Lesbók Morgunblaðsins - 03.07.2004, Blaðsíða 9

Lesbók Morgunblaðsins - 03.07.2004, Blaðsíða 9
Lesbók Morgunblaðsins ˜ 3. júlí 2004 | 9 ur en þeir rákust á Spector lék aldrei neinn vafi á því hver var stjarnan hjá Philles – Phil Spector sjálfur. Oftar en ekki vissi listafólkið sjálft ekki undir hvers nafni af- urðin sem það var að syngja inn á yrði gefin út; Ronettes voru Crystals sem voru aftur oftast bara hin frábæra söngkona (og stundum leikkona – hún lék í „Lethal Weapon“-myndunum öll- um) Darlene Love, studd af einhverjum þeim stelpukrökkum er kunnu að vera í hljóðverinu á þeim tíma. Cher, sem þá var kærasta Sonnys heitins Bonos (einn af læri- sveinum Spectors á þessum árum – andi Spectors svífur létt yfir vötnum í lagi Sonnys og Cher „I Got You Babe“), söng t.a.m. undir á plötum með bæði Ronettes og Crystals. „Be My Baby“ (1963) í flutningi the Ronettes verður óneit- anlega að öðrum ólöstuðum að teljast rósin í hnappagati Spect- ors. Auk þess að skarta einu eftirminnilegasta en einfaldasta bassatrommu/snerils-intrói í manna minnum nýtur „hljóðmúr“ kappans sín þar til hins ýtrasta undir nánast yfirnáttúrulegum söng hinnar (ennþá) kynngimögnuðu Ronnie Spector, sem jú gekk í stutt, stormasamt og æði sögulegt hjónaband með sjálfum meistaranum. Af dæmigerðri og makalaust yfirlætisfullri hógværð sagðist Spector alltaf bara vera að framleiða „litlar sinfóníur fyrir litla krakka“ og er sagður hafa verið undir sterkum áhrifum frá klassíska þungamiðjutónskáldinu Wagner. Ansi skrýtin skapgerð Spectors og sérviska – sumir segja geð- veila – er næstum jafnannáluð og öll þessi einstaka tónlist hans. Eftir að „River Deep – Mountain High“, mjög svo sérstætt sam- starf hans við Ike og Tinu Turner, náði ekki að heilla amerískan almenning árið 1966 dró meistarinn sig að mestu í hlé og hefur sjaldan til hans sést eða heyrst síðustu 35 árin. Hann hefur þó stundum farið inn í stúdíó með jafnólíkum listamönnum og John Lennon, Ramones og Leonard Cohen. Undantekningarlítið hefur ógrynni undarlegra sögusagna af þessu samstarfi öllu gengið og gerir auðvitað ekki annað en auka á leyndardómsfullt andrúmsloftið er fylgir manninum og, vissu- lega, goðsögninni. il Nylons Shangri-Las var rekin af Jerry Leiber og Mike Stoller, sem enn í dag eru auðvitað langþekktastir fyrir að hafa samið ógrynni af óviðjafn- anlegu efni er Elvis Presley gerði ódauðlegt. N ylon er fyrsta stelpuhljómsveit Íslands og virðist, eins og aðrar slíkar sveitir, sett sam- an með markaðsleg sjónarmið í huga. Stúlknasveitin Nylon var búin til eftir áheyrnarprufur snemma í mars á þessu ári, sem á annað hundrað stelpur mættu í. Fjórar stúlkur á aldrinum 18–20 ára skipa hljómsveitina. Steinunn Þóra Camilla Sigurðardóttir, Klara Ósk Elíasdóttir og Alma Guðmundsdóttir voru valdar í sveitina eftir prufuna. Emilía Björg Óskarsdóttir syngur með Nylon en fór ekki í áheyrnar- prófið. Einar Bárðarson, forsvarsmaður fyrirtækisins Concert og stofnandi sveitarinnar, uppgötvaði hana á æfingu fyrir söngleikinn Lifi rokkið, sem settur var upp í Fjölbrautaskól- anum í Breiðholti. Aðdragandinn Allar stelpurnar eiga það sameiginlegt að hafa tekið þátt í söngleikjum í framhaldsskólum. Alma var í Litlu hryllingsbúð- inni í uppsetningu Fjölbrautaskólans í Garða- bæ og Klara og Steinunn í Sólsting, sem Verzl- unarskóli Íslands setti upp. Til viðbótar komst Steinunn í 32 manna úrslit í Idol-Stjörnuleit í vetur. Eftir prufurnar gerðust hlutirnir hratt hjá Nylon. Stífar æf- ingar tóku við, raddþjálfun hjá Friðriki Ómari Hjörleifssyni og upptökur hjá Hafþóri Guðmundssyni. Einnig var strax tek- ið upp myndband við fyrsta lag sveitarinnar, „Lög unga fólks- ins“, en það var upphaflega flutt af Unun. Nylon er ekkert bílskúrsband heldur fer í gegnum vel smurða markaðsmaskínu sem þekkir lögmál tónlistariðnaðar- ins íslenska til hins ýtrasta. Formleg kynning Eftirvæntingin eftir Nylon byggðist jafnt og þétt upp og voru stelpurnar formlega kynntar í fjölmiðlum miðvikudaginn 7. apríl, aðeins um mánuði eftir áheyrnarprufurnar. Tilkynnt var um stofnun hljómsveitarinnar í fréttatímum Sjónvarpsins, Stöðvar 2 og í Morgunblaðinu þennan dag. „Myndband með þeim verður og sýnt í Íslandi í dag á Stöð 2 í kvöld, en myndbandið er myndskreyting fyrir fyrsta smell sveitarinnar „Lög unga fólksins“,“ sagði í fréttatilkynningu frá Concert. Athygli vekur að það er ekki talað um fyrsta lag sveitarinnar heldur fyrsta smellinn, áður en nokkur er í raun búinn að heyra lagið. Tilgangurinn frá upphafi er að fá út- varps- og sjónvarpsspilun strax og hreinlega gert ráð fyrir því að þetta tiltæki heppnist. Nú er annað lag frá Nylon komið í útvarpsspilun, Manna- kornslagið „Einhvers staðar einhvern tímann aftur“. Lögin tvö skipuðu í vikunni, sem er að líða efstu sætin yfir mest spiluðu lögin á Tónlist.is auk þess að vera á topp fimm yfir mest sóttu lögin dagana 21.–27. júní. Líka sjónvarpsstjörnur Steinunn, Alma, Emilía og Klara eru líka komnar í sjónvarpið þar sem stjörnur verða til en þátturinn Nylon verður á dag- skrá Skjás eins í allt sumar. „Efni þáttarins er auðvitað byggt á daglegu lífi stelpnanna síðan þær gengu í bandið. Þar er fylgst með þeim glíma við „venjuleg“ vandamál hins daglega lífs í íslenska tónlistarbransanum,“ segir í tilkynningu frá Concert. Nylon er veruleikasjónvarp og áhorfendur fylgjast með stelpunum í návígi. Yngstu aðdáendurnir fylgjast grannt með ef marka má fjölda bloggsíðna tileinkaðra sveitinni, sem sprottið hefur upp að undanförnu. Kryddpíuformúlan Svo árum skiptir hafa hljómsveitir af þessu tagi látið að sér kveða á erlendri grundu. Nafnið Spice Girls þekkja flestir en hljómsveitin fékk m.a.s. þann heiður að hljóta íslenskt nafn, Kryddpíurnar. Bítlarnir eru dæmi um aðra hljómsveit þar sem íslenska nafnið er notað umfram hið enska og sýnir það vægi stúlknasveitarinnar. Upphaf Kryddpíanna er ekki ósvipað og hjá Nylon en saga þeirra hófst með auglýsingu í blaðinu The Stage í London ár- ið 1993. Þar var leitað eftir stúlkum á aldrinum 18–23 ára, sem gætu bæði sungið og dansað, í nýja stelpuhljómsveit. Alls mættu um 400 stelpur í áheyrnarprófin en fyrir valinu urðu Victoria Adams, Melanie Chisholm, Geri Halliwell, Melanie Brown og Michelle Stevenson. Sú síðastnefnda þótti síðar ekki eiga heima í hópnum og gekk Emma Bunton í Kryddpíurnar í hennar stað. Emma líkt og Emilía var því sérvalin í sveitina. Aðdragandinn að fyrsta lagi og tónleikum Kryddpíanna var mun lengri en hjá Nylon. Kryddpíurnar gengust undir stranga þjálfun fyrir heimsfrægðina en allt frá upphafi áttu þær að vera svar kvenkynsins við piltasöngflokknum Take That. Nýr umboðsmaður kom til sögunnar í mars árið 1995, Simon Fuller, sem er þeirra Einar Bárðarson. Ekki leið á löngu þar til þær komust að hjá stóru plötufyrirtæki en í ágúst sama ár var samningur við Virgin Records í höfn. Fyrsta smáskífa þeirra, „Wannabe“, kom út í júlí árið 1996. Hún komst á toppinn í meira en 30 löndum og Kryddpíurnar urðu frægar um allan heim. Breiðskífan Spice fylgdi í kjölfar- ið og komst hún á toppinn í meira en 50 löndum. Þær héldu samt ekki fyrstu tónleikana fyrr en í október árið 1997, en þeir fóru fram í Istanbúl í Tyrklandi. Eins og þekkt er hætti sveitin störfum eftir að gengið dalaði en hugleiðir nú að koma saman á ný. Nylon fylgir sömu formúlunni en allt hefur gerst miklu hraðar hjá stelpunum fjórum en Kryddpíunum. Næsta skref Engin feimni er af hálfu upphafsmanna hljómsveitarinnar við að Nylon er tilbúin hljómsveit. Nafnið gefur það til kynna, þetta er iðnaðarvara. Sem stendur hefur ekkert sérsamið efni frá Nylon verið sett í spilun en bæði lög þeirra eru tökulög og vel þekkt fyrir. Hjálpar það til við að ná eyrum almennings og væntanlegra plötukaupenda. Breiðskífa er í vændum frá stelpunum í haust og verður það raunveruleg prófraun fyrir þær og í ljós kemur hvort nælonið sé ekki örugglega ekta. Morgunblaðið/Ásdís og voru stelpurnar formlega kynntar í fjölmiðlum miðvikudaginn 7. apríl, aðeins um mánuði eftir áheyrnarprufurnar. Tilkynnt var um stofnun hljómsveitarinnar í fréttatímum Sjónvarpsins, Stöðvar 2 og í Morg- n“ frá sveitinni áður en nokkur var í raun búinn að heyra lagið. Tilgangurinn frá upphafi er að fá útvarps- og sjónvarpsspilun strax og hreinlega gert ráð fyrir því að þetta tiltæki heppnist. Ekta gerviefni Nylon er alíslensk stelpuhljómsveit Eftir Ingu Rún Sigurðardóttur ingarun@mbl.is

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.