Íslendingaþættir Tímans - 18.10.1968, Side 4
fiöggorustum við andstæðinga
dra. var hann manna fúsastur til
að viðurkenna þá að leikslokum.
Enginn skrifaði betri eftirmæli en
hann um tvo höfuðandstæðinga
sína um iangt skeið, þá Jón Þor-
láksson og Magnús Guðmundsson.
í hinum mikla styr, sem stóð
um Jónas Jónsson, átti hann höfuð
styirk í heimili sínu, konu og dætr-
um. Þar naut Jónas jafnan um-
Ihyggju og friðar, þótt stoirmar
geisuðu utan veggja. Guðrún Stef
ánsdóttir var glæsileg og stórbrot
in kona, sem var Jónasi það, sem
Bergþóra var Njáli. Hún stóð jafn
an sterk við hlið manns síns og
'brást honum aldrei í umhyggju
sinni. Svo innileg var ást þeirra og
gagnkvæm virðing, að slíks em
áreiðanlega fá dæmi. Ekki var þó
imánna ástríki með Jónaisi og
•dætrum hans, eins og sýndi sig
bezt eftir að Guðrún var fallin frá,
en ljúfari og umhyggjusanaari fað
ir, afa og langafa gat heldur ekki.
Af löngum kynnum mánum við
Jónas er mér eftirminnilegast,
hve fagurt heimilislíf hans var.
Á heimili sínu naut hann hamingju
sem aldrei brást. Án þess hefði
hann ekki náð þeim mikla árangri
sem raun bar vitni um.
Örlögin urðu þau, að leiðir Jón-
asar og Tímans skildu um skeið.
En áður en Jónas féll frá, hafði
þráðurinn tengzt að nýju. Jónas
birti nokkrar greinar í Tímanum á
isáðaistl. vetri. Ég fór til útlanda
snemma í júlí síðastliðnum, en
kvöldið áður heimsótti ég Jónas
að ósk hans. Erindi hans var að
undirbúa viðræður við okkur rit-
stjóra Tímans um greinaflokk,
sem Jónas fyrirhugáði að skrifa
í Tímann um þá stefnu, sem hann
' kenndi við Leif heppna, en þar
átti hann við sambúð fslands og
Bandaríkjanna. Jónas hafði strax
fyrir siðari heimsstyrjöldina hvatt
til nánairi skipta við Bandaríkin og
fyigdi þeirri stefnu eftir það.
Af þvi varð ekki, að Jónas skrif
aði þennan greinaflokk. Hann lézt
hálfum mánuði síðar, án þess að
geta hafið þetta verk að ráði. En
þótt svo færi, voru böndin milli
hains og Tímans treyst að nýju
— bönd, sem raunar voru óshtan-
leg, þvf að við þau er bundin minn-
ingin um hið mikla framfaraskeið,
þegar Jónas og Tíminn settu höf-
uðsvip á íslenzka sögu.
Þ. Þ.
t
Framsóknarflokkuríimn á Jónasi
Jónssyni miklar þakkir að gjalda.
Jónas Jónsson var í reyndinni einn
af aðalstofnendum Framsóknar-
flokksins. Hann var helzti hvata-
maður að blaðaútgáfu flokksins.
Hann átti allra manna stærstan
hlut að sókn flokksins og sigrum
á fyrstu starfsárunum. Hann var
lífið og sálin í öllu flokksstarfi og
átti meiri þátt en nokkur annar í
uppbyggingu flokksins og stefnu-
mótun. Hann var um langt skeið
aðsópsmesti, áhrifaiíkasti og vopn
fimasti baráttumaður flokksins,
hvort heldur var til sóknar eða
varnar, ritaði meira í flokkshlöðin
en nokkur annar maður og var
helzti máísvari Framsóknarmanuna,
bæði á Alþingi og mannfundum
víðs vegar um land
Jónas Jónsson var i aidarfjórð-
ung einn af aðalforingjum Fram-
sóknarmanna. Hann var dóms- og
menntamálaráðherra í fyrstu rikis-
stjórninni, sem mynduð var af
Framsóknarflokknum, og markaði
þá á mörgum sviðum þau spor,
scm enn hefur ekki fennt i. Hann
var formaður flokksins um tíu ára
skeið og gegndi auk þess fjölmörg
um öðrum störfum fyrir flokkinn,
sem hér yrði allt of Iangt mál að
telja upp. Öll sín störf fyrir flokk-
inn vann hann með hugarfari sjálf-
boðaliðans, en hirti lítt um veg-
tyllur eða laun.
Það er ekki ofsagt. að Jónas
Jónsson hafi á sínum tíma verið
andlegur leiðtogi Framsóknar-
manna. Hann kveikti fyrstur mörg
þeirra leiðarljósa sem Framsóknar- /
flokkurinn fylgir og mun fylgja.
Ef nokkur einn maður ætti skilið
að vera nefndur faðir Framsóknar-
flokksins, þá er það Jónas Jónsson.
Jónas Jónsson var alveg óvenju-
legur maður. Hann var gæddur
frábærum gáfum og eindæroa
starfsorku. Hæfileikar hans komu
snemma í ljós. Þegar hann hafði
lokið námi í Gagnfræðaskólanum
á Akureyri, lét Jón A. Hjaltalín,
skólastjóri, þau ummæli um hann
falla, að hann væri sá þyngsti lax,
sem á sína vog hefði komið.
Reynsian hefur sýnt, að þessi dóm-
ur hins skrumiausa skólastjóra var
reistur á traustum grunni. Saga
Jónasar sýnir, að hann var í flest-
um greinum fjarri meðalmennsk-
unni. Hann gat sér góðan orðstír
sem kennari. Hann samdi kennslu-
bækur, sem reynzt hafa óvenjulega
lífseigar. Hann var dáður ung-
mennafélagsleiðtogi. Hann var um
iangt skeið skólastjóri Samvinnu-
skólans og skeleggui málsvari
samvinnufélaganna Ritstörf hans
er* svo mikil, að það er með ólík-
Indum. Hér verður hvorki fjallað
um þessi margháttuðu störf hans
né um stjórnmálastarfsemi hans
almennt. Það verður gert af öðr-
mm, sem þckktu hann betur og
kunnugri eru starfsferli hans. Vita
skuld er og ógerningur að gera
ævisögu Jónasar Jónssonar nokkur
viðhlítandi skil f stuttum blaða-
greinum.
Um Jónas Jónsson sem stjórn-
málamann langar mig aðeins til að
segja þetta: Hann var um langt
skeið einn svipmesti stjórnmála-
maður hér á Iandi. Hann var fiest-
um eða kannske öllum íslenzkum
stjórnmálamönnum frjórri og hug-
myndaríkari. Hann var hugsjóna-
maður og sá margar hugsjónir sín
ar rætast. Hann var eldhugi, en
e. t. v. ekki alltaf að sama skapi
raunsær. Hann var mestur stíl-
snillingur íslenzkra stjórnmáia-
manna á þessari -öld. Á beztu ár-
um sinum var hann boðberi vors
og sólar i íslenzku þjóðlífi.
Jónas Jónsson var skapstor mað-
ur og ráðríkur, syp sem títt er um
mikilhæfa menn. Sjálfsagt hefur
bann stundum verið erfiður í sam-
starfi. Varð og ósætti, eins og
kunnugt er, á milli hans og ann-
arra forystumamia Framsóknar-
flokksins, er ieiddi til þess, að
hann lét af formannsstörfum í
flokknum árið 1944. Eftir það
starfaði hann lítt eða ekki í flokkn
um. Það haggar að sjáifsögðu í
engu við þeirri þakkarskuld. sem
Framsóknarmenn standa í við
Jónas. Hann hefur skráð nafn sitt
óafmáanlega í sögu Framsóknar-
flokksins. Þess minnast aliir Fram-
sóknarmenn, þegar Jónas er kvadd-
ur.
Jónas Jónsson vai umdeildur
maður, eins og flestir þeir, sem
við stjórnmál fást. Á blómaskeiði
ævinnar átti hann sér aðdáendur
umfram aðra menn. En hann átti
sér einnig harðsnúnari andstæð-
inga en venja er og sætti óvægi-
legri árásum en aðrir. Auðvitað
eru dómar manna um Jónas Jóns-
son enn þá litaðir persónulegum
viðliorfum. Sennilega verður hann
fyrst réttilega metinn úr nokkurri
fjarlægð. Er vafalaust, að stjórn-
málastörf og stjórnmálaferill
Jónasar verða síðari tíma fræði-
mönnum verðugt rannsóknarefni.
Nafn Jónasar Jónssonar er ekki
aðeins tengt Framsóknarflokknum.
Það er samofið þjóðarsögunni á
þriðja og fjórða áratug þessarar
aldar. Jónas Jónsson mun lengi lifa
í verkum sínum. Og hjá Framsókn-
arflokknum mun nafn hans aldrei
gleymast.
Ólafur Jóhamicsson.
4
fiSLENDINGAÞÆTTiR