Íslendingaþættir Tímans - 22.08.1973, Blaðsíða 8
Sextugur
Guðjón Einarsson
Laugabóli
Yzti hluti nessins milli Seyðisfjaröar
og Hestfjarðar lækkar til endans og
verða þar sléttar grundir og lág kletta-
holt. Heitir þetta svæði Folafótur og sú
byggö þurrabúðarmanna er þarna
myndaðist kölluð i Fætinum. Var sjór-
inn sóttur fast úr þessu plássi og var
aðal tekjulind þeirra er þarna áttu
heima.
I þessu byggöarlagi fæddist Guðjón
Einarsson þ. 9. ágúst 1913. Foreldrar
hans voru þau hjónin Einar Einarsson
og Elin Samúelsdóttir, er bjuggu i
Fætinum. Móðir hans, Elin var komin
af Hafliða á Borg i Skötufirði, en faðir
hans var sonur Einars Jónssonar, er
átti fyrir konu Jóninu dóttur Jóns
skálds Jónatanssonar, á Asmundar-
nesi.
Ekki ólst Guðjón upp hjá foreldrum
sinum, heldur á Hjöllum i Skötufirði
hjá hjónunum Guðbjarti og Ragnhildi
Halldórsdóttur, er þar bjuggu þá. Þau
fluttu að Efstadal og þar var hann um
hrið og siðan að Hjalla, litlu býli fyrir
ofan Hrafnabjörg. Að Laugabóli kom
hann 1931 og hefur verið þar siðan,
fyrst hjá Aðalsteini bónda Jónssyni og
k.h. Rebekku og siðan hjá Rögnu
dóttur þeirra, er þar býr nú.
öllum algengum störfum vandist
Guðjón i æsku og uppvexti, bæði þeim
er lutu að sjósókn þeirra tima og land-
búnaði. 1 ögurnesinu var útræði á
þessum timum og nokkur útgerðarstöð
og réri hann þar nokkrar vertiðir með
fósturbróður sinum Steini Guðbjarts
syni.
A Laugabóli hefur honum faliið vel
og unað hag sinum hið bezta. Þar
byggði hann hús yfir skepnur sinar,
sem hann vildi eiga sér, og vann fyrir
þeim fyrir utan hvað hann vann búinu
sjálfu. Hafa honum ætið fallið sveita-
störf vel og unnið að þeim með alúð og
samvizkusemi. Enda er Guðjón þann-
ig maður að öllum störfum hefði hann
sinnt af kostgæfni og natni. Hann er
einn allra siðasti fulltrúi þeirrar stétt-
ar manna, er áður voru kallaðir lausa-
menn, voru sjálfs sin ráðandi, en réðu
sig oft og tiðum til lengri eða skemmri
tima á heimili, sem svo varð þeirra
aðsetur með timanum, ef svo vildi
verkast. Heimilinu á Laugabóli ann
hann mjög og þar hefur honum liðið
vel, bæði við störf sin og þeirra utan.
Honum er Laugadalurinn kær, þetta
yndislega dalverpi, sem i sumarfegurð
sinni minnir einna helzt á ævintýri
þegar allt er kyrrt og náttúran þrungin
hljóðum unaði. Þar vill hann una alla
sina daga.
Sextugum óska ég þér i þessum fáu
orðum alls góðs með þökk fyrir góöa
viðkynningu. Megir þú enn um ókomin
ár njóta ánægju af lifi og starfi á
Laugabóli í friði og farsæld.
sr. Baidur Vilhelmsson
Vatnsfirði.
Yalmundur Björnsson
brúarsmiður
Fæddur 4. desember 1898
Dáinn 17.júli 1973.
Valmundur var fæddur i Svinadal i
Skaftártungu 4. desember árið 1898,
sonur Björns Eirikssonar og seinni
konu hans Vigdisar Sæmundsdóttur
frá Borgarfelli. Björn var sonur Eiriks
Jónssonar og Sigriðar Sveinsdóttur
Pálssonar læknis i Vik. Vigdis var
dóttir Sæmundar Jónssonar hrepp-
stjóra á Borgarfelli og Kristinar
Vigfúsdóttur Bótólfssonar hreppstjóra
á Flögu.
Mér eru þessi hjón sérstaklega
minnisstæð. Mér fannst þau sóma sér
vel saman. Björn, var léttleikamaður
mikill og fimur i hreyfingum, hesta-
maður með afbrigðum, og átti margan
góðan reiðhestinn. Mér verður hann
ógleymanlegur, þegar hann var setzt-
ur á bak Mósokkasinum, sem var hans
siðasti reiðhesturog ekki siður man ég
hann er hann stóð fyrir framan altarið
t Grafarkirkju og las kirkjubænina.
Framhald á 7. siðu.
8
íslendingaþættir