Íslendingaþættir Tímans - 18.10.1968, Síða 7

Íslendingaþættir Tímans - 18.10.1968, Síða 7
t I. Þegar Jónas Jónsson frá Hriflu fyrsti skólastjóri Samvinnuskólans er horfinn af sjónarsviðinu, er eðli legt að leiða hugann að starfi hans við skólann, mótun skólastofnunar- innar í höndum hans. Aldrei er að sjálfsögðu hægt að meta einn þátt í starfi manns án viðmiðunar við aðra þsétti. Sérstaklega á þetta við um Jónas Jónsson, sem kom svo víða við sögu og var meðal áhrifaríkustu manna á íslandi á þessari Öld. Forsendur allra starfa og við- horfa Jónasar Jónssonar voru þær, að hann var í senn einlægur og sannur sonur íslands og m:kill og góður heimsborgari. Hið fyrra birtist í dálæti hans á þingeyskri erfð, fylgi hans við ungmennafé- lagsskapinn og stolti hans af því að vera í hópi aldamótamannanna. Hið síðara kom fram I aðdáun hans á erlendum viðhorfum og al- þjóðlegum, raunsæisstefnu alda- mótanna, vísindastefnu Comtes, frjálslyndum og róttækum stjórn- málaviðhorfum og síðast en ekki sízt samvinnustefnunm. Það /arð hlutskipti Jónasar s Jónssonar í lífinu að helga krafta sína tveim miklum verkefnum og viðfangsefnum: Stjórnmálum og menntamálum. — Stundum falla störfin í einn farveg. Erfitt er að greina á milli stjórnmálamannsins og menntafrömuðarins f annan tíma skilja leiðir og þá gætir ým- ist stjórnmálanna meira eða menntamálanna Starf Jónasar Jónssonar að menntamálum /ar blæbrigðaríkt. Jónasar verður lengi minnzt sem dugmikils menntamálaráðherra. Hann var vinsæll og dáður kennari við Kennaraskóla íslands. Hann var kennslubókarhöfundur sem margar kynslóðir nemenda á ís- landi hafa komizt í kynni við. Jónas gerðist öflugur baráttumað- ur fyrir rýmkun æðri menntunar í landinu, veitti Menntaskólanum á Akureyri rétt til að brautskrá stúdenta og efldi Háskóla íslands á margan máta. Eftirminnilegur verður hlutur Jónasar í byggingu héraðsskóla landsins, þar sem hug- sjón ungmennafélagsskaparins birt ist áþreifanlegast í verki - En traustast og fastast var Jónas Jóns- son samt bundinn Samvinnuskólan- um, sem honum var falið að stofna og hann stýrði og mótaði hátt á fjórða áratug. II. Samvinnuskólinn var óskabarn Jónasar Jónssonar Hann átti sjálf- ur hugmyndina að stofnun skólarf ÍSLENDINGAÞÆTTIR og markaði stefnu og starf mennta stofnunarinnar frá upphafi. Jónas Jónsson lagði ævinlega á það ríka áherzlu, að hlutverk Sam- vinnuskólans ætti að vera tvíþætt. Annars vegar ætti skólinn að veita nemendum sínum mikla þjálfun og mótun félagslega og t menningar- lega, gera þá að hugsandi fólki og vökulu. Hins vegar ætti skólinn að búa nemendur undir margvís- leg viðskiptastörf, sem samvinnu- félögin og samfélagið þyrfti að láta leysa af hendi. Jónas þreyttist aldrei að undirstrika þessar skoð- anir sínar og árétta. Þannig full- yrti Jónas á aðalfundi SÍS árið 1923: „Samvinnuskólinn hefur aldrei verið og getur aldrei orðið verzlunarskóli í líkingu við skóla kaupmanna. Samvinnuskólinn er félagsmálaskóli og ekkert annað, hinn eini hér, sem stefnir að því marki“. — Af því sem nú hefur verið sagt, er Ijóst, að Jónas Jóns- son hugðist með Samvinnuskólan- um skapa og móta^ nýja og sér- stæða gerð skóla á íslandi. — Það er sú hugmynd og forsendur henn- ar, sem ég mun gera að meginefni þessarar minningargreinar um Jónas Jónsson. Fátt er þeim. sem starfar við Samvinnuskólann ríkara í huga, þegar hinn svipmikli per- sónuleiki er horfinn Tvö viðhorf Jónasar Jónssonar, sem snerta Samvinnuskólann, ber að geta um í upphafi þeirrar könn- unar á forsögu skólans, sem stéfnt er að. Jónas Jónsson hefur marg- sinnis fullyrt, að nemendur Sam- vinnuskólans hafi ekki þangað leit að til að tryggja sér launaða at- vinnu að námi loknu. Þeir komu ekki í skólann að búa sig undir ákveðin störf, heldur til að búa sig undir lífið, gera sjálfa sig að hæfari bíóðfélagsþegnum. — Hitt er sú sannfæring Jónasar, að mæli- kvarðinn á árangui Samvinnuskól- ans í mótun nemenda sinna sé sú skynjun nemendanna að skólinn brautskrái þá ekki frá námi held- ur innrlti þá til náms. Mælikvarði árangursins er áframhaldandi sjálfsnám, sem Samvinnuskólinn á að hafa vakið nemendur sina til. — Þessi viðhorf varpa sérstæðu Ijósi yfir forsögu skólans og vísa veg til fjögurra meginþátta. sem hver um sig gæti orðið og mun vafalaust síðar verða að sérstöku rannsóknarefni. Hinir fjórir þættir skýra persónu Jónasar Jónssonar, skoðanir hans á menntamálum og mótun Samvinnuskólans í höndum hans. Jónas Jónsson kynntist ungur að árum lýðháskólunum í Danmörku. Hann hefur sjálfur lýst því, hversu heillandi honum bótti sú hugmynd Grundtvigs að skapa skóla, sem grundvallaðist á þeim anda og áhuga, sem einkennt hafði störf og fræðslu í baðstofunum íslenzku. Við störfin var fróðleiksþráin vak- in og í tengslum við störfin lifði hún og glæddist. Störf og menntun voru ekki aðskilin heldur sam- tvinnuð. — Hitt er ljóst, að sá af lýðháskólunum dönsku, sem Jónas kynntist fyrst og fremst, var lýð- háskólinn í Askov, enda dvaldi hann þar og stundaði nám. — Nú er sérstaða Askov lýðháskólans í því fólgin, að hann er nokkurs kon ar framhaldsdeild eða háskóli lýð- háskólanna. Þangað leita nemend- ur, sem áður hafa sótt aðra lýð- háskóla, og öðlast í Askov fram- haldsmenntun eða fá þar tækifæri til áframhaldandi sjálfsnáms. — Þegar þessa er gætt liggur nærri að álykta, að sú hugsun hafi snemma sótt að Jónasi Jónssyni, að ísland þyrfti líka að eignast skóla, sem væri að bessu leyti hliðstæður Askov.. Ungt og áhuga- samt fólk ætti að eiga kost á fram haldsmenntun eftir að þrá þess hefði verið vakin í héraðsskólum landsins eða öðrum skólum ís- lenzkum, sem kynnu að starfa á líkum grundvelli og lýðháskólarn- ir dönsku. Engum treysti Jónas Jónsson betur til að vilja stuðla að stofnun slíks skóla en íslenzk- um samvinnumönnum Frá Danmörkp lá leið Jónasar Jónssonar á undirbúningsárum til Bretlands Hann gerðist þar nem- andi við skóla brezku verkalýðs- hreyfingarinnar, John Ruskin's College í Oxford Þar opnaðist Jónasi nýr heimur og hefur lík- lega breytt viðhorfum hans og skoðunum meira en hægt er að gera sér grein fyrir í fljótu bragði. — Aðstæður voru líka að ýmsu leyti óvenjulegar þegar Jónas Jónsson stundaði nám við skóla' brezku verkalýðshreyfingarinnar. Forysta skólans hafði verið falin ungum og róttækum guðfræðingi. Hann var dáður af nemendum sín- um, en skoðanir hans ýmsar þóttu óhæfar í svo virðulegum og grón- um menntabæ sem Oxford var Því fór svo, að forstöðumaðurinn var hrakinn frá skólanum til að forða því að menntastofnunin yrði bann- færð í borginni. Þessu undu nem- endur illa Meðal beirra, sem mót- mæltu brottvikningunni með því að hverfa úr skólanum. var Jónas Jónsson. - En dvölin á John Rusk- ins skólanum og kynni af nemend- um hans og kennurum hafði marg- vísleg áhrif á skilning Jónasar Jónssonar á skólamálum og þjóð- félagsmál. Bar margt til þessa og verður um fátt getið Skólinn bar heiti sérstæðs menningarfrömuðar á Bretlandi. John Ruskin lagði á 7

x

Íslendingaþættir Tímans

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.