Lesbók Morgunblaðsins - 03.07.2004, Blaðsíða 6

Lesbók Morgunblaðsins - 03.07.2004, Blaðsíða 6
6 | Lesbók Morgunblaðsins ˜ 3. júlí 2004 Þ að vekur vissulega sérkennilegar kenndir að sjá verk Francesco Clemente á Kjarvalsstöðum. Verkin á sýningunni eru ný, en þó er eitthvað í þeim er minnir fremur á liðna tíð, einhver sér- stakur andblær er fær hugann til að reika aft- ur til áranna er ég kynntist verkum hans fyrst. Kannski ekki að undra, því að það var ást við fyrstu sýn. Þarna var svífandi tvíkynja líkami, með sposkt bros á vör, í andliti manns sem síð- ar átti eftir að koma í ljós að var Clemente sjálfur. Það var engin leið að losna við þennan líkama úr huganum, hann var einhvern veginn allt öðruvísi en mér hafði verið kennt að gera lík- ama fram að þessu og þetta frjálsa svif hans innan um óræðar táknmyndir opnuðu fyrir mér heim fullan af möguleikum. Ég var barn í málaradeildinni, saklaust barn í heimi listarinnar þar sem mér var kennt með stílbrögðum og háspekilegri tækni hvernig ég gæti búið til mynd af heiminum. En það var þessi líkami sem kom þarna svífandi sem koll- varpaði öllum mínum hugmyndum um hvað væri gott og hvað væri gerlegt í málverki. Fram að þessu höfðu stóru fyrirmyndirnar verið einhverjir eftirstríðsárakarlar ásamt kannski handfylli af fyrirstríðsárakörlum. Þetta er „Málverkið“ sögðu kennararnir og við reyndum eftir mætti að líkja eftir því. En svo var það þessi nakti líkami sem kom þarna og hrærði ekki bara upp í sálartetrinu, heldur hreyfði hann við líkamanum með þeim hætti að maður fór að líta á sjálfan sig í samhengi við umhverfið. Grunur fór á kreik um að mál- verkið væri eitthvað allt annað og meira en þessir stóru karlar í bókunum. Á bókasafninu voru ekki til nema stórir doðrantar um helstu hetjur nútímalistarinnar, ekkert blóð og enginn andi, aðeins dauðar fyr- irmyndir. En þarna voru líka splunkuný tíma- rit með litlum fjölföldunum verka sem við féll- um fyrir. Við rýndum í þessar fersku myndir, fullar af lífi og hamingju, skálduðum í litleysið og eyðurnar, fundum að nú var eitthvað komið á hreyfingu. Sá andi sem þegar var í loftinu fékk ræki- lega staðfestingu þegar til okkar læddist lítið kver La Transavangardia Italiana sem hið áhrifamikla listtímarit Flash Art gaf út árið 1980. Þetta kver átti eftir að fara nokkuð al- varlega úr límingunni í meðförum okkar næstu misserin og hlotnaðist sá vafasami heið- ur að verða ein kámugasta eignin í gjörvallri sögu bókasafnsins. Á þessum tíma var ritið á sigurgöngu sinni um heiminn, en þar fjallar listfræðingurinn Achille Bonito-Oliva um verk nokkurra ítalskra málara er farnir voru að mála myndir með nokkuð öðrum hætti en áður hafði sést. Í kverinu kom fram skýr afstaða höfnunar gagnvart þeim viðhorfum er verið höfðu ríkjandi í listheiminum nokkur árin þar á undan, en þau einkenndust að miklu leyti af hugmyndafræði naumhyggju og hug- myndalistar. Í eyrum okkar hljómaði þetta líkt og fagnaðarerindið. Við gátum ekki verið meira sammála í einfaldri sannfæringu um virka hlutdeild okkar í þessum hræringum. Það rann upp fyrir okkur ljós og við fylltumst fullvissu um að málverkið væri miklu meira en lifandi. Nú var runninn upp stund Nýja mál- verksins. Sama ár og bókin um Ítölsku Transavang- ardíuna kom út sýndi Clemente á Fen- eyjatvíæringnum í fyrsta sinn, þar vöktu verk hans óskipta athygli og umtal í kjölfarið. Á svipstundu urðu verk hans eitthvert áhrifarík- asta innleggið til endurkomu málverksins við upphaf 9. áratugarins, ásamt því sem andi Nýja málverksins varð brátt að alþjóðlegri hreyfingu. Beggja vegna Atlantsála hófu menn að mála af miklum krafti og fljótlega þróuðust hreyfingar eins og Ný Expression- ismi í Þýskalandi, La Movida á Spáni ásamt Bad Painting og Tag í Bandaríkjunum. Lands- lagið í listheiminum gerbreyttist á skömmum tíma og alls staðar voru vöruskemmur og háa- loft undirlögð málverkum. Hámarki náðu þessar hræringar með sýningunum A New Spirit in Painting í Lundúnum árið 1981, ásamt Zeitgeist í Berlín og Documenta VII í Kassel árið 1982. Það sem var að gerast hér á landi var því aðeins einn angi alþjóðlegrar bylgju og á Íslandi náði hún hámarki með sýn- ingunni Gullströndin andar í Reykjavík árið 1983. En endurlífgun málverksins á tímum Nýja málverksins fólst ekki í viðreisn klassískra gilda, heldur í pönkaðri óþægð „Hrynjandi ný- bygginga“ og „Kyrkjara“, þar sem pólitískri þröngsýni og listrænni afturhaldssemi var storkað í hvívetna. Aðferð Nýja málverksins fólst meðal annars í úðabrúsanum og und- irlagsleysinu; rammar voru sprengdir og „réttri“ efnisnotkun var gefið langt nef, vinnu- brögðin urðu frjálsleg þar sem taumlaus gleði og stjórnleysi réðu ríkjum. Og þrátt fyrir ramakvein akademíunnar um vanvirðu og glataða þekkingu, verður ekki fram hjá því lit- ið hversu mikilvægt innlegg í þróun málara- listarinnar þessar andhugmyndir voru. Með þeim komu fram á sjónarsviðið viðhorf sem haft hafa mótandi áhrif á hugmyndir okkar um málverkið. Eitt merkasta innleggið til þessara viðhorfs- breytinga birtist í verkum hinnar Ítölsku Transavangardíu, en innan hennar teljast áhrifamiklir listamenn eins og Enzo Cucchi, Sandro Chia og Mimmo Paladino, þó að Clem- ente verði að teljist þeirra eftirtektarverð- astur. Ekki er að því hlaupið að líkja þessari „Handanframvarðarsveit“ við hefðbundnar liststefnur, til þess eru listamennirnir sem við hana eru kenndir of margslungnir og ólíkir innbyrðis. Innan verka þeirra má þó greina sameiginleg einkenni er lýsa sér í frjálsum leik tenginga og óvæntri samþættingu stílbragða frá ólíkum tímabilum listasögunnar. Í verkum sínum leita þeir jöfnum höndum til hálistar sem láglistar, jafnt til goðsögulegra mynd- verka fornaldar sem ímyndasmíði samtímans. Myndgerð þeirra er margbrotin og sund- urlaus; þar sem frjálslegar vísanir til óhlut- bundinnar og fígúratífrar myndlistar renna saman í fullkominni stílbökun og smekkleysi. Eftirgerð og klastur er tekið fram yfir fágun og frumleika, ásamt því að tilviljunarkennd tengsl ímynda og hugmynda eru vegsömuð, frammi fyrir ríkjandi kröfu um heild, hrein- leika, jafnvægi og rökvísi. Þannig tengjast ákveðin grunnstef Transav- angardíunnar þeim póstmódernísku hrær- ingum er fram komu á sjónarsviðið við upphaf 9. áratugarins. Og án þess að mikið hafi verið um það fjallað, má þar finna sterka samsvörun við ýmis viðhorf er þá voru að ryðja sér rúms innan heimspeki og bókmenntafræði; sér- staklega hvað varðar hugmyndir um fjöl- hyggju, leik og afbyggingu, en ekki síður í um- ræðunni um endimörk sögunnar og dauða höfundarins. En það var einmitt í þessu frjálsa falli sögunnar sem málverkið tók flugið; það var ekki lengur niðurnjörvað og skilyrt, heldur uppfullt af möguleikum sinnar nýju og brota- kenndu tilveru. Í verkum Clemente birtust þessar umbreyt- ingar m.a. í sjálfsmyndum hans, en allt frá upphafi hefur óþrjótandi speglun hans í sjálfs- myndinni verið einkennandi fyrir feril hans. Í þeim er hann stöðugt að uppgötva sjálfan sig í heimi sífelldra endurfæðinga, að því er virðist á mörkum nýrrar vitundar um sjálfið og um- hverfi sitt. Í þeim ferðast hann um svæði þar sem mörk hins innra og ytra skarast; um lend- ur goðmagna þar sem líkamlegar jafnt sem andlegar upplifanir tengdar kynnautn og sál- arförum eru allsráðandi. Líkaminn kallast á við sitt nánasta umhverfi jafnt sem him- intunglin og tengist þannig sjálfinu sem end- urómi þess í kenningum um uppruna, eðli og þróun alheimsins. Heimur hans er án mæra, þar sem andstæður mætast í götunum á húð- inni, jafnt sem holunum í undirvitundinni. Í verkum hans er maðurinn ævinlega í for- grunni; líkami hans er sá staður þar sem ást og ógnir, glettni og alvara renna saman í draumkenndu raunsæi. Í þeim kristallast þekking Clemente á launhelgum ritum vest- rænnar dulspeki sem kynnum hans af aust- rænni heimspeki, í nýjum útleggingum á mannslíkamanum í vestrænni myndlist. Reyndar á Clemente ekki langt að sækja fyrirmyndir dulmagna, myrkurs og upprisu, Holur í undirvitundinni Á Kjarvalsstöðum í Reykjavík stendur nú yfir sýning á nýjum verkum eftir ítalska mynd- listarmanninn Francesco Clemente. Í þessari grein rifjar höfundur upp kynni sín af verk- um hans og lífshlaupi, meðal annars er fjallað um þátt Clementes í endurkomu málverksins á níunda áratugnum. Eftir Einar Garibalda Eiríksson einar.garibaldi @lhi.is Spádómur og Jörð Tvær af myndum Clemente á sýningu hans á nýjum verkum á Kjarvalsstöðum.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.