Lesbók Morgunblaðsins - 19.06.2004, Blaðsíða 16
16 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 19. JÚNÍ 2004
FANTASY Island, sýning átta innlendra og
erlendra listamanna, verður opnuð í Hall-
ormsstaðarskógi og á Eiðum í dag.
Hannes Lárusson sýningarstjóri sagði í
samtali við Morgunblaðið að upphaflega
markmiðið með sýningunni hafi verið að fá
fólk til að vinna frumleg og ný verk út frá að-
stæðum á sýningarstað. „Það hefur tekist og
allir eru með ný verk,“ sagði Hannes, þar
sem hann var staddur á Eiðum að fylgjast
með lokafrágangi verks þeirra Paul McCart-
hys og Jason Rhoades, Macy’s, sem er end-
urgerð verslunarmiðstöðvar í Los Angeles.
Aðrir sýnendur eru Björn Roth, Elin Wik-
ström, Atelier von Lieshout, Katrín Sigurð-
ardóttir, Þorvaldur Þorsteinsson og Hannes.
Sterk sýning
„Flestir eru að vinna í sínum anda og þetta
er framhald af öðrum verkum og ferli
manna. Ég sé ekki hjá neinum að menn séu
að taka mjög stór stökk. Flestir hafa unnið
umfangsmikil verk, ekki endilega stór efn-
islega heldur í hugmyndafræðilegum skiln-
ingi. Macy’s eftir þá McCarthy og Rhoades er
þó stórt verk efnislega og óvanalega stórt,
ekki bara á íslenskan mælikvarða heldur
þætti þetta stórt verk hvar sem er og marg-
brotið og ekki hrist fram úr erminni neins
staðar að gera svona verk.
Ég held að niðurstaðan sé að verkin á sýn-
ingunni spanni mjög vítt svið, bæði hvað
snertir tækni og hugmyndafræðilega séð. Við
nánari skoðun tel ég að menn finni í þessu
mjög mikið af þáttum sem hafa einkennt
myndlist síðustu fimmtán ára. Verkin eru
flest unnin út frá forsendum sem eru í gangi
núna í myndlistinni.“
Hannes segir að Fantasy Island sé sterk
sýning í hvaða samhengi sem er. „Á listræn-
um forsendum hygg ég að mörg verk sem
hér eru eigi eftir að verða talin eftirtekt-
arverð og með betri verkum sem hafa verið
gerð á listasviðinu á Íslandi þetta árið.“
Það eru Skógrækt ríkisins á Hallormsstað,
Gunnarsstofnun á Skriðuklaustri og Hannes
Lárusson sem standa að sýningunni. Hekla
Dögg Jónsdóttir er framkvæmdastjóri.
Dorrit Moussaieff forsetafrú opnar sýn-
inguna kl. 13 í Hallormsstað, en verkin munu
standa í skóginum til 1. október og Macy’s á
Eiðum hugsanlega lengur.
Átta listamenn á sýningunni Fantasy Island sem opnuð verður á Eiðum og Hallormsstað um helgina
Spanna vítt svið tæknilega
og hugmyndafræðilega
Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir
Lokið við Macy’s á Eiðum: Lokahönd lögð á endurgerð hluta verslunarmiðstöðvar í Los Angeles.
Macy’s eftir Paul McCarthy og Jason Rhoades er eitt verkanna á Fantasy Island.
Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir
„Stór og sterk sýning“: Hannes Lárusson,
sýningarstjóri Fantasy Island.
HELGIDÓMUR hefur yfirtekið Ásmundarsalinn íListasafni ASÍ. Þegar upp er komið tekur ólgandihjartsláttur á móti manni. Lítil vera með blá augugægist ofan af vegg. Og niður úr háu loftinu hanga
marglituð efni, perlufesti og hattur, sem í raun er brúða.
Þær Guðrún Vera Hjartardóttir, Helga Óskarsdóttir og
Ingibjörg Magnadóttir, myndlistarmennirnir þrír sem eiga
heiðurinn að sýningunni Helgidómur sem opnaði í Listasafni
ASÍ síðasta laugardag, vinna allar með hið sérstaka rými
þar hver á sinn hátt. Langa brúðan hennar Ingibjargar, sem
kölluð er Dýrgripur, undirstrikar lofthæðina í salnum, verur
Guðrúnar Veru á veggjunum kallast á hvor úr sínum enda
salarins og hjartsláttur Helgu – hennar eigin hjartsláttur –
líður yfir salinn og rammar hann inn.
Sýningin er síðari hluti samstarfs sem hófst í byrjun
þessa árs í Skaftfelli á Seyðisfirði. Þá unnu þær þrjár sýn-
ingu undir heitinu Ávöxtur myrkursins. Nú er yfirskriftin
Helgidómur.
„Hjartslátturinn er mín túlkun á helgidómnum sem var
yfirskriftin sem við settum okkur að vinna út frá. Við tákn-
um kærleikann með hjarta og hjartslátturinn er taktur lífs-
ins,“ segir Helga Óskarsdóttir um verkið sitt, Hjartslátt.
Hún hefur líka gert veggverk úr glitrandi steinum, Klasa
kallar hún þau. „Klasarnir eru birta sem breytist eftir því
hvar þú stendur í salnum. Ljós og birta tengjast minni til-
finningu fyrir helgidóm, þetta er hrein fegurð. Sumir sjá
stjörnubjartan himin eða alheiminn en aðrir sjá eitthvað allt
annað,“ segir hún og bætir við: „Það er svo mismunandi
hvað ólíkir einstaklingar sjá.“
Úrvinnsla kvennanna þriggja sem standa að sýningunni á
hugtakinu helgidómi er líka ólík. „Þegar ég hugsaði um
helgidóminn fór ég að byggja upp á við. Það var útfrá þess-
um hefðbundnu fjarstæðukenndu hugmyndum um að himna-
ríki sé uppi og helvíti niðri. Þannig urðu þessir stöplar til,“
segir Guðrún Vera um verkið Frummyndun, sem er í
miðjum salnum. Hún segir manneskjuna fyrst og fremst
vera sitt áhugasvið. „Það fyrsta sem kom til mín þegar við
fórum að hugsa um þetta þema sem við höfðum ákveðið,
Helgidóminn, var þessi vera,“ segir hún og bendir á litla
veru, sem liggur á bakinu á veggstalli innst í salnum. „Af
hverju liggur hún svona? hugsaði ég. Þetta er nánast eins og
fórnaraltari. En ég treysti þeirri hugmynd sem ég fékk.“
Verurnar bera heitin Augu I og Augu II, enda eru augu
þeirra afar áberandi, stara blá og ögn blóðhlaupin á sýning-
argesti. „Dýr eru með rauðari augu en mannfólk og þess
vegna hef ég augun í verunum svona,“ segir Guðrún Vera.
„Það er meira blóð í augum dýranna og eðlislægt sakleysi
þeirra gerir það að verkum að þau hafa samúð fólks.“
Ingibjörg Magnadóttir á verkin Dýrgrip, Djásn og My
own monkey business á sýningunni. Hún segir sér ekki láta
vel að vinna útfrá þema, enda hafi verkin hennar í Helgi-
dómi orðið til nánast af sjálfu sér. „Ég vinn ekki mjög vits-
munalega í myndlist. Ég fæ nóg af því í lífinu sjálfu,“ segir
hún og hlær. En útfrá hverju vinnur hún þá? „Ég vinn með
rýmið. Dreg fram boga í vegg, lofthæð, glugga, leyfi verk-
unum bara að verða til. Ég reyni að spá sem minnst í það
hvort verkið sé fallegt eða fyndið eða ógáfulegt. Fyrir mér
er listin sjálf helsti helgidómurinn.“
Sýningin stendur til 4. júlí. Hún er opin alla daga nema
mánudaga frá kl. 13–17.
Helga Óskarsdóttir, Guðrún Vera Hjartardóttir og Ingibjörg Magnadóttir.
Morgunblaðið/Sverrir
Helgidómur er yfirskrift sýningarinnar sem nú stendur yfir í
Ásmundarsalnum í Listasafni ASÍ.
Morgunblaðið/Sverrir
Lítil vera með blá augu gægist ofan af vegg.
UNNIÐ MEÐ RÝMI
Morgunblaðið/ÞÖK