Lesbók Morgunblaðsins - 12.06.2004, Síða 11

Lesbók Morgunblaðsins - 12.06.2004, Síða 11
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 12. JÚNÍ 2004 11 Hvað er blýeitrun? SVAR: Blýeitrun stafar af of miklu blýi í líkamanum. Blý er sérlega hættulegt fóstr- um og börnum undir sex ára aldri, en allir sem innbyrða blý í mat eða drykk eða anda að sér blýgufum geta fengið blýeitrun. Í sumum löndum er blýeitrun eitt algengasta heilbrigðisvandamál barna sem rekja má til umhverfisins. Í Bandaríkjunum er talið að þrjár til fjórar milljónir, eða eitt af hverjum sex börnum yngri en sex ára, mælist með of háan styrk blýs í blóði. Blý telst til þungmálma en dæmi um aðra þungmálma eru kvikasilfur og kadmíum. Þungmálmar eyðast ekki úr líkamanum heldur safnast þar fyrir. Svokölluð líf- fræðileg mögnun getur átt sér stað ef blý kemst í umhverfið, til dæmis með úrgangi frá iðnaði. Þá kemst það í lægstu þrep fæðukeðjunnar, til dæmis úr vatni í þör- unga sem síðan eru étnir af smásæjum frumdýrum. Með hverjum skammti af þör- ungum berst smáskammtur af blýi inn í hvert frumdýr og þannig magnast styrkur blýsins í frumdýrum miðað við styrk þess í þörungum. Frumdýrin eru síðan étin af litlum fiskum og þeir svo af stærri fiskum sem geta á endanum lent í maga okkar mannanna. Þannig magnast styrkur blýs eftir því sem ofar dregur í fæðukeðjunni og getur að lokum orðið það mikill að það valdi eitrun í mönnum. Til er fjöldi reglugerða sem takmarka leyfilega notkun blýs og greina frá há- marksskömmtum af því í til dæmis neyslu- vatni, andrúmslofti, matvælum, efnum sem snerta matvæli (svo sem plasti og leir), lyfj- um, úrgangi (til dæmis frá iðnaði og land- búnaði), í fiskeldi, eldsneyti, rafgeymum, rafhlöðum og í leikföngum. Ólíkt mörgum öðrum mengunarefnum finnst blý oft inni á heimilum, til að mynda í málningu, ryki, drykkjarvatni og ílátum úr keramiki og kristalgleri. Enn fremur finnst blý í sumum hlutum sem tengjast tóm- stundaiðju, svo sem lóðum sem notuð eru við stangveiði, í snyrtivörum og jafnvel „heilsufæði“ og leikföngum. Í gömlum hús- um, sem voru máluð áður en reglugerðir um leyfilegt magns blýs voru settar, er hætta á að blý sé í málningu. Samkvæmt reglugerðum frá umhverf- isráðuneytinu er skylda að hafa nákvæmt eftirlit með blýmagni í öllum þeim fyr- irbærum sem talin voru upp hér að ofan. Dæmi um mikilvægi slíks eftirlits er frá síð- astliðnu sumri þegar í ljós kom að flæði blýs úr glerungi nokkurra leiríláta sem flutt voru til Svíþjóðar frá grísku eyjunum Krít og Samos var alltof mikið. Vitað er um eitt tilfelli blýeitrunar í kjölfarið. Mikilvægt er að nota ekki slík ílát undir matvæli nema þau séu sérstaklega til þess gerð og hafi fengið samþykki til slíks brúks. Einkenni blýeitrunar eru margvísleg og fara nokkuð eftir því á hversu háu stigi eitrunin er. Helstu einkennin eru skjálfti, kippir, krampar, vöðvaeymsli, þreyta, mátt- leysi, sársauki í liðum og skortur á samhæf- ingu. Truflanir á sjónskynjun geta orðið eftir blýeitrun og breytingar á meltingarkerfinu geta verið ýmiss konar, til dæmi lystarleysi, þyngdartap, hægðatregða, flökurleiki, upp- köst og kviðverkir. Helsta einkenni eitrunar á blóðrásarkerfið er hár blóðþrýstingur. Áhrif á taugakerfið koma fram sem pirr- ingur, ofskynjanir, skortur á fram- kvæmdagleði, lítill samstarfsvilji, höf- uðverkur, svefntruflanir, ruglingur og jafnvel dauðadá. Stórir skammtar af blýi í blóði barns geta valdið heilaskaða, hegðunarvandamálum, blóðleysi, lifrar- og nýrnaskemmdum, þroskaseinkun eða þroskaheftingu, og öðr- um líkamlegum og andlegum vandamálum. Í versta falli getur það leitt til dauða. Blýeitrun er greind með því að mæla styrk blýs í blóði. Meðferð við henni fer eft- ir því hversu alvarleg eitrunin er. Ef um væga eitrun er að ræða getur nægt að huga að orsökunum og fjarlægja eða forðast upp- sprettu blýsins. Til dæmis að þurrka vel af með blautum klút til þess að draga úr ryki. Hollt og gott mataræði getur hjálpað til og mikilvægt er að líkaminn fái nægt járn og kalsíum. Í sumum tilfellum getur lyfjagjöf reynst nauðsynleg til þess að draga úr eitr- unaráhrifunum og sé eitrunin á mjög háu stigi getur viðkomandi þurft á sjúkra- húsmeðferð að halda. Að lokum má geta þess að það er algeng- ur misskilningur að hægt sé að fá blýeitrun ef maður stingur sig á blýanti. „Blýið“ í blýantinum er ekki blý heldur grafít sem er eitt form kolefnis. Þuríður Þorbjarnardóttir líffræðingur. HVAÐ ER BLÝEITRUN? Hvað merkir mangari í orðinu hórumangari, get- ur krabbamein borist frá móður til fósturs, hvað er ítrun Newtons og af hverju dregur Skuggahverfi nafn sitt? Þessum spurningum og fjölmörgum öðrum hefur verið svarað að undanförnu á Vísindavefnum og hægt er að lesa svörin á slóðinni www.visindavef- ur.hi.is. VÍSINDI Morgunblaðið/Einar Falur „Það er misskilningur að hægt sé að fá blýeitrun ef maður stingur sig á blýanti.“ „Í blýantinum er ekki blý heldur grafít sem er eitt form kolefnis.“ Myndin er af blýöntum Halldórs Laxness. 1903 SVO AÐ RATA MÁ EFTIR „Landmælingadeild herfor- ingjaráðsins danska, er verið hefur hér við mælingar að undanförnu, hefur nú gefið út nýjan uppdrátt af Reykja- víkurbæ, nákvæman og vandaðan að öllum frágangi,“ sagði Þjóðólfur 12. júní 1903. „Er uppdráttur þessi sniðinn eftir því sem upp- drættir tíðkast af bæjum erlendis með götum og götunöfnum öllum svo að rata má eftir, en helstu byggingar merktar tölum svo að finna má þær á augabragði á uppdrættinum eftir til- vísun á sama blaðinu. Landslag allt er og greinilega sýnt innan frá Rauðará og vestur í Kaplaskjól, en til suðurs að Öskjuhlíð.“ 1912 UPPGÖTVAÐI FLUGVÉLINA Sagt var frá því í Ísafold 12. júní 1912 að Wilbur Wright, „uppgötvari flugvélarinnar,“ væri látinn. „Þeir voru tveir bræður, hann og Orville Wright, er tóku að iðka loftrenning árið 1900 við Kitty Hawk í Nord Carolina. Þeir höfðu rennitæki og mótor í og 17. desember heppn- aðist þeim fyrsta flugið. Með sífelldum fram- förum og umbótum á flugtækjunum tókst þeim loks árið 1905 að fljúga 40 km á 40 mín. og á gamlársdag 1908 flaug Wilbur Wright lát- laust 2 klst. og 21 mín. Það var frammistaða sem allur heimurinn dáðist að.“ Þess má geta að fyrst var flogið hér á landi haustið 1919. 1924 LEIKANDI LIPURÐ Í Alþýðublaðinu 12. júní 1924 var sagt frá því að Sigurður Kristófer Pétursson rithöf- undur, sem hafði verið sjúk- lingur á Laugarnesspítala í aldarfjórðung, hefði flutt erindi um Appolón- íus, samtímamann Krists. „Erindið var mjög fróðlegt en málið svo gott að fáir eða engir munu eftir leika. Fór þar saman ágæt röð orða, setningaskipun, hreinleiki máls og leik- andi lipurð. Kristófer meiðir ekki áheyrendur sína með bögumælum eða slettum. Hann kann að nota samtengingar. Hann er ekki að japla á þegar að, sem að að og ef að að, eins og nú er að verða tíska ræðumanna.“ Þetta sama ár gaf Sigurður Kristófer út bókina Hrynjandi ís- lenskrar tungu, verk sem var á fimmta hundr- að síður. Hann lést ári síðar, aðeins rúmlega fertugur. 1938 BROSINU FÁTÆKARI Morgunblaðið sagði frá því 12. júní 1938 að Haraldur Á. Sigurðsson gamanleikari væri alfluttur frá Reykjavík og hefði hafið búskap í Skorradal. Veturinn áður hafði hann leikið í tveimur leikritum sem höfðu verið sýnd við mikla aðsókn. Aðspurður hvort ekki væri mik- ið upp úr leiklistinni að hafa sagði hann: „Jú, sérstaklega þegar maður gefur vinnuna,“ en hann sagðist vona að Leikfélagið hefði hagnast vel. Hann sagðist verða að leika „til að hafa „motion“ – annars fitna ég um of“. Haraldur sagði að sér leiddist ekki í sveitinni meðan hann hefði veðurfréttirnar og svo væri það kostur að rukkararnir væru ekki að ónáða mann á hverjum degi. Blaðið sagði að við burt- för hans væri eins og Reykjavík væri orðin einu brosinu fátækari. 1941 EINN BLETTUR Í BÆNUM „Á góðviðrisdögum er Arn- arhóll þakinn fólki, sem nýt- ur þess að hafa einn blett í bænum þar sem það getur sest niður á gras og notið veðurblíðunnar, ef það hefur stund aflögu frá önnum dagsins. Arnarhóll er eini staðurinn í bænum þar sem ekki er amast við að menn „gangi á grasinu“ – sannkallaður sælureitur.“ Þessi lýsing var í Morgunblaðinu 12. júní 1941 og sagt að unnið væri að lagfæringum á túninu og hólnum umhverfis Ingólfsstyttuna. „Von- andi sjá bæjarbúar sóma sinn í því að ganga vel um hólinn,“ sagði blaðið. 1958 SÖNGVARI AÐ ATVINNU „Hann hefur haft dæg- urlagasöng sem aðalatvinnu í mörg undanfarin ár og hefur sungið með öllum stærri hljómsveitum landsins.“ Þannig var komist að orði um Hauk Morthens í Alþýðublaðinu 12. júní 1958. Þá voru tólf ár síðan hann kom fyrst fram með hljómsveit. Aðspurður sagði Haukur að tónlistin hefði lítið breyst á þessum árum. „Þá var jitterbug eða tjutt í algleymingi. Nú er það rokkið. En er þetta ekki allt hið sama í eðli sínu? Aðeins breyting á rythma.“ Haukur sagði að áður fyrr hefði allt verið sungið á ensku en „nú þykir sjálfsagt að öll lög sem gefin eru út hér séu með íslenskum texta, þótt þau séu erlend“. 1987 ENDALAUS HÁVAÐI Í grein í Tímanum 12. júní 1987, tæpu ári eftir að út- varpsrekstur var gefinn frjáls, var sagt að nýju stöðv- arnar stunduðu það „í það óendanlega að fullnægja einungis þeirri þörf fyrir endalausan hávaða sem forsvarsmenn þeirra standa í þeirri trú að þjóðin sækist eft- ir“. Greinarhöfundur taldi það framar öllu skyldu fjölmiðla „að hlaupa ekki endalaust eft- ir lægstu hvötunum í mannseðlinu“ og benti á að hljóðvarp væri kjörinn vettvangur fyrir flutning á vandaðri leiklist og hvers konar bókmenntaverkum. T ÍÐARANDINN Á TUTTUGUSTU ÖLD Í Alþýðublaðinu 12. júní 1964, fyrir fjörutíu árum, var frásögn Þorsteins Eggertssonar af blaða- mannafundi með Bítlunum í Kaupmannahöfn skömmu áður. John Lennon sagði þar: „Við þökkum auðvitað öllum okkar velunnurum frá Íslandi fyrir að kaupa plöturnar okkar og allt það, þú veist, og við reynum að koma til Íslands eins fljótt og við getum.“ Ringo Starr kom til landsins í ágúst 1984 og Paul McCartney í júlí 2000, en hinir tveir aldrei. Í lok fundarins rétti Þorsteinn Paul teikningu af hljómsveitarmönnunum fjórum og bað hann að skrifa kveðju til íslenskra aðdáenda, sem hér sést. MEÐ KVEÐJU FRÁ BÍTLUNUM J Ó N A S R A G N A R S S O N T Ó K S A M A N

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.