
þjóðþrifaverk hjá sumum áhrifamönnum í
flokknum. Maður prísar sig bara sælan og
þakkar almættinu seint og snemma fyrir
mannréttindin.
Hreint það voðalegasta sem hent getur í
nokkru ríki er að til valda komist stór og
sterkur flokkur með mikilhæfan leiðtoga.
Það ætti nú að vera orðið nokkuð ljóst af
því sem á undan er gengið í mannkynssög-
unni. Og þótt karpið sé oft og einatt hrút-
leiðinlegt og forheimskandi ættum við að
blessa það í bak og fyrir. Blessað lýðræðið,
segi ég nú bara.
En það er náttúrlega ekki sama hvernig
að því er staðið. Sumir halda því fram að
lýðræði og þingræði á Íslandi séu lítið ann-
að en orðin tóm. Fólkið í landinu geti aldrei
valið sér menn og konur sem það treysti til
að skapa heilbrigt samfélag, heldur sé okk-
ur gert að velja á milli flokka. Og ekki tek-
ur betra við þegar að þingræðinu kemur.
Þeir munu fleiri sem færa ansi sterk rök
fyrir því að þingræðið sé ekki annað en inn-
antómt orðskrípi. Það stafi af þeirri ein-
földu ástæðu að um leið og ákveðnir flokkar
hafi myndað ríkisstjórn, sé hollustan við
flokksstjórnina svo mikil að það séu nánast
talin drottinssvik að styðja ekki stjórn-
arfrumvörp. Viðkomandi þingmanni sé hót-
að öllu illu hafi hann aðra skoðun á tilteknu
máli, hann úthrópaður og beittur alls konar
þvingunum. Enda mun það afar fátítt að
stjórnarliðar felli frumvörp úr eigin ranni.
Þeir viti fullvel að þeim eru afarkostir sett-
ir. Brottrekstur, útskúfun, öllum dyrum
skellt. Því geti sterkir stjórnarherrar kom-
ið fram hvaða geðþóttaákvörðunum sem er
án þess að spyrja kóng eða prest, að maður
tali nú ekki um þjóðina. Allra verst er þó að
almenningur virðist hálft í hvoru telja þetta
fyrirkomulag gott og gilt. Sífellt glymur í
eyrum úr öllum áttum að Stjórnin þurfi að
geta treyst sínu fólki til að greiða frum-
vörpum hennar atkvæði sitt annars sé
óhugsandi að koma nokkru þjóðþrifamáli í
gegn.
Mér er ekki grunlaust um að þeir þing-
menn sem dirfast að viðra efasemdir sínar
opinberlega séu beittir lymskufullum
brögðum til auðsveipni. Þeir stimplaðir
sem ólíkindatól sem alltaf séu á móti öllu,
og þá einkum og sér í lagi miklum nauð-
synjamálum. Þeir séu athyglissjúkir og
noti hvert tækifæri til að auglýsa sig. Þeir
séu lýðskrumarar af ómerkilegustu sort,
elti hvaðeina sem þeir telji að muni afla sér
vinsælda og atkvæða hjá almenningi. Eða
þá að viðkomandi sé á leið í formannsslag á
næsta flokksþingi. Og ef allt um þrýtur er
hægt að koma því lipurlega í umferð að
hann sé nú ekki alveg heill til höfuðsins,
blessaður, eða í öllu falli svo óforbetr-
anlegur sérvitringur að ekki sé hægt að
notast við hann í sæmilega siðuðu komp-
aníi. Lesist: Ekki marktækur.
Ég hef hins vegar alltaf borið djúpa virð-
ingu fyrir fólki sem stenst slíkan ofurþrýst-
ing. Mikið held ég að það yrði lýðræðinu til
framdráttar ef menn áttuðu sig á því að það
er lítill munur á flokkum en mikill munur á
fólki. Og við þurfum sárlega á hugrökkum
fulltrúum að halda. Mönnum og konum
sem hafa kjark og heilindi til að standa fast
við hugsjónir sínar og sannfæringu, eink-
um þegar þær hugsjónir eiga undir högg að
sækja og sannfæringin gengur gegn meg-
instraumnum.
Undanfarin ár hafa verið gerðar margar
ágætar stríðsmyndir sem útmála þann yf-
irgengilega hrylling og mannvonsku sem á
sér stað þegar vítisvélarnar eru komnar í
gang. Það er mikil framför frá því sem áður
var þegar Frank Sinatra og Dean Martin
drukku sig og sungu í gegnum orrusturnar
og stútuðu öllum vondu Þjóðverjunum í
leiðinni.
Í seinni kvikmyndunum, gerðum af viti
bornum mönnum, sjáum við þess hvað eftir
annað dæmi að óbreyttur hermaður eða
undirforingi neitar á úrslitastundu að hlýða
vitfirrtum skipunum yfirmanns síns, jafn-
vel þótt honum sé hótað ærumissi eða líf-
láti. Ég kemst alltaf við þegar ég verð vitni
að þessum hetjuskap á hvíta tjaldinu. Með
neitun sinni eru þessir hugdjörfu menn að
staðfesta mennsku sína. Þeir eru þess alb-
únir að láta líf sitt fremur en það sem þeim
er heilagast, sjálfsvirðingu sína og sam-
visku.
Þetta finnst mér alltaf vera hinar einu
sönnu hetjur. Þeir sem neita að ýta á takk-
ann. Einu gildir hvort sú gjörð sendir af
stað kjarnorkusprengju eða varpar jái upp
á skjá í þingsal. Hvort tveggja getur verið
jafn banvænt. Og ef það er eitthvað sem
getur komið lýðræðinu til bjargar í mold-
viðri áróðurs og undirhyggju þá eru það
slíkir fulltrúar fólksins. Menn og konur
sem halda ró sinni í stóryrðaflaumnum, láta
hvorki undan hótunum né gylliboðum en
halda fast við sannfæringu sína á hverju
sem dynur. Menn og konur með góðan vilja
að vopni. Frjálsir menn og frjálsar konur
sem láta ekki af hendi frumburðarrétt sinn
hvað sem í boði er. Þann rétt að berjast
með ráðum og dáð fyrir því háleita mark-
miði að búa börnum sínum bjarta framtíð í
frjálsu landi.
AÐ ÝTA
Á TAKKA
RABB
E Y S T E I N N B J Ö R N S S O N
eystb@ismennt.is
STEINUNN SIGURÐARDÓTTIR
SANDEYJAN I
Sigling út sjónarrönd.
Leitin snýst
um litla eyju með langri sandströnd.
Þú ferð endalaust hjá
minnkandi eyjum með stækkandi strönd.
Þinn aflanga skutháa bát með ljós í mastri
ber loksins að eyjarkríli úr eintómum sandi
og kringlótt hafið í kring
liggur að engu landi.
(Hvaðan ert þú þá komin?)
Þú stígur í sandinn – það er ekki í annað að stíga –
hann rennur með öldunni, út
undan iljunum á þér, og það stirnir á rennandi sandinn.
Eftir fáein skref verður fyrir þér flaska án skeytis
á beði af strikum eftir vaðfuglafætur.
Steinunn Sigurðardóttir (f. 1950) á að baki sex ljóðabækur sem eru nú að koma út í
Ljóðasafni hennar (2004).
LESBOK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING LISTIR
2 4 . T Ö L U B L A Ð - 7 9 . Á R G A N G U R | U M S J Ó N Þ R Ö S T U R H E L G A S O N | T H R O S T U R @ M B L . I S
EFNI