Íslendingaþættir Tímans - 18.10.1968, Page 10

Íslendingaþættir Tímans - 18.10.1968, Page 10
atriði. Það skiptir þó ekki mestu máli. Hitt er aðalatriðið, að fram komi, svo ljóst sem verða má, að Samvinnuskólinn sem menntastofn- un var Jónasi Jónssyni brennígler- ið, er safnaði hinum mijrgu geisl- um fræða og mennta. sem honum hafði á viðburðaríkri ævi auðnazt að greina. Hvergi hefur Jónas gef ið meira af sjálfum sér. fórnað hæfileikum og kröftum af meiri ósérhlífni en í kennslu og stjórn Samvinnuskólans uemendum hans til ómetanlegs gagns og ávinnings. Hvergi nefur Jónas heldur eignazt meiri ítök í hugum og hjörtum hinna ungu en innan veggja Sam- vinnuskólans, en þeir eru margir, sem áttu því láni að fagna að eiga hann þar að læriföður og hollráð- um samfylgdarmanni. Skólahugsjónin, sem Jónas Jóns- son kynnti í Samvinnuskólanum, vísar fram á vég Langur tími mun líða, þar til að fullu hefur verið unnið úr þeim efniviði En sam- vinnumönnum á íslandi er ljóst, að með því einu verða honum verðugar þakkir færðar fyrir merkt ævistarf í þeirra þágu, að haldið verði á lofti því merki. er hann hóf og fékk þeim í hendur. Sú minning mun aldrei glatast, að Jónas Jónsson var fyrstur til að kenna ungu fólki á íslandi fræði þjóðfélagsins og sögu sam- vinnunnar / Guðmundur Sveinsson, Bifröst. f Við lok hinnar eiginlegu sjálf- sfeeðisbaráttu íslendinga á öðrum áraíug þessarar aldar riðluðust þær fyikíngar, sem skapaðar voru á grundvelli ólíkrar afstöðu til sambands íslands og Danmenkur. Átök í þjóðmáiium snerust æ meir um markmið og beitingu mismun andi aðferða í hinni innlendu framfarasókn, þróun félagslegra hreyfinga og um sföðu alþýðu- stéttanna. Mótun hins nýja þjóð- máliagrundvallar og /’.ofnun flokkslegra samtaka í samræmi við hann voru verk tiltölulega fámenns hóps, sem með stjórn- miálastarfi sínu og orðræðum varð mestur örlagavaildur í íslendinga- sögiu tuttugustu aldar. Þjóðmtála- feriill þessara einstaklinga er eitt gleggsta dæmið um áhrifamátt ör- fárra manna með okkar smáu þjóð, ef saman fara hæfni, djörf- ung, einbeitni, starfsorka og djúp ur félagslegur skilniingur á vanda málum hverrar tíðar. Þótt saiga þeinra fjöldahreyf- inga og síjórnmálafiiokka, sem mótuðust á þessum'árum, sé marg sinmgiin og hundruð nafna eigí með réttu í hana að ritast, stend- ur þó einn maður framar öðrum og miá með réttu kallast faðir nútíma flokkaskipunar íslenzkrar. Jónas Jónsson frá Hrifiu var sem ungur maður hvetjandi og þátt- takandi jafnt í stofnun Framsókn arflokksins og Alþýðuflokksins og hann var höfundur bræðrasam- bands þessara flokka í þjóðmál- um um rúmlega tveggja áratuga skeið. Á því tímabi’li voru reist traustustu virkin í félagslegri ,að- stöðu almennings á íslandi, bæði til sjáv.ar og sveita, og þá var lagður grunnurinn að hinni víð- tæku framfarasókn á sviði efna- hags og mennta. Milli heimsstríðanna fór Jónas Jónsson í fararbroddi nýjar braut- ir og opnaði bæði einstaklingum og félagsheildum möguleika til aukins þroska. Engin íslending- ur á þessari öld hefur komið víð ar við sögu. Á blómaskeiði krafta sinna og hæfileika vann Jónas Jónsson íslenzkri alþýðu allt er hanm kunni með óeigingjörnu hugarfari sjálfboðaliðans. Fram- gjörnum en verklitlum valda- streitumönnum okkar tíma er hollt að hugleiða, hve sikamma hríð þessi áhrifaríki' umbótafrömuður sat ráðherrastól. Fimm ár Jónas- ar Jónssonar voru íslenzkri þjóð til lengdar raeira virði en ára- fjöld annarra. Við dánarbeð stórbrotinna Leið- toga duga fáein orð lítt til að vega þá og meta. Aðeins ítarleg könnun í ljósi margbrotinna gagna megnar að gefa fulla sýn yfiir at- hafnir þeirra og áhrif. Og næst þó líklega aldrei öll. Gagnvart slíkum máttarviðum í sögu þjóð- ar er hæpið að beita gyllingum. Afrekin eru svo ótvíræð að eng- inn greiði_ er að draga undan mistökin. Á kveðjustund ber hins vegar ávallt að þakka góðar gjörð- ir, en láta dóma um annað bíða síðari tíma. Un.gir menn, sem vilja vinna að framför þjóðar sinnar, geta til- einkað sér margt í félagslegu fari Jónasar Jónssonar frá Hríflu. Hann gaf fiordæmi uim ýmsar meginst.efnur og aðferðir, sem öðrum hefur veitzt erfitt að fylgja, þótt þær^ tvímælaiaust leiði til farsældar. Hér skal aðeinis gripið á þrennu. Enginn stjórnmálamaður —ís- lenzkur, að Jóni Sigurðssyni und- anskildum, hefur gert sér jafn mikið far og Jónas Jónsson, um að öðlast víðtækt og beint sam- band við fólk úr öllum byggðum landsins oig öllum starfsgreinum og afla sér þannig náinnar þekk- ingar á högum, vandamálum og viðhonfum fóiksins sjálfs. Tengsl Jónasar Jónssonar við íslenzka alþýðu voru milliliðalaus. Hann var persónulegur félagi þúsunda manna og dyr hans stóðu umyrða laust öllum opnar. Þar var enginn varnarmúr gervranna eða yfir- borðslegrar virðingarlöngunar. Starf Jians, líf hans, var að eigin dómi fyrst og fremst í þágu al- mennings í landinu og persónuleg forréttindi voru Jónasi fjarri skapi. Enginn hefur átt jafn rí(k- an þátt í að fiytja valdastóla nið- ur á jörðina og úr einöngruðum sölum út til fólksins sjálfls. Jónas vann öðru fremur að eflingu fé- lagsilegra samtaka alþýðu, bæði verkamanna í bæjum og bænda til sveita. Hann sá glöggt, að einungis félagslegur máttur megnaði að brjóta kiúgum á ba'k aftur og sifta hlektei þrælkunar. Víðiækur og frjálshuga samvinnu andi væri vænlegasta leiðin til bættra lífskjara. Ásamt efnahags- legum úrbótum yrði að tryggja jafnræði til menntunar og styrkja þátt almennings í hinmi menn- ingarlegu framför. í krafti þess- arar sannfæringar beitti Jónas sér fyrir byggingu ótrúlega margra skóla og menningarbú- staða, sem enn í dag eru aðal- sómi héraða um allt land og i höfuðstaðnum stolt þjóðarimnar. Honum var ljóst, að án andlegrar reisnar yrði litið úr íslending- um í samfélagi þjóðanna. Þannig óf Jónas Jónsson í traustan vef aukna og almenna men.ntun og félagislega sókn að bættumi efna- hag. Þá þættí, sem mikilvægastir eru fyrir áframhaldandi sjálf- stæði íslenzkrar þjóðar. Þegar ryðja þarf nýjar brautir, er ef til vill mestur vandinn að velja menn til ábyrgðar og for- ystu. Jónas Jónsson sýndi 1 reynd meir en nokkur annar ráða- maður, að hann treysti frekast ungum mönnum til slíkra verka. Bezt myndi duga að virkja áræði þeirra og óbrotinn baráttuvilja, ferskar hugmyndir og nýjar að- ferðir. Gömlum mönnum hætti um of til að fara troðnar slóðir. Staðnaðir þjóðfélagshættir krefð- ust róttækra breytinga. Hugsjóna ríkir og stjórnhæfir æskumenm væru líklegastir til að gera fjar- læga framtíðarsýn að nálægum veruleiika. Þegar Jónas Jónsson beitti sér fyrir framboðum korn- ungra manna og skipaði þá stjórn endur mennta- eða fjármálastofn ana, töldu margdr slákt þvilíkt ábyrgðarteysi að jaðraði við 10 ÍSLENDINGAÞÆTTIR

x

Íslendingaþættir Tímans

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.